Dagur - 04.02.1937, Side 3

Dagur - 04.02.1937, Side 3
5. tbl. DAGUR 19 Vökumenn. Seint á síðastliðnum vetri vakn- aði hreyfing í ýmsum skólum landsins, sem nefnist „Vöku- mannafélag íslands“. Tilgangur félagsins er meðal annars sá, að fylkja öllum æskulýð þjóðarinnar til varnar þeim öfgastefnum, sem nú herja strendur landsins. Þær raddir gerast nú æ háværari með þjóð vorri, sem svara öllum rök- um með hrópyrðum og virða öll mannréttindi og lýðræði að vett- ugi. Fyrirmyndir sínar sækja for- mælendur þessara kenninga til framandi landa, þar sem ófriður- inn mikli og afleiðingar hans hafa villt mönnum svo sýn, að þeir trúa ekki neinu og virða ekki neitt nema hnefaréttinn. Það er engin tilviljun, að hinir íslenzku fascistisku öfgamenn sækja „hug- sjónir“ sínar einmitt þangað, sem frjáls hugsun, undrstaða allra hugsjóna, er einokuð af klíku nokkurra þröngsýnna efnishyggju- manna. „Hugsjónirnar11 eru sóttar þangað, sem fegurstu hugsjónir mannsandans eru lýstar í bann, heimsfrægir vísindamenn og spá- menn hins nýja tíma reknir í út- legð, listaverkum brennt á bál- köstum þess brjálæðis, sem nú ógnar öllum heiminum með eitur- gasi og byssustingjum. Hinir ís- lenzku tilberar þessara öfgakenn- inga boða til byltinga og blóðsút- hellinga, ef þeir fái ekki vilja sín- um framgengt. Þeirra helgu menn og dýrlingar eru reyndir að hvers- konar hryðjuverkum. Saga þeirra er skráð blóði frjálslyndra manna og kvenna, sem hafa unnað hug- sjónum lýðræðisins meir en lífi sínu. Vegur einræðisherranna til valdsins hefir legið yfir grafir merkisbera frjálsrar hugsunar og kúgun allrar alþýðu. Hugsjónin um frið, fegursti draumur manns- andans, er útlæg ger, en börnin alin upp að kalla með gasgrímur fyrir andlitunum og sprengikúlur í hendinni. Þetta er það frelsi, sem íslenzku fascistarnir lofsyngja, þeir h:'nir sömu, er nú hyggjast að leika það sÖgulega hlutverk, að verja spillingu hins ísl. auðvalds með vopnum. Þeir vita sem er, að með rökum verður stefna þessa flokks ekki varin, til þess hefir hann alltof margt á samvizkunni, sem er andsætt hag heildarinnar og öllu heilbrigðu lífi. Öfgar eiga æfinlega sínar and- stæður. Það er því engin tilviljun, að hér á landi er ekki einn heldur tveir öfgaflokkar, sem eru hvor öðrum andstæðir, og lofa hvor bregður svo við, að þessir sömu kommúnistar taka skefjalausa af- stöðu með málstað nokkurra skóladrengja, sem hlaupa á brott úr skóla fyrir þá eina sök, að þeir séu ekki viðurkenndir jafnréttháir og aðrir, þó að þeir séu óvinir lýð- ræðisskipulagsins, og skrökva því þar á ofan að þeir hafi verið rekn- ir úr skóla vegna skoðana sinna. Er þá lýðræðishjal kommúnista eintómt fleipur? öðrum því hátíðlega, að þeir skuli verða afmáðir af jörðunni við fyrsta tækifæri. Og þótt margt skilji stefnur þessara flokka, þá eiga þeir þó sammerkt um það, að báðir æsa lýðinn til byltinga og bióðsúthellinga. Báðir ætla að gera andstæðingana höfði styttri, ef þeir eiga þess nokkurn kost, ef þeir verða ekki þægir og auð- sveipir. Báðir flokkarnir æfa sitt árásarlið og enginn getur sagt um það, hvenær flokkunum lýstur saman. Gegn þessum ófarnaði vilja Vökumenn vinna. Þeir vilja firra vandræðum í lengstu lög og standa á verði gegn því, að póli- tískir stigamenn stofni til víga- ferla í landinu. Vökumenn trúa því, að friðsamleg samvinna og samtök sé eina leiðin út úr hvers- konar ógöngum, því eitt ofbeldis- verk leiðir jafnan til annarra ó- hæfuverka. Og hvaða menningu myndu þeir flokkar varðv^ita, sem hyggjast að leggja undir sig landið með hrópyrðum