Dagur - 16.01.1936, Qupperneq 1
4
D AGUR
íemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanus-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XVIV.
ár. ^
Afgreiðslan
•r hjá JÓNI Þ. ÞOR.
Norðurgötu3. Talsími 112-
Uppsögn, bundin viö ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
Akureyri 16. janúar 1936.
3. tbl.
Bréf
Matthíasar Jochumssonar.
»Menningarsjóður« hefir unnið
þarft verk með því að gefa út bréf
Matthíasar á aldarafmæli skáldsins.
Bókin er ekkert snrásmíði. Bréfin
sjálf ná yfir fullar 760 blaðsíður
auk nafnaregisturs, sem er um 40
blaðsíður. Þau eru rituð á 60 ára
tímabili, frá 1860—1920. Flest eru
bréfin til þriggja vina skáidsins,
Steingríms skálds Thorsteinsson,
síra Jóns Bjarnasonar og síra
Valdemars Briem; taka þau yflr
nær helming bréfanna, en alls eru
bréfin 365 og eru rituð til 47 vina
og vandamanna.
Eins og nærri má geta, kennir
margra og misjafnra grasa í bréf-
um þessum. Auk þess sem bréfa-
safnið hefir að geyma marga vel
sagða og skemmtilega þætti úr æfi-
sögu skáldsins, eru þar ógrynnin öll
af margvíslegum hugmyndum um
lífið og tilveruna, stjórnmál og at-
vinnuvegi, basl og bágindi, bjartar
voqir og sigurgleði og allt, sem
nöfnum tjáir að nefna. Mikið af
efninu er góðlátlegt rabb, blandað
kímni og fyndni og á stundum
kerskni og háði um menn og mál-
efni, en að baki alls þessa er þó
aldrei illur hugur eða hatur, heldur
gott hjarta og sískiptilegur geðblær.
Mitt í harmatölum yfir raunum
mannlífsins, syndum þess og sorg-
um, skýtur upp góðlátlegum gam-
anyrðum, svo að viðkvæmur lesandi
brosir í gegnum tárin.
Rúmu ári áður en síra Matthías
andaðist, kvartar hann í bréfi til
síra Valdemars Briem um »bruna-
þurrk í munni og kverkum, sem
ekkert getur bætt«. Gerir þá ráð
fyrir að dauðínn sé i aðsigi. Rétt á
eftir segir svo í sama bréfi:
»Fréttir þú, að ég hafi haldið
glætu fram í andlátið, þá mundu að
hafa eina eða tvær rúsinur í grautn-
um, þegar þú erfir mig!«
Létta lund hefir sá maður, sem á
níræðisaldri getur mitt í líkams-
þjáningum varpað fram svona gam-
anyrðum.
í sama bréfi segir skáldið: »Þeg-
ar ég á andvökustundum er að
reyna að gera reikningsskap ráðs-
mennsku minnar, verður niðurstað-
an sí og æ þetta Davíðs andvarp:
»Minni er ég, Drottinn, þinni misk-
unn og trúfesti«, — já, slfelFdri,
undarlegri varðveizlu og hand-
leiðslu alla þessa umliðnu æfi«.....
»Ég trúi á alræðisvald hátt yfir
villumyrkri þessa hnattar, sem er
kominn miklu skemmra á veg, en
menn ætluðu«.
Þessi undirstraumur heitrar trú-
ar, þrátt fyrir megnt hugarstríð og
efagirni, kemur hvarvetna í ljós í
bréfum síra Matthíasar engu síður
en í kvæðum hans.
Á ókomnum tímum mun fjöldi
manna lesa þessi bréf síra Matthí-
asar sér til fróðleiks, ánægju og
¥etrarntgerð
Fyrir síðasta bæjarstjórnarfundi
lá tilboð frá fjórum útgerðarmönn-
um hér í bæ um að gera út skip sín
i vetur á fiskiveiðar við Faxaflóa
og sjá um að afli skipanna eða til-
svarandi mikið af fiski kænú hingað
til bæjarins til verkunar, gegn því
að bærinn styrkti útgerð hvers skips
með 5 þús. kr., eða alls 4 skip með
20 þús. kr. Ennfremur buðust þeir
til að taka á skipin um 50 manns
héðan úr bænum og greiða þeim
200 kr. í kaup á mánuði og frítt
fæði. Útgerð skipanna átti að
standa yfir í 3/2 til 4 mánuði.
Otgerðarmenn þeir, er tilboðið
gerðu, eru Hreinn Pálsson, Jón
Guðmundsson, Helgi Pálsson og
Hjörtur Lárusson.
Tilb'oð þetta mun fram komið að
tilhlutan fjárhagsnefndar, og lagði
sú nefnd til, að bæjarstjórnin heim-
ilaði henni að ábyrgjast greiðslu á
% af reksturshalla á útgerð þessara
skipa á komandi vertíð, allt að 5
þús. kr. fyrir hvert, gegn því að
skipin séu gerð út að minnsta kosti
3i/2 mánuð, allir hásetar á þeim séu
búsettir á Akureyri, og hafi fjár-
hagsnefnd íhlutunarrétt um hverjir
séu ráðnir á skipin og að verkað
verði hér á Akureyri á næsta sumri
álíka mikið af fiski og skipin veiða.
