Dagur - 26.11.1936, Blaðsíða 1
D AGU R
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddági fyrir 1. júlí.
XIX. ár
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
. T Akureyri 26. nóvember 1936.
48. tbl.
jSamfylkingin'
Þrítugnr ráðherra.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra átti þrítugsafmæli 13. þ. m.
Þann dag héldu Framsóknarfélög-
in í Reykjavík skemmtifund að
Hótel Borg, þar sem ráðherrann
var gestur þeirra og þar sem hann
var hylltur. Var þar rækilega
minnzt hinna þýðingarmiklu og
þjóðnýtu starfa, er Eysteinn Jóns-
son hefir af hendi leyst.
Mörg heillaskeyti bárust ráð-
herranum þenna dag; þar á meðal
var eitt undirritað af 112 nemend-
um héraðsskólans á Laugarvatni.
Sáust þess glögg merki þenna
dag, hve mikils trausts og al-
mennra vinsælda Eysteinn Jóns-
son nýtur meðal flokksmanna
sinna.
Eysteinn Jónsson er yngsti ís-
lendingur í ráðherrastól. Starfs-
saga hans er einstök í sögu ís-
lenzkra stjórnmála. Hann ólst upp
sem sjómaður í litlu þorpi á Aust-
urlandi, 23 ára er hann orðinn
skattstj óri í Reykjavík, 26 ára er
hann kosinn til Alþingis sem full-
trúi Suður-Múlasýslu og 27 ára er
hann orðinn fjármálaráðherra Is-
lands.
Eysteinn Jónsson er einn af á-
hrifamestu forystumönnum Fram-
sóknarflokksins, einbeittur, ein-
arður, skarpgáfaður, rökviss og
mælskur með afbrigðum. Er það
mikil gæfa fyrir Framsóknar-
flokkinn að eiga svo ungum og ó-
slitnum krafti á að skipa.
hefir gefið út bækling, þar sem
hún segir að í felist „stefna Al-
þýðuflokksins í atvinnumálum
síðustu tvö ár — og tvö þau
næstu. Þar segir m. a. svo um at-
vinnuaukningu í landinu:
„Fyrirkomulag slíks atvinnu-
reksturs að öllu leyti, hvort hann
er rekinn á samkeppnis- eða sam-
vinnugrundvelli, eign einstaklinga
eða félaga, skiptir á þessu stigi
míklu minna máli. Þörfin fyrir at-
vinnuaukningu í þjóðfélaginu er
svo rík, að slíkar skipulagsbreyt-
ingar (þjóðnýting í stað einka-
reksturs) verður að bíða betrí
tíma*) nema þá aðeins, að þær
séu óhjákvæmilegar, til þess að
koma atvinnu- og framleiðslu-
aukningu fram.“
Miðstjórn Alþýðuflokksins lítur
því þannig á, að t. d. ríkisútgerð
togara skipti „miklu minna máli“
en atvinnuaukningin sjálf. Er
þetta viturlega mælt og alveg í
anda Framsóknarmanna. Kveður
hér nokkuð við annan tón en í
ályktun Alþýðusambandsþingsins,
sem skipaði svo fyrir að slíta
skyldi samvinnu við Framsóknar-
flokkinn, ef hann ekki innan
þriggja mánaða hefði fallizt á rík-
isútgerð togara.
í sambandi við þessi ummæli
miðstjórnarinnar er rétt að benda
á það, að Mbl. staðhæfir, að Al-
þýðuflokkurinn hafi nú tekið upp
stefnuskrá kommúnista! Með því
segir Mbl., að kommúnistar telji
,!i) Leturbreyting biaðsins.
skipulagsbreytingar í þjóðfélag-
inu litlu máli skipta út af fyrir
sig.
KIRKJAN: Messað í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Zion. Norsku stúdentarnir, sem voru
hér fyrir nokkrum dögum, eru nú aftur
komnir til bæjarins, og' halda samkomur
í Zion sem hér segir: fimmtud. 26.,
föstud. 27. og sunnud. 29. nóv. kl. 8.30
e. h. alla dagana. Á sunnudaginn kl. 10
f. h. verður barnasamkoma eins og
vanalega.
Unglingastúkan Akurlilja nr. 2 held-
ur fund í Skjaldborg á sunnudaginn
kl. 8 síðdegis.
Hjónaefni. Ungfrú Unnur Frimanns-
dóttir hér í bæ og- Einar Sveinbjarnar-
son frá Heiðabæ í Þingvallasveit hafa
nýlega opinberað trúlofun sína.
»fslendingnr«. segir, að 19 atkvæði
hafi verið móti jarðræktarlögunum i
Búnaðarfélagi Öngulstaðahrepps. Ekki
voru þeir nú nema. 16, sem greiddu
mótatkvæði. Er þessi villa ásetnings-
eða vanþekkingarsynd?
Stóra og litla ihatdið. Bændaflokks-
maður var spurður að því á fundi hér
nærlendis nú nýskeð, hver væri stefnu-
munur íhaldsflokksins og Bændaflokks-
ins. Sá, er að var spurður, svaraði þeg-
ar í stað, að munurinn væri sá, að 1-
haldsflokkurinn væri stór, en Bænda-
flokkurinn lítill!
