Dagur - 19.11.1936, Blaðsíða 3

Dagur - 19.11.1936, Blaðsíða 3
47. tbl. DAGUR 195 • • < Heilsufar og iþróttalif. (Niðurl.) Sameiginlegt íþróttahús fyrir skól- Og barnaskolinn er að baslast við að kenna leikfimi í söngsal skólans við hin aumustu skilyrði, sem hugsast geta, og börnin fá bað í þvottahúsi skólans í kjallar- anum, lítilli kytru, o,g skapa þrengslin þar hina mestu óþrifa- hættu, sem sum heimili í bænum hafa fengið að kenna á. Ætlað var að upp kæmist leikfimihús við skólann, þegar eftir byggingu hans, en það hefir nú ekki orðið enn. — Málið horfir því þannig við. að enginn af skólum bæjar- ins getur látið iðka fimleika hér í vetur og allur æskumannaskar- inn í bænum utan skólanna á þess heldur engan kost, að iðka leik- fimi í frístundum sínum, því til þess vanta, sem sagt, öll skilyrði. Það hljóta því allir að sjá og skilja, að slíkt ástand er með öllu óviðunandi. Hér þarf því skynsamlegra og skjótra úrræða við. Og skynsam- legustu úrræðin eru þau, að bær- inn og ríkið byggi saman eitt full- komið íþróttahús, nálægt sund- lauginni. Þar á hvort eð er í- þróttavöllur framtíðarinnar að vera. Og væri þá svo að segja á sama stað sundlaugin, íþróttahús- ið og íþróttavöllurinn. Mennta- skólinn og barnaskólinn eiga þangað stuttan veg að sækja, og einnig Gagnfræðaskólinn, sem ætlað er að byggður verði uppi á brekkunni. Og það hefir sýnt sig, að ungmennum bæjarins blöskrar ekki vegalengdin að sundlauginni. Á himni og jörð. Tækni og vísindi í náinni framtíð. (Þýtt.) í hvert sinn og talið berst að tæknislegum framförum og fram- tíð þeirra, dettur bæði draumóra- mönnum og sérfræðingum í hug eitt af tvennu: þróun og umbætur „þráðlausra11 sendinga (allskonar útvarps og orkuflutnings), eða þá fullkomnun flug-tækninnar. Allar uppfundingar af þessu tagi stefna að einu og sama marki: tak- mörkun tíma og rúms. Með hverju flugtæki, sem hraða- met setur, nálgast borgir, lönd og álfur stöðugt meir og meir, og heimurinn hrað-minnkar. Með auknum og bættum flugsamgöng- um getur t. d. ísland „yzt á Rán- arslóðum“ orðið einskonar miðdep- iil heims. Hver ný og sterk út- varpsstöð þjappar heiminum sam- an. Tekur hann blátt áfram í bóndabeygju. Þráðlausu bylgjurn- ar fara umhverfis hnöttinn sjö sinnum á sekúndu. Tæknin hefir nú náð í halafjaðrirnar á tímanum og víðáttunum og ætlar sér að má hvorutveggja algerlega út. * Framfarirnar í þessa átt eru líka harla stórstígar um þessar mundir. Bretinn Malcolm Campbell hefir hleypt bíl sínum allt að 500 km. á aná og bæinn yrði því mjög vel sett, upp við laugina. Bærinn verður að hafa hér for- gönguna. Hann á að byrja þegar í stað að hefja samstarf við skóla- meistara og ríkisstjórn og fá síðan æskumannahóp bæjarins og aðra áhugamenn til þess að ljá málinu lið og létta undir framkvæmdir. Og það myndi takast. Unga fólkið er sáróánægt með ástandið eins og það er í þessum efnum og myndi áreiðanlega vilja leggja sig fram tii þess að bæta úr því, en átakið er það stórt að því einu er um megn að hrinda málinu fram, en það gæti léð mikilsvert lið, og bæjarfélagið er vitanlega sá eini rétti aðili til forgöngunnar. Og markmiðið á ekki að vera neitt kák, þar sem hver borast út af fyrir sig, heldur sameiginlegt, myndarlegt átak allra þessara að- ila. Það á heldur ekki að fara að lappa upp á neitt gamalt hús, leggja