Dagur - 09.05.1935, Qupperneq 1
D AOUR
sernur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Arni Jóhauns-
son i Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XVIII
. ár. |
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÖR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 9. maí 1935,
19. tbl.
FimmtugsafmÉeli
jónasar Jónssonar.
Eins og frá var skýrt í síðasta
blaði átti Jónas Jónsson fyrrv.
ráðherra fimmtugsafmæli 1. þ. m.
Kom þá greinilega í ljós hversu
mikil og djúptæk ítök hann á
með þjóðinni.
Jónas Jónsson.
Þenna dag kom Tíminn út þre-
faldur að stærð, og rituðu í blað-
ið 48 menn, ýmist um Jónas Jóns-
son sjálfan eða einstök verk, sem
hann hefir átt upptök að og kom-
ið í framkvæmd, eða veitt mikils-
verðan stuðning. Er þetta afmæl-
isblað einstakt í sinni röð og mun
verða mjög eftirsótt, vegna þess
að það veitir sæmilega glöggt yf-
irlit yfir störf og skapgerð. hins
mikilvirkasta stjórnmálamanns
samtíðarinnar í þessu landi.
Höfundar greinanna í þessu af-
mælisblaði Tímans voru þeir er
hér greinir: '
Jón Sigurðsson, bóndi í Yztafelli.
Jónas Þorbergsson, útvarpsstjóri.
Hermann Jónasson, forsætisráðh.
Eysteinn Jónsson, fjármálaráðh.
Sigurður Kristinsson, forstjóri.
Þorleifur Jónsson, fyrrv. alþm.
Sveinn ölafsson, fyrrv. alþm.
Hallgrímur Jónasson, \kennari.
Kristinn Guðlaugss., bóndi á Núpi
Ingimar Eydal, ritstjóri,
Aðalsteinn Sigmundsson, sam-
bandsstjóri U. M. F. i.
Hervald Björnsson, skólastjóri.
Teitur Eyjólfsson, bóndi í Ey-
vindartungu.
Guðm. Thoroddsett, prófessor.
Stefán Jónsson, skólastjóri.
Gissur Bergsteinsson, lögfr.
Stefán Jónsson, bóndi Eyvindarst.
Halldór Kiljan Laxness.
Bjarni Bjarnason, skólastjóri.
Þorsteinn M. Jónsson, bóksali.
Pálmi Hannesson, rektor.
Guðm. Davíðsson, umsjónarm.
Gunnar Þórðarson, bóndi, Grænu-
mýrartungu.
Freysteinn Gunnarsson, skólastj.
Þórir Steinþórsson, bóndi, Reykh.
Halldór Ásgrímsson, kaupfél.stj.
Magnús Stefánsson, verzlunarm.
Kristinn Stefánsson, skólastjóri.
Ingimar Jónsson, skólastjóri.
Guðgeir Jóhannsson, kennari.
Sigurður Guðmundsson, skóla-
meistari.
Steingrímur Davíðsson, skólastj.
Sigurður Heiðdal.
Markús Torfason, bóndi, ólafsdal
Sigurður Thorlacius, skólastjóri.
Björn H. Jónsson, skólastjóri.
Skúli Guðmundsson, kaupfél.stj.
Jón Eyþórsson, veðurfræðingur.
Steingrímur Steinþórss., skólastj.
Ríkharður Jónsson, myndskeri.
Pálmi Loftsson, útgerðarstjóri.
Guðjón Samúelsson, húsameistari.
Hannes Jónsson, dýralæknir.
Karl Finnbogason, skólastjóri.
Jón Þórðarson, prentari.
Guðmundur Jónsson frá Hóli.
Bjami Ásgeirsson, alþingism.
Guðbrandur Magnússon forstjóri.
Þegar kom fram yfir hádegi
heimsóttu J. J. margir vinir hans
og samherjar í tilefni af afmæl-
inu. Ýmsar gjafir bái-ust honum
frá cirstaklingum og stofnunum.
Að kvöldi dagsins var J. J.
haldin sú fjölmennasta afmælis-
veizla að Hótel Borg, sem nokkr-
um einstakling hefir verið haldin
hér á landi. Voru það ekki ein-
ungis Reykvíkingar, sem veizlu
þessa sátu, heldur einnig margir
menn úr nærliggjandi sveitum,
sem eingöngu komu til að sitja
hóf þetta.
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra stýrði samkvæminu og
flutti aðalræðuna fyrir minni
heiðursgestsins; prófessor Sig-
urður Nordal mælti fyrir minni
frúar hans, en Guðbrandur Magn-
ússon forstjóri fyrir minni dætra
þeirra.
