Dagur - 04.02.1937, Síða 1

Dagur - 04.02.1937, Síða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð- urgötu 3. Talsími 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. XX. árg. Akureyri 4. febrúar 1937. 5. tbl. Innilegustu pakkir fœrum við öllum þeim mörgu, sem heiðruðu minningu eiginmanns, föður og tengdaföður okkar, Ingimars Hallgrímssonar, með nœrveru sinni við jarðarför hans i dag. Einnig pökkum við öllum þeim, sem á annan hdtt sýndu okkur samúð við fráfall hans og glöddu hann með heimsóknum í legu hans. En siðast og ekki sizt vottum við Kaupfélagi Eyfirðinga alúðarfyllstu þakkir fyrir sina stórrausnarlegu umsjón og tilkostnað við jarðarförina, og hina hlýju viðurkenn- ingu, sem i þvi fólst til hins framliðna. Óskum við af hjarta að gœfa og gengi Kaupfélags Eyfirðinga verði aldrei minni en óskir hans og þrár stefndu til. 3. febrúar 1937 Ekkja, börn og tengdabörn. §X<iiKÍiC>OC>0000 ÍK<Í©ii < XI>!§iK<iÍi Leiðrétting. í smágrein í síðasta tölubl. Dags, um Ingimar Hallgrímsson, hefir fyrir rangar upplýsingar, slæðst villa, sem hér leiðréttist. Sigrún fyrri kona Ingimars var Bergvinsdóttir og ekkja eftir Jón bónda á Illugastöðum. Eru að- standendur og leséndur beðnir af- sökunar á missögninni. Þá hefir og ruglazt handrit sömu greinar og misprentast. I greininni stendur: „Þorsteins prests að Stærra-Árskógi Jónsson- ar prófasts Halldórssonar að Vögl- um í Svarfaðardal.“ En átti að vera: Þorsteins prests að Stærra- Árskógi Hallgrímssonar og dóttur- sonar Jóns prófasts að Völlum í Svarfaðardal Halldórssonar. Sr. Þorsteinn prestur að Stærra- Árskógi var sonur Hallgríms prests að Grenjaðarstað Eldjárns- sonar og konu hans Ólafar Jóns- ðóttur prests vað Völlum í Svarf- aðardal, Halldórssonar Þorbergs- sonar sýslumanns í Þingeyjar- sýslu (d. 1656) Hrólfssonar sterka að Álfgeirsvöllum. Systir sr. Þor- steips í Stærra-Árskógi var Ólöf Hallgrímsdóttir kona sr. Hall- gríms Thorlacius í Miklagarði föð- ur sr. Einars í Saurbæ í Eyjafirði. Synir sr. Þorsteins í Stærra- Árskógi og fyrri konu hans Jór- unar Hannesdóttur (Scheving) voru sr. Stefán á Völlum, sr. Hall- grímur á Hrauni, sr. Baldvin á Upsum og sr. Kristján á Völlum, föðurfaðir sr. Kristjáns Eldjárns að Tjörn í Svarfaðardal (d. 1916). Soffía móðir Ingimars Hall- grímssonar á Litla-Hóli var dóttir Jóns bónda í Leyningi Þorsteins- sonar bónda í Flögu í Hörgárdal, Jónssonar. Móðir Þorsteins í Flögu var Þuríður Bjarnadóttir Ólafs- sonar. Móðir Þuríðar var Björg Sigurðardóttir lögréttumanns Hrólfssonar sýslumanns í Þingeyj- arsýslu (d. 1704) Sigurðssonar sýslumanns á Víðimýri (d. 1635) Hrólfssonar sterka á Álfgeirsvöll- um. Var Ingimar Hallgrímsson þannig 10. maður í báðar ættir frá Hrólfi sterka. Er sú ætt afar fjöl- menn og merkileg. H. Þ. KIRKJAN. — Messað I Akureyrar- kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h. □ . •. Rún. 5037208 Frl. »Pórs«-félagar! Munið að sækja að- göngumiðana að afmælisfagnaðinum á laug'ardaginn kl. 3—7 e. h. að Hótel Akureyri. — Aðgöngumiðar verða ekki afhentir við innganginn. Dansinn í Hruna verður sýndur n.k. sunnudag með niðursettu verði. — Ekki leikið á laugardaginn. NÆTURVÖRÐUR er í Stjörnu Ap6- teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er næturvörður í Akureyrar Apóteki.) Dánardægur. Aðfaranótt 2. þ. m. and- aðist hér á sjúkrahúsinu Maria Frið- riksdóttir, heitmey Aðalbjarnar Aust- mar, tæpra 26 ára að aldri. Banamein hennar var barnsfararsótt. — Sömu nótt lézt á sjúkrahúsinu Anna Eggerts- dóttir, Guðmundssonar trésmíðameist- ara, 26 ára að aldri. Banamein hennar voru berklar. Allmikil hreyfing virðist vera uppi hér í héraðinu um stofnun verkalýðsfélaga. Fyrir skömmu flutti „Alþýðu- maðurinn" frétt um stofnun verka- mannafélags í Öxnadal. Og nú hefir heyrzt um stofnun annars slíks félags vestur á Þelamörk. í stjórn þessa nýja Þelmerkingafé- lags eru sagðir vera: Ölver Karls- son, Vöglum, Sigfús Sigfússon, bóndi Steinsstöðum í Öxnadal og Sverrir Baldvinsson, Ási. Mun því mega óska félaginu til hamingju með stjórn og göfugan og óeigin- gjarnan tilgang. Að vísu hafa hingað til ekki gengið miklar sögur af starfi Sig- fúsar á Steinsstöðum í þágu verk- lýðsmála, en ólíklegt er af for- sögu manns þessa, að þeir, sem hafa verið svo svo hamingjusamir að kynnast honum, dragi í efa heilindi hans, heiðarleik og óeig- ingjarnar hvatir, frekar í þessu máli en öðrum. Saga stjórnarnefndarmanna þessa nýstofnaða félags gefur fulla ástæðu til að votta félagi þessu viðeigandi traust. Og um leið virðist ástæða til að óska verkalýðshreyfingunni í landinu til hamingju með jafn ágæta en jafnframt óvænta for- ingja. ■_______________ X. Ungmennafélagið »Á'n'oðinn« í Öng- ulsstaðahreppi átti þrítugsafmæli 27. jan. sl. Var þessa minnzt með samsæti og sátu það um 100 manns. Til skemmt- unar voru ræðuhöld, söngur og dans. Meðal ræðumanna var síra Benjamín Kristjánsson. Núverandi formaður fé- lagsins er Páll Helgason á Þórustöðum. Sextugsafmæli á Erlingur Friðjóns- son bæjarfulltrúi sunnudaginn 7. þ. m. Hann hefir samfleytt setið í bæjar- stjórn Akureyrar sem fulltrúi verka- manna rúm 20 ár og hefir um langa hríð verið einn helzti leiðtogi í verk- lýðsmálum hér í bæ. Hann var og um rkeið þingmaður Akureyrar og hefir unnið ósleitilega að öllum þeim málum, er hann hefir verið riðinn við. Munu þeir ekki fáir, er árna vilja Erlingi Friðjónssyni heilla á þessum tímamótum í æfi hans. NÝJABÍÓ ■■ Föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9: Uppreisnin á Bounty. Stærsta mynd, sem hefir ver- ir tekin síðustu 10 árin. — Aðalhlutverin leika. Charles Laughton, Clark Gable, Franchot Tone. Mest spennandi og æfintýra- legasta mynd, sem sýnd hefir verið. Gerist á skipinu Bounly og suðurhafseyjum að mestu. Til leigu 1 eða 2 her- bergi á Sigurhæðum. Páll Bjarnason. Jarðeerför Ingimars Hallgrímssonar á Litla-Hóli fór fram í gær og hófst með bæn og .söng að heimili hins látna. Jarð- arförin fór fram að Grund og var mjög fjölmenn. Flokkur úr karlakómum Geysi söng, og sóknarpresturinn, séra Benja- mín Kristjánsson, flutti ágæta ræðu. Hreppsnefnd Hrafnagilshr. bar kistuna í kirkju, en stjóma.rnefndarmenn, fram- kvæmdastjóri og' fulltrúi K. E. A. úr kirkju og að gröfinni. — Kaupfélag' Ey- firðinga sá um útförina, en hinn látni öldungur var sem kunnugt er heiðurs- félagi K. E. A. Hallgrímsnefnd Munkaþverársóknar efnir til skemmtisamkomu í þinghúsi Öngulsstaðahrepps við Þverá, sunnu- daginn 7. febrúar n. k. kl. 9 e. h. Til skemmtunar verður fyrirlestur, er sr. Friðrik J. Rafnar flytur, Jóhann Kröy- ei les upp, söngflokkur Helga Stefáns- sonar syngur og Kristján Elíasson spit- ar fyrir dansi. Ágóðinn af samkomunni rennur til fyrirhugaðrar Hallgríms- kirkju. Aðgangur 1 króna. Alúðar þakkir til allra, er auð- sýndu samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför konunnar minnar. Björn Guðmundsson. Jarðarför Árna Jóhannessonar frá Þórisstöðum, sem andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 31. f. m. fer fram laugardaginn 6. þ. m. — Athöfnin hefst með bæn frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, kl. 1 e. h. Siðan verður líkið flutt að Svalbarði og jarðað þar kl. 3 e.h. sama dag. Þórisstöðum, 2. febrúar 1937. Nanna Valdimarsdóttir. Jóhannes Árnason.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.