Dagur - 19.09.1935, Blaðsíða 2
162
DAGUR
38. tbl.
íhaldið býr sig undir
sláturtfðina.
Á síðastl. vetri stofnuðu íhalds-
menn í Reykjavík hið alkunna
»Húsmæðrafélag«, sem beitti sér
fyrir þeirri lífsvenjubreytingu, að
menn hættu að neyta mjólkur, en
drykkju í þess stað ýsusoð. Til-
gangurinn, sem var sá, að skaða
mjólkurframleiðendur í sveitum,
mistókst að mestu.
Nú hafa íhaldsmenn í höfuð-
staðnum stofnað nýtt neytandafé-
lag, sem hefir það að markmiði
að kaupa ekki kjöt að Framsókn-
arbændum. Áður en félag þetta
var stofnað, var sent út umburð-
arbréf, þar sem fram er tekið, að
kjötlögin, sem sett voru til hagn-
aðar bændum, séu »einn þáttur-
inn í ofsóknum« gegn »sjálfstæð-
ismönnum« í Reykjavík, og er
jafnframt skorað á »sjálfstæðið«
að þjappa sér fast saman til varn-
ar gegn þessari ofsókn »rauð-
liða«.
Alþýðublaðið skýrir frá því, að
á framhaldsstofnfundi félagsins,
þar sem tíðindamaður blaðsins
hefir sýnilega verið staddur, hafi
frummælandi skýrt frá því, að
það hafi lengi verið »sjálfstæðis-
mönnum« sár raun að þurfa að
leggja sér til munns kjöt af
Framsóknarrollum! Þess vegna
hafi foringjaráð Varðarfélagsins
hafizt handá um stofnun þessa
neytendafélags, en »tilgang fé-
lagsins kvað hann þann, að menn
kæmu sér saman um að kaupa alls
ckJci kjöt, sem useri ættafi frá
neinu kafripfélagi, sem væri í SÍS«.
Brezki andino sigrar í GenL
Stefna Breta í Abessiníudeil-
unni er sú, að fullnægja sann-
gjörnum óskum ítalíu, án þess að
misbjóða sjálfstæði nokkurrar
annarrar þjóðar. Kom þetta skýrt
fram í ræðu, er Sir Samuel Hoare
utanríkismálaráðherra Bretlands
hélt á fundinum í Genf 11. þ. m.
og vakti mikla hrifningu.
Menn biðu fulÁr óþreyju eftir
svari Frakka í þessu máli. Það
svar kom 13. þ. m. Þann dag hélt
Laval ræðu á Genf-fundinum og
sagði meðal annars: »Frakkland
heldur fast við Þjóðabandalags-
sáttmálann og það getur aldrei
komið fyrir, að það bregðist
skuldbindingum sínum«. Þetta
kvað hann vera rödd þjóðar sinn-
ar, sem yrði að heyrast. Ennfrem-
ur sagði Laval: »Frakkland held-
ur áfram að vinna með Stóra-
Bretlandi að því að varðveita
Þjóðabandalagssáttmálann og fá
ákvæði hans virt og viðurkennd
í viðskiptum þjóðanna«.
Eftir þessa ræðu Lavals þótti
það sýnt, að brezki andinn sigr-
aði á fundinum í Genf.
Þrátt fyrir þetta heldur Musso-
lini áfram stríðsundirbúningi sín-
um eins og ekkert hafi í skorizt
Það er og tekið fram í umburð-
arbréfinu, sem Alþýðublaðið hefir
komizt yfir og birtir, að það sé
»skoðun mikils fjölda allra sjálf-
stæðra Reykvíkinga, að reyna eft-
ir megni að styðja þá menn í
sveitum landsins, sem styðji okk-
ar stefnu í landsmálum«.
Ber hér því alveg saman við
ummæli frummælanda á fundin-
um: Tilgangur þessa nýja neyt-
endafélags sjálfstæðismanna í
Reykjavik er sá, að hætta að
kaupa og neyta kjöts frá Fram-
sóknar- og samvinnubændum. Og
það er lögð mikil rækt við að
koma þessum neytendasamtökum
á fyrir næstu haustkauptíð.
Það mun engum vafa bundið,
að »máttarstólpar« Ihaldsflokks-
ins standa á bak við þessi samtök
samvinnubændum til skaða. En
ekki munu þeir þora að hafa sig
í frammi opinberlega og að sjálf-
sögðu afneyta þeir þessu neyt-
endafélagi á sínum tíma frammi
fyrir bændum, eins óg þeir í vor
afneituðu »Húsmæðrafélaginu« á
stjórnmálafundum í sveitum.
Blað kommúnista í Reykjavík
segir um þetta neytendafélag í-
haldsins að það sé »hið mesta
nauðsynjamák, að neytendur
bindist samtökum til að berjast
gegn kjöt- og mjólkurokrinu. Það
vantar ekki gott samkomulag
milli íhaldsins og kommúnista,
þegar hagsmunir bænda eru ann-
arsvegar.
i
og hefir hótanir í frammi, ef Ev-
rópuþjóðir skipti sér noKkuð af
framferði ítala í Austur-Afríku.
Segir hann, að það sé á þeirra á-
byrgð, ef Abessiníudeilan leiði af
sér Evrópustríð. Mussolini segist
hafa eina miljón undir vopnum
og segist geta bætt annari við,
hvenær sem á þurfi að halda.
