Dagur - 16.07.1936, Page 4

Dagur - 16.07.1936, Page 4
124 DAGUR 29. tbl. Garðars Þorsteinssonar á Saur- bæjarfundinum, áður en hann lagði á flótta. Sérstaklega er rit- stjóri „ísl.“ skotinn í lygasögum, sem G. Þ. var að segja af ílokks- fundum Framsóknarflokksins á síðasta þingi. Honum var þá bent á það, að hann hefði áður borið fram sömu lygina á fundi, þar sem Bernharð Stefánsson var mættur, og hefði hann rekið lyg- ina eftirminnilega ofan í Garðar, og hefði honum þá verið sæmra að fitja ekki upp á henni í annað sinn. Annað dæmi um frækilega frammistöðu G. Þ. á sama fundi, áður en hann lagði á flótta, má nefna þetta: G. Þ. hélt því fram, að það hefði ekkert leiðarþing verið haldið í Saurbæ í vor, og því hefði engin traustsyfirlýsing getað verið sam- þykkt á leiðarþingi þar. Þetta væri bara venjuleg ósannindi úr ritstjóra Dags. Þetta blygðunar- leysi G. Þ. gekk svo fram af fund- armönnum, að þeir höfðu upp fyr- ir honum fundarboðið, þar sem boðað var til leiðarþings fyrir Saurbæjarhrepp. Þegar G. Þ. sá, að hann var kominn í skömmina, kvað hann þetta engu máli skipta! (þ. e. hvort hann segði satt eða ó- satt). Þá hlógu fundarmenn. En jafnframt því að ritstjóri ísl. dáir þessa frammistöðu Garðars, segir hann lesendum sínum, að Framsóknarmennirnir frá Akur- eyri hafi staðið sig skítt á fundin-- um, og til að gefa þeirri frásögn sterka áherzlu, líkir hann frammi- stöðu Framsóknarmannanna við „moðpoka“. Líklega hefir ritstjór- inn sett þetta orð í ógáti fyrir „moðhausa“, því eins og kunnugt er, hefir það nafn fyrir löngu fest sig við Morgunblaðs-ritstjórana, sem spýta því í ísl., er þeim sýn- ist. ísl. spyr, hvað Ingimar Eydal hafi fengið fyrir að mæta á Saur- bæjarfundinum. Því er fljótsvar- að. Hann fékk þau laun, er honum voru kærkomnust. Hann fékk þau laun að sjá í óæðri endann á Garðari Þorsteinssyni á flótta. Og svo kvakar nazistaunginn l „tslendingi“ þakkarorð til Garð- ars og Sigurðar Kristjánssonar fyrir komuna! Th. Stauning, forsætisráðherra Danmerkur og Alsing Andersen, landvarnarráð- herra komu hingað til Akureyrar í gær. Erindi forsætisráðherrans hing- að til lands er aðallega að ræða við íslenzku stjórnina um ýms verzlunar- og viðskiptamál milli Islendinga og Dana. Síldaraflinn var síðastl. laugardags- kvöld orðinn 508.580 hl. í bræðslu. Síld- arútvegsnefnd hefir leyft 300 tunna söltun á hverja herpinót frá 13. þ. m., að þeim degi meðtöldum. Lítil síld hefir veiðst síðustu daga, íhaldsróourinn kveðinn niöur. Þann 7. þ. m. sendi íslenzka ríkisstjórnin dönsku ríkisstjórn- inni eftirfarandi mótmælaskeyti gegn fréttaburði Ekstrablaðsins: „Blað hér í bænum sendi út íregnmiða með símskeyti um grein í „Ekstrabladet“, sem hefir inni að halda ummæli um fjárhag íslands, sem eru full af algerlega ósönnum staðhæfingum og verða að teljast illgirnislegar og upp- lognar. Þar sem svo fjandsamleg blaða- skrif geta verið mjög skaðleg fyr- ir tsland, ef þau ná meiri út- breiðslu, mælist stjórnin til þess við utanríkisráðuneytið, að það skerist í leikinn og hindri slík blaðaskrif.