Þá bar Hermann Jónasson fram
þau tilmæli f umboði þeirra vina
og samstarfsmanna heiðursgests-
ins, sem beitzt höfðu fyrir fagn-
aði þessum, að Jónas Jónsson
heimiiaði að gert yrði brjóstlíkan
af honum, sem síðan yrði steypt
í málm og eftir hans dag yrði
eign Alþingis. En þeir og fjöl-
margir aðrir samherjar hefðu
þegar lagt fram fé, sem nægði í
þessu(skyni.
Þá talaði heiðursgesturinn sjálf-
ur í rúma klukkustund og þakk-
aði meðal annars vinsemd þá,
sem honum og fjölskyldu hans
hefði verið sýnd.
Indriði Þorkelsson skáld á Fjalli
flutti kvæði, er hann hafði ort til
J. J.
Síðan fluttu ýmsir ræður og
linnti eigi fyrr en borð voru upp
tekin að liðnu miðnætti, en úr
því var stiginn dans langt fram
á nótt.
Ileillaóskaskeyti höfðu J. J.
borizt svo mörg, að engin tiltök
voru að lesa þau upp í samkvæm-
inu. Þar á meðal voru skeyti frá
félögum Framsóknarmanna víðs-
vegar á landinu, Samb. ísl. sam-
vinnufélaga og fjölmörgum ein-
stökum samvinnufélögum, U. M.
F. í. og einstökum ungmennafé-
lögum, stjórnum búnaðarsam-
banda, íþróttasambandi íslands,
Bandalagi ísl. listamanna, skips-
höfnum, sjúklingum á hælum,
ýmsum hópum manna, t. d. bréf-
berunum í Reykjavík, hreppsbú-
um í Ljósavatnshreppi, fulltrúum
erlendra þjóða, ýmsum starfs-
mönnum ríkisins erlendis, svo
sem sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn, fulltrúa íslands í ísl.-
danska utanríkisráðuneytinu,
konungsritara, verzlunarerindrek-
anum í Suðurlöndum og ýmsum
mönnum erlendum, þar á meðal
dönsku fulltrúunum í lögjafnað-
arnefndinni. Alls voru heilla-
skeytin um 300 að tölu.
Mynd sú, er hér birtist af Jón-
asi Jónssyni, var ætlast til að
kæmi í síðasta blaði, en mynda-
mótið náði ekki hingað í tæka tíð.
Dúe Benediktsson fyrrv. lögreglu-
þjónn andaðist að heimili sínu hér í
hænum að kvöldi 4. þ. m., eftir langa
legu, 73 ára að aldri.
Dúe gegndi lögregluþjónsstarfi hér í
bænum í 30 ár og rækti það starf sitt,
eins og öll önnur, af alúð og trú-
mennsku.
Gufuskipiö »Snæfell« kom hingað
fyrir helgina fyretu ferð sína eftir við-
gerðina, hlaðið sementi,
Nýja-Bíó BS
Föstudags-, Laugardags- og
Sunnudagskvöld kl. 9.
Pað skeði um nótt...
Tal- og hljómmynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Clark Gable og Clauúette Colbert.
Úr biaðaummæium Berlingske Tid-
ende 27. *ept. 1934:
»í »Metropolc, >Colosseum< og
»Rialto< þar sem »Það skeði um
nótt< hefir verið sýnd undanfarið,
hefir sannast, að orðrómur sá, er
gekk um þessa mynd, hefir verið
sannur. — Að hún er ekki aðelns
ársins bezta gamanmynd, heldur
ein af fjörugustu og geðfelldustu
og frá hendi höfundar og leikstjóra
ein sniðugasta skemmtimyndin, sem
við höfum séð hér í í borgirnic.
Myndin var sýnd:
í New Vork 42 vikur.
í París 21 —
í Oslo 15 —
Sunniidaginn kl. 5. Alpýöusýning.
Barnavernd.
í síðasta sinn.
Pað tilkynnist, að dóttir okkar
og |ystir, Hulda Polly, andaðist að
Kristnesbæli 4. þ. m.
Jarðarför hennar er ákveðin að
Saurbæ miðvikudaginn 15. þ. m.
og hefst kl. 12 á hádegi.
Svanfilður Stetánsdóttir.
Stetán Johannesson.
Innilegt þakklæti fyrir auð-
sýnda samúð og virðingu allra
fjær og nær við andlát og
jarðarför Oddnýar Þorkelsdótt-
ur frá Syðra-Hvarfi.
Aðstandendur.
GEYSIR: Mætiö allir, félagar, í
kvöld kl. 8% í Skjaldborg.
Þóröu/r Gunnarsson frá Höfóa and-
aðist hér í bænnm í fyrradag. Hann
var nokkuð hniginn að aldri og jafnan
vel metinn maður og vinsæll.
Sýning á handavinnu skólabarnanna
er opin á svmnud. n. k. kl. 1—7 e. h.
Skólanum verður slitið 15. þ. m. kl. 2.