Dagur - 10.10.1935, Page 3

Dagur - 10.10.1935, Page 3
41. tbl. DAGUR 175 samanburði við dreifingu land- anna í Vesturfieimi? Nokkrar þúsundir manna búsettar frá hafi til hafs víðsvegar um hið geysi- víðáttumikla meginland Norður- Ameríku, hafa eflt með sér fé- lagssamtök, er um fimmtíu ára skeið hafa staðið með íurðuleg- um blóma. Þeir hafa með þraut- seigri atorku og ótrúlegri fórn- fýsi byggt fjölda kirkna og mynd- að um þær margþætt félagslíf. Og sumt af þessu er unnið mitt í frumbýlingsbaráttunni, meðan þeir voru enn í lítt byggðu landi, þar sem skorti vegi og verkfæri, þolanlega bústaði og öll hugsan- leg þægindi líkams og sálar. Þetta sýnir, að viljinn og eljan og hin andlega sinna ræður meira, en nokkrir ytri örðugleikar. Það sýnir ennfremur, að í lífsbarátt- unni við tröllauknar torfærur hins víða meginlands, fann þessi nýja kynslóð landnemanna af ís- lenzku bergi meiri styrk, andlegt öryggi og gleði í kirkjulegum fé- lagsskap um fagrar og mannúð- legar trúarhugsjónir, en í því að berjast sín á milli og sitja aldrei á sátts höfði. Kirkjan hefir verið fjöregg þeirra, andlegt heimili og ættarland og hefir borgið þeim frá að týna sjálfum sér i hinu nýja landi, hún hefir viðhaldið þjóðerni þeirra og félagssamtök- um. Enda þótt því verði ekki neitað, að erfðasyndin frá forfeðrunum: andi sundurlyndisins hafi einnig gert vart við sig í þessum félags- skap við og við, og valdið dálitl- um usla í eindrægninni, þá má þó telja kirkjulegan félagsskap landa vorra vestan hafs svo mikið þrek- virki, að lærdómsrikt sé fyrir oss hér heima. Þess má og vænta, að óðum sléttist yfir þær misfellur, eftir því sem nýir tímar færa víð- sýnni og frjálslyndari trúarhug- sjónir til öndvegis í hugum manna, svo að eigi verði tekið jafn hart á hverjum örlitlum skoðanamun og hinum eldri mönnum hætti við. Er það einlæg ósk þess, er þetta ritar, að kirkja landa vorra vestan hafs megi efl- ast í eindrægni og víðsýni og hverskonar andlegu atgervi, og jafnframt halda áfram að verða þeim sú andlega máttartaug, er hún hefir ávalt verið í bliðu og stríðu. Þeim, sem fræðast vilja um þessa merkilegu félagsstarfsemi landa vorra vestan hafs, vil ég benda á ofanskráð Minningarrit, sem prentað er í apríl til júní- hefti Sameiningarinnar þetta ár. Hinn góðkunni rithöfundur, dr. Richard Beck, ritar sögu kirkju- félagsins með þeirri hófsemi og sanngirni, sem honum er lagin og hefir dregið saman geysi mikinn fróðleik um hið margþætta starf þess í eigi lengra mál en 90 bls. Er Minningarritið allt hið á- nægjulegasta og prýtt fjölda- mörgum myndum af vestur-ís- lenzkum kirkjum og prestum. Því fylgja og skýrslur um hag félags- ins og embættismenn. Þeir, sem fylgjast vilja með lífs- Söltimartímmii og síldarverðið í sumar. Það hefir allmikið verið ritað um starfsemi Síldarútvegsnefnd- ar, sérstaklega í blöðum Sjálf- stæðisflokksins, á þessu sumri, og er það einkum tvennt, sem henni er fundið þar til foráttu: 1. Að hún hafi látið byrja sölt- un allt of seint og með því skaðað alla þá, er við síldveiði og síldar- verkun hafa fengizt í ár og þar með þjóðina í heild sinni. Og að hún, seinni hluta sum- arsins hafi haldið niðri fersksíld- arverðihu, til stórtjóns fyrir sjó- menn og útgerðarmenn. Það mun hafa verið blaðiö Siglfirðingur, sem hafði heiður- inn af því, að skrifa fyrst um hve óhæfilegt það væri, að byrja sölt- un svona seint, og skaða með því landið, jafnvel