“ Danska stjórnin brást þegar vel við þessari málaleitun og hefir nú kveðið rógburð íhaldsins hér heima, sem það hefir gert að út- flutningsvöru, algerlega niður í Danmörku. Morgunblaðið hefir ekki gefið út fregnmiða um þessa síðustu at- burði. Mjólkurvinnslustöð Mjólkursamlags Kjalarnessþings hefir verið tekin leigunámi sam- kvæmt bráðabirgðalögum, er kon- ungur gaf út 8. þ. m. Astæðan til leigunámsins var sú, að bændur, sem ekki eru i Mj ólkursamlagi Kjalarnessþings, voru gerðir afturreka frá geril- sneyðingarstöðinni með mjólk sína, með þeim ummælum, að henni yrði ekki veítt viðtaka, nema þeir gengju í samlagið. Stóð Eyjólfur Jóhannsson, for- stjóri Mjólkurfélags Reykjavíkur, fyrir þessum brottrekstri mjólkur- innar. Þessari kúgunartilraun Eyjólfs var svarað með bráðabirgðalögum um leigunám mjólkurvinnslu- stöðvarinnar. Samkv. ákvæðum 7. gr. mjólk- urlaganna er löggilding mjólkur- vinnslustöðvarinnar bundin því skilyrði, að hún gerilsneyði mjólk fyrir bændur, sem ekki eru i Mjólkursamlagi Kjalarnessþings. Þetta sveik Eyjólfur með fram- ferði sínu. Vöktu þessar tiltektir hans mikla gremju í nágrenni Reykjavíkur. Dánardægur. Marínó Hafstein fyrrv. sýslumaður andaðist að Svarfhóli í Borgarfirði 11. þ. m. Trúlofun sína hafa birt ungfrú Svafa Stefánsdóttir kennslukona og Geir Jón- asson magister. Möðnivallaklaustur: Sunnudaginn 26. júlí verður útiguðsþjónusta að Reist- ará í stað messu að Möðruvöllum og hefst kl. 2 e, h. Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal starfar í tveimur deildum næsta vetur. Kenndar verða aðalgreinar búfræðinnar, auk stuðningsgreina. — Einnig smíðar, söngur og leikfimi. Verkleg kennsla verður vor og haust. Umsóknir um skólavist sendist undirrituðum fyrir lok ágústmánaðar, sem gefur allar nánari upplýsingar. Kristfán Karlsson skólastjóri, Hvalrengi Nýtt hvalrengi verður selt — eftir pöntun (minnst 100 kg.) — hér á staðnum, úr næstu mánaðamótum. Verð pr. kíló kr. 0.30—0.35 (nánar ákveðið síðar), er greiðist við mótttöku. Undirritaður tekur á móti pöntunum, í síma 87. Sverrir Ragnars. Hestar. Danski sendiherrann í Reykjavík hefir beðið mig að kaupa nokkra hesta til Grænlandsleið- angurs Dr. Lauge Koch. Hestarnir eiga að vera á aldrinum frá 8—12 vetra. Aðeins óstyggir, sterkir og ófælnir hest- ar verða keyptir. Hest- arnir afhendist 22. þ. m. Akureyri 16. júlí 1936 Efloert Stefánsson. Hertergi á Oddeyri með húsgögnum óskast nú þegar fyrir 1 mann. Fæði getur komið til mála. Upplýsingar gefur afgreiðslan. — Allar skóaðgerðir fljótt og vel af hendi leystar. Lægsl verð, — í Strandgötu 19. Brynjólfur Slefdnsson. Kirkjan. Messað á Akureyri n. k. sunnudag- kl. 12 á hádegi. Verzlunarjöfnuðwriyin í lok júnímán- aðar í ár var 2Vz millj. kr. hagstæðarí en á sama tíma í fyrra. Prentvilla var í kvæði Huldu, því er birtist í 26. tölubl. Dags, 2. línu 2. er- indis. Hún er þannig prentuð: Þar aldraðar hetjur ríki vörðu. En á að vera: Þar aldoraðir hetjur ríki vörðu. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prcntsmiðja Odds Björnssonar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.