Dagur - 21.01.1937, Blaðsíða 3

Dagur - 21.01.1937, Blaðsíða 3
3. tbl. DAGUfi 11 Atkvæðagreiðslurnar ■i«ii jarðræktarlogin. Átak. Þeim er nú lokið hér í héraðinu og eru fylgismenn laganna í tölu- verðum meirihluta í sýslunni. í Hrísey er talið vafasamt að fundur hafi verið lögmætur og þar mættu fylgismenn laganna alls ekki á fundi, en kunnugir segja, að þeir séu um það álíka margir og hinir. Úr Ólafsfirði hef- ir blaðið heyrt tvennar sögur um atkvæðamagnið og tekur þá, er réttari mun reynast. Stjórnarand- stæðingar, einkum hinir svoköll- uðu „Bændaflokksmenn“, smöluðu mönnum inn í félögin, á undan atkvæðagreiðslunum, af hinu mesta kappi, búlausum mönnum, sem enga jarðrækt stunda, engu síður en bændum; þannig fengu þeir fjölda atkvæða og hefðu stuðningsmenn laganna gert slíkt hið sama, mundi atkvæðamunur- inn hafa orðið mikið meiri. í Eyjafjarðarsýslu hafa atkvæði fallið á þessa leið — og er þá mið- að við aðalatriðið, sem um var deilt, nl. afstöðu Búnaðarfélags ís- lands og Búnaðarþingsins: Meö lögunum: Móti: Öngulstaðahreppur 36 16 Saurbæjarhreppur 34 30 Hrafnagilshreppur 23 4 Glæsibæjarhreppur 32 40 Öxnadalshreppur 6 10 sín, ekki einungis á meðal hinna „vinnandi stétta“, heldur og á meðal sanntrúaðra íhaldsmanna, bæði hér 1 bæ, og annarstaðar. í erindum sínum „Um daginn og veginn“ hefir hann gætt fyllsta hlutleysis, þegar um stjórnmálaleg efni hefir verið að ræða, eða þá viðburði sem flokkar hafa deilt um, og hefir Jón Eyþórsson, ekki sízt af þeim ástæðum, aukið vin- sældir sínar á meðal útvarpshlust- enda. Er því áreiðanlegt, að þessi hjáróma rödd íhaldsútvarpshlust- andans á Akureyri á sér fáa fylgj- endur, enda munu ekki nema allra blindustu flokksmenn hans fara fram á það, að Jón Eyþórsson veðurfræðingur víki frá starfi sínu við útvarpið. . Ég staðhæfi það, að t. d. sveita- fólkið hlakkar alltaf til þess að heyra eitthvað frá Jóni Eyþórssyni í útvarpinu og þau munu ekki mörg orðin, sem hann segir þar, fara fram hjá þessu fólki. En hvers vegna? Aðeins vegna þess, að fólkið í sveitunum finnur þarna mann, sem hefir heilbrigða og hárrétta skoðun á daglega lífinu og þekkir óskir og þrár þjóðarinn- ar út í yztu æsar. Þess vegna ber það mikið og maklegt traust til hans. Að lokum vil ég leyfa mér að senda þá ósk til útvarpsráðsins, að framvegis flytji Jón Eyþórsson veðurfræðingur, auk þess sem hann talar „um daginn og veg- inn“, mánaðarlega erindi um líf þjóðarinnar fyrr á öldum. 19/1 1937. Árni Bjamarson, Skriðuhreppur 13 1 Arnarnesshreppur 27 24 Árskógshreppur • 12 20 Svarfaðardalshr. 47 25 Hrísey 12 Olafsf j arðarhreppur 2 14? Samtals með: 232. Móti: 196 í Búnaðarsambandi Eyjafjarðar eru, auk ofangreindra félaga, Jarðræktarfélag Akureyrar, félag á Siglufirði og 2 félög í Þingeyjar- sýslu. í þessum félögum hefir einnig farið fram atkvæðagreiðsla, en við hana er það að athuga, að á Akureyri greiddu margir menn at- kvæði, sem ekki eru í Jarðræktar- félaginu og því tæplega atkvæðis- bærir. Fundurinn var nær ein- göngu sóttur af mótstöðumönnum jarðræktarlaganna, af því þeim einum var smalað á fundinn. Fór atkvæðagreiðsla þar svo, að and- stæðingarnir fengu 44 atkv., en hinir 5. En síðan hafa 52 félags- menn lýst skriflega fylgi sínu við lögin. í hinum félögunum þremur er atkvæðamagnið þannig: Svalbarðsstr.hr. 15 með 9 móti Grýtubakkahr. 