Dagur - 27.06.1935, Síða 1
DAGUR
itemur út á hverjum íimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanus-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVIII.
» > ♦ »
ár. j
Akureyri 27, júní 1935
26. tbl.
Hekla
endurborin í sambandi norð-
lenzkra karlakóra hjelt fyrsta
söngmót sitt í Nýja-Bíó 23. þ. m.,
fyrir húsfylli og við ágætar við-
tökur. Svo sem blöðin hafa áður
frá skýrt, er félag þetta stofnað
á síðasta vetri til minningar um
Magnús Einarsson söngkennara,
sem, eins og kunnugt er, var að-
sópsmestur kórsöngsfrömuður um
langt skeið hér í Norðlendinga-
fjórðungi, og má hiklaust telja
hann einn af merkustu braut-
ryðjendum þjóðarinnar á þeim
sviðum. Samband þetta ber nafn
söngfélags þess, sem Magnús
stofnaði og stjórnaði.
Fór söngmótið fram undir fána
þeim hinum dýrmæta og glæsi-
lega, sem Norðmenn gáfu Heklu
er hún sótti þá heim árið 1905.
Er fáninn nú í eign þessa félags.
Fjögur söngfélög tóku þátt í
mótinu að þessu sinni. Voru það
Karlakór Akureyrar, karlakórinn
Geysir, Karlakór Mývatnssveitar
og karlakórinn Þrymur af Húsa-
vík. Karlakór Reykdæla, sem og
er í sambandi þessu, gat ekki
tekið þátt í mótinu sökum fjar-
veru söngstjóra.
Mótið setti varaformaður Gísli
E. Magnússon með stuttu ávarpi.
Síðan söng hvert félag fjögur lög,
-svo allir saman sitt lagið undir
stjórn hvers söngstjóra. Söngmót
þetta fór hið bezta fram, og var
hið ánægjulegasta.
Það mun ekki teljast viðeig-
andi að rita um hvert félaga þess-
ara út af fyrir sig. Söngur þeirra
var að vísu misgóður og raddir
misjafnar. Gætti þess þó undar-
lega lítið er allir fóru í einn hóp,
og mátti telja að flokkur þessi,
er kominn var undir eins manns
stjóim,. félli merkilega vel saman.
Sannaðist þar, sem auðvitað er
enginn leyndardómur, að fátt
mun betur fallið til sameiningar
á sundurleitum kröftum en söng-
urinn.
Það er full ástæða til að óska
þessu félagi langra lífdaga, og
enginn efi á, að vegur þess mun
vaxa með ári hverju, því ekki er
hægt annað að segja, en að mjög
myndarlega sé af stað farið.
Ingimcur Eydal ritstjóri lagði af stað
til Reykjavíkur s. 1. sunnudag, til að'
sitja aðalfund S. í. S., ásamt fleiri
fulltruum héðan að norðan. Vilhjálm-
ur Þór framkvœmdastjóri fór á þriðju-
dagsmorgurt í sömu eriodagerðum.
Karlakór
K. F. U. M.
frá Reykjavík, undir stjórn Jóns
Halldórssonar, kemur hingað til
bæjarins næstkomandi föstudag,
kl. 8 árdegis. Mun hann halda hér
söngskemmtun þann dag kl. 9 síð-
degis og aðra daginn eftir kl. 6 ]/2
síðdegis. Einsöngvarar eru Einar
Sigurðsson -og Garðar prestur
Þorsteinsson, sem báðir eru vin-
sælir og þekktir söngvarar af út-
varpssöng sínum.
Karlakór K. F. U. M. er elztur
söngflokkur hér á landi. Mun
starfað hafa samfleytt nálægt 20
árum undir stórn sama manns,
Jóns Halldórssonar, fyrv. ríkisfé-
hirðis, sem er áhugasamur og
vandvirkur söngstjórnandi með
afbrigðum. Er flokkurinn orðinn
mjög vel samsunginn, og nýtur
hinnar mestu íhylli höfuðstaðarbúa.
Fyrir nokkrum árum fór flokk-
urinn til Noregs, og söng þar á
ýmsum stöðum við ágæta frammi-
stöðu og vakti þar á sér mikla
athygli. Til Kaupmannahafnar
fór flokkurinn og fyrir fáum ár-
um, sem gestur danska kórsins
Bel Canto, og tók þátt í sönghá-
tíðahöldum, ásamt með færustu
kórum Norðurlanda, í tilefni af
25 ára starfsafmæli heimbjóð-
enda, og gat sér þar hinn bezta
orðstír.
Væntanlega verður þessari á-
gætu heimsókn vel tekið af bæjar-
og héraðsbúum.
Siórslújdipiiigið.
Þing Stórstúku íslands af al-
þjóðareglu Goodtemplara verður
að þessu sinni háð hér í bænum,
og hefst það í dag (fimmtudag)
með guðsþjónustu í kirkjunni, kl.