um miljónir króna. Leiðinlegt var samt, að hann skyldi ekki benda á þetta fyrr en auðséð var, að síldveiði mundi bregðast, því annars hefði mátt segja: Sjá, mikill spámaður er upp risinn meðal vor! v En viðvíkjandi sjálfri spurn- ingunni: Var rétt að ákveða, að söltun byrjaði ekki fyrr en 22. júlí, eins og átti sér stað í sum- ar? má upplýsa eftirfarandi. Islenzkir síldarseljendur höfðu gert fyrirframsamninga um sölu á síld til Svíþjóðar og Danmerk- ur, alls um 140 þús. tunnur. I þvínær öllum þessum samningum var tekið fram, að söltun mætti ekki byrja, nema með sérstöku leyfi kaupanda, fyrr en 25. júlí á venjulegri saltsíld og 1. ágúst á kryddsíld. Til þess að undirstrika þetta var með lögum í Svíþjóð bannaður innflutningur á síld frá íslandi til 5. ágúst. í samningum þeim, er Síldarútvegsnefnd gerði um matjessíld, var einnig ákveðið, að söltun mætti ekki byrja fyrr en 20.—.25. júlí. Og hvernig var svo útlitið að öðru leyti? Það var þannig, að óhemju mikill síldar- afli var fyrri hluta júlímánaðar og meiri rauðáta í sjónum, en dæmi eru til áður á þessum tíma. Allt fram að 12.—15. var því ekki annað fyrirsjáanlegt, en að veiði mundi verða meiri, en þekkst hefði áður, sérstaklega þegar til- ]it var tekið til þess,‘ að fiskiskipa- flotinn var því nær 1/3 meiri en síðustu árin á undan. Var nú und- ir þessum kringumstæðum nokk- urt vit í því, að byrja söltun t. d. 5.—10. júli? Því svo snemma hefði söltun þurft að byrja, ef að nokkru verulegu gagni hefði átt að koma, þar sem sáralítil veiði var eftir 12. júlí. Voru nokkur minnstu líkindi til þess, að unnt baráttu og sögu frænda vorra fyrir vestan haf, geta eigi kosið sér betra rit, svo nátengd hefir saga þeirra frá upphafi verið kirkjufélagsskapnum. Ritið mun vera hægt að fá hjá Prestafélagi Islands. Benjamín Kristjánsson. yrði að selja þá síld, er söltuð hefði veriö á þeim tíma, ef veiði hefði haldið áfram? — Nei, það voru engar líkur til þess, þar sem Svíar með fyrirframsamningum höfðu keypt alla þá síld, er þeir ætluðu sér aö kaupa, og öllum sem bera eitthvert skynbragð á þessi mál, ætti að vera það ljóst, að það er mun betra að fá minni síld, er unnt er að selja með sæmi- legu verði, en salta niður í tugi þúsunda tunna, sem enginn vill líta við, sbr. síðasta starfsár síld- areinkasölunnar. Norðmennirnir höfðu eríga Síld- arútvegsnefnd, en þeir byi'juðu þrátt fyrir það ekki að salta síld fyrr en við, enda hafa þeir áreið- anlega orðið þess varir á síðustu árum, að það eru fyrst og fremst kaupendur síldarinnar, sem á- kveða hvenær söltun skuli byrja. Um það atriði, hvort ekki sé rétt- ara að fara eftir fitumagni sildar, en almanakinu, um byrjun söltun- ar, má geta þess, að ýtarlegar til- raunir hafa verið gerðar í þá átt af síldarseljendum, en sænskir síldarkaupendur að niinnsta kosti halda því fram, að júlísíld yfir- leitt verði alltaf slæm vara, þótt feit sé, því sú síld sé »aldeles u- holdbar«, enda kemur þetta heim við reynslu ýmsra þeirra, er við síldarsöltun hafa fengizt hér á landi. Að lokum má benda á það, að fjöldi síldarsaltenda fékk ekki tunnur á þessu ári fyrr en eftir miðjan júlí, og sáralitlar tunnu- . birgðir voru fyrirliggjandi í land- inu. Það má einnig benda á, að i fyrra var engin Síldarútvegs- nefnd, og var þó ekki byrjað að salta þá fyrr en um 25. júlí. Af hvaða ástæðum skyldi það hafa veiúð ? Um síðara atriðið þarf ekki að fara mörgum