Dagur - 22.08.1935, Qupperneq 1
DAGUR
£emur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Arni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlS.
XVIII. ár
Afgreiðsian
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
NorðurgötuS. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akurcyíi 22. ágúst 1935
34. tbl.
Skáldkonan vesiur-íslenzka skemmtír
Akurevringum nel upplestri kvæða sinna.
Þegar minnzt er á vestur-ís-
lenzku skáldkonuna, vita allir aö
átt er við frú Jakobínu Johnson.
Svo þekkt er hún orðin sem
skáld bæði vestan hafs og austan.
Frú Jakobína hefir dvalið nú
um hríð á æskustöðvum sínum í
Þingeyjarsýslu, og hafa sveitung-
ar hennar þar tekið henni með
opnum örmum gestrisninnar.
Einnig hefir hún ferðast til Aust-
urlands.
Skáldkonan kom hingað til Ak-
ureyrar laust fyrir síðustu helgi
og las upp úr kvæðum sínum í
Samkomuhúsinu á laugardags-
kvöldið; var þeim upplestri tekið
með miklum fögnuði áheyrenda
sem verðugt var, því þar fór
saman aðlaðandi skáldskapur og
prýðileg meðferð eða framsaga.
Áður en skáldkonan hóf upp-
lestur sinn, bauð Brynleifur To-
biasson menntaskólakennari hana
velkomna með nokkrum orðum,
en Friðgeir Berg kynnti hana síð-
an nánar í alllangri ræðu og
minntist nokkuð á skáldskap
hennar.
Að kvæðaupplestrinum loknum
ílutti Konráð Vilhjálmsson kenn-
ari skáldkonunni kvæði, er hann
var höfundur að, og birtist það
á öðrum stað hér í blaðinu.
Viöstaddir munu hafa verið
hátt á annað hundrað manns og
hefði mátt betur vera; var tvö-
föld ástæða til að Akureyringar
hefðu fyllt húsið að þessu sinni,
fyrst til virðingar skáldkonunni
og í annan stað til verðugrar
minningar hins ástkæra skáids,
Matthíasar Jochumssonar. — Á-
góðinn rann til væntanlegrar
Matthíasarbókhlöðu bæjarins.
Að lokum var skáldkonunni
haldið kaffisamsæti í bæjarþing-
salnum; tóku allmargir þátt í
því; fluttu þar ýmsir ræður, og
Friðgeir Berg flutti kvæði, er
hann hafði ort.
i kaffisamsætinu tók skáldkon-
an oft til máls og ílutti kveðjur
vestan um haf.
Á sunnudaginn fóru milli 20 og
30 kvenfélagskonur skemmtiför
með frú Jakobínu út að Völlum i
Svarfaðardai. Voru viðtökur þar
með ágætum. Hafði frúin sér-
staka ánægju af að koma í Svarf-
aðardal, meðal annars vegna þess
að hún er þaulkunnug fornsögum
þeim, sem bundnar eru við það
hérað.
Skáldkonan hélt áleiðis tii
Reykjavíkur í morgun.
Hafi hún heila þökk fyrir komu
sína til Noröuriands og ekki sízt
íyrir að heimsækja Akureyri.
Árnaðaróskir Norðiendinga
fylgja henni vestur um haf.
Samvínnu-
mál.
Þróun samvlnnu-
hreyfíng'arinnar.
Samvinnusambönd í Danmörku,
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Is-
landi hafa á síðastliðnu ári aukið
stórkostlega umsetningu sína, eða
sem hér segir:
Umsetn. Aukning frá
- í milj. 1933
Danmörk 273.0 * 26.0 milj.
Finnland 143.5 12.9 —
Noregur 36.03 3.16 —
. Svíþjóð 377.1 24.44 —
ísland 13.4 1.8 —
Porsteini M. Jónssyni fagnað (imintupoi.
Þorsteinn M. Jónsson bókaút-
;efandi og óðalsbóndi á Svalbarði
tti fimmtugsafmæli 20. þ. m. Að
:völdi þess dags héldu nokkrir
inir hans og kunnmgjar honum
g konu hans, frú Sigurjónu Jak-
bsdóttur, fagnaðarsamsæti i
amkomuhúsinu Skjaldborg, og
óku um 40 manns þátt í því.
ikemmtu menn sér lengi og vei
■ið fagnað í mat og drykk, ræðu-
iöld, söng og samræður. Aðalræð-
na fyrir minni afmælisbarnsins
lutti Sigurður Eggerz bæjarfó-
;eti, en Brynleifur Tobiasson
:ennari mælti fyrir miimi frúar
ians. Auk þess fluttu ræður Ingi-
nar Eydal, Jóhannes Laxdal
Lreppstjóri í Tungu, Jón Sigurðs-
on kennari í Reykjavík, Kristján
Sigurðsson kennari og Bjarni
Jónsson bankastjóri. Afmælis-
barnið tók og til máls og þakkaði
fyrir þann heiður, er sér og konu
sinni hefði verið sýndur.
