Dagur - 12.03.1936, Síða 3

Dagur - 12.03.1936, Síða 3
11 tbl. DAGUR 43.1 „Mér er það fyrir minnstu að vera deemdur af yður.“i Kor.3 4). Svar við opnu brefi I*áls H. Jötissonar. (Framh.). Víkur nú sögunni að predikun þeirri, er eg flutti í Einarsstaða- kirkju á nýjársdag í fyrra. Til þess að enginn þurfi að hafa sögusögn annara fyrir satt um það, hvað eg hafi sagt þar um skólana, ætla eg að birta hér orð- réttan þann kafla predikunarinn- ar, er að þvi lýtur: »Eg lít fyrst til skólanna, sem eiga að veita æskunni veganesti og vegsögn fram á leið. Skyldi nafn Jesú Krists vera letrað yfir þeirra inngöugu- og útgöngudyr? Skyldi nemendur vera leiddir til þess að láta persónu hans vera sína hæztu hugsjón? Svo er guði fyrir að þakka, að enn eru kristnir kennarar til í þessu landi, en þeir fá engan stuðning utan að; kristileg áhrif á æskulýðinn í skólum landsins eru nær eingöngu bundin við þá sem einstaklinga. Skólarnir sjálflr hafa minna og minna rúm fyrir Krist. Barnaskólarnir takmarka fræðslu i kristindómi, og æðri skólarnir þurrka hana út. Getum vér væust þess að skólavist, sem gengur á snið við Iírist, geti orðið til alhliða blessunar?* í niður- lagsorðum ræðunnar segir svo ennfremur i áframhaldi þessa: »Megi skólarnir læra að skilja sítt æðsta hlutverk: að leiða æsku- lýðinn til Krists og kenna þeim að verða samverkamenn guðs*. Fleiri orðum fór eg ekki um skólana. En svo hastarlega hneyksluðust Laugamenn fyrir hönd skólans, að því er yður segist frá, herra kennari, að jafn- vel einn þeirra kvaðst ekki myndi koma oftar í kirkju til mín ótilneyddur. Mér verður á að spyrja: Hver myndi gerast til að neyða hann? Mér vitanlega tíðkast það hvergi að knýja menn til kirkjugongu, og mín er ánægj- an að vera laus við þá kirkju- gesti, er koma sér til gremju í guðshús. Kýs eg heldur kirkjuna tóma en troðíulla fyrir tyllisakir. Rétt er það, að Lauganemandi talaði við mig að lokinni messu- gerð, en ekki voru þeir nokkurir eins og þér segið, Páll. Skiptir það að visu ekki máli i sjálfu sér, en er þó missögn, sem vandalaust hefði verið að sneiða hjá. Þessi nemandi krafð- ist þess í fyrstu, að eg tæki aftur það, sem eg hefði sagt um skól- ana. Var það að vísu til rnikils mælst, en þó kvaðst eg manna fúsastur til að gera það, ef hann gæti sannnð mér, að eg hefði eitthvað ofsagt. Var hann að vísu ekki við því búinn. Spurðist hann þá fyrir um það, hvort eg hefði átt við Laugaskóla. Kvaðst eg ekki undanskilja neinn ákveðinn skóla; hver yrði að taka það til sín er hann þættist eiga, en hins- vegar væru orð mín aðallega miðuð við þá skóla er eg þekkti betur en Laugaskóla nú, þá skóla er eg hefði sjálfur gengið í, kennt við eða átt um að sjá. Og að svo miklu leyti sem í þeim fælist ádeila, beindist hún fyrst og fremst gegn þeim aldaranda og opinberu stjórnarfari, sem lætur sér í léttu rúmi liggja, hvaða andlegum áhrifum nemendur verða fyrir og leggur skólunum engar skyldur á herðar að skapa og efla kristilega lífsskoðun innan vébanda sinna. í lok samtalsins komumst við inn á þá braut, að meta hver áhrif Laugaskóli hefði á nemendur sína í kristilega átt, eftir því hvað hver kennari um sig leggði til þeirra mála, að því er við bezt vissum. Komumst við að þeirri niðurstöðu, og vor. um báðir, að því er virtist, á eitt sáttir, að heildaráhrifin væru hvorki neikvæð ué jákvæð. Veit eg ekki betur en sú niðurstaða sé í námkvæmri samhljóðun við