Dagur - 21.01.1937, Side 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
XX. árg. | Akureyri 21. janúar 1937. |
3. tbl.
Aðalfundur
Akureyrardeildar K. E. A. var
haldinn í Nýja Bíó 18. þ. m. Fund-
arstjóri var kjörinn Ingimundur
Árnason. Deildarstjóri Sigtryggur
Þorsteinsson* gaf skýrslu um af-
komu deildarinnar á liðnu ári.
Meðal annars gat hann þess, að
félögum í deildinni hefði fjölgað
um rúmlega 100 á árinu og væru
nú 730. Að lokinni skýrslu deildar-
stjóra var gengið til kosninga. Fór
fram kosning a deildarstjóra, eins
manns í deildarstjórn, í stað dr.
Kristins Guðmundssonar, eins
manns í varastjórn í stað Olafs
Magnússonar, fulltrúa í félagsráð
í stað Snorra Sigfússonar og vara-
manns hans, Ólafs Magnússonar.
Voru þeir allir endurkosnir.
Þá gerði framkvæmdastjóri, Vil-
hjálmur Þór, grein fyrir afkomu
og rekstri Kaupfélags Eyfirðinga
á síðastliðnu ári.
Kosnir voru 36 fulltrúar til að
mæta á næsta aðalfundi K. E. A.
auk deildarstjóra, sem er sjálf-
kjörinn. í kjörstjórn voru skipaðir
Steindór Steindórsson kennari,
Brynleifur Tobiasson kennari og
síra Friðrik Rafnar.
Þrír listar komu fram merktir
A., B., og C. Greidd voru 435 gild
atkv. Af A-lista voru kosnir þess-
ir 24 menn:
Vilhjálmur Þór.
Bogi Ágústsson.
Böðvar Bjarkan.
Ólafur Magnússon.
Árni Jóhannsson.
Garðar Sigurjónsson.
Jakob Frímannsson.
Þorleifur Þorleifsson.
Ingimundur Árnason.
Friðrik Rafnar.
Jónas Þór.
Pétur Tómasson.
Þorsteinn M. Jónsson.
Jónas Kristjánsson.
Haraldur Þorvaldsson.
Snorri Sigfússon.
Jón Þórðarson.
Kristinn Guðmundsson.
Friðgeir H. Berg.
Hallgrímur Jónsson.
íbúð.
2—3 herbergi og eldhús, helzt
í miðbænum, óskast til leigu
frá 14. maí n. k. — Trygg
greiðsla. Upplýsingar ge,fa.
Þór O. Bfðrnsson og
Prenlsm. Odds Bfttrnsaonar.
Páll Magnússon.
Ingólfur Hinriksson.
Guðmundur Ólafsson.
Jón Friðlaugsson.
Varamenn:
Jóhannes Jónasson.
Marteinn Sigurðsson.
Helgi Tryggvason.
Árni S. Jóhannsson.
B-listinn kom að 5 mönnum og
voru þeir þessir:
Steingrímur Jónsson.
Brynleifur Tobiasson.
Ólafur Jónsson.
Svafar Guðmundsson.
Jón J. Jónatansson.
Varamaður:
Sigurður E. Hlíðar.
C-listinn fékk þessa 7 fulltrúa:
Steingrímur Aðalsteinsson.
Stefán Árnason.
Magnús Gíslason.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Vilhjálmur Guðjónsson.
Tryggvi Helgason.
Guðmundur Snorrason.
Varamaður:
Ingólfur Á. Árnason.
Þá var á fundinum rædd breyt-
ing á fundarsköpum félagsins. Á
síðasta aðalfundi félagsins kom
fram tillaga um að breyta kosn-
ingum á fulltrúafundum félagsins
í hlutfallskosningar. Samkvæmt á-
lyktun aðalfundar vísaði stjórn fé-
lagsins máli þessu til deilda fé-
lagsins.
Að umræðum loknum var sam-
þykkt svohljóðandi tillaga frá Vil-
hjálmi Þór, með 186 atkv. gegn 19:
„Fundurinn telur eigi ástæðu til
að gerð sé breyting á 11. grein
fundarskapa félagsins.“
Taldi fundurinn sig þannig mót-
fallinn hlutfallskosningum í félag-
inu, og voru aðrar tillögur, er
fram höfðu komið, þar rneð falln-
ar.
Kirkjan. Messa-ð í Lögmannshlíð nk.
sunnudag kl. 12 á hádegi.