Bæjarstjórn samþykkti þessar til-
lögur fjárhagsnefndar í aðalatrið-
um.
Kaup og fæði 50 sjómanna með
þeim kjörum, sem hér er gert ráð
fyrir, mundi nema yfir 40 þús. kr. í
3 /2 mánuð. Gera má auk þess ráð
fyrir, ef skipin öfluðu sæmilega, að
verkunarlaun aflans og önnur vinna
í landi mundi nema allt að tvöfaldri
þeirri upphæð. Má því búast við, ef
Það tilkynnist vinum og vanda-
mönnum, að ekkjan Þóra Odds-
dóttir lézt að heimili sínu, Myrká
i Hörgárdal, þann 8. þ. m., 89
ára að aldri.
Aðstandendur.
dægrastyttingar. Eins og áður er
sagt, eru bréfin jafnmörg og dag-
arnir í árinu. Góð regla mundi það
vera að lesa aðeins eitt bréf á dag
og treina sér þannig bókina yfir ár-
ið. Þannig mun maður njóta bréf-
anna bezt.
M Ákureyri.
af útgerð þessari verður, að hún
hafi í för með sér 120 þús. kr. at-
vinnuaukningu fyrir bæjarbúa.
En þrátt fyrir þetta er fullyrt, að
kommúnistasprautur bæjarins geri
allt, er þær geta, til þess að spilla
fyrir því, að þessi stórfellda at-
vinnuaukning komist í framkvæmd.
Er það að vísu í samræmi við aðr-
ar skemmdatilraunir þeirra.
f
Arni
Kristjánsson.
Fátt ætti að vera okkur íslendingum
meira gleðiefni en þegar fram koma
meðal okkar listamenn, þeir er full-
veðja megi telja-st á heimsvísu mælt.
Og það er jafnvel ástæða til að fagna
sérstaklega slíkum mönnum, sem koma
fram á tónlistasviðinu, því hún er sú
listanna sem yngst er í landinu, og'
sambúð okkar við hana hefir verið of
stopul og ófullnægjandi til að skapa
skilyrði fyrir uppvexti sannra lista-
manna, Það fer því mjög að vonum, að
fram til þessa hafi listamenn okkar
skort eitt og annað af meg'in skilyrðum
listamennskunnar, þar sem haldast
verða í hendur menning’, tækni og sál,
enda hefir svo verið og er enn. Einn
skortir þetta, annan hitt, og suma allt
nema viðleitnina, En allt um það hefir
tónlistarþróun okkar gengið svo hröðum
skrefum, að þjóðin hefir ástæðu til að
líta björtum augum á framtíðina hvað
það snertir, fái hennar uppvaxandi tón-
listamenn að njóta sín fyrir orðagjálfri
afglapanna, sem ekkert geta en allt
vita.
Mér er sönn ánægja að vitna tim tvo
(Fratnh. á 4. síðu).
NÝJA-BÍÓ WM
Fimmtudaginn 16. þ. m.
Ný
mynd
* »
Hvervaraö tala um okkur?
Forsætisráðherra flutti ávarp í út-
varpið síðasta nýársdag. Talaði
hann um umbóta- og uppbyggingar-
starf lýðræðisflokkanna og minntist
á að slíkt starf þyrfti að vernda
með löggjöf gegn lygurum og róg-
berum.
Út af þessum ummælum hrukku
kommúnistar og nazistar hastarlega
við og hrópuðu hvorir í kapp við
aðra: Hvað er verið að tala um okk-
ur? Hver var að tala um okkur?
Italski Iterion í klípu.
Við og við berast fregnir um ó-
sigra og undanhard ítalska hersins
í Abessiníu. Eftir þeim fregnum að
dæma eru ítalir komnir í vonda
klípu á vígstöðvunum. Auka óvenju
miklar rigningar á þessum tíma árs
á erfiðleika þeirra, því þær torvelda
undanhaldið mjög. Líta sumir svo
á, að ítalir séu þegar búnir að tapa
stríðinu í Austur-Afríku og telja,
að Mussolini sé nú fúsari til sátta
en áður, en sumar fregnirnar bera
það þó til baka. Samhliða fregnun-
um um ósigra ítala berast aðrar
fregnir um flugárásir þeirra á
hjúkrunarvagna og hjúkrunarlið,
sem talið er til óheyrilegra grimmd-
ar- og níðingsverka.
Kirhjan. Messað á Akureyri kl. 2 e.h.
n. k. sunnudag.
Nýr hafnarrvörbur. Á síðasta bæjar-
stjórnarfundi var Benedikt Steingríms-
syni skipstjóra veitt hafnarvarðarstað-
an með 5 atkvæðum. Aðalsteinn Magn-
ússon fékk 4 atkv. og Olgeir Júlíusson
2 atkv.
Togwri frá Grimsby strandaöi 12. þ.
m. á skeri í Reykjarfirði, Strandasýslu,
Tókst öðru varðskipinu að ná togaran-
um út af skerinu í fyrrakvöld, litið
skemmdum, og er hann nú kominn af
stað áléiðis til Englands,