5 síðd. Templarar safnast saman
í Skjaldborg kl. hálf-fimm. Verð-
ur gengið þaðan í kirkju. Síra
Friðrik A. Friðriksson frá Húsa-
vík prédikar. Úr kirkjunni verð-
ur svo gengið út í Templarahúsið
Skjaldborg, og verður þá Stór-
stúkuþingið sett. Stendur það svo
yfir næstu daga. Jafnframt verð-
ur haldið Unglingaregluþing, og
stjórnar Steindór Björnsson stór-
gæzlumaður ungtemplara því. -—
Núverandi formaður Reglunnar á
íslandi er Friðrik Á. Brekkan
(stórtemplar), rithöfundur, Akur-
eyringum að góðu kunnur. Um-
boðsmaðul' Alþjóða-hátemplars er
Brynleifur Tobiassoii mennta-
skólakennari.
Það er í fjórða skipti, sem
Stórstúkuþing er háð hér í bæn-
um (1907, 1924, 1928 og 1935).
Meðal embættismanna og full-
trúa, sem hingar koma á Stór-
stúkuþing, má nefna: Friðrik
Bi'ekkan, Jón Bergsveinsson, Jó-
hann ögmund Oddsson, Steindór
Björnsson, Felix Guðmundsson,
Einar Bjömsson, Helga Helgason,
Pétur G. Guðmundsson, Pétur
Zophoníasson, og af ísafirði þá
Árna Gíslason og Vigfús Ingvars-
son. Ef til vill koma þeir Jakob
Möller, Valdimar Snævarr, Þórð-
ur Bjarnason og Sigurgeir Gísla-
son.
Það er í ráði, að útbreiðslu-
fundur verði haldinn hér, meðan
Stórstúkuþing stendur yfir, og
verða aðkomumenn þá ræðumenn.
Þess er að vænta, að Akureyr-
ingar sýni Stórstúkunni þann
virðingarvott og vinsemdar að
flagga þann dag, sem þingið verð-
ur sett. Allir eru velkomnir i
kirkju, meðan rúm endist.
Templarar í bænum og grennd-
inni æ.ttu að nota tækifærið að
sitja þingið, eftir því sem hentug-
leikar þeirra leyfa. Gera' má ráð
fyrir, að flestir fundir þingsins
verði haldnir á 1. stigi.
Við bjóðum Stórstúkuna VEL-
KOMNA hingað til Akureyrar.
Blessist störf hennar, til hag-
sældar landi og lýð!
Syndir annara.
Það má teljast viðburður, þeg-
ar úrvalsleikarai- úr höfuðstaðn-
um koma hingað, til þess að sýna
Akureyrarbúum listir sínar. Þetta
hefir nú skeð. Eins og skýrt var
frá í síðasta blaði, sýndi leik-
flokkur úr Reykjavík »Syndir
annara« hér, og var leiknrinn
sýndur í þrjú kvöld, við ágæta
aðsókn, þegar tekið er tillit til
þess á hvaða tíma árs sýningin
fór fram. í leik þessum munu
fram hafa komið allir beztu
kraftar hins nýja leikfélags, und-
ir stjórn frú Soffíu Guðlaugsdótt-
ur og Haralds Björnssonar. Að-
alþungamiðja leiksins er barátta
Nýja-Bíó
Fimmtudagskvöld kl. 9:
GULL
þýzk talmynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Hans Albers og
Brig'ette Helm.
Spennandi og æfintýrarík mynd um
tilbúning gulls. Tekin af Ufa.
milli tveggja afla eða stefna.
önnur stefnan vill kaupa glæsi-
lega yfirborðsmenningu fyrir
verðmæti, sem standa í órjúfan-
legu sambandi við viðkvæmustu
hjartataugar og dýpstu þjóðern-
istilfinningar íslendinga. Hin
stefnan telur það svívirðingu að
selja sál þjóðarinnar fyrir pen-
inga. Grímur lögfræðingur er
fulltrúi hinnar fyrmefndu stefnu,
Þorgeir ritstjóri hinnar síðar-
töldu. Inn í þessa baráttu er svo
ofinn þáttur úr einkalífi ritstjór-
ans, sem er honum afar viðkvæm-
ur. Allt er þetta dregið fram af
mikilli list af höfundi leiksins.
Um meðferð leikendanna á
hlutverkum þeirra er það að
segja, að hún var í alla staði
prýðileg, og kemur þar þá eink-
um til greina leikmeðferð þeirra
þriggja, er höfðu aðalhlutverkin
með höndum, því hún bar mjög
af því er hinir leikendurnir lögðu
fram leiknum til styi'ktai'.
Haraldur Björasson lék Grím,
yfirdómslögmann, af mestu snilld.
Var framkoma þessa geðríka at-
orkumanns vel stillt í hóf frá
leikandans hálfu, svo pei’sónan
varð sannari og eðlilegri fyrir
þá sök. Hin langa ox’ðasenna
Gríms og ritstjórans, í öðrum
þætti, sem mikill vandi er að
fara með, tókst afbragðsvel. Að-
eins ma geta þess, að H. B. var
um of hraðmæltur síðasta kvöldið
sem leikið var.
Þorgeir ritstjóra lék Gestur
Pálsson. Hlutvei-kið er all-vanda-
samt meðferðar og vei’ðru að leik-
ast vel, sem og tókst að þessu
(Framh. á 4. síðu).
Karlakér K. F. U. M. Rí||(jjyj|(
hcldur samsöng í Nýja>Bíó föstudaginn 28.
þ.n». kl.;9 e.h. og laugardaginn 29. ki. 6>/2 e.h.
SJá götuauglýsingar, -