Dagur - 20.02.1936, Qupperneq 1
D AGUR
*
iemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Ámi Jóhanna-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÖNI Þ. ÞÓR.
Norðurgötu 3. Talsími 112
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
XVIV
. ár. ^
Akureyri 20. febrúar 1936.
8. tbl.
NÝJA-BÍÓ -<|
Föstudags-, laugardags, og sunnudagskvöld kl. 9:
Krossfararnir.
Heimsfræg talmynd sögulegs etnis eftir Cecil B. de Mille
um krossferð Ríkarðs Ljónshjarta til Landsins helga. —’
Aðalhlutverkin leika af framúrskarandi snild:
LORETTA YOUNG og HENRY WILCOXON,
sem allir muna eftir, er sáu myndina >Cleopatrð«.
Ennfremur leika:
Katharine de Mille og Joseph Schildkraut,
en auk þeirra aðstoðuðu ura 6000 manns við töku myndarinnar.
15. Febrúar
er nú liðinn. En margir eftir að endurnýja enn.
Pví lengur sem þér dragið að vitja miða yðar
er meiri hætta á að þeir verði seldir öðrum. —
Nýir miðar verða seldir til 8. Marz.
Bókav. Porst. Thorlacius.
Jarðarför Jóns Jóhannessonar frá Skjaldarvik, er ákveðin mánu-
daginn 24. þ. m., og hefst með húskveðju á heimili hins látna,
Hafnarstræti 77, kl. 11 f. h. — Að endaðri húskveðju verður
líkið flutt sjóveg að Glæsibæ og jarðsungið þar sama dag.
Kransar afbeðnir. Aðstandendurnir.
Alþingf.
var sett á laugardaginn var. Forset-
ar eru hinir sömu og á síðasta
þingi. Ásgeir Ásgeirsson er kominn
heim úr Ameríkuför sinni, og munu
því allir þingmenn sitja á þessu
þingi.
í gær var frumvarp til fjárlaga
fyrir árið 1937 til 1. umræðu, og
var umræðunum útvarpað. Fyrst
talaði Eysteinn Jónsson fjármála-
ráðherra fulla klukkustund og
skýrði einkum frá afkomunni á síð-
asta ári, svo og fjárlagafrumv. í
stórum dráttum. Að lokinni ræðu
hans tóku til máls stjórnarandstæð-
ingarnir Magnús Guðmundsson,
Hannes Jónsson og Þorst. Briem.
Stóðu ræður þeirra yfir eina kl.st.
Báru ræður þeirra það ineð sér, að
þeim var öllum orðið brátt. Fjár-
málaráðherra hafði aðeins stundar-
fjórðung yfir að ráða til andsvara,
en sá tími nægði honum til að sýna
fram á blekkingar og óheiðarleik-
inn í ræðum andstæðinganna, t. d.
er M. G. taldi rekstursafgang árs-
ins 1935 með útgjöldum ársins og
annað eftir því.
Að lokinni umræðunni var málinu
frestað og því vísað til fjárveitinga-
nefndar.
Kantötukcr fltep,
undir stjórn Björgvins Guðmunds-
sonar, söng í Nýja Bíó sl. þriðju-
dagskvöld við góða aðsókn og á-
gætar viðtökur eins og kórinn átti
skilið, því söngurinn var mjög á-
nægjulegur og flokknum og söng-
stjóranum til sóma. Viðfangsefnin
voru margbreytileg og hugðnæm.
Við hljóðfærin voru Fanney Guð-
íiiundsdóttir, Lovísa Frímannsdóttir
og Sveinn Bjarman og léku þau
fyrst forspil úr »Friður á jörðu« og
að lokum var sunginn fjórði þáttur
þess tónverks, en þar á milli ýms
góðkunn lög, ýmist kórsöngur, ein-
söngur eða »dúet«. Einna mesta
hrifningu vakti »íslands iag« eftir
Björgvin Guðmundsson, þar sein
Hreinn Pálsson söng einsönginn,
svo og »í rökkursölum« eftir Möh-
ring, með einsöng Helgu Jónsdóttur.
Scumkoma verður haldin í Zíon á
laugardagskveldið kl. 8 % (en ekki á
fimmtudag, eins og áður var auglýst í
»Alþýðumanninum«). Helgi Valtýsson
flytur erindi. — Söngur. — Kaffi, —
Nánar gluggaauglýaingar.
KIRKJAN: Messað n. k. sunnudag
í Glerárþorpi kl. 12 f. h. og á Akureyri
kl. 2 e. h.