Nýja Bíó hefir nú trygg't sér kvik-
mynd frá Olympíuleikunum í Berlín,
síðastliðið sumar, styrjöldinni, sem nú
geysar í Spáni og hernaði ítala í Abes-
siniu. Verður fróðlegt að sjá myndir
þessar, sem bíóið mun sýna í næsta
mánuði.
Á Alþýðusambandsþinginu var
samþykkt svohljóðandi álykun:
„13. þing Alþýðusambands ís-
lands------ hafnar eindregið í eitt
skipti fyrir öll öllum „samfylking-
ar“- og samningatilboðum Komm-
únistaflokks íslands, þar sem það
álítur, að íramgangi þessarar
starfsskrár, sem stefnir að vernd-
un og eflingu lýðræðisins í land-
inu, geti ekki verið stuðningur að
því, heldur óbætanlegur hnekkir,
að gerður sé samningur við flokk,
sem ekki verður treyst til að
vinna á grundvelli lýðræðisins að
umbótum á hag íslenzkrar alþýðu,
þar sem það er ómótmælanleg
staðreynd, að hinn svokallaði
Kommúnistaflokkur íslands er
ekki sjálfur ráðandi gerða sinna
og stefnu, en er stjórnað af mið-
stöð í erlendu einræðisríki og fyr-
ir liggja yfirlýsingar um, að
markmið hans sé ekki lýðræðis-
legar umbætur, heldur einræði
eins flokks.“
Eftir þessa skýru samþykkt seg-
ir Morgunblaðið, að Alþýðuflokk-
urinn hafi í raun og veru gengið
inn í samfylkingu með kommún-
istum og jafnvel Framsóknar-
flokkurinn líka! Svipað skýrir
blað Jóns í Stóradal frá.
Sannleikselskar eru þær, sálir
ritstjóra stóra og litla íhaldsins!
*
Islenzk raftœkfaverksmidia.
Samkvæmt heimild frá síðasta
Alþingi hefir ríkisstjórnin nýlega
ákveðið að leggja fram 50 þús. kr.
til stofnunar raftækjaverksmiðju
gegn tvöföldu framlagi frá h.f.
„Raftækjaverksmiðjan" í Hafnar-
firði. Hlutafjársöfnun er þegar
lokið og byrjað á byggingu verk-
smiðjuhússins, sem verður all-
mikil bygging. Verksmiðjunni er
ætlað fyrst um sinn að framleiða
rafmagnseldavélar og rafmagns-
ofna. Er áætlað að hægt verði að
framleiða fyrsta starfsárið 10—14
hundruð eldavélar og álíka marga
ofna. Auk þess á verksmiðjan að
geta framleitt stórar eldavélar
fyrir skip, gistihús og skóla, ofna
fyrir brauðgerðarhús o. fl. raf-
tæki. Áætlað er, að verksmiðjan
fullgerð kosti um 150 þús. kr., þar
af vélar og áhöld 40—50 þús. kr.
Talið er að útlent hráefni nemi
ekki meiru en 40—50% af fram-
leiðslukostnaði verksmiðjunnar.
Stjórnendur verksmiðjunnar
telja, að ef allt gengur að óskum,
NÝJA-BÍÓ
Föstudags-, laugardags-
og sunudagskvöld kl. 9:
Tekin eftir hinni heims-
frægu óviðjafnanlega
skemmtilegu skáldsögu
með sama nafni, eftir
Charles Dickens.
Aðalhlutverkin leika:
Freddie Bartholo>
men, Frank Lawton
Jessie Ralph, W. €.
Field, Magde Evans
Lionel Barrymore.
Það er óþarfi að lýsa þessari
mynd, því flestir hafa lesið
söguna Davið Copper-
f i e 1 d, ef ekki á frummálinu
þá í hinni ágætu íslenzku
þýðingu mag. Sig. Skúlason-
ar. Aðeins nægir að geta
þess, að myndin þræðir sög-
una mjög nákvæmlega, og
ættu því engir kvikmynda-
vinir að láta hjá líða að sjá
þessu hugþekku og afburða-
skemmtilegu mynd.
verði næsta haust, þegar Sogs-
virkjuninni er lokið og raforka
þaðan tekin til notkunar, næg raf-
tæki frá verksmiðjunni komin á
markaðinn. t
Einn þeirra manna, er harðast
hafa barizt fyrir þessu þarfa fyr-
irtæki, er Sveinbjörn Jónsson
byggingameistari frá Akureyri.
Fór hann utan í fyrra vetur m. a.
til þess að vinna að undirbúningi
þessa máls, og afla erlendra við-
skiptasambanda. Er Sveinbjörn
nú ráðinn framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar fyrst um sinn.
Móðir mín og fósturmóðir,
Steinunn Guðmundsdóttir, sem
andaðist 19. þ. m., verður jarð-
sungin í Hrísey laugardaginn 28.
nóv. — Kveðjuathöfn fer fram að
heimili okkar á Akureyri kl. 9
árdegis sama dag.
Elínbjfiro borsteinsdóltir. Lilja Valdimarsdöftír.