Dagur - 03.10.1935, Page 1
DAGUR
íemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkex-i: Arni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XVIII
. ár. |
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 3. október 1935.
40. tbl.
Stríðið dregst eiin.
i Genf hefir verið sett á lagg-
irnar 13 xnanna nefnd til þess að
gera skýrslu um allar tilraunir til
lausnar Abessiníudeilunni og all-
ar staðreyndir þess máls. í nefnd-
inni eru allir fulltrúar þjóða-
bandalagsráðsins, nema sá ítalski.
Herflutningar frá ítalíu til í-
tölsku nýlendnanna í Afríku
halda stöðugt áfram. Þó er talið.
að ófriður muni ekki brjótast út
í svipinn. Um þessar mundir er
sögð mikil hætta á næmri hita-
sótt í Abessiníu, í lok regntímans,
enda hafa komið fréttir um það,
að ítölsku hermennirnir séu að
veikjast í stórhópum af mýra-
köldu (malaría).
Fulltrúi ítala hefir endurtekið
þá kröfu fyrir hönd ítölsku
stjórnarinnar, að Abessiníu verði
vísað úr þjóðabandalaginu, þar
sem hún fullnægi ekki þeim skil-
yrðum, sem sett eru til þess að
getó verið fullgildur meðlimur.
ítalska ráðuneytið hefir gefið
út tilskipun, sem mælir svo fyrir,
að sjálfboðaliða í herinn megi
taka upp í 55 ára aldur. Aldurs-
takmarkið var áður 32 ára aldur.
Uppástunga hefir komið fram í
Genf um það, að Þjóðabandalagið
haldi fundum sínum áfram til
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra hefir 27. sept. s. 1. sent
nokkrum stofnunum, sem umboð
hafa fyrir framleiðendur, eftir-
farandi bréf:
»Reykjavík, 26/9.
Ráðuneytið vill hérmeð snúa
sér til yðar með eftirfarandi:
Sú viðskiptastefna, sem nú rík-
ir í heiminum hefir það í för með
sér, að hver einstök þjóð reynir
eftir fremsta megni að spoma
við innflutningi erlendrar fram-
leiðslu. Þetta hefir, eins og kunn-
ugt er, komið mjög hart niður á
útflutningsvörumarkaði þessa
lands, og þá með þeim afleiðing-
um, að þjóðin á erfiðara með en
áður að afla sér þess gjaldeyris,
sem þarf til þess að kaupa nauð-
synjavörur frá öðrum löndum.
þess að vera til taks, ef eitthvað
kæmi fyrir, að minnsta kosti
þangað til 13 manna nefndin
hefir lokið störfum.
Páfinn hefir i hyggju að láta
gera djúp jarðhús til verndar
gegn loftárásum, og ætlar hann
og kardínálar hans að hafast þar
við, ef til slíkra árása kæmi á
Rómaborg. Eiga að vera göng úr
jarðhúsunum upp í páfahöllina.
ítalska stjórnin hefir einnig í
hyggju að gera geysilega stór
jarðhús gegn loftárásum í Róm.
Ráðstafanir þæi’, sem Þjóða-
bandalagið hefir gert, hafa nær
alstaðar mætt hinni mestu samúð,
ekki sízt í Bandaríkjunum.
Fregnir hafa verið á sveimi
um það, að Mussolini muni vera
orðinn valtur í valdasessi, en ekki
er vitað að sá orðasveimur sé á
rökum byggður.
Mussolini hefir sagt í viðtali
við franskan blaðamann, að 200
þúsund ítalir þurfi rúm fyrir sig
í nýlendum Afríku, og þeir séu
við því búnir að taka það, sem
þeim ber, og enginn sé þess
megnugur að stöðva þessa menn,
áður en þeir hafi sýnt hetjuhug
sinn.
Þetta gerir það að verkum, að
þöi'fin er nú ríkari fyrir þjóðar-
heildina en nokkru sinni fyrr, aó
nota sem allra ihest þær vörur,
sem landið sjálft framleiðir, til
fæðis, klæðnaðar og annara nauð-
synja. Er því mjög áríðandi, að
landsmönnum sjálfum verði Ijóst,
hvað framleitt er í landinu af
slíkum vörum, notagildi þeirra og
gæði, og ennfremur hverja fjár-
hagslega og atvinnulega þýðingu
notkun þessara vara hefir.
Víðsvegar erlendis er nú mikið
að því gert, að kynna þjóðunum
sjálfum sína eigin framleiðslu, og
yfirleitt með góðum árangri.
Ráðuneytið er þeirrar skoðun-
ar, að slíka starfsemi þurfi einn-
ig að hefja hér á landi í stærri
stíl en verið hefir.
kom fyrir nokkru saman í Rvík
og starfar að undirbúningi á af-
greiðsiu fjárlaga fyrir næsta ár.