í það mikið fé og fyrirhöfn, sem ekki svarar svo tímans kröf- um og allir verða óánægðir með eftir stuttan tíma. Það á að reisa nýtt hús, vandað og fullkomið, sem búa má að lengi. Og það er trúa mín, þrátt fyrir allt basl og fátækt, að þetta sé hœgt ef viljinn er einbeittur og ahuginn nœgur. OG NÚ VIL EG IIÉR MEÐ SKQRA Á BÆJARSTJÓRN AK- UREYRAR AÐ TAKA MÁLIÐ UPP TIL ATHUGUNAR OG AÐ- GERÐA. Snorri Sigfússon. klukkustund. ítalinn Agello hefir flogið yfir 700 km. á sama tíma. Nýtízku úthafsskip bruna þvert yfir Atlantshaf á tæpum fjórum sólarhringum, þar sem „Restaura- tion“ 1825 fór á sex vikum. Þess- háttar tölur sýna oss, hvernig heimurinn gerbreytist umhverfis oss. Og samt er allt þessháttar enn í blá-bernsku að dómi verkfræð- inganna. Bíðið þið bara við, þang- að til við komum með nothæfar hálofts-flugvélar. Sprengi-flugvél- ar þær (rakett-flugv.), sem rúss- neskir sérfræðingar eru að þraut- reyna, er talið að geti farið um 1000 km. á klukkustund, — eða hátt upp í hraða hljóðsins. Hagnýt reynsla hefir enn eigi fengizt í þessa átt, en afrek Agello með venjulegri flugvél sýnir, að hér er aðeins um tímaspursmál að ræða. í þessu kapphlaupi við hljóð og ljós er eigi nema eðlilegt, að hiri vélræna tækni leiti eftir hagnýtu afli til reksturs. Vísindin stefna því kauppsamlega að því marki, að „leysa hin bundnu öfl“, eftir að þau í fullan mannsaldur hafa bar- izt við að „beizla hin óbundnu öfl“! Skyldi það takast einhvern- tíma að leysa hin bundnu öfl at- ómsins með sprengingu? í sama vetfangi höfum vér í höndum ó- þrjótandi afls-uppsprettu. Eitt ein- asta kíló myndi nægja til þess að framleiða hreyfiafl handa öllum vinnuvélum í U. S. A. í marga mánuði. Þegar svo verður búið að smíða flugvélar, sem fara um há- loftin, þar sem loftviðspyrna er engin, getur hraðinn orðið svo ægilegur, að vér í dag alls ekki á- ræðum að hugsa okkur það! Vél- tæknin mun eflaust leitast við að hagnýta sér „hið lofttóma rúm“ (.,vakuum“), og það ekki aðeins í háloftunum. Menn hafa nú þegar gert áætlanir um að byggja loft- tóm neðanjarðargöng fyrir sam- göngu-tundurskeyti (,,torpedo“), sem rekin verða frá einni sameig- inlegri aflstöð. Og þessum tækjum er ætlað að fara með þeim hraða, að gamla málvenjan „olíuborin elding“, verður bara seinagangur í samanburði við þann hraðal Og svo að við höfum í huga leiðina á enda: Geti vísindin leyst þá þraut á hagnýtan hátt, að leysa frumöfl- in úr föstu efni, járnbút, blýi eða steini, þá er það heldur ekki ótrú- legt, að takast muni að fljúga til tunglsins — eða upp til einhverrar jarð-systur vorrar, t. d. Mars eða Venus. (Framh.) Búnaðarfélag Sval- barðsstrandarhrepps hélt aukafund síðastl. laugardag til að taka afstöðu til hinna nýju jarðræktarlaga. Mættu 28 félags- menn af rúmlega 30, sem í félag- inu eru. Eftir dálitlar umræður, var eftirfarandi tillaga samþykkt með 15 atkv. gegn 9, — 4 sátu hjá: „Aukafundur háldinn í Bún- aðarfélagi Svalbarðsstrand- arhrepps 14. nóv. 1936, lýsir ánœgju sinni yfir hinum nýju jarðrœktarlögum. Tel- ur þau stefna í rétta átt, sérstaklega viðvíkjandi at- riði 7. gr. um kosningar til Búnaðarþings, og atriði 17. gr. um að jarðræktarstyrk- urinn verði framvegis tal- inn sem vaxtálaust framlag ríkissjóðs til þeirra býla, sem styrksins njóta, og verði óafturkrœft fylgifé þeirra, sem jarðeigandi geti ekki látið ganga kaupum og sölum. Jafnframt lýsir fund- urinn yfir því, að hann tel- ur heppilegt og sjálfsagt, að Búnaðarfélag íslands fari framvegis með framkvæmd og umsjón jarðræktarlag- anna, og skorar á búnaðar- þing að breyta lögum fé- lagsins í samrœmi við jarð- ræktarlögin nýju, og taka að sér framkvæmd þeirra.