Mörg heillasókaskeyti bárust
þeim Svalbarðshjónum viö þetta
tækifæri. Kom það skýrt í ljós,
sem vitað var áður, að Þorsteinn
M. ' Jónsson á afarmiklum vin-
sældum að fagna meðal allra
stétta og flokka, ekki sízt sem
bókaútgefandi og þó einkum sem
maður.
Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnari
frá Eyvindará andaðist fyrir skömmu
á Elliheimilinu í Reykjavík. Hann mun
hafa verið fullt áttrœðui; að aldri.
Nýja-Bíó
sýnir fimmtudaginn 22. p. m. kl. 9:
Tom Mix
konungur allra Cowboy-
kappa í aðalhlutverkinu.
Bönnuð fyrir börn.
Meðhmatala samvinnufélag-
anna eykst árlega á Norðurlönd-
um. i svensku samvmnuíélögin
gengu árið 1934 16832 nýir með-
lirnir, og eru þeir nú rúmlega 550
þúsund talsins. Eru því um 2
milj. 200 þús. manns, eða rúm-
lega 1/3 hluti þjóðarinnar, á
framfærslu samvinnumanna, ef
gengið er út frá því, að meðaltal
fjölskyldumeðlima sé 4.
Á íslandi eru um 8500 meðlim-
ir í samvinnufélögum, og sé geng-
ið út frá sömu hlutföllum um
meðaltal sifjaliðs samvinnu-
manna hér eins og í Svíþjóð, er
því nær þriðjungur allra íslend-
inga á framfærzlu meðlima ís-
lenzku samvinnufélaganna.
Samvinnuhreyfingin er straum-
ur nýrra tíma, þar sem neytendur
sameina orku sína um að geta
sjálfir haft með höndum fram-
kvæmdir og stjórn þess skipulags,
er heppilegast reynist til að flytja
nauðsynjavörur frá framleiðslu-
fyrirtækjum til neytendanna, þar
sem allur ágóði af viöskiptunum,
annar en sá, er rennur 'tn mynd-
unar nauðsynlegra tryggingar-
sjóða og til greiðslu nauðsynlegs
kostnaðar við starfræksiu sam-
vinnufélaganna — skiptist í réttu
hlutfalli til meðlimanna sjálfra.
Það er eftirtektarvert, að sam-
vinnuhreyfingin hefst um líkt
leyti og ný menning — vélaiðnað-
armenningin — fer að ryðja sér
til rúms, og að vagga þessarar
verzlunarstefnu stóð í því sama
landi (Bretlandi), sem vélamenn-
mgin átti mestan framgang. Síð-
an hefir hreyfingin farið fram
hröðum skrefum og á nú mikil
ítök í öllum hfiimsálfum.
Það hafa verið bomar fram
ýmsar umbótahugmyndir, sem
hafa átt skamman aldur, ^og ýms-
ar félagslegar hreyfingar hafa
myndazt, sem farið hafa sömu
leið, en stöðug þróun samvinnu-
hreyfingarinnar áratug eftir ára-
tug, á öllum tímum, með ólíkum
þjóðum, meðal ríkra og fátækra,
er sönnun þess, að í samvinnu-
hreyfingunni er falið ódrepandi
lífsmagn, að í hreyfingunni er
fólgin lausn vandamála þjóðanna
í nútíð og framtíð.
Hver er sá, sem eigi vill veíta
fylgi sitt til eflingar þeirri fé-
lagsmálahrejrfingu, er hefir það
að markmiði að bæta kjör fjöld-
ans?
Samvinnuhreyfingin hefir á
liðnum tímum gengið í gegnum
margar eldraunir og staðizt þær
allar.
Hún hefir eflzt jafnt og þétt.
Efling hennar hefir aldrei verið
meiri en nú, er þúsundir manna
fylkja sér undir merki hennar ár-
lega.
Hún va.r hreyfing þeirra, er
fundu, að þeir lifðu við úrelt
verzlunar-fyrirkomulag.
Hún er hreyfing þeirra, sem
vilja láta mannvit og manndáð
ráða, en ekki peninga.
Hún verbur hreyfing þeirra, cr
vilja umbæta heiminn.
Sa/mnnrtfumadur,
Slys. síðastl. laugardagsmorgun va
maður að nafni Sigurbjörn Sigurðsso:
að keyra handkerru eftir bryggju
Grenivík. Annað kerruhjólið fór út a
bryggjunni, en við það hrataði maður
inn út af henni og féll niður allmikl
hæð; meiddist hann svo við fallið, a
hann var tafarlaust fluttur hingað
sjúkrahúsið. Andaðist hann af meiðsl
'unum að kvöldi hins sama dags. -
Sigurbjörn sál. var um sjötugt.