Dagur - 27.02.1936, Page 2
34
DAQUR
9. tbl.
Noroangarrinn
r __
i „I§lendi
Yfirstandandi vetur hefir reynzt
óvenjulega harður. Óslitin norðan-
átt með fannkomu og frosti. Þegar
svo fellur, er mikils um vert að fyr-
ir hendi séu lífsnauðsynjar handa
mönnum og skepnum. Kaupfélag
Eyfirðinga hefir lagt mikla áherzlu
á að tryggja viðskiptamenn sína
gegn yfirvofandi hættu af völdum
náttúrunnar. Kaupmannahlaðið hér
í bæ viðurkennir þetta að vísu, en
heldur því hinsvegar fram, að kaup-
menn vilji feta í fótspor félagsins
hvað þessu við kemur, en þeir geti
það ekki, vegna rangsleitni og hlut-
drægni formanns innflutningsnefnd-
ar.
Það er eins og ísl. dragi dám af
náttúrunni; það hefir hlaupið í
hann nokkurskonar norðangarri, og
hann er argur og illur i skapi. Þeg-
ar K. E. A. fær rúgmjölsslatta, ber
iblaðið sér á brjóst í ergelsi og
hrópar: Ösómi! ósómi! Ef K. E. A.
fær hafragrjón, rífur Isl. klæði sín
og reitir hár sitt emjandi: Hiut-
drægni! Rangsleitni!
Ot af röggsemi og fyrirhyggju
kaupmanna í þá átt að sjá við-
skiptamönnum sínum fyrir næguin
birgðum af nauðsynjavöru í harð-
indatíð, sem ísl. grobbar af, mætti
spyrja bláðið: Hvað Iögðu kaup-
menn mikið í áhættu við kaup á
innlendum fóðurbæti á síðasta
hausti? Ekki þarf innflutningsleyfi
til síldarmélskaupa. Vill ekki fsi.
gefa upplýsingar um þetta atriði?
Kannske kaupmannablaðið vilji
leiða það hjá sér, eins og það skor-
ast undan með þögninni að ræða
um óleyfilegan innflutning miður
nauðsynlegra vara, þegar kaupmenn
eiga í hlut?
ísl. heldur því fram, að fram-
kvæmdastjóri K. E. A. hafi formann
innflutningsnefndar í vasa sínum.
Af því stafi rangsleitnin, hlutdrægn-
in og allur ósóminn! Veit ekki blað-
ið, að innflutningsnefndina skipa 5
menn? Það gagnaði því lítið, þó að
formaðurinn einn væri í vasa, það
þyrfti þá að vera meirihluti nefnd-
arinnar. Nú eiga kaupmenn einn
fulltrúa i nefndinni. Kaupmanna-
blaðið skal nú frætt á því, að þessi
fulltrúi hefir alls ekki reynzt örð-
ugri en hinir nefndarmennirnir, þeg-
ar ræða er um innfiutningsleyfi til
handa K. E. A., því hann mun vera
maður réttsýnn, því að það eru til
réttsýnir menn innan kaupmanna-
stéttarinnar. Eða treystir Isl. sér til
að bera Birni Ólafssyni á brýn
»rangsleitni«, »hlutdrægni« og »ó-
sóma« í starfi sínu í innflutnings-
nefnd. Við bíðum og sjáum hvað
setur.
Þá er að snúa sér að aðal-ágrein-
ingsefninu, en það er á hvaða
grundvelli eigi að veita innflutnings-
leyfi. ísl. neitar því afdráttarlaust,
að þar eigi »höfðatala« fastra við-
skiptamanna nokkru um að ráða. I
því efni farast blaðinu svo orð
meðal annars;
ngi“.
»Nei — leyfin á að veita í hlut-
falli við innflutning verzlananna
síðustu árin áður en innflutnings-
höftunum var dembt á þjóðina í
þeirri mynd, sem nú er«.
Síðan bætir blaðið því við, að
engum hafi »dottið þessi höfðatölu-
regla Dags í hug«.