Var ákvörðun um þetta undirbún-
ingsstarf nefndarinnar tekin í
aprílmánuði síðastl.
i fjárveitinganefndinni cru
þessir menn:
Jónas Jónsson, Þorbergur Þor-
leifsson, Bjarni Bjarnason, Jónas
Guðmundsson, Sigurður Einars-
son, Pétur Ottesen, Jakob Möller,
Þorsteinn Þorsteinsson, Magnús
Guðmundsson.
Dálítið hjákátlegt atvik kom
fyrir nálægt næstsíðustu mán-
aðamótum í sambandi við fjár-
veitinganefndina. Morgunblaðið
kom þá fram með þá »tillögu«,
að nefndin yrði kölluð saman til
starfa nokkni áður en þingið
kæmi saman. Blaðinu var þegar á
það bent, að þessi tillaga kæmi
nokkuð seint fram, þar sem þessu
máli hefði verið' ráðið til lykta I
apríl í vor. Þótti Mbl. að vonum
vera allmikið úti á þekju um ráð-
stafanir á Alþingi og var hent
gaman að. En Mbl. reyndi að
bjarga sér úr klípunni með því
að láta ekki á neinu bera um ó-
kunnugleika sinn og hefir síðan
hælt sér af því að hafa fundið
upp þetta snjallræði, að láta fjár-
í samræmi við þessa skoöun
hefir ráðuneytið því ákveðið, að
fara þess á leit við nokkrar þær
stofnanir, er telja má að hafi al-
mennast umboð fyrir framleið-
endur í landinu, að þær tilnefni
hver um sig einn fulltrúa í ólaun-
aða nefnd, er vinni að því, í sam-
ráði við ráðuneytið, að leggja á
ráð um að ákveða, á hvem hátt
skuli unnið að því að auglýsa og
veita fræðslu um íslenzkar fram-
leiðsluvörur og hvetja landsmenn
til að auka notkun þeirra.
Ráðuneytið beinir þeim tilmæl-
um til yðar, að þér tilkynnið
ráðuneytinu tilnefningu yðar fýr-
ir 1. okt. n. k. Mun ráðuneytið því
næst láta boða fulltrúana til sam-
eiginlegs fundar.
SÍQfl. Hermann Jónasson“.
Bréf þetta hefir verið sent
Sambandi ísl. samvinnufélaga,
Búnaðarfél. íslands, Fiskifélagi
íslands, Landssambandi iðnaðar-
manna, Mjólkursölunefnd, Fiski-
málanefnd og Síldarútvegsnefnd.
ími i\ýi»-Ki» Eaa
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Gull-eyjan.
Tal- og hljómmynd í 10 þátt-
um. — Aðalhlutverkin leika:
Wallace Beery, Jacki
1 Cooper, Lioneal Barry-
more, Lewis Slone,
Nigel Bruce og Charles
„chic“ Sale.
Mynd þessi er tekin eftir
hinni heimsfrægu sjóræn-
ingjasögu Robert Louis Stev-
enson’s, sem flestir skóla-
piltar munu kannst við. Er
ekki að efa að mynd þessi
verður vel sótt, því skemmti-
legri og viðburðarikari mynd
hefir eigi sést hér.
veitinganefnd taka til starfa
nokkru áður en þing kemur sam-
an og læzt í hvorugan fótinn geta
stigið af monti yfir því, að »til-
laga« sín hafi verið tekin til
greina!
□ ltiin 50351088 - Frl.*.
Jóruis Jónsson alþm. og frú hans
komu heim frá útlöndum með Brúar-
foss síðastl. fimmtudag'.
Ásrjeir Sipurðsson, aðalx'seðismaður
Bi'eta á fslandi andaðist í Reykjavík
26. f. m. af hjartahilun. Irtann var
kominn á áttraðisaldur.
Mötuneyti til hjálpar fátæhlingum og
atvinnuleysingjum, Síðasti fundur bæj-
arstjórnar Akureyrar samþykkti að
setja upp mötuneyti til hjálpar fá-
tæklingum og atvinnuleysingjum í vet-
ur. Verður mötuneyti þetta í sjómanna-
heimilinu Laxamýri.
Geysir. Söngæfing' í kvöld á venju-
legum stað kl. 8% stundvíslega.
Alþingi kemur saman 10. þ. m.
Haustþing
Umdæmisstúkunnar nr. 5 , sem
ákveðið var að halda í Hrísey,
verður háð á Akureyri 19. og 20.
okt. n. k. Þingið hefst i Skjaldborg
laugard. 19. okt. kl. 8.30 siðd.
Akureyri 2. október 1935.
Snorrl Sigfússon Eirfkur Sigurðsson
U. T, U. R,
Herniann Jónasscin
f o rsætisráðherra
itofnar til anglýsingaifarfsemi til
að kynna iimlenda framleiðslu.