24 — 7 — Siglufjörður 13 — 19 — * Verða þá yfirlýstir fylgismenn laganna í öllu Búnaðarsamband- inu samtals 336 en mótstöðumenn þeirra 275. Hafa því lögin greini- legt meirihlutafylgi á sambands- svæðinu og það jafnvel þó aðeins sé tekið tillit til atkvæðagreiðslna á fundunum. Hið sama kemur í ljós hvað búnaðarfélögin snertir; 8 þeirra hafa lýst yfir fylgi sínu við lögin á fundum, og sannanir liggja fyrir um meirihlutafylgi í því 9. (Akureyri), en 7 fundar- samþykktir eru á móti lögunum, að Akureyri meðtalinni. Það er því sýnilegt, að fulltrúi sambands- ins á Búnaðarþingi er í ósamræmi við vilja verulegs meirihluta um- bjóðenda sinna og ætti því að sjálfsögðu að leggja umboðið nið- ur, ef hann treystir sér ekki til að breyta aðstöðu sinni í málinu. Leikhúsið. (Framh. af 1. síðu). Það er erfitt hlutverk, og þó að G. M. leysi það af hendi á mjög sómasamlegan hátt og af mikilli vandvirkni, þá sýnist hann ekki passa í það að öllu leyti, svo sem maður myndi frekast kjósa, mætti t. d. sópa nokkuð meira af honum en þarna gerir. Stefán biskup Jónsson er sýndur röggsamlega og myndarlega af Stefáni Jónssyni, persónan er mikilúðleg eins og vera ber og röddin sterk og mikil; beitir hann henni einkum, þegar hann les bannfæringuna yfir síra Þorgeiri, en í framburði hans kennir nokkuð lestrarlags yfir- leitt. Fríður (Else Friðfinnsson), Sólveig (Guðrún Þorsteinsdóttir) * Tölurnar frá Sigluf. e. t. v. ekki nákvæmar. Árið 1943 skal ísland verða ó- háð og að öllu leyti sjálfstætt ríki, og það sama herrans ár skulu all- ir bændur á íslandi gerðir að óð- alsbændum með einu sterku átaki, og með eftirfarandi skilyrðum: Hver sá bóndi, er á jörðu býr og búskap stundar sem aðalat- vinnuveg, skal með lögum gerður eigandi að ábúðarjörð sinni án nökkurs endurgjalds; jörðina með öllum mannvirkjum eignast hann skuldlaust. En með þessum á- kvæðum: a. Á jörðinni skapist óðalsréttur þannig, að þegar foreldrarnir hætta búskap, fá þau börnum sínum jörðina í hendur án end- urgjalds, en með þeim ákvæð- um er Alþingi setur um ættar- pðul. b. Aldrei má bóndi veðsetja jörð sína á nokkurn hátt, skal því með lögum banna að skuld megi á jörð hvíla, í allar þær aldir, er ísland á eftir að vera byggt. Eins og bændurnir fá jarðirnar skuldlaust, svo skulu þeir verða að skila þeim skuld- lausum til þeirra, sem við taka. c. Allar jarðir skulu borga gjald, sem nema skal frá ¥2% og allt að 3% af matsverði jarðar, og fer það eftir gæðum jarðar í hvern flokk hún lendir; fé þetta renni í sameiginlegan sjóð, er heiti Byggingasjóður jarða á íslandi. Skal þessi sam- eignarsjóður annast um allar stærri byggingar á jörðunum, bændunum að kostnaðarlausu; á þennan hátt styðja jarðirnar hver aðra við að byggja sig upp. d. Nýbýli má byggja á jörð, ef á- búandi leyfir. Skal hann þá og Hlaðgerður (Ingibjörg Jóns- dóttir) eru allar laglega leiknar, en sú síðastnefnda talar þó oft of lágt og óskýrt, söngurinn í hlut- verki Sólveigar er mjög ánægju- legur.' Þá er Gottskálk í Berghyl. Björn Sigmundsson fer með