Dagur - 10.12.1936, Blaðsíða 3
51. tbl.
DAGUR
207
Pappír$¥Örur
hentugar til j ó 1 a g j a f a höfum við.
Sérstaklega má benda á:
Kassa og möppur með bréfsefnum og
umslögum, mjög laglega, en þö ódýra.
Kanpfélag Eyfirðinga
Járn- og glervörndeild.
Jólainnkaupin
ættu allir að gera í tíma. Höfum fallegt úrval af alls-
konar karlmannafatnaði, svö sem:
Manchettskyrtur, bindi, slaufur, hatta, lina
og harða, hanzka, sokka, nærföt, trefla.
Kaupfélag Eyfirðinga.
V'efnaðarvörudeild.
Til jólagjafa
höfum við nú fengið mikið úrval af
barnaleikföngum, svo sem:
bíla, liesta, flugvélar,
brúðiirúin, kerta-
stjaka, jólatré (lfitil),
kermr og margt fleira.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Járn- og glervörudeild.
Góð bók
er bezta fólagjöfín.
Af hinu mikla hrvali góðra
bóka viljum vér benda á,
sem hentugar og vélséðar
j « I a g j a ft r:
Ljóðmæii Bjarna Thorarensen i.-ll.
Rit Jónasar Hallorímssonar I.—V.
Ljóðmæli Guðm. Guðmundssonar.
Ljóðmæii Gríms Thomsens.
Skáldrit Einars Benediktssonar.
Ljóðmæli Davíðs Stelánssonar.
Noregskonungasögur í bandi.
Minningabók Dorvaldai Thoroddsen.
íslenzkir þjóðhættir — ogskáld-
sögur Kambans, Halldórs Kilj-
ans Laxness, Kristmanns Guð-
muudssonar og Hagalíns. —
Einnig mikið af barna- og
unglingabókum.
Bókaverzlun
Gunnl. Tr. Jónssonar.
I* h a 1 d s m e n n,
sem jafnframt eru andstæðingar
jarðræktarlaganna nýju, færa þau
rök fyrir því, að ekki sé gjörlegt
að taka upp í búnaðarfélögum
beinar kosningar við fulltrúaval
til Búnaðarþings, að slík kosninga-
aðferð sé ekki viðhöfð í samvinnu-
félögum. Úr því að samvinnufé-
lögin hafi ekki beinar kosningar,
gangi það óviti næst, að búnaðar-
félögin bregði út af þeirri venju,
og meðal annars séu jarðræktar-
lögin óalandi og óferjandi af þess-
um sökum.
Það er sannarlega nýlunda að
heyra það af munni íhaldsmanna
að skipulag í samvinnufélögum sé
svo fullkomin fyrirmynd, að sjálf-
sagt sé að önnur félög feti í sömu
slóð. Hingað til hafa íhaldsmenn
ekki litið á samvinnufélögin sem
hina æðstu fyrirmynd, en þetta
virðist nú vera að breytast, ef af
heilindum er mælt, sem margir
draga mjög í efa.
En hvað sem um það er, þá er
það óneitanlega í samræmi við
fyllra lýðræðisform að viðhafa
beinar kosningar en óbeinar, enda
hefir þjóðfélagið sjálft þá reglu og
dettur engum í hug að amast við
því.
um það, hvað margir bœndur hafi
greitt atkvæði með og móti jarð-
ræktarlögunum á búnaðarfélags-
fundinum í Glæsibæjarhreppi, eru
næsta fávíslegar. Á fundinum fór
ekkert nafnakall fram, og það var
áreiðanlega ekki á nokkurs manns
færi að skrifa upp og því síður
muna hvernig allir einstaklingar
greiddu atkvæði. Hvernig getur þá
blaðið vitað, að af 40 mótstöðu-
mönnum laganna hafi 32 verið
bændur, en af 32 meðhaldsmönn-
um þeirra hafi þeir aðeins verið
12? í liði íhaldsins og varaliðs
þess voru nokkrir bændasynir,
sem alls ekki geta sjálfir talizt
bændur. Hafi nú þeir, sem ekki
eru bændur, verið aðeins 8 í lið-
inu samtals, má segja að eftir-
tekja Stefáns Grímssonar hafi
orðið lítil í Glerárþorpi eftir hálfs
mánaðar þrotlausar „agitationir“
þar fyrir íhaldið, varla þá nema
3 til 4 menn. Nei, það er að gera
of lítið úr Stefáni að segja slíkt.
Annars hyggur „Dagur“, að í
þessu búnaðarfélagi, sem öðrum,
stundi flestir félagsmennirnir
meira og minna landbúnað og geti
því orkað tvímælis um allmarga,
hvort telja á þá til bænda eða
ekki. En tölur þær, sem „ísl.“ hafa
verið gefnar upp um þetta, eru al-
gerlega út í loftið. ^
Viðar
nefnist nýtt ársrit, sem héraðs-
skólarnir gefa út í sameiningu.
