Dagur - 03.09.1936, Blaðsíða 3

Dagur - 03.09.1936, Blaðsíða 3
36 tb 1. DAGUR 151 Jarðarför Hólmfríðar Jónsdótt- ur, Aðalstræti 66, er lézt 30. f.m. fer fram að Draflastöðum í Fnjóskadal, mánudaginn 7. þ.m. kl. 12 á hádegi. Kveðjuathöfu verður á heimili hinnar látnu, laugardaginn 5. þ. m. kl. I e. h. Aðstandendur. þingmanna Eyfirðinga og afrek G. Þ. fyrir kjördæmið. Skulu þá hér nefnd nokkur dæmi til sam- anburðar: 1. Þingmenn Eyfirðinga hafa ekki eingöngu verið þingmenn kjördæmis síns, heldur hafa þeir einnig beitt sér fyrir almennum hagsmunamálum bœndastéttarinn- ar. Má þar meðal annars til nefna að þeir gengust fyrir og komu fram lögunum um styrk til á- byrgðarmanna lántakenda úr Kreppulánasjóði. Veitti ríkið sam- kvæmt þeim lögum 750 þús. kr. í styrk, gegn jafnmikilli eftirgjöf frá lánsstofnunum. Fyrir forgöngu þingm. Eyf. hafa skuldir bænda þannig beinlínis verið lækkaðar um eina og hálfa milljón, með þessum lögum. Án þessara laga hefði kreppu- uppgjörið lent í hinu mesta öng- þveiti. Hvað hefir Garðar Þorsteinsson gert hliðstætt þessu fyrir bændur? 2. Þingmenn Eyf. gengust einn- ig fyrir frambúðarlækkun á fast- eignaveðslánum bænda. t Hvað hefir Garðar Þorsteinsson gert? 3. Það voru þingmenn Eyf., sem útveguðu ríkishjálp til þess að bæta úr hinu stórfellda tjóni hér við Eyjafjörð, sem orsökuðust af landskj álf tunum, stórbriminu haustið 1934 og bátasköðunum i Ólafsfirði. Garðar flutti að vísu tillögu um hærri upphæð til hins síðasttalda, en allir vissu, að það var gert aðeins til að sýnast. 4. Þingmenn Eyf. hafa á síðustu árum fengið þessa vegi tekna í jbjóðvegatölu og þar með létt við- haldi þeirra af sýslunni: Eyjafjarðarbraut að Saurbæ; veginn til Dalvíkur og nú síðast veginn frá Dalvík inn Svarfaðar- dal að Urðum og veginn frá Kaup- angi að Laugalandi. Hvað hefir G..Þ. gert fyrir vega- mál kjördæmisins? 5. Það voru þingmenn Eyf., en ekki G. Þ., sem útveguðu á síðasta þingi 15 þús. kr. af benzínskattin- um, til þess að bæta vegina kring- um Akureyri. 6. Það eru þingmenn Eyf., en ekki G. jÞ., sem komið hafa því til leiðar að fært hefir verið út símakerfið í kjördæminu; þeir út- veguðu nýja símalínu frá Akur- eyri og vestur Öxnadalsheiði. Við það komust 3 hreppar í símasam- band. 7. Það voru þingmenn Eyf., en ekki G. Þ., sem útveguðu fjár- framlag frá ríkinu til Laugalands- skólans. 8. Þingm. Eyfirðinga áttu á sín- um tíma mikinn þátt í því, að síld- arverksmiðjan komst upp á Siglu- firði, að heilsuhælið í Kristnesi var reist og að Akureyrarskóli var gerður að Menntaskóla. 