Hjáljyræðisherinn. Vakningavika. Sam-
komur fyrir börn og æskulýð alla daga
vikunnar kl. 6 og 8%. Sunnud. Bæn kl.
10%. Sunnudagaskóli kl. 2. Guðsþjón-
usta kl. 8%. Umræðuefni: Hverjar eru
hinar tvær básúnur? Strengjasveitin
aðstoðar.
□ Rún 50362258 -
Kantötukór Altwreyrar endurtekur
söngskemmtun sína í Nýja Bíó í kvöld
ki. 9. Aðgöngumiðar seldir í Nýja Bíó
frá kl. 3—6 í dag og við innganginn og
kosta aðeins 1 krónu.
Leikfélag Akureyrar hefir 2 fyrstu
sýningar á gamanleiknum »Fyrsta
fiðla«, eftir Gustav Wied, í Samkomu-
húsi bæjarins næstkomandi laugardags-
og sunnudagskvöld. Hefir blaðið verið
beðið að geta þess, að pantaðir að-
göngumiðar verði að sækjast í Sam-
komuhúsið fyrir kl. 4 e. h. leikdaginn,
ella verði þeir öðrum seldir. Pöntunum
veitir móttöku Agnar Magnússon, í
síma 49.
Snorri Sigfússon skólastjóri fór til
Reykjavíkur með »lslandi« og dvelur
þar eitthvað fram í næsta mánuð. För
þessa fór hann eftir ósk fræðslumála-
stjóra, til þess að starfa að undirbún-
ingi löggjafar um breytingu á fræðslu-
lögunum.
Dansleik heldur Rauóakross-deildin í
Samkomuliúsinu næstk. miðvikudag
(öskudaginn). Verða þar að starfi
beztu músíkkraftar. Einnig fer fram
uppboð á dýrindis öskupokum.
»Samvinnan«, 1. hefti 1936 er nýkom-
in. Efni sem hér segir: Janúar 1936,
eftir J. J. Sigurður Bjarklind, e. Karl
Kristjánsson. Kveðja til Huldu, kvæði
e. Sigurð Jónsson frá Arnarvatni. Bæk-
ur e. Huldu (þ. e. sem hún hefir skrif-
að). Þættir úr listasögu, e. J. J. Kaup-
félag Borgfirðinga, e. J. J. Samvinnu-
starfið innanlands, e. Guðlaug Rósin-
Kranz. Sala landbúnaðarafurðanna e.
sama. Heimilið — Kvenfólkið •— BÖrn-
in. — (Enginn er spámaður í sínu föð-
urlandi), e. Auði Jónasdóttur. Bækur.
Atvinnulífið 1935, e. Guðlaug Rósin-
kranz. — Fjöldi mynda eru i ritinu.
Nýkominn »Boðberi«, blað Kaupfé-
lags Þingeyinga, Húsavík, birtir á for-
síðu mynd af Benedikt Jónssyni frá
Auðnum. Sama blað flutti einnig langa
grein um Benedikt, eftir Karl Krist-
jánsson frá Eyvík.
Mýlátlnn er Jón Jóhannesson frá
Skjaldarvík, faðir Stefáns klæðskera hér
i br,
JðíðÍII Uppsalir
í Öngulstaðahreppi fæst til
kaups og ábúðar frá næstu
fardögum. — Semja ber við
Úiibú Búnaðarbankans,
Akureyri.
Kvenfélagið »Voröld« efnir til sam-
komu é Munkaþverá þriðjudaginn 25.
febr. n. k., til ágóða fyrir kvennaskóla-
sjóðinn. Til skemmtunar verður: Ræða,
sr. Benjamín Kristjánsson. Upplestur,
Pétur T. Oddsson stud. theoþ Einnig
bögglauppboð og dans á eftir. Hefst kl.
8% e. h. Styðjið gott málefni og fjöl-
mennið.
Langardaginn 22. þ. m.
hefir Kristniboðsfélag kvenna
samkomu í Z I 0 N. — Erindi:
Helgi Valtýsson, kennari.
Einsöngur: Kristján Sæ-
mundsson, prentari. KAFFI.
Aðgangur 1 króna (kaffi innifalið).
Ágóðinn rennur í hússjóð. Akur-
eyringarl Pið hafið oft sýnt, að
þið skiljið starf félagsins. Sýnið
það enn, með því að koma í
Z i o n á laugardaginn. Ykkur
mun ekki iðra þess.
Norðauslan hriðarveður ð
degi hverjum hér norðanlnndt,