Undanfarið hafa sumir héraðs-
skólarnir gefið út ársrit, sem
fjallað hafa um störf og sérmál
hvers skóla. Er nú ætlast til að
þessi ársrit hætti að koma út og
hafa kennarar og nemendasam-
bönd allra héraðsskólanna bundizt
samtökum um útgáfu sameigin-
legs tímarits. Að þessu sinni gat
þó alþýðuskólinn á Eiðum ekki
tekið þátt í þessari útgáfu.
Ritstjóri ársritsins er Þóroddur
Guðmundsson. Segir hann svo um
tilgang ritsins:
„Ritið á fyrst og fremst að veita
skólunum, sem að því standa, auk-
ið gengi til gagns fyrir þá sjálfa.
Það á að efla félagsskap og áhuga
kennaranna, ekki einungis fyrir
menntamálum, heldur og öðru
því, er gildi hefir. Það á að kynna
starf skólanna þeim, sem um það
vilja fræðast, samrýma þá og ná-
lægja hvern öðrum. Loks er svo
til ætlazt, að það flytji fréttir um
menningarmál utanlands frá.“
Eftir þessu fyrsta ársriti, sem út
er komið, að dæma, sýnist þessi
lofsamlegi tilgangur nást prýði-
lega. Auk margbreytilegs efnis,
sem í senn er fræðandi og skemt-
andi, er útgáfa ritsins vönduð að
frágangi öllum og prýðir ritið
fjöldi ágætra mynda af mönnum
og mannvirkjum.
„Viðar“ er prentaður í prent-
smiðju Odds Björnssonar.
Dánardxgur. Þann 2. þ. m. andaðist
hjá dóttui' sinni og tengdasyni á Siglu-
firði Ólöf Árnadóttir fyrrum húsfreyja
í Möðrufelli, nálsegt hálfáttræð að aldri.
— Ólöf var ekkja eftir Jón Jónsson, er
lengi bjó rausnarbúi ( Möðrufelli, hús-
aði þá jörð vel og- bætti á ýmsa lund.
Sonur þeirra er Kristinn, sem nú býr í
Möðrufelli, en dætur frú Axelína á
Siglufirði og frú Árnína ísberg' á
Rlönduósi. Tvo syni misstu þau hjón
uppkomna.
Ólöf sál. var á marga lund merk
kona, trygg í lund, vinföst og raungóð
í bezta lagi.
Jarðarför hennar fer fram að heimili
hennar, Möðrufelli (heimagrafreitur).
Flokksþing hefir miðstjórn Fram-
sóknarflokksins ákveðið að kalla saman
í Reykjavík 12. febrúar næstkomandi.
Sjötugsafmæli átti Sigui'geir Jónsson
söng'kennari 25. f. m. Hann fluttist
t
hingað til bæjarins með fjölskyldu sína
fyrir tugum ára og hefir verið búsett-
ur hér æ síðan. Sigurgeir hefir meðal
annars getið sér orðstír fyrir óeigin-
gjarnt starf í þágu sönglífs bæjarins
og hefir lengi stjórnað kirkjusöngnum.
Á fleiri sviðum hefir gætt mikils áhuga
hans, t. d. í bindindismálum.
Ba-rnastúkan y>Sakleysið« heldur fund
n. k. sunnudag kl. 1(4 í Skjaldhorg.
Kýir félagar teknir inn. Mörg' skemmti-
atriði.
Fjölbreytt skemmtun. Næstk. laugar-
dagskvöld efna sjúklingar á Kristness-
hæii til fjölbreyttrar skemmtunar i
Samkomuhúsinu, til ágóða fyrir styrlct-
arsjóð sjúklinga. Tilhögunarskrá verð-
ur auglýst á undan skemmtuninni og
verður til liennar vandað. Vænta sjúk-
lingar hæljsins þess, að bæja.rbúar sýni
þeim sama velvilja og áður og fylli
húsið þetta kvöld.
EPLI
koma með E.s. Dettlfoss.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild.
Vágestur mikill er hin svonefnda
horgfirzka fjársýki. Hefir hún di'epið
fó í hrönnum í Borgarfirði og er einnig
komin í Vestur-Húnavatnssýslu og er
sögð þar allskæð. Reynt er að stemma
stigu fyrir útbreiðslu veikinnar, en
gengur örðugt.
Arthur Gook biður þess getið, að
hann ,sé neyddur til að svara
hinni óvæntu og- ósanngjörnu árás á
tiúarsannfæring margra bæjarbúa, sem
gerð var í »Zíon« á mánudagimi. Fyr-
irlestur flytur hann um þetta mál,
sunnud. kl. 5 e. h. Allir velkomnir.
NÆTURVÖRÐUR er í Akureyrar
Apóteki þessa viku. (Frá n. k. mánud.
er næturvörður í Stjörnu Apóteki).