9. Þingm. Eyf. gegna hinum ábyrgðarmestu störfum á Alþingi, Einar Árnason t. d. forsetastörfum og Bernharð Stefánsson hinum þýðingarmestu nefndastörfum. Á þenna hátt kemur í ljós traust það, er þeir njóta meðal samþing- ismanna sinna og það jafnvel hinna greindari andstæðinga þeirra. Svo kveður ómerkilegur íhalds- skussi í Reykjavík upp þann dóm í Mbl., að þingmenn Eyf. hverfi í skuggann af afreksverkum Garð- ars Þorsteinssonar, sem ekki er vitað að hafi gert neitt til gagns á Alþingi. Hann hefir reyndar stundum blásið sig upp og flutt tillögur um fjárframlög til Eyja- fjarðarkjördæmis, ekki í þeim til- gangi að gera héraðinu gagn, held- ur til þess eins að yfirbjóða þing- menn Eyf., vel vitandi það að ekki var hægt að sinna tillögum hans, eins og t. d. um 55 þús. kr. í Siglu- fjarðarskarð, þegar þingm. Eyf. voru búnir að útvega þangað 15 þús. kr. Þessa kátbroslegu yfirboðsað- ferð hefir Garðar Þorsteinsson lært af kommúnistum. Hún er háttur þeirra, sem aldrei dettur neitt nýtilegt í hug, en vilja sýn- ast menn með mönnum. Nú er svo til lokið sölu á öllu kjöti sem flutt var úr landi, af framleiðslu ársins 1935. Meðal- verð á því kjöti sem Samb. ísl. samvinnufélaga hefir selt, er nú reiknað út og liggur fyrir. Á freð- kjötinu er það 82 aurar pr. kg. og á saltkjötinu 67,5, og er þá frá báðum dreginn kostnaður s. s. umbúðir, salt, frysting, sölukostn- aður o. s. frv. eins og hann reyn- ist að vera að meðaltali hjá kaup- félögum landsins. í fyrra urðu tilsvarandi verð 71,5 og 54 aurar hvorttveggja pr. kíló. Þegar heildsöluverð á kjöti seldu á innlendum markaði, var ákveðið af nefndinni í byrjun sláturtíðar 1935, var búizt við því, að það mundi geta gefið til bænda um 90 aura verð pr. kg. þegar miðað væri við meðalsölukostnað. Eftir upplýsingum frá þeim fé- lögum og verzlunum, sem ein- göngu hafa selt kjöt sitt innan- lands, hafa þau þegar greitt til bænda frá 80 til 95 aura pr. kg., en sum þeirra eiga eftir að gera kjötverðið endanlega upp, en vit- að er að þau geta bætt nokkru við það verð, sem þau þegar hafa borgað. Innanlandsverðið til v bænda mun því verða líkt því sem kjöt- verðlagsnefnd gerði ráð fyrir, þá hún ákvað heildsöluverðið s. 1. haust og með tilliti til þess hefir nefndin nú ákveðið að bœta salt- kjötsverðið upp með 11,5 aurum svo það verði að meðaltali sem nœst 79 au. pr. kg. til bœnda, og freðkjötið með 3 aurum svo með- alkílógramm af því verði sem nœst 85 aurar, en frá freðkjöts- verðinu er þá ekki dreginn slátur- lcostnaður. Tilsvarandi verð í fyrra voru 68 aurar og 81 eyrir pr. kg. Þess skal getið að freðkjöts- birgðir þær, sem til voru 1. ágúst eru nú sama sem seldar, nema lít- ið eitt af sauðakjöti, sem enn er eftir og verður að selja með kjöti næsta árs. Reykjavík 28. ágúst 1936. Páll Zóphóníasson. Jón Árnason. Helgi Bergs. Ingimar Jónsson. Þorleifur Gunnarsson. lagði 11 manna hópur af stað í bifreið sl. laugardagskvöld áleiðis að Reykjum í Fnjóskadal; er það fremsti bærinn í dalnum vestan Fnjóskár. Þegar Vaðlaheiðar- brautinni sleppir hjá Skógum, er enginn upphlaðinn vegur fram dalinn, og er því sá hluti leiðar- innar seinfarinn, en því betra næði er fyrir ferðamennina að at- huga „bændabýlin þekku“ á