Dagur - 27.06.1935, Page 4
116
DAGUR
26. tbl.
I. O. G. T.
I.O.G.T. Rafveita Akureyrar.
StðrstAknþingboO.
Paö kunngerist, að þrítugasta og fimmta þing Stórstúku íslands
af I. O. O. T. verður sett á Akureyri Fimtudaginn 27. Júní 1935, að af
lokinni guðsþjónustu í Akureyrarkirkju.
Kl. 4,30 e. h. hittast þingfulltrúar og þinggestir í samkomuhúsinu
•Skjaldborg* og ganga þaðan í skrúðfylkingu inn í kirkju og hlýða
messu. Síra Friðrik A, Friðriksson prédikar. Úr kirkju verður aftur gengið
í skrúðfylkingu út að »Skjaldborgc og þingið sett. — Stórstúkustigið
verður veitt í þingbyrjun. —
Stórritari verður til viðtals í »stúkustofunni» í »Skjaldborg« kl. 11—12
f, h. þingsetningardaginn. — Ber fulltrúum og stigbeiðendum að skila
þangað kjörbréfum og meðmælum. —
í trú, von og kærleika.
Reykjavík 24. Júní 1935.
fóhann Ög:n. Oddsson.
stórritari.
I.O.G.T. LO.G.T.
(Framh. af 1. síðu).
sinni. Gestur sýndi óvenju vel
þenna yfirlætislausa en stefnu-
l'asta mann. Var allur leikur hans
sléttur, en þó þróttmikill í við-
skiptum hans vió lögmanninn.
Persónugerfi var ágætt. Frú
Soffía Guðlaugsdóttir lék frú
Guðrúnu, hina góðu og göfugu
konu Þorgeirs, af list og djúpum
skilningi, og bezt þar sem mest á
reyndi, svo sém í þriðja þætti,
þar sem henni finnst hamingjusól
sín vera að ganga til viðar; var
leikur frú Soffíu þar svo sannur
og átakanlegur, að flestir áhorf-
endur munu hafa fundið til með
konu þessari.
Sumum öðrum af leikendunum
tókst vel og engum illa með verk-
efni sín, verður að öðru leyti ekki
i'rekar gerð grein fyrir meðferð
þeirra hér.
Áhorfendur voru yfirleitt mjög
hrifnir af leiksýningunni, sem og
var að verðleikum, því óhætt má
telja hana með því allra bezta,
sem sýnt hefir verið hér á leik-
sviði til margra ára. Hafi leik-
endur beztu þökk fyrir komuna.
H. V.
Það voru háværar raddir um
það, að of snemmt væri að halda
heim strax, heldur dvelja einn
dag á Héraði enn, og vissulega
hefði það verið ánægjulegt, en á-
stæðurnar leyfðu það nú ekki.
Veður var enn hið sama, sólskin
og blíðviðri. Það er því áreiðan-
lega fögur mynd sem unga fólk-
ið geymir í huga sér af Fljóts-
dalshéraði, þótt hún hefði mátt
vera nokkru ský'rari. Segir nú lít-
ið af ferðum okkar þennan dag,
sem var nokkuð erfiður, því för-
inni var heitið norður að Skinna-
stað í Axarfirði. En þótt haldið
væri áfram viðstöðulítið var þó
nóg um tilbreytni og aðalfræðsl-
an fór þennan dag fram, sem
aðra daga, í bifreiðunum. Rúman
klukkutíma var dvalið í Möðru-
dal, en síðan haldið áfram norð-
ur að Skinnastað og komum við
þangað kl. 11 um kveldið, og sá
ég þá í fyrsta skipti þreytu á
fevðafólkinu. Annars vil ég segja
það, að ég dáðist að dugnaði
barnanna á þessu ferðalagi,
stundvísi og vaskleika. Og vegna
þessara ágætu eiginleika var allt-
af hægt að fylgja áætlun. Og ekki
heföi ég fyrir mitt leyti viljað
skipta é því, að eiga að stjórna
60-—70 fullorðnum mönnum á
þessu langa ferðalagi.
Á Skinnastað var okkur, eins
og alls staðar annarstaðar tekið
með hinni mestu alúð og gestrisni
af húsbændunum, síra Páli Þor-
leifssym og frú hans. Það er ekki
heiglum hent á einu sveitaheim-
ili, aö hýsa 70 rnanns, en þó fór
svo, að þarna mötuðust allir, og
allir komust fyrir til svefns. Um
morguninin þurftum við í fyrsta
skipti að vekja unga fólkið, og
sagðist það aldrei hafa sofið eins
vel eins og þessa nótt, en þreytan
mun nú hafa átt sinn þátt í því,
en þó ekki síður það mikla erfiði,
sem prestshjónin voru búin að
leggja í það að láta öllum líða
sem bezt.
Eftir þessa endurnærandi hvíld
var svo lagt af stað kl. 9 að
morgni þess 20. og næsti áfang-
inn var Ásbyrgi, því þangað gát-
um við ekki komið í austurleið.