og hnefa- steytingum og síðan að stjórna með ofbeldi og kúgun? Slíkt get- ur víst hver og einn sæmilega viti borinn maður séð fyrir. Það yrði ekki menning heldur ómenning, sem óhjákvæmilega skapast af allri harðstjórn og kúgun. Vöku- menn heita því á alla unga menn og konur, sem unna lýðræði og frelsi, að standa fast saman gegn hinu andlega drepi öfgaflokkanna. Framtíð landsins veltur á því, að í þessum efnum verði ekki sofið á verðinum. En vökumenn hafa fleira að vinna. Innanlands eru líka vágest- ir, sem naga rætur þjóðfélagsins. Það er atvinnuleysið og öll sú eymd, sem af því stafar. Verst eru þó áhrifin sem atvinnuleysið hefir á uppeldi æskulýðsins. Þeir unglingar, sem alast upp í klaka- viðjum vonleysisins, eru ekki lík- legir til stórra átaka í framtíðinni. Þau vorharðindi kyrkja allan and- legan gróður í fæðingunni og gera einstaklingana að þjóðfélagslegum örkumlamönnum, oftast æfilangt. Og fyrir atvinnulausum og von- lausum unglingi vill oft verða skammt til vindlingsins og flösk- unnar og annarra stundastyttinga, sem fyrr eða síðar leiða til heilsu- tjóns og ógæfu. Atvinnuleysið er það böl, sem þjóðin verður að yf- irstíga á næstu árum, annars er voðinn vís. Að því ætla Vöku- menn að vinna með því að ljá ný- býlamálunum fylgi sitt, svo og öllum nýjum atvinnugreinum, sem stofnað er til á heilbrigðum grundvelli. Þeir vilja líka styðja íslenzka framleiðslu á þann hátt, að klæðast sem mest íslenzkum fötum og borða sem mest íslenzk- an mat. Því meðan önnur lönd draga að sér hendina um kaup á íslenzkri framleiðslu, er þjóðin neydd til að búa að sínu, enda er það henni vafalaust hollast. Ef allir hefðu það hugfast að nota sem mest það sem íslenzkt er til fæðis og klæðnaðar, þá myndi enn mega spara mikil útlend vöru- kaup, sem hendur íslenzkra manna og kvenna gætu fengið at- vinnu við að framleiða. En sér- staklega vilja Vökumenn vinna að útrýmingu tóbaks og áfengis. Á þessum alvarlegu tímum, þegar þjóðina skortir fé til ýmsra nauð- synlegra framkvæmda og til að koma á fót nýjum atvinnufyrir- tækjum, og skuldaklafinn ógnar sjálfstæði landsins, þá er það hreinn og beinn feigðardans, er þjóðin neytir víns og tóbaks fyrir milljónir króna árlega. Vökumenn vilja því taka höndum saman við öll bindindissinnuð félög um að útrýma öllum eiturnautnum og gerir í því efni strangar kröfur til allra félagsmanna. Ef tækifæri gefst, mun síðar verða sagt rækilegar frá Vöku- mannahreyfingunni. Þess mun ekki langt að bíða að Vökumenn stofni félög víðsvegar um landið til varnar lýðræði, þingræði og frjálsri hugsun, sem er faðir og móðir allra hugsjóna. Það ríður á að vaka yfir hinu fengna sjálf- stæði og verja það fyrir öllum þeim hættum, sem að því steðja, hvort sem þær koma fram í dýrk- un byltinga og harðstjórnar, eða þær læðast í kjölfar atvinnuleysis og þeirrar margvíslegu ógæfu, sem af því leiðir. Vökumaður. Dansinn i Hrana. Leikfélag Akureyrar er 20 ára á þessum vetri. Hefir það á þessum 20 árum unnið þarft menningar- starf fyrir Akureyrarbæ. Það hef- ir á þessum árum sýnt marga merkilega sjónleiki, innlenda og útlenda, sem kostað hafa mikla fyrirhöfn og talsvert .fé, svo sem, Galdra-Loft, Fjalla-Eyvind, Lén- harð fógeta, Dauða Natans Ketils- sonar, Munkana á Möðruvöllum, Nýj ársnóttina, Kinnarhvolssystur, Heimkomuna, Landafræði og ást, ímyndunarveikina, Æfintýri á gönguför o. m. fl., og nú seinast er það að sýna Dansinn í Hruna eftir Indriða Einarsson. Var sann- ast að segja í allmikið ráðizt af íélaginu að sýna leik þennan. Út- búningur hans er dýr og í