hægri hönd, þegar farið er fram dalinn, og einstöku eyðibýli á milli. Austan Fnjóskár blasa við skógarnir, Vaglaskógur og Þórðar- staðaskógur. Nú eru þeir dökk- brúnir — sjúkir — eftir skógar- maðkinn. Er það hryggileg sjón. Maðkurinn hefir einnig lagzt á berjalyngið í dalnum. Að Reykjum kom ferðafólkið síðla kvölds og voru viðtökur vin- samlegar og hlýlegar. Búið var um sig í heyhlöðu um nóttina, gengið seint til hvílu og snemma risið á fætur, lítið sofið, en því meira rabbað, sagðar sögur o. s. frv. að hætti gangnamanna, er líkt stóð á íyrir nóttina áður en lagt var af stað í göngurnar. Á sunnudagsmorguninn dreifð- ist flokkurinn nokkuð, flestir gengu á Bleiksmýrardal, sem er afréttardalur fram af byggðinni. Iiinir þungfærari héldu sig í nánd við Reyki, skoðuðu heitu laugina suðaustur frá bænum og garð- ræktina þar, sem er bæði mikil og góð. Sumir reyndu silungsveiði í Fnjóská, en urðu ekki fengsælir. Sumir þeirra, er á dalinn gengu, hurfu aftur til baka að Reykjum, er á daginn leið. En fjórir göngu- garpar vildu enn kanna ókunna stigu og lögðu leið sína yfir fjall- ið milli Bleiksmýrardals og Garðsárdals og léttu ekki göng- unni fyrr en þeir komu út í Kaup- angssveit. Þar hittu þeir ferðafé- laga sína, sem komið höfðu með bifreiðinni að austan. Þeir, sem yfir fjallið fóru, voru: Ólafur Jónsson framkvæmdastj., Til leigu óskast frá 1. okt. tvö her- bergi, helst samliggjandi. — R. v. á. Tvö herbergi og eldhús til leigu 1. okt. Upplýsingar hjá Ktíra Johannssyni K. E. A. II af ágætu kyni til sölu. — árni Jóhannssen, Kea, visar á. fir hestar af á til sölu nú þegar. Jóhanna Sigurðardóttir, 'Brekkugötu 7. ÁGÆT KÝR til sölu, veturnáttabær, 8 vetra, ársnyt 3200 — 3800 lítrar, fitumagn 4,40 —4,75°/o.Tækifærisverð. Menn snúi sér til Árna Jóhannssonar, Kea, eða Árna Jakobssonar i Skógarseli. höfum við nú fengið aftur4 Járn- og glervörudeild. Stefán Gunnbjörn ráðsmaður, Þóroddur Guðmundsson kennari frá Sandi og Geir Jónasson ma- gister. Sá síðasttaldi hafði orðið viðskila við félaga sína, fór nokk- uð aðra leið en þeir og kom nokkru síðar til byggða á sunnu- dagskvöldið. Einn úr hópnum. Ættjarðarkvæði. ísland! ísland, ættarláð! Eldastorð við kalda sundið, — jöklum krýnd og hretum hrjáð, heitum sólargeislum stráð! Margra alda minning fáð mætan krans þér hefir bundið. ísland! ísland, ættarláð! Eldastorð við kalda sundið! Þörfum öflum þrungna jörð! Þúsund-drauma-landið fríða! Elska þig við örlög hörð óskabörn, af vilja gjörð. Um yztu strandir, efstu börð ótal handa störfin bíða. Þörfum öflum þrungna jörð! Þúsund-drauma-landið fríða! Blárra himna björtu völd blessi þig um aldir nýjar! Öll þín glæstu gróðurtjöld! Gljáar lindir! Stjörnukvöld! Brunasanda! Breðafjöld! Bjarga-tinda! Sveitir hlýjar! Blárra himna björtu völd bessi þig um aldir nýjar! Sigurður Draumland.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.