Dagur - 27.02.1936, Side 3
9 tbl.
DAGUR
35
•••••• •••• ••••••••• • • •• • • •• •• • ••
• • • * • •—• • • • •-•-•-•-• ■• • • •
lætur gjöra tvennskonar verðlauna-
peninga, úr bronse og silfri, sem
einungis þeir fá að bera, sem sund-
próf hafa staðizt og unnið þrautir
þær er hverju prófi tilheyrir. Fyrir
skírteinið og verðlaunapeninginn
greiði hlutaðeigandi ákveðið gjald.
Þrautirnar séu þessar:
Kandidatspróf:
Karlar Konur
Bringusund .......... 600 m. 400 m.
Baksund ............. 300 — 150 —
Sund í fötum ........ 300 — 150 —
Björgun (með mann) .. 50 — 25 —
Kafsund ............. 10 — 7 —
Sækja í botn í dýpi
sem er .......... 3 — 2,5 —
Dýfing frá hæð jlsem er 3 —- 3 —
Afklæðing' (án sokka- og skófatnaðar).
Kunnátta í lífgun drukknaðra.
Sundmeistarapróf:
Karlar Konur
Bringusund í opnum sjó 1000 m. 600 m.
Baksund í opnum sjó ... 600 — 300 —
Sund í fötum (fatnað-
ur x sokkar og skór ... 600 — 300 —
Björgun með mann ... 200 — 100 —
Kafsund ............. 25 — 15 —
Köfun ............... 4 — 3 —
Dýfing- frá hæð sem er 5—7 —5—7 —
Afklæðing (alfatnaður, sokkar og skór).
Fullkomin kunnátta í öllu er lýtur að
lífgun drukknaðra.
Framanritaðar tillögur eru aðeins
bending í þá átt sem verða mætti
þessum þætti björgunarmálanna til
stuðnings. Eru þær sniðnar eftir
starfsemi hins enska björgunarfé-
lags »The Royal Life Saving Soci-
ety« og samskonar félagsstarfsemi
i Danmörku og þó einkum í Sví-
þjóð.
öll nánari atvik er að þessari
starfsemi lúta yrðu ákveðin í reglu-
gerð, er samþykkt skyldi af Slysa-
varnafélaginu.
At hu g i s t.
Líkur eru fyrir þvi, að þeir, sem
liafa staðizt þessi próf og fengi'ð
viðitrkenningu Slysavarnarfélagsins
fyrir því, fái niður sett iðgjöld i hinu
nýstofnaða íslenzka lífsábyrgðarfé-
lagi.
Reykjavík, 28. defc. 1935.
Lárus Rist.
Greinargerð.
1. Viðurkenning lífsábyrgðarfé-
laganna með lækkuðum iðgjölduin
fyrir sundmenn og forganga Slysa-
varnafélagsins fyrir slíkri starfsemi,
sem hér um ræðir, væri hin bezta
uppörfun til aukinnar sundkunnáttu.
2. Stighækkandi próf gefa nem-
endum ákveðið takmark að keppa
að.
3. Sundkennslunni er stefnt í hag-
nýtara horf en nú tíðkast.
4. Slysatryggingarfélagið sjálft
kemst í lífrænna samband við æsk-
una í landinu en ella mundi.
Lárus ]. Rist.
Hjálprxðisherinn. Sunnudag kl. 10H
Bæn, kl. 2 Sunnudagaskóli, kl. 8%
Hjálpræðissamkoma. Kapt. Thorleif
Fi’edriksen aðstoðaður af Löitnant B.
Hansen og hermönnum. Strengjasveitin.
Allir velkomnir. Mánudag 2. mars kl. 4
heldur Heimilissambandið útbreiðslu-
fund. Séra Friðrik Rafnar o. fl. tala.
AUar konur eni velkomnar.
Svínarækt.
III.
Fódrun svína.
í köflunum hér á undan hefi ég
stundum vikið ofurlítið að fóðrinu,
þegar varla varð hjá því komizt, til
skilningsauka. í þessum kafla kem
ég nánar inn á fóðrunina, og þau
hin einstöku fóðurefni, sem við ís-
lendingar eigum helzt völ á.
Svínið er fjölæta, og getur því
hagnýtt sér margslags fæðu. Or-
gangur frá eldhúsum, sláturhúsum,
mjólkurbúum o. s. frv. er víða að-
alsvínafóðrið.
Allan slíkan úrgang þarf þó að
blanda og bæta með öðrum tegund-
um fóðurs, vegna þess hvað hann er
oft einhliða, og stundum skemmdur.
Næringarefnaþörf svínsins er sem
annara húsdýra okkar í aðalatrið-
um. Það stendur það ver að vígi
með að hagnýta sér tormelt eða illa
undirbúið fóður, en önnur húsdýr
vor, að það tyggur illa og melting-
argangur þess er hlutfallslega mun
styttri en þeirra.
Þessvegna verður að tilreiða fóðr-
ið, svo svíninu notist það sem bezt.