“ .. Kvenfélagið »Iðimn* heldur samkomu í þinghúsi Hrafnagilshrepps laugardag- inn 21. nóv. næstk. Til skemmtunar verður dans og bögglauppboð. Veiting- ar fást á staðnum. Hjá Ipræðish erinn. Sunnud. kl. 10% bæn, kl. 2 sunnudagaskóli, kl. 6 barna- samkoma. Öll börn velkomin. Kl. 8% hjálpræðissamkoma, kapt. Fredriksen talar. Lötn. og herm. aðstoða. Allir vel- komnir. Fuglaskyttur! flthugið. Eg kaupi sjaldséða, ófriðaða fugla. Krisí/dn Oeirmundsson, Aðalstræti 36 — Akureyri. íþróttahús. Eftirfarandi tillaga var sam- þykkt á fundi ungmennastúkunn- ar „Akurlilja“ nr. 2, sunnudaginn 15. þ. m.: „Fundurinn samþykkir að stúk- an leggi fram kr. 150.00 og sé það byrjun að sérstökum sjóði, er var- ið sé til að koma upp íþróttahúsi á Akureyri. Ennfremur að kjósa þriggja manna nefnd, til að byrja undirbúning að framkvæmd byggingar íþróttahúss, og mælast til þess að bæði íþróttafélögin hér í bænum kjósi einnig 3ja manna nefndir i sama augnamiði. Á sameiginlegum fundi þessara nefnda, íþróttaráðs Akureyrar og fulltrúa skólanna í bænum sé svo ákveðið á hvern hátt málinu verði bezt komið í framkvæmd.“ Eins og ofangreind fundarálykt- un ber með sér, er nú vaknaður áhugi ungra manna hér í bæ fyrir því að koma upp íþróttahúsi og er það gleðiefni, því vöntun slíkrar byggingar hlýtur mjög að standa í vegi fyrir efling íþróttalífs á Akureyri, sem er einn sterkasti þátturinn í menningu bæjarbúa. Er þess að vænta að allir áhuga- menn í þessum efnum taki nú höndum saman til þess að undir- búa málið sem bezt og hyggileg- ast og hryndi því síðan til fram- kvæmda. Sigurður Pálsson kom heim frá Þýzkalandi 13. þ. m. Þar hefir hann stundaö ullariðnaóarnám (textile Mani- facture). Undirbúningsnám sitt fékk Sigurður við Klæðaverksmiðjuna Gefj- un á Akureyri. Þar stundaði hann nám 3% ár. Þá fór hann til iðnaðarháskól- ans í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan í janúarmánuði sl. Fór þá til lit- unarskólans í Frankfurt-Am-Main, og að því námi loknu dvaldi hann við ull- ariðnaðarskólann í Aachen. Við alla þessa skóla la.uk hann lofsamlegum prófum. Nú er Sigurðu ráðinn starfs- stjóri við klæðaverksmiðjuna Gefjun. Skógeðwrverksmiðja S. í. S. Á síðastl. sumri lét Samband íslenzkra. samvinnu- félaga byggja eina hæð ofan á Sútun- arverksmiðju sína við Glerá. Nýbygg- ing þessi hefir 785 m2 gólfflöt og er ætluð fyrir skógerðarverksmiðju sem S. f. S. er að setja á stofn, og að nokkuru leyti til a.fnota fyrir sútunarverksmiðjT una. Allar vélar til skógerðarverksmiðj- unnar eru komnar á staðinn og byrjað að setja þær niður. Umsjón meé því verki hafa tveir Svíar, er komu með Gullfossi 13. þ. m. Er annar þeirra skógerða.rmeistari en hinn upp- setningarmaður véla (montör). Skógerðin tekur til starfa jafn skjótt og lokið er nauðsynlegum undirbúningi. Byrjað verður á að búa til skíða- og' verkamannaskó. Efnið sem unnið verð- ur úr er að mestu leyti framleitt í sútunarverksmiðjunni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.