Skýrt er frá að Abessiníukeis-
ari hafi hálfa miljón manna und-
ir vopnum.
Eins og Abessiníumálið liggur
nú fyrir virðist úrslitaspurningin
þessi:
Getur 5 manna nefndin boðið
ítölum þá kosti, að þeir hætti við
að fara í stríð við Abessiníu?
Og ef svo verður ekki, getur þá
Þjóðabandalagið með því að beita
refsiákvæðum Bandalagssáttmál-
ans hindrað ítali í því að leggja
út í stríð?
Slátrun sauðfjár hófst í sláturhúsi
K. E. A. á Oddeyrartanga í fyrradag
og stendur yfir til 7. október. Alls er
gert ráð fyrir að slátrað verði í húsinu
í haust um 18500 fjár. Féð er drepið
með i’afmagni.
Dánardægur. Nýlega er látin að
heimili sínu, Geislagötu 35 hér í bæ,
húsfrú Hólmfríður Gísladóttir, kona
Sigurjóns Jóhannessonar,
Heilsníræðissýningin.
Hingað kom með s. s. Súðinni
frá Húsavík Jón Jónsson læknir,
sem hefir ferðazt í sumar á veg-
um læknafélagsins og séð um
heilsufræðisýningu þá, sem lækna-
félagið kom sér upp og sýndi í
Reykjavík síðastliðið haust.
Þessar umferðasýningar eru
orðnar alltíðar í öðrum löndum,
sérstaklega Þýzkalandi og á
Norðurlöndum til að vekja áhuga
almennings á ýmsu því, sem lýtur
að heilsu manna og heilbrigði
bæði til varúðar og eftirbreytni.
Sýningu þessari hefir verið vel
tekið, enda er hér um mjög
merkilega og gagnlega fræðslu að
ræða, sem almenningur ætti að
notfæra sér.
Héraðslæknir Stgr. Matthías-
son gekkst fyrir því að fá sýn-
inguna hingað til bæjarins ein-
mitt á þessum tíma og verður hún
haldin hér í Barnaskólanum dag-
ana 22. sept. til 6. okt. að báðum
dögum meðtöldum, með sérstöku
tilliti til þess, að þá er mennta-
fólk bæjarins komið aftur úr
sumarfríum og allir skólar að
byrja sitt starf; ennfremur að þá
stendur yfir haustkauptíðin, um-
ferð úr nærliggjandi sveitum því
óvenjulega mikil, en þessa merki-
legu sýningu, sem er hrein nýung
hér á landi, ætti helzt hver maður
að kynna sér.
Skólanefnd Barnaskólans hefir
góðfúslega lánað nokkrar af
kennslustofum skólans fyrir sýn-
inguna og verður hún opin þar
daglega yfir sýningartímann kl. 4
—7 og 8—10 e. h.
Aðgangur að sýningunni kostar
1 krónu fyrir fullorðna og 25 au.
fyrir börn. Þeir, sem ætla sér að
athuga sýninguna sérstaklega vel
og koma þar fleirum sinnum, sem
auðvitað er mjög æskilegt, geta
fengið sérstaka aðgöngumiða fyr-
ir 2 krónur, sem gilda allan tím-
ann.
Kennaramétið i Stokkliólmi.
Viðfal við Kri$tb|örgu Jónatans-
dóttur kennslukonu.
(Niðurl.).
Aðalefni erinda og umræða
hefir vitanlega verið skóla- og
uppeldismál. Var ekki svo?
Jú auðvitað, en frá ýmsum
hliðum og sjónarmiðum. E*au
snerust um kennslufyrirkomulag
og kennsluaðferðir í flestum
námsgreinum allt neðan frá smá-
barnaskólanum og upp til sam-
bandsins milli barnaskólanna og
hinna æðri skóla, um heilsu-
vernd, likamlega og sálarlega,
um bókasöfn, um blöðin og skól-
ana, um útvarp og skóla, um
borgaralegar skyldur og ábyrgð
þjóða á nailli, um uppeldi kenn-
ara, um próf o. s. frv. o. s. frv.
Voru nokkur ferðalög í sam-
bandi við kennaramótið ?
Já, nokkur. Annan dag móts-
ins stóðu fyrirlestrar aðeins til
hádegis. Siðari hluti dagsins var
mönnum ætlaður til ferðalaga.
Var það sænska ferðamannafé-
lagið, sem hafði stofnað til þeirra
og sá um fyrirkomulag á þeim.
Var um 4 ferðir að ræða.
1. Til Uppsala og Gamla Upp-
sala. Þangað gátu komist mest
800 manns.
2. Til Sigtuna, 175 manns, en
gert ráð fyrir 2 hópum.
3. Til Mariefred og Gripsholm-
hallar, 300 manns.
4. Að skoða hið markverðasta
í Stokkhólmsborg og umhverfi,
300 manns.
Ferðir þessar kostuðu 6 kr. á
mann (7 til Uppsala), og var í
því innifalinn sameiginlegur mið-
degisverður fyrir þátttakendur.
Ennfremur voru menn til að
leiðbeina og skýra það, sem
skoðað var. Mönnum var skipt í
BHWWWHWWHWffWWlj
Höfum fil:
Niðursuðnpotfa nauðsynlega í slátur-
tfðinni
Niðursuðudósir riðfríar með gúmmíhring
Niðursuðuglðs bestu fáanlegu.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild.
s