Grænfóður og súrhey þarf að
hakka í þar til gerðri vél, hand-
hreyfðri eða vélhreyfðri, eftir um-
fangsmagni og stærð búsins.
Blanda síðan í það dálitiu rúgmjöli,
svo það étist betur.
Rófur og rófnablöð má tilreiða
á sama hátt; sumir telja þó betra
að rífa niður eða raspa rófurnar,
svo úr þeim verði mjöl. Gefið,
blandað með rúgmjöli.
Kartöflur skal sjóða, og ekki
meira en notað er þann daginn.
Stappa þær síðan í íláti, og hræra
út í soðið, ásamt dálitlu af mjöli og
3—8 gr. á dag, pr. svín, af matar-
salti.
Bygg (islenzkt) er nauðsynlegt
að kurla eða mala, því annars er
hætt við að hýðissterkustu kornin
gangi órnelt niður af svínunum og
fari þannig algerlega til spillis.
Byggmjöl notast álíka vel og rúg-
mjöl saman við grænfóður eða ann-
að það fóður, sem illt étst án mjöls.
Sláturhúsaúrgang þarf að sjóða
(bakteríur) og bita eða saxa, svo
hann notist o. s. frv.
Sama er að segja um fiskiúrgang.
Venjulega gerir einhver ein teg-
und aðalfóður svinanna á hverju
búi. • Á stórum heimilum, þar sem
unnið er úr mjólkinni skyr og ostar,
hlýtur aðalfóðrið að vera mysa og
ýms mjólkurúrgangur. Á minni bú-
um ýms eldhúsúrgangur (matar-
leifar, mjólkursull, fiskur o. fl.) á-
samt garðamat og grænfóðri.
Munurinn á aðalfóðri þessara
tveggja búa er geysimikill. Á stóra
búinu er það einhæft, á litla búinu
fjölbreytt bianda.. Það er því sér-
staklega á stærri búum, sem leggja
verður áherzlu á nauðsynlega I-
blöndun annarra fóðurefna, svo
dýrin þrífist. Með t. d. mysu sem
aðalfóður, er nauðsynlegt að gefa:
síldarmjöl, grænfóður og rúgmjöl
eða byggmjöl saman við það. Að
vísu þarf ekki stóran skammt af
hvorri þessara tegunda, ef aðalfóðr-
ið er nóg, en því meira sem það er
takmarkaðra.
Ymsum stærri búa eigendum
hættir oft við að fóðra svínin sín
illa, þau eru mögur þegar eldistím-
inn — 6—8 vikum fyrir slátrun —
kemur. Þá fara þeir að ryðja í þau,
svo sæmileg sláturvigt náist!
Eg er sannfærður um að slíkur
fóðrunarmáti er óheppilegur og
jafnvel skaðlegur að ýmsu leyti.
llla fóðruð svín eru oft sjúk, og
þá er auðsætt hvernig þau taka eldi.
Enda verður sú reyndin, að þau
hálfmelta ekki hið dýra eldisfóður,
svo mikill hluti þess fer í saurinn.
Hafið því mitt ráð! Fóðrið gris-
ina þannig, að framför þeirra megi
tákna með beinni limt, stöðugt vis-
andi upp. En ekki hlykkjótt eða
jafnvel niður á við, sem, því miður,
tnun eiga sér stað.
Hafið ekki fleiri svín, en þið eruð
færir um að fóðra vel!
Fóðurþörf svína er mismunandi
eftir aldri o. fl. Grísir, nývandir
undan, þurfa minna en eina fóður-
einingu á dag. Grísir um 4 mán.
þurfa um 2 fóðureiningar og eldis-
grísir allt að 3 fóðureiningum. FulÞ
orðin dýr, geld, komast af með um
2 fóðureiningar, en grísafullar gylt-
ur þurfa allt að 3 fóðureiningum
síðara helming meðgöngutímans.
Gyltur, sem grísir sjúga, þurfa
3—5 fóðureiningar á dag, eftir því
hvað þær eru stórar og margir grís-
ir undir þeim.
Beit á góðu graslendi, að sumr-
inu, getur sparað mikið fóður; en
vegna þess hvað svínin rífa upp og
róta í jörðinni, er óráðlegt að beita
þeim á tún, heldur skal þeim ætlað
afgirt hólf, helst út undan hverri
stíu, og má þá láta þau liggja við
opið að sumrinu, þegar ekki er því
kaldara í veðri. Slíkum hólfum
þyrfti þó helzt að skipta, vegna
jarðrótsins, og sá i friðuðu blettina
— þ. e. moldarflögin í þeim —
vikkufræi eða rauðsmára, beita síð-
an svínunum á þá, þegar grasið er
vaxið og svo »koll af kolli«.
Eg ætla að telja hér upp nokkrar
helztu fóðurtegundirnar, sem við
íslendingar höfum helzt ráð á. Geta
um, hversu mikið þarf í eina fóður-
einingu, af hvorri teg. fyrir sig, eft-
ir því sem tölur Iíggja fyrir:
(Ein fóðureining = 1 kg. bland-
korn).