það hlutverk og leysir það af hendi með miklum ágætum og mjög skemmtilega. Er hvað í samræmi við annað, gervið og hinn innri maður. Tristan leikur Sigmundur Björnsson og ferst það sæmilega. Þá eru aðeins ótaldir af aðalleik- endum Nikulás djákni (Vigfús Þ. Jónsson), aflátssali (Kjartan Ól- afsson) og Serapiel (Árni Jóns- son). Eru það allt lítil hlutverk. Auk þessa eru margar ónafn- greindar aukapersónur, aðallega dans- og söngfólk. Dansarnir og söngurinn í leiknum eru til mik- illar tilbreytingar og lyfta honum upp. Þó að „Dansinn í Hruna“ sé nokkuð svakalegur á köflum, þá endar hann með angurblíðum söng, Ave María, sem breiðir frið- andi blæju yfir allan leikinn. Leikur þessi á það skilið að verða vel sóttur, bæði vegna hans sjálfs og meðferðar leikendanna á hlutverkunum. Jarðarför okkar hjartkæra son- ar og bróður, Jónatans Sigtryggs- sonar Snælund, sem andaðist 10. jan. s. 1., er ákveðið að fari fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 29. s. m., kl. 1 e. h. Foreldrar og bróðir. Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að dóttir okkar Anna Carla andaðist á heimili okkar þann 14. jan. s. 1. Jarðarförin fer fram frá kirkj- unni föstudaginn 22. s. m., kl. 1,30 e. h. Jenny Hansen. Ingvi Jónsson. leggja til land án endurgjalds, en Byggingarsjóður jarða á ís- landi annast um byggingar; skapast þarna nýtt óðal með sömu réttindum og móðurjörð- in. e. Nú á bóndi jörð, en engin börn, og vill selja; er þá ríkinu leyfi- legt að kaupa og byggja síðan með óðalsrétti, afhendi hann á- búanda jörðina án endurgjalds. f. Bygginga- og landnámssjóður hætt störfum; sömuleiðis sé jarðabótastyrkur afnuminn. Eg veit, að margt má að ofan- greindum tillögum finna, en það, sem fyrir mér vakir, er fyrst og fremst það, að bændastéttin geti orðið efnalega sjálfstæð, og að ríkið þurfi ekki að leggja henni stórfé á hverju ári, eða stofna til stórfelldra kreppulána, sem munu endurtaka sig, ef komandi kyn- slóðir þurfa stöðugt að kaupa verk þeirra, sem burtu hverfa. Enn fremur er það afarnauðsyn- legt fyrir þennan atvinnuveg, að bændunum og sveitafólkinu yfir- leitt þyki vænt um ábýli sitt, beinlínis elski það, og vilji allt fyrir jörðina gera, til að fegra hana og prýða, gera ættaróðalið sem yndislegast, úti og inni og allt í kring. Nú er allt metið til peninga, átt- hagaást virðist mjög fara þverr- andi. Á mölina er flutt, í atvinnu- og iðjuleysi. Jarðirnar þola illa skuldir, því er bezt að taka fyrir þær, það mun verða þjóðinni til blessunar, en vitanlega er ekki hægt að gera það, án þess að ein- hverjum blæði, en svo er um flest lög. Bændastéttin á að vera efnalega sjálfstæð; það er þjóðarheill. — Þennan atvinnuveg á að gera svo aðlaðandi, að fólkið beinlínis sæk- ist eftir að stunda hann, og hætti að streyma á mölina, því það er þjóðarböl. Moldin bíður. Jörðin grær á hverju vori og býður börnum sín- um auð sinn og afrakstur. Hver, sem land ræktar og fer vel með, fær margfalda uppskeru. En mein- semd þá, er nú þjáir íslenzkan landbúnað, þarf að skera burtu. Bændur þurfa að eiga jarðir sínar skuldlausar. Það er markið. Snœbjörn Þórðarson,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.