Dagur - 07.01.1937, Side 4
214
DAGUR
52. tbl.
Félag ungra
Framséknarmanna
hér í bæ, heldur fund í »SkjaIdborg« þriðjudaginn 12. jan. n.k.
Fundurinn hefst kl. 8,30 e. h. — Áríðandi að félagsmenn mæti.
Stjórnin.
Arðmiðum
frá Brauðgerð vorri fyrir árið 1936, verða fé-
lagsmenn að skila á skrifstofu vora á Akureyri
fyrir 20. þessa mánaðar.
Akureyri 6. janúar 1937.
Kaupfélag Eyfirðinga.
sem hafa verið boðin á jólasam-
komu fyrir- „fátæk börn“ og hafa
svo eftir jólafríið mætt skólasyst-
kinum sínum, sem heima áttu á
vel settu heimilunum og höfðu
margar og heillandi sögur að
segja af jólaboðum og veizlum og
fussuðu við þeim börnum, sem
það eitt höfðu öðlazt að vera boð-
in á jólatrésskemmtun „fyrir fá-
tæk börn.“ Það þarf ekki neinn
uppeldisfræðing eða kennara til
að sjá hver áhrif slíkt hefir á
barnssálina. Ég hefi séð ávöxt
auglýsinga um samskot „til fá-
tæku hjónanna, til „veika. drengs-
ins.“ Ég hefi séð hyldýpi haturs
og eymdar skapast út af fordildar-
vesalmennsku-vatnsgrautarsam-
skotunum, og það hefir allt stað-
fest þau spöku orð skáldsins „að
þraut er að vera þurfamaður“, og
þér mynduð ekki tala af svona
miklum fjálgleik um „auðmýkt
hjartans“, ef að slík náðhrmeðul
ættu að halda lífinu í sjálfum yð-
ur. Það skal viðurkennt, að oft
hafi gott fólk hjálpað öðrum af
fórnfýsi og kærleika og á þann
hátt, að það hefir glatt en ekki
sært, enda þá venjulega gert í
kyrrþey en ekki með auglýsing-
um. En þótt það sé til, þá er meira
af hinu, sem áður er lýst og þess
áhrifum.
Áður en ég lýk þessum línum,
langar mig til að spyrja yður
einnar spurningar, þeirrar, á
hvaða blaðsíðu í orðabók Sigfúsar
orðið „höfuðstaðarkrati11 sé, því
ekki væni ég yður um að nota orð
i rituðu máli, sem ekki finnst í
Sigfúsi!
Ég vil svo að endingu óska yður
fullrar velgengni í störfum yðar
og tjá yður, að ég get vel trúað,
að þér séuð orðhengill hinn mesti,
góður grúskari og skáld gott, og
sennilega sæmilegur kaupmaður,
að minnsta kosti nógu sérgóður til
að vera það. En ég trúi að bezt
væri fyrir yður að rita sem
minnst um tryggingar eða almenn
umbótamál, nema þá í íhaldsblöð
eins og þér líka hafið gert. Og
mér hefir nú verið bent á að rit-
gerð yðar um viðtal mitt við
„Dag“ um alþýðutryggingarnar
hafi mátt skoða sem æfingu eða
Aðalfundur
verður haldinn 24. jan. 1937 í
samkomuhúsinu Skjaldborg, kl. 3
e. h. Dagskrá samkv. félagslögum.
Stjórnin.
Tapast hefir
steingrár hestur, Ijós á tagl og
fax, mark: heilt hægra, sýlt og
hangtjöður framan vinstra; ójárn-
aður. — Finnandi vinsamlega
beðinn að tilkynna í síma að
Saurbæ eða undirrituðum.
Steingrímur Níelsson
Æsustööum, Eyialiröi.
Undirritaður býr til
Lagnet 09 Dráttarnet
í ár og vötn. Gerið pantanir í tíma.
Jón Friðfinnsson
Þingvallastræti 12, Akureyri.
ÞEIR,
sem skulda dánarbúi Þórðar
Guðmundssonar samkomuhúss-
varðar, semji um greiðslu við
undirritaðan fyrir 20. jan. n k.
Telji nokkur til skuldar hjá
nefndu búi lýsi hann kröfum
sínum fyrir sama tíma.
Stelán flg. Kristjánsson.
Vantar herbergjastúlku.
Hótel Akureyri.
„stíl“, sem skera hafi átt úr um
hvort þér væruð fær um að
stjórna íhaldsblaði, og sjá, þér
hafið staðizt prófið, og stjórnið nú
blaðinu, sem „stílinn“ birti, og af
því megi marka að hann hafi ver-
ið ósvikin og glórulaus íhalds-
forneskja.
Felix Guömundsson.
Fundur. var haldinn í Búnaharfélagi
Skriðuhrepps skömmu fyrir jólin.
Fundurinn lýsti yfir ánægju sinni með
jarðræktarlögin með 13 atkv. gegn einu
og þakkaði þingi og stjórn fyrir þá
Jöggjöf.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.
Aðalfundur
Búnaðarsambands Eyjaljarðar
verður haldinn á Akureyri þ. 29 og 30. þ. m. Fund-
urinn hefst kl. 12 á hádegi. — Erindi verða flutt í
sambandi við fundinn.
Stjórnin.
TILKYNNINO.
Samkvæmt breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt ber að
skila framtalsskýrslum til skattanefndar fyrir lok JANÚARMÁN-
AÐAR ár hvert.
Skattanefnd Akureyrar verður því til viðtals á skrifstofu bæj-
arstjóra alla virka daga í janúar næstkomandi frá kl. 8,30—9,30
síðdegis og geta framteljendur á þeim tíma fengið aðstoð við
útfyllingu framtaiseyðublaðanna hjá henni.
Framteljendur, sem aðstoðar beiðast, verða að hafa með sér
nákvæma sundurliðun á eignum sínum og skuldum, lista yfir
tekjur sínar á árinu 1936 og yfir gjöld þau, sem koma til frá-
dráttar tekjunum, svo sem vexti af skuldum, skatta af fasteign-
um og opinber gjöld.
Peim, sem framtalsskyldir eru og eigi fá framtalseyðublöð send
heim til sín, ber að vitja þeirra á skrifstofu bæjarstjóra. Einnig
ber vinnuveitendum í bænum að vitja þangað eyðublaða undir
kaupgjaldsskýrslur.
Akureyri, 28. desember 1936.
Skattanefnd Akureyrar.
Kjarakaup!
Til sölu er lítið íbúðarhús með allstórum jarðepla-
garði (suður í fjöru). Laust til íbúðar í vor. Semja ber
sem fyrst við
Kristján Sigurðsson,
kanpmann.