Ostamysa, fátæk af eggjahvítu,
en inniheldur mikið af sykurefnum
og söltum, 12 lítrar jafng. 1 kg. af
blandkorni = 1 f. e.
Skyrmysa allt að helmingi magr-
ari en ostamysa, ca. 20 1. í eina f.e.
Undanrenna, auðug af eggja-
hvítu, sykurefnum og söltum. 6 1. í
f.e. Svipað er að segja um áfir.
Kartöflur, fremur snauðar af
eggjahvítu, en auðugar af kolvetn-
um, 2—2,5 kg. í f.e.
Gttlrófur innihalda svipuð nær-
ingarefnahlutföll og kartöflur, en
eru mun snauðari en þær. f eina f.e.
þarf 3,5—4 kg.
Næpur (Tunúps) eru enn snauð-
ari en gulrófur, svo að þarf ca. 5—
6 kg. í f.e.
Kálblöð allskonar, nýtt kartöflu-
gras og gulrótagras hafa svipað
næringarefnainnihald og gulrófur,
en dálítið meira af jurtataugum
(cellulose). ca. 4 kg. í f.e. (smá-
saxað).
Taða, vel verkuð, inniheldur öll
nauðsyiúegustu næringarefnin. 2 kg.
í f.e. (saxað)’.
Súrhey (af túni), 3,5—4 kg. í f.e.
Grænfóður (vikkur, rauðsmári o.
fl.) ca. 3,5 kg. í f.e_.
Rúgmjöl, auðugt af eggjahvítu og
kolvetnum, lítið af fitu o. s. frv. 1
kg. í f.e.
Maismjöl hefir minni eggjahvítu,
cn aftur meiri fitu en rúgmjöl, önn-
ur efni svipuð. 1. kg. í f.e.
Haframjöl, og hafrar, eggjahvíta
eins og í rúgi, fitan mikil, kolvetnin
mun minni en í rúgi (hollari) 1 kg.
í f.e.
Bygg, heldur snauðara en rúgur,
en hlutfallið svipað. 1 kg. í f.e.
Síldarmjöl (saltlítið) auðugt af
eggjahvítuefnum, söltum og feiti.
0.7 kg. = 1 f.e. (Mjög salt síldar-
mjol er óhollt svínum, nema lítill
skammtur með miklum kartöflum).
Fiskiúrgangur (frá eldhúsum),
auðugur af eggjahvítu og söltum,
ca. 1—2 kg. í f.e. eftir vatnsmagni.
Steinefnaskortur þjáir svín
margra hirðulítilla eigenda. Úr hon-
um má bæta með ódýrum efnum,
svo sem svarðarmold, blandaðri dá-
litlu af mulinni krít, aðgang að
kolaösku í hlaupahólfinu, gefa ofur-
lítið af beinmjöli (ef ekki er gefið
gott síldarmjöl) o. s. frv. Sumar
tegundir, eins og kartöflur, eru
snauðar af matarsalti. Verður því,
ef núkið er fóðrað á þeim, að gefa
3—8 gr. hverju svíni á dag af mat-
arsalti. Ef gefið er með saltríkt
síldarmjöl (sjá hér áður), fá þau
nóg salt í því.
Vökvafóður skal ætíð gefa volgt,
annars orsakar það þeiin innvortis
kulda, sem er þeim óhollur, einkum
unggrísum.
Sá, sem hirðir svinin, verður að
móta fóðrun þeirra eftir þrifum og
daglegri líðan. Bæta úr, þar sem á-
bótavant er — / tíma, hjálpa minni
máttar í baráttunni o. s. frv. Arður
er oftast undir hans glögga auga
kominn.
(Framhald),
Skemmtiferð til
Bleiksmýrardals.
(Niðurlag)-.
Kl. 5 á sunnudagsmorgun vorií
allir vaknaðir. Var nú svipast Um í
nágrenninu. Laugin á Reykjuni
skoðuð og hinir prýðilegu mátjurta-
garðar Gunnars Jónatanssonar
bórtda á Reykjum, er standa rétt hjá
lauginni. Einnig er þar tún, sem
Gunnar hefir látið gera á gráum og
uppblásnum mel. Er slíkt fátítt. —
Túnið er mjög fallegt og gefur af
sér góða uppskeru. Eftir stundar-
dvöl við laugina var svo gengið inn
á hinn fagra en óbyggða Bleiksmýr-
ardal, sem liggur upp af Fnjóska-
dal, þangað sem ferðinni var fyrst
og fremst ætlað. Höfðu flestir sil-
ungastengur og var veiddur silung-
ur í Bleiksmýrardalsá, sem er áður
óþekkt. Var það þó aðallega for-
maður félagsins, sem var drýgstur á
þeírri vogarskál, enda er hann veiði-
maður mikill. Til allrar óhamingju