En nú skal ísl. spurður að einu,
sem iniklu ináli skiptir: Við hvað
miðuðu verzlanir innflutning sinn,
áður en innflutningshöftin komu til
sögunnar? Vitanlega getur hvorki
ísl. né neinn annar svarað þessu
nema á einn veg, svo að nokkurt
vit verði úr. Verzlanirnar iniðuðu
innflutningsmagn sitt eingöngu við
það, sem þær töldu sig geta selt.
Enginn kaupmaður er svo grunn-
hygginn að kaupa inn vöru, aðeins
til að láta hana liggja hjá sér ó-
selda. Nú hlýtur það að liggja í
augum uppi, jafnvel hverju barni,
að því fleiri viðskiptamenn, sem ein-
hver verzlun hefir, því meira vöru-
inagns þarfnast hún. Niðurstaðan
verður því óhjákvæmilega þessl:
Kaupmenn og kaupfélög miðuðu
innflutning sinn, áður en innflutn-
ingshöftin gengu í gildi, við það
vörumagn, er seljast mundi, en það
var aftur fyrst og fremst bundi'ð við
fjölda viðskiptamanna — »höfða-
töluna«, er ísl. orðar svo.
Þetta allt er ofur auðskilið og
einfalt mál. Er það hastarlegt, að
»sjálfstæðismenn« skuli velja sér
svo fávísan ritstjóra, að hann botni
ekki í torskildara efni en hér er um
að ræða.
Það er hin fáránlegasta vitleysa,
að engum hafi dottið »höfðatölu«-
reglan í hug fyrr en Degi. Þegar
verzlanirnar gáfu upp innfiutnings-
magn sitt 3 undanfarin ár, áður en
innflutningshömlurnar hófust, þá
hlaut sú skýrslugerð að byggjast á
viðskiptamannafjöldanum, og þegai
innflutningsleyfum var úthlutað, þá
hlaut áframhaldandi að vera byggt
á sama grundvelli.
Þessum staðreyndum neitar fsl.
Það er kallað að berja höfðinu við
steininn.
Stefna kaupmannablaðsins er Ijós
í þessu máli. Það krefst þess að
ekkert tillit sé tekið til viðskipta-
mannafjölda og um leið vöruþarfa,
þegar innflutningsleyfi eru veitt.
Það er auðskilið, hvar fiskur liggur
undir steini. Menn þyrpast hópum
saman inn í K. E. A. frá kaupmönn-
um, ekki nauðugir eins og lsl. segir
Ijúgandi, heldur af fúsum og frjáls-
um vilja, af því þeim þykir betra að
skipta við féiagið en kaupmanna-
verzlanir. Viðskiptainönnum kaup-
félagsins fjölgar, en fylkingar kaup-
mannaverzlana þynnast. Þess vegna
vill Isl. spyrna á móti því, að við-
skiptamannafjöldinn sé tekinn til
greina, þegar innflutningsleyfi eru
veitt, svo að vöruþurrð verði, þar
sem almenningur vill hafa viðskipti,
og fólkið neyðist til að flytja við-
skiptin til kaupmannaverzlana aftur.
A þenna hátt vill ísl. láta þrýsta
mönnum með ofbeldi til að flytja
verzlunarviðskipti sín til hinna deyj-
andi fyrirtækja og brjóta um leið
vaxtarbrodd framþróunarinnar í
verzlunarsökuin.
Þetta kallar fsl. heiðarlega sam-
keppni!
Réttsýnir menn líta aftur á móti
svo á, að .fólkið eigi að fá að hafa
viðskipti, þar sem það sjálft vill að
frjálsu vali, og að þar megi sízt
verða þurrð á nauðsynjavörum.
Þessi stefna ber sigurinn í sjálfri
sér, af því hún grundvallast á frelsi
og réttlæti.
Stefna ísl. er dauðadæmd, af því
hún er byggð á ofbeldi og óréttlæti.