Hafi mest tilhlökkun barnanna
verið bundin við Hallormsstaða-
skóg, má óhætt fullyrða, að Ás-'
byrgi hafi verið annað i röðinni,
þetta meistaraverk náttúrunnar,
sem . sameinar svo aðdáanlega
bæði tign og fegurð, að ósjálfrátt
verður maður snortinn af þeirri
tilfinningu að vera staddur á
helgum stað. Þessi stórfenglega
hamraborg fyllir hugann lotningu
og tilbeiðslu, og stóri bergfaðm-
urinn, sem umlykur ‘ Byrgið
gróðri vafið, boðar manni öryggi,
hvíld og frið. Börnin urðu hrifin
af fegurð og tign þessa staðar, og
við hefðum vafalaust öll viljað
dvelja þarna heilan dag, en við
höfðum ákveðið að komast heim
um kvöldið og þeirri áætlun urð-
um við að fylgja, og með söknuði
og lotningu kvöddum við þennan
fagra stað og héldum viðstöðulítið
til Húsavíkur. Þar var hópnum
leyft að dreifa sér um bæinn, en
ákveðið áður að fara eftir 1 kl.st.,
og sem dæmi upp á stundvísi
barnanna er vept að geta þess, að
Tilkynnin
Vegna aðgerðar á rafveítukerfinu verður straumlaust milli kl. 12 á
miönætti til kl. 6 f. h. frá Mánudegi 24. þ.m. til Sunnudags 30. þ. m. —
Akureyri þann 21, ]úní 1935.
Rafveita Akureyrar.
Dráttarvextir
falla á fyrri hluta útsvara í Akureyrarkaupstað, fyrir árið 1935, ef eigi eru
greidd fyrir l.Júlí næstkomandi. — Dráttarvextirnir eru \% á mánuði og
reiknast frá 1. Maí slðastl.
Bæjargjaldkerinn á Akureyri, 21. Júní 1935.
Friðrik Magnússon.
Samkoma.
U. M. F. Bjarmft í Fnjóskadal gengst fyrir samkomu
í Vaglaskógi sunnudaginn 30. júní næst komandi, sem hefst kl.
12 á hádegi.
Þar verður:
1. Predlkun (sr. Friðrik Friðriksson Húsavík)
2. Fyrirlestur (sr. Benjamín Kristjánsson Tjörnum)
3. Söngur (einn eða fleiri kórar)
4. Upplestur (Sigfús Elíasson Akureyri)
5. D A N S.
Merki verða seld á staðnum og kosta kr 1.50.
Veitingasala fer fram á staðnum
NEFNDIN.
eftir klukkutíma og tíu mínútur
voru bifreiðarnar komnar af stað,
og þó áttu margir þarna góða
kunningja. Ég efast um að þetta
hcfði verið hægt, cf þarna hefði
verið fullorðið fólk á ferð.
Og nú var eftir síðasti áfang-
inn.
Á leiðinni ýar numið staðar í
Aðaldalshrauni og Gálgahrauni,
og síðast við Goðafoss, og kl.
10 /2 um kvöldið námu bifreið-
arnar staðar við barnaskólann, og
énn heyrðist söngur, hlátrar og
gamanyrði. Þessi för var á enda,
lengsta námsferðin og fjölmenn-
asta sem farin hefir verið. Vafa-
laust hafa einhverjir verið þi’eytt-
ir, en auðugri miklu af minning-
um, víðsýni og með ofurlítið
dýpri skilning á landi sínu og
þjóð. Og það sem öllum mun
verða minnisstæðast úr förinni er
þetta tvennt: Fegurð landsins og
gestrisni og alúð fólksins er land-
ið byggir, og tel ég þá vel farið,
ef námsferðirnar eiga einhvern
þátt í því, að kenna hinni uppvax-
andi æsku að elska og meta land
sitt og þjóð. Við eigum nóg af
tortryggni og úlfúð, en ekki nóg
af gagnkvæmu trausti og samúð.
En hvernig komu svo börnin
fram? munu vafalaust einhverjir
spyrja. Ég verð að segja, að þau
urðu allstaðar bæ sínum og heim-
ilum til sóma, og að ferðalokum
á ég ekkert nema ánægjulegar
minningar um för þessa, og þar
ciga börnin sinn ríka þátt í.
Innileg þökk til allra, er stuöl-
uðu að því á einhvern hátt, að
námsferð þessi tókst svo giftu-
samlega.
Hannes J. Magnússon.
Tapast
hefir frá Víðidal á Fjöll-
um brún hryssa 8 vetra
gömul, stygg, óaffext og
ójárnuð. Sá sem kynni
að verða var við hryssu
þessa er beðinn að gjöra
Landss.stöðinni á Gríms-
stöðum viðvart.
með banna ég öllum,
sem ekki hafa fengið leyfi, alla
veiði fyrir Staðatungulandí og
alla berjatöku í Staðatunguhálsi.
Friðbjörn Björnsson.
Til Sviþjóðar.
Farmiði til Gautaborgar til
sölu fyrir tækifærisverð. Upp-
lýsingar hjá ritstjóra »Dags«.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiöja Odds Björnssonar.