orðum, því vitan- lega er það öllum ljóst, sem ekki eru úti á þekju í þessu máli, og sem vilja segja það sem rétt er, að Síldarútyegsnefnd hefir alls er.gar ráðstafanir gert til þess að halda niðri fersksíldarverðinu. — Þvert á móti. — Fyrsta verk Síld- arútvegsnefndar í sumar var að hækka fersksildarverðið til sjó- manna og útgerðartnanna um 30 prc., eða úr fimm krónum, eins og það var í fyrra upp í 6 kr. og 50 til 7 krónur. Fékk nefndin fyrir þetta ámæli síldarsaltenda. Á þeim 140 þús- und tunnum, sem búið var að selja fyrirfram, auk matjessíld- arinnar, nam verðhækkun þessi alls minnst 210 þúsund krónum. Þá má og geta þess, að jafnaðar- verð á matjessíld þeirri, er Síld- arútvegsnefnd hafði selt fyrir- fram, var rúmar 30 krónur fob, en árið áður höfðu ýmsir síldar- saltendur selt matjessíld fyrir- fram fyrir miklu lægra verð, jafnvel allt niður í 18 krónur tunnuna. Síldarútvegsnefnd hafði þannig þegar unnið að mikilli Hérmeð tilkynnist, að jarðarför tengdaföður míns, Jóns Jóhannssonar, sem andaðist á sjúkrahúsinu 6. þ. m., fer fram næstkomandi laugardag frá kirkjunni, kl. 1 síðdegis. Jón Vilniundarson. hækkun á síldinni, án þcss að lcuupéndtur drægju sig til baka. Strax og það varð ljóst, að veiði mundi bregðast, eins og raun varð á, tilkynnti Síldarút- vegsnefnd þeim, er keypt höfðu matjessíld með fyrirframsamn- ingum, að ekki væri unnt að láta meira upp í þá samninga, en 10 prc. af því magni, sem samið var um. Aftur á móti var kaupend- um bent á, að ef þeir vildu fylgj- ast með í daglegri verðhækkun síldarinnar, þá mundu þeir geta fengið matjessíld, alveg eins og Svíar fengu saltsíld og kryddsíld, en þeir vildu ekki taka því boði, nema að örlitlu leyti, kusu heldur að vera án síldarinnar. Það eru annars gerðar ýmsar kröfur til Síldarútvegsnefndar. Sennilega er þó síðasta krafan, sem blaðið Einherji flutti nýlega, einna frumlegust. Þar er þess krafizt af Síldarútvegsnefnd, að hún leiti markaða, þar sem ekki séu gerðar hámarkskröfur um fitumagn síldar og önnur gæöi,*) enda muni þeir markaðir finnast, ef vel sé leitað. Það er víst enginn vafi á því, að allar menningar- þjóðir gera hámarkskröfur um gæði matvæla yfirieitt, og þá ekki síður til gæða síldar en annara. Er það því sennilega meining blaðsins, að leita til þeirra þjóða, er ekki geta talizt menningarþjóð- ir, til að selja þeim þá síld, er ekki getur talizt fyrsta flokks vara. Þessi krafa meðal annars er ljósasta dæmi þess, hvað unnt er að komast langt í vitleysunni, þegar rætt eða ritað er um síld. Það má vafalaust með réttu finna að ýmsum gjörðum Síldar- útvegsnefndar, en gera verður þá kröfu til þeirra, er skrifa um síldarmál, að þeir hafi þekkingu á síldarútgerð og síldarverzlun, en það virðist þá menn hafa skort allmjög, er ritað hafa um þau mál á þessu sumri. Siglufirði, 28. september 1935. F. h. Síldarútvegsnefndar. Finnur Jónsson, Sig. Kristjánsson. Knattsp ymukap p leikur fór fram Suimudaginn 29. sept. s. 1. milli Ung- mennafélags Svarfdæla. og Knatt- spyrnufélags Akureyrar. Úrslit urðu þau, að K. A. vann með 9 mörkum gegn 1. Sama dag kepptu Þór og K. A., II. flokkur, og vann Þór með 6 mörk- um gegn 1. Að síðustu var kappleikur á milli starfsmanna á sláturhúsi K. E. A. og verzlunar- og’ skrifstofumanna kaupfélagsins. Úrslit urðu þau, að verzlunarfólkið vann, með 4 mörkum gegn 0. * Leturbr. bér,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.