ísl. talar um »ósóma«, sem Dag-
ur sé að verja, en við þá vörn verði
»skömm« hans meiri. Ojæja. Það er
þá ekki úr vegi að minna á það, að
ekki eru nema nokkrar vikur síðan
»fslendingur« þorði ekki annað en
eta ofan í sig lygi og róg, er hann
hafði flutt um K. E. A. og fram-
kvæmdastjóra þess. Hvað er meiri
skömm í blaðamennsku en að haga
sér þannig, en »mega svo biðja
mn miskunn þar og .......«. — Nóg
um það. fsl. getur kynnt sér niður-
lag þessarar vísu síra Jóns Þorláks-
sonar.
Og gargaðu svo, nazistaungi, eins
og þú hefir hljóðin til.
SnndnáDi og slysavarnir.
Lárus Rist hefir nýlega lagt fram
eftirfarandi tillögu til umræðu. Hún
hefir vakið athygli syðra og er ekki
ósennilegt að hún eigi eftir að verða
að veruleika. Allir þekkja áhuga
Lárusar á hverskonar líkamsmennt
æskulýðsins í landinu og vita, að
hann var um skeið einn aðal forvíg-
ismaður sundíþróttar hér norðan-
lands. — Það er og að verða æ ljós
ara með hverju ári sem líður, að
skortur á heilbrigðum og haldkvæm-
um markmiðuin í allri íþróttastarf-
semi eru hið mesta mein. Sú hin
eitraða sýningafýsn og metasótt,
sem íþróttastarfsemin er um of hald-
in af, dregur úr henni þann mátt og
kjarna, sem hún gæti annars verið
hrjáðum og heifsuvana lýð. —
Því er hvert orð og hver tillaga,
sem fram kemur um breytingu til
bóta, þess verð, að hún sé tekin til
athugunar. Þessvegna er tillaga L.
R. birt hér. Vera má, að einhverjir
hafi ýmislegt við hana að athuga.
En komi þeir þá með annað betra.
Höfuðviðfangsefnið er það, að koma
auga á heilbrigt markmið, sem unga
fólkið þarf svo að keppa að.
Og hér er svo tillaga Lárusar
Rist.
Sn. S.
T I L L A G A
til athugunar fyrir Slysavarnarfélag
íslands.
Innan Slysavarnarfélags íslands
og undir þess umsjá sé stofnuð sér-
stök starfsdeild er nefnist:
Sundbjörgunardeiid Slysavarnar-
félags Islands.
Deild þessari mundi mega koina
fyrir með tvennu móti, eftir því sem
hentara þætti, annaðhvort með því
að fjölga mönnum í stjórn Slysa-
varnafélagsins með sérstöku tilliti
til þessarar starfsemi, eða að valin
sé af Slysavarnarfélaginu sérstök
nefnd (Sundbjörgunarráð) er hafi
stjórn þeirra mála með höndum, er
að starfseini þessari lúta, undir yfir-
umsjón Slysavarnarfélagsins. Öll
verkleg störf séu unnin af skrifstofu
Slysavarnarfélagsins.
Hlutverk þessarar starfsdeildar er
að vinna að sundbjörgunarkunnáttu
og öllu því er lýtur að björgun
druknaðra.
Hlutverki sínu vill deildin ná,
ineðal annars með því, að reyna að
koma því til leiðar, þar sem sund-
kennsla fer fram, að sérstök áhersla
sé lögð á alla þjálfun og kunnáttu f
því, er að slíkri björgunarstarfsemi
lýtur, auk þess sem deildin gengst
fyrir því, að nátnskeið séu haldin í
þessu augnamiði eftir því sem hún
telur sér fært.
Sundbjörgunardeildin annast að
sundnemar geti tekið fullnaðarpróf í
sundkunnáttu og sundbjörgun og
skulu þau vera stighækkandi og
nefnast: kandidatspróf í sundkunn-
áttu og sundmeistarapróf.
Slysavarnardeildin útnefnir próf-
dómendur eða votta og lætur útbúa
prófskírteini auk þess, sem deildin
gWIHWIWWIWWWWWg
| Suðusúkkulaði |
82 .Petit' 3
82 .Freyja* 28
82 .Cabello'. JS
8M Þessar ágætu tegundir fást alltaf í •£
82 Kaupfélagi Eyfirðinga, 28
Nýlenduvörudeild,