Dagur - 01.08.1935, Page 4
136
DAGUR
31. tbl.
Verið einhuga um að Iíftryggja yður
hjá eina innlenda líftryggingarfélaginu.
LÍFTRYOGINGARDEILD
Sjóvátryggingarfélagsíslandshf.
Umboð á Akureyri hefir: Kaupfélag Eyfirðinga.
Sérstaka athygli get ég að veki
veí'naður Ernu Ryel, hann cr bæði
snyrtilegur og’ þjóðlegur. Krist-
ján Sigurðsson sýnir vefstól og
spunavél,, hvort tveggja hina at-
hyglisverðustu hluti. Geir Þormar
sýnir stól í fornum stíl, mjög
skorinn og merkilegan grip. —
Þá er á sýningunni mikill fjöldi
ijósmynda frá Vigfúsi Sigurgeirs-
syni og Jóni og Vigfúsi.
Þar eru einnig merkileg mál-
verk eftir lngvar Hauk. Þar á
meðal hin ágæta mynd hans af
Snorx*a Sturlusyni. Væri ástæða
til að skrifa ítarlegar um rnyndir
Hauks en hér er gert, og af þeirn,
er skyn ber á málaralist.
Hér hefir aðeíns verið drepið á
nokkur sérstök atriði, en þó nægi-
lega mörg til að sýna, að hér er
um merkilega og alvarlega til-
raun að ræða, til að sýna hvað
hér er hugsað og starfað í íðnað-
argreinum.
Sýningin hefir staðið síðan 16.
júní s. i.,, en aðsókn að henni hef-
ir ekki verið sú, sem vænta rnátti.
Hefir almenningur á Akureyri
veiúð fremur tómlátur í þessu
efni og virðist naumast hafa full-
an skilning á þýðingu sýningar-
innar. Er það því eínkennílegra,
þar sem vitað er, að yfirstand-
andi tirni er hinn aivarlegasti í
atvinnulííi bæjarins.
Það mun nú flestum ljóst, að
sjávarútvegurinn og sú atvinna,
er hann hefir skapað, er nú að
fjara út héðan og hverfa til ann-
ara staða.
Sjávarútvegurinn kemur aldrei
aftur til Akureyrar í þeirri mynd
er áður var, en skarðið stendur
eftir opið og ófylit.
Ekkert getur fyllt þetta skarð,
nema iðnaður, og þá vitanlega
eins fjölþættur og framast er
unnt. Það leiðir því af sjálfu sér,
að athygli þeirra, er hafa velferð-
arrnál bæjarins með höndum og
um leið alií’a einstaklinga bæjar-
félagsins, verður að beinast með
fullum alvöruþunga í þá átt, er
»Iðnsýning Akureyx-ar« vísar 'tíl,
en það er til iðwiðwr í stærri og
smærri stíl.
Aldi’ei hefir þörfin til fram-
kvæmda á því sviði verið jafn
Höfum til
fjallagrðs
, Nýlenduvörudeild.
ÍBÚÐ.
Pægileg íbúð, 2—3 stof-
ur og eldhús, óskast
til leigu 1. okt.
Ritstjóri vísar á. —
Citronur
eru nú komnar
aftur mjög stór-
ar og góðar.
Nýlenduvörudeildin.
brýn og nú, en hitt er einnig satt,
að erfiðleikar til framkvæmda
eru margvíslegir, en einbeiting og
samvinna í þágu þessa máls
mundi án efa skapa nýtt farsæld-
ar-tímabil í sögu Akureyrar.
Ef vel væri, þyrfti að stofna til
iönsýningar á hverju ári, og allir
að taka höndum saman um að
gex*a hana sem fjölbreyttasta. Til-
gangur sýningar er ekki sá, að
sýna »listaverk« í iðnaði, heldur
nauðsynlega, nothæfa vöru, sem
skapi atvinnu og afkomumögu-
leika í þjóðfélaginu.
F. H. B.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Frá happdrættinu:
Endurnýjun til 6. flokks á að vera lokið 3. ágúst. Eftir
þann tíma og til dráttar er eignarréttur fallinn á miðunum.
BúilS er að draga út 1300 vinninga fyrir kr. 252.000. -
Kflis* er að draga út 3700 vinninga fyrir kr. 798-000 —
Þar áf: 1 vinning á 50 þúsund, 2 vinninga á 25 þúsund,
3 vinninga á 20 þúsund o, s. frv. — F*að er því sýnilegt:
að óhyggilegt er að endurnýja ekki, og að enn er mjög
gróðavænlegt að kaupa nýja raiða. ....... .—
Muuið að endurnýfa!
Kaupið nýja uiiða!
Þér, sera gátuð ekki endurnýjað í s. fl., getið nú endurnýjað þá miða gegn
/AII lb. greiðslu fyrir báða flokka og kr. i oo að auki.
Tilkynning.
Síldarútvegsnefnd hefir ákveðið Iágmarksverð á fersksíld til
matjessöltunar kr. 8,00 fyrir uppsaltaða tunnu.
Ennfremur hefir nefndin ákveðið veiðileyfi til matjessöltunar
750 tunnur uppsaltaðar á bryggju á hvert herpinótarskip eða báta-
félag, sein sótt hefir um veiðileyfi til söltunar, þó að þeim skip-
um undanskildum, sem selt hafa veiði sína í bræðslu til 20. Ágúst
og að undanskildum togurum, sem leggja upp síld í eigin bræðslur.
Jafnframt aðvarast skip og bátafélög um, að svo framarlega,
sem matjessíldarsöltun verður ekki framkvæmd jafnhliða annari
söltun, með hæfilegum hraða eftir að almenn söltun byrjar, geta
þeir sem verða aftur úr með söltun, búist við að matjessíldarleyfi
þeirra verði afturkallað, og jafnað niður til annara skipa.
í framhaldi af áður útgefinni tilkynningu Síldarútvegsnefndar
um aðvörun til skipa og bátafélaga, að selja ekki fyrirfram
meira en 2000 tunnur síldar til söltunar, áskilur nefndin sér rétt
til að stöðva söltun hjá skipum, þegar þau hafa saltað 2500
tunnur, þar í meðtaldar 750 tunnur matjessíldar. —
Viðkomandi söltun á matjessíld, leiðir nefndin athygli salt-
enda að því, að einungis fyrsta flokks vara, vel verkuð, verður
tekin til útflutnings.
Siglufirði 23. Júlí 1935.
Síldarútvegsnefnd.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.