yfirlýsta aðstöðu skólans til þeirra mála, samkvæmt orðum skóla- stjóra sjálfs í eigin eyru mín. Verð eg því að líta svo á, að sá hiti, sem orðum yðar fylgir í heiðruðu bréfi yðar, herra kenn- ari, sé sprottinn af persónulegum áhuga yðar fyrir kristilegu starfi innan skólans. En sé svo, verður ekki hjá því komist að endur- skoða niðurstöðuna frá nýjársdegi í fyrra. Því að bæði mér og áð- urnefndum pilti, er átti tal við mig, láðist að taka afstöðu yðar til geina svo sem annara kennara við skólann. Var það visu okkar beggja sök, en þó afsakanlegt frá minni hálfu, því að eg þekkti yður þá mjög lítið og allra sízt afstöðu yðar til þessara mála. En gleymsku nemandans get eg enn engan veginn skýrt. Að öðru Ieyti mun eg ekki birta þá persónu- legu dóma, er við kváðum upp yfir einstökum kennurum án samþykkis hins hlutaðeiganda, þar eð hér var um einkasamtal að ræða. Þá er að lokum að minnast á tillögu þá um samvinnu kirkju og skóla, með sérstakri hliðsjón af Laugaskóla, er eg bar fram á héraðsfundi í haust. Sú tillaga er á þessa leið: »Fundurinn telur þörf á meiri samvinnu milli kirkju og skóla í framtiðinni og óskar þess að prestum verði fjölgað þar sem þeir geta starfað að kristilegu uppeldi æskulýðs í alþýðuskólum jafnframt almennri kennslu. Telur hann rétt að bæta við presti í prófastsdæminu, er hafi þetta hlutverk með höndum víð Laugaskóla, en þjóni jafn- framt Einarsstaðasókn«. Um þessa tillögu er það fyrst að segja, að hún er ekki upprunalega frá mér komin. A safnaðarfundi Eip- arsstaðasóknar síðastliðið vor, er rættvar um frumvarp milliþinga- nefndar í Iaunamálum um fækk- un presta, var þvi máli, er felst í síðari hluta tillögunnar fyrst hreyft af Jóni bónda Sigfússyni á Halldórsstöðum í Reykiadal. Var sú hugsun hans, að Einarsstaða- sókn yrði aftur sjálfstætt presta- kall svo sem áður var, og sæti prestur að Laugum og hefði þar á hendi kennslu jafnframt þjón- ustu sinni í þágu safnaðarins. Bar hann fram tillögu þess efnis en eigi náði hún samþykki; hafði þó nokkurt fylgi. Á héraðsfundi hreyiði ,hann þessu máli öðru sinni, en með þvi að hann var eigi reglulegur fundarmaður og hafði því eigi tillögurétt, bar eg tillöguna fram og felldi hana inn i skoðanakerfi mitt um skóla og kirkju. Ber því að skoða hana sem beint áframhald af tilraunum mínum í þá átt að skapa sam- vinnu milli Laugaskóla og presta héraðsins. Var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Um þessa tillögu segið þér, hr. Páll, að hún sé meinlaus, og tek eg það sem vott þess, að þér álítið hana ekki sprottna af ill- vilja í garð skólans eða árásar- huga. Væri svo, gæti hún tæplega talizt meinlaus. En á hitt get eg ekki fallist, að hún sé ófram- kvæmanieg meðan Laugaskóli og Einarsstaðasókn eru tvær stofn- anir. Ekki þarf til þess annað en svolitið samkomulag eða ein- falt lagaboð. Eða hafið þér aldrei heyrt þess getið, að sami maður sé samtímis starfsmaður við tvær stofnanir? T. d. eruð þér i vetur bæði kennari við Laugaskóla og forsöngvari í Emarsstaðasókn. Hvi skyldi þá ekki prestur geta hvorttveggja messað á Einars- stöðum og kennt við Laugaskóla? Má og benda á, að við tvo af héraðsskólum landsins að minnsta kosti eru viðkomandi prestar einnig kennarar, án þess að nokkuð sé talið við það athuga- vert. ög í einu nefndaráliti um frumvarp til lagá um skipun prestakalla frá síðasta Aiþingi, er gert ráð fyrir því, svo að eitt dæmi sé