Dagur - 11.02.1937, Page 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
m m m m m
XX. árg.
Akureyri 11. febrúar 1937.
Mjólkur§amlag K. E. A.
Aðalfundur Mjólkursamla'gs K.
E. A. var haldinn í Samkomuhús-
inu „Skjaldborg11 á Akureyri
föstudaginn 5. þ. m.
Varaformaður Kaupfélags Ey-
firðinga, Ingimar Eydal, setti
fundinn og tilnefndi skrifara þá
Jón Sigfússon, Kálfagerði og Hall-
dór Ólafsson, Búlandi.
Voru þá fyrst athuguð kjörbréf
fulltrúa og reyndust mættir alls
48 fulltrúar.
Ennfremur mættu á fundinum:
Samlagsstjóri, framkvæmdastjóri
K. E. A., stjórn þess og auk þess
margir gestir.
Þá var kosinn fundarstjóri
Hannes Kristjánsson, Víðirgerði,
og varafundarstjóri Ármann Sig-
urðsson Urðum.
Skýrsla samlagsstjóra.
Samlagsstjóri flutti langt er-
indi og gerði ljósa grein fyrir hag
og afkomu Samlagsins á sl. ári.
Hafði Samlagið á árinu tekið á
móti 2,538,189 lítrum af mjólk og
er það 362 þús. lítrum eða 16,5%
meira en næsta ár á undan. Greitt
hefir verið fyrir innlagða mjólk
397 þús. 433 kr. og auk þses verð-
uppbót frá fyrra ári 43 þús. 552 kr.
Ráðstöfun eftirstöðva.
Framkvæmdastjóri félagsins
lagði fram svohljóðandi tillögu:
„Af eftirstöðvum rekstursreikn-
ings Mjólkursamlagsins greiðist
samlagsmönnum uppbót á inn-
lagða mjólk þeirra árið 1936 með
2,34 aurum á hvern lítra. Uppbót
þessi færist með 1,84 aurum í
reikninga samlagsmanna við K. E.
A., en 0.5 aur. í samlagsstofnsjóði
þeirra. — Eftirstöðvar reksturs-
reiknings yfirfærist til næsta árs.“
Tllagan samþykkt í einu hljóði.
Samkvæmt þessu verður endan-
legt verð hvers kg. mjólkur 18
aurar.
Mjólkurlögin.
Samlagsstjóri var frummælandi
þessa máls. Benti hann meðal ann-
ars á þá hættu, sem af því gæti
stafað fyrir Mjólkursamlagið, ef
mjólkurframleiðendur utan Sam-
lagsins seldu mjólk sína lægra
verði en útsöluveyð Samlagsins er
á hverjum tíma. — í ræðulok
lagði samlagsstjóri fram svohljóð-
andi tillögu:
„Ársfundur Mjólkursamlags K.
E. A. óskar eftir því, að mjólkur-
lögin verði látin koma til fram-
K.
kvæmda hér í héraðinu sem allra
fyrst og