Prédikun í Aðventkirkjunni næstk.
sunnudag kl. 5 e. h. Allir velkomnir!
»Dansinn í Hrunav. verður sýndur
næstk. laugardags- og sunnudagskvöld.
NÆTURVÖRÐUR er í Akureyrar
Apóteki þessa viku. (Frá n. k. mánud.
er næturvörður í Stjörnu Apóteki.)
Leikhúsið.
NÝJABÍÓ
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
Frumsýning leiksins var á laug-
ardagskvöldið og aftur var leikur-
inn sýndur á sunnudagskvöld. Að-
sókn var góð í bæði skiptin, og
hrifning áhorfenda lýsti sér í
miklu lófaklappi í þáttalok og að
leikslokum.
Mjög hafði verið til leiksins
vandað, bæði hvað leikendur og
allan útbúnað snertir. Æfingar
fleiri en í nokkrum öðrum leik,
sem Leikfélag Akureyrar hefir
sýnt. Geta menn vart gert sér í
hugarlund það erfiði, er leikendur
og aðrir starfsmenn hafa á sig
lagt við undirbúning leiksins, og
þá má ekki sízt geta þess, hve
mikla áhættu Leikfélag Akureyr-
ar hefir tekið á sig með sýningu
leiks þessa, jafn kostnaðarsamur
og hann er.
Robert Abraham hafði samið
forleik í tónum og lék hann sjálf-
ur á hljóðfærið. Hann hafði og út-
sett rímnalag, er hann lék á und-
an 2. sýningu. Hann stjórnar og
öllum söng í leiknum. — Öll söng-
lögin í leiknum eru eftir Sigvalda
Kaldalóns, nema eitt sem er ísl.
þjóðlag, raddsett af Sigfúsi Ein-
arssyni. Tjöldin málaði Vigfús Þ.
Jónsson, en dansarnir í leiknum
eru eftir Hermann Stefánsson. —
Hefir allt þetta tekizt mjög vel.
Búningar eru mjög vandaðir og
hinir glæsilegustu.
Áður hefir hér í
blaðinu verið drepið
nokkuð á efni leiks-
ins og er því þess
vegna sleppt hér. Aft-
ur á móti skal hér
stuttlega minnzt á
meðferð leikendanna á
hlutverkunum. Að
öllu samanlögðu má
hún teljast mjög góð,
þó að sjálfsögðu sé
hún nokkuð misjöfn í
svo stórum og vanda-
sömum leik. Hvað
hlutverkin eru yfir-
ieitt vel leyst af
hendi, má án efa mjög þakka
hinum ágæta leikstjóra, Ágúst
Kvaran, sem jafnframt leiðbein-
ingarstarfi sínu, leikur eitt stærsta
hlutverkið, Ógamtan, og ggrir
það af hinni mestu snilld; sýnir
hann afburða vel þenna ísmeygi-
lega, slungna bragðaref. Frú Svafa
Jónsdóttir leikur Unu og ferst það
prýðilega; einkum tekst henni vel,
Wimpole Sireeí.
Gullfalleg og efnisrík tal-
mynd, eftir leikriti
RUDOLF BESIERS,
sem hann hefir samið yfir
sanna viðburði.
Aðalhlutverkin leika: •
NORMA SHEARER,
FREDRIC MARCH og
CHARLESLAUGHTON
Petta er í fyrsta skifti, sem þess-
ir úrvalsleikarar leika saman í
mynd, en þeir hafa allir hlotið
heiðursverðlaun MOTION PIC-
TURES ACADEMYS.
Norma Chearer 1931 fyrir mynd-
ina »BROS GEGNUM TÁR«.
Fredric March 1929 fyrir mynd-
ina »DR. JEKYLL og MR. HYDE«.
Charles Laughton 1934 fyrir
myndiua»EINKALlF HINRIKS 8.«
Ágúst Kvaran í hlutverki »Ógautans«.
þegar hún er á sviðinu sem sjón-
hverfing. Þessi tvö, sem nú hafa
verið nefnd, sýna mesta leikkunn-
áttu. Lárenz leikur Sigvaldi Sig--
valdason mjög myndarlega og
bezt þegar mest reynir á, eins og
þegar sjónhverfingarnar sækja að
honum. Síra Þorgeir í Hruna er
sýndur af Gunnari Magnússyni.
Framh. á 3. síðu.