nefnt, að prestur sitji að Hólum í Hjaltadal og hafi ákveðnar kennsluskyldur við skól- ann þar. Mun þó engum manni detta í hug, að Hólasókn og Hóla- skóli sé með því orðin að einni stofnun! Pað eru því firrur einar og fyrirsláttur að þessi tiilaga um prest að Laugum sé óframkvæm- anleg. Hitt er annað, að erfitt mun reynast að fá henni fram- gengt eins og nú horfir. Yfirlýsing mína um það, að eg teldi Lauga- skóla útiloka sig frá kirkjunni meira en aðra sambærilega skóla, skal eg standa við hvenær sem er, og hefi fyrir henni fullgildar ástæður. Fyrst þá, að núverandi skólastjóri hefir lýst þvi yfir við mig, að hann vildi halda skólan- um utan við alla trúarlega »agita- tion« og þá aðra, að mér er kunnugt um, að við alla aðra héraðsskóla er meira eða minna skipulögð samvinna við nágranna- prestana, auk þess sem þeir eiga á að skipa sem kennurum ýmist þjónandi prestum eða guðfræð- ingum, með fullan skilning á kirkjulegri starfsemi og fúsleiktil samvinnu við kirkjunnar menn. Jarðarför Hólmfríðar Jónas- dóttur frá Kjarna, íer fram frá Akureyrarkirkju næstk. föstudag, 13. þ. m., kl. 1 e. h. Aðstandendu r n i r. Frekari ástæður þykist eg svo ekki þurfa að færa því máli lil stuðnings að svo stöddu. Enda ætti eg ekki að þurfa að fræða yður um kristilega afstöðu alþýðu- skólanna og kirkjulega starfsemi innan þeirra. Pví ættuð þér að vera kunnugri en eg. En gerist þess sýnilega þörf síðar, skal ekki á mér standa, að veita yður allar þær upplýsingar, sem eg má. Pá hefi eg í svo stuttu máli, sem mér var unnt, gefið sögulegt yfirlit yfir það, sem fram hefir komið frá minni hálfu í garð skólanna við þau tækifæri, er þér teljið mig hafa ráðist á Lauga- skóla. Eg hefi eingöngu haldið mér við staðreyndir, en forðast að þyrla upp nokkru moldryki stóryrða og staðlausra stafa. Eg hefi lýst skoðun minni á skyldu ríkisvaldsins til þess að láta skóla og kirkju vinna saman að eflingu kristilegrar lífsskoðunar. Eg hefi látið tillögur mínar tala sinu máli. Tel eg þær svo skýrar, að ekki sé um að villast, að hverju stefnt sé og út frá hvaða sjónarmiðum gengið. Læt eg svo hvern og einn af iesendum »Dags« um það að gera upp sakirnar. En yður, herra Pali H. Jónsson, kveð eg nú að sinni með kæru þakklæti fyrir hið óvænta og ágæta tæki- færi, j,sem þér hafið með bréfi yðar gefið mér til þess að gera opinberlega grein fyrir afstöðu minni til þessa máls. 1 næsta bréfkafla mun eg svo væntanlega ræða við yður þær sakir, sem þér i síðara hluta bréfs yðar berið fram á hendur mér. (Framh.). Hotgr. V. Sigurðsson. Dvöl. (Framh. af 2. síðu). V. G. er út komið og fer vel af stað. Efni er sem hér segir: Vigfús Guðmundsson: Til lesend- anna. Pár Lagerkvist: Herferð barn- anna (saga). — Arnór Sigurjóns- son: Benedikt á Auðnum. — V. G. Samvinnuheimili. — Jóhannes úr Kötlum: Ástarkvæði til moldarinnar. Nancy Hale: Saga úr daglega líf- inu (saga). Sigurður Þorsteinsson: Furðuverk nútímans. 1. Billinn. — Pétur Beinteinsson: Einn af átján (kvæði). — Þ. Þ.: Yfirlit um síð- ustu heimsviðburði. — Þröstur: Svolítið skeyti til Þuru í Garði. — G.: Bókarfregn. Héraðssaga Borgarfjarðar. — Henrik Pontoppi- dan: Mannanna börn (saga), — K. S.: 500 ára afmæli prentlistar- innar. — Á víð og dreif. — Þ. G.: Stefan Zweig. — Stefan Zweig: Hlaupaæðið (framhaldssaga). — Kýmnisögur. Dvöl kostar 6 kr. árg. fyrir á- skrifendur.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.