hann þarf allmarga leikendur, og sum hlutverkin eru mjög vandasöm. Ekki veit ég hvernig félagið getur borið þann kostnað, sem leikur þessi hefir í för með sér. Styrk fær það lítinn og er því aðallega að treysta á tekjur þær, sem það fær af leiksýningunum. En von- andi sækja Akureyringar og nær- sveitamenn Akureyrar leikinn vel. Útbúnaður leiksins er mjög góð- ur. Leiktjöldin eru ágæt. Eru þau máluð af Vigfúsi Jónssyni, sem hefir þegar sýnt, að hann hefir mikla hæfileika sem leiktjalda- málari. Búningar eru sömuleiðis mjög góðir. Hefir frú Svafa Jóns- ■ dóttir séð um þá flesta og sjálf unnið að tilbúningi þeirra. Dans- ana í leiknum hefir Hermann Stef- ánsson útbúið, æft og stjórnað og hefir honum tekizt þetta ágætlega. Um leikritið sjálft er búið að skrifa áður í þessu blaði. Er það ábyggilega meðal merkustu frum- saminna leikrita á íslenzku. Það er mjög „seniskt“ eins og raunar öll leikrit Indriða Einarssonar. Það sýnir þjóðtrú og aldaranda í byrj- un 16. aldar, en á bak við allt sýn- ir það hina sífelldu baráttu á milli ljóss og myrkurs, milli tortíming- ar og frelsunar, guðs og djöfulsins. Eins og áður er minnzt á, þá eru sum hlutverk leiksins mjög vanda- söm, sérstaklega þó Ógautans, sem er sjálfur myrkrahöfðinginn, en þykist vera útlendur kaupmaður. Það hlutverk leikur Ágúst Kvar- an, sem er jafnframt stjórnandi leiksins. Leikur Kvarans í Ógaut- an er svo góður, að hann mun seint gleymast áhorfendum. Um Kvaran má segja, að hann sé leik- ari „af guðs náð“. Hann kemur aldrei svo fram á leiksviði, að hann sýni ekki listhæfileika. Hann ei jafnan „komplet“ listamaður á leiksviðinu. Ég er þess fullviss, að hefði Kvaran verið leikari í stór- borg hjá stórþjóð, þá hefði hann orðið víðfrægur maður. Unu, annað aðalhlutverk leiks- ins, leikur frú Svafa Jónsdóttir. Sýnir hún, sem að venju, sinn á- gæta skilning og smekkvísi í með- ferð þess hlutverks, sem hún leik- ur, en samt hefir mér oft þótt ennþá meira koma til hennar á leiksviði, en í þetta skipti. En frú Svafa leikur mjög vel, eins og æfinlega. Séra Þorgeir í Hruna leikur Gunnar Magnússon. Er hlutverk þetta vandleikið, enda fellur Gunnar ekki í það. Séra iÞorgeir er valdasjúkur heimsmaður og munaðarseggur, vantar mikið á að þessir eiginleikar hans komi glöggt fram í leik Gunnars. En Gunnar hefir áður sýnt, að hann er góður leikari, í þeim hlutverk- um, sem hann fellur í. Gottskálk í Berghyl leikur Björn Sigmunds- son. Björn leikur æfinlega vel, er jafnan skemmtilegur og á æfin- lega vel heima á leiksviðinu. Ste- fán Jónsson Skálholtsbiskup leik- ur Stefán Jónsson bílaviðgerða- maður. Er hann myndarlegur á leiksviðinu, hefir ágæta rödd og leysir allt hlutverkið sæmilega af hendi. Fríðu, systurdóttur biskups- ins, leikur ungfrú Elsa Friðfinns- son. Er leikur hennar góður og með köflum ágætur. Elsu fer ein- lægt fram sem leikkonu og má góðs af henni vænta með aukinni æfingu. Lárenz, bróður sér Þor- geirs, leikur Sigvaldi Sigvaldason. Fellur hann vel í hlutverkið, sóm- ir sér vel á leiksviðinu og hefir á- gætan málróm, en vantar nokkuð, þegar hann þarf að sýna skap- brigði. Nikulás djákn, lítið hlut- verk, leikur Vigfús Jónsson, mjög sómasamlega. Sólveigu bróður- dóttur hans hans leikur ungfrú Guðrún Þorsteinsdóttir söngkona. Hennar leikur er mjög eðlilegur og líkari því að hún væri þaulæfð leikkona en ekki viðvaningur. Rómur hennar er góður og söngur ágætur. Tristan, mann Björns Guðnasonar í Ögri, leikur Sig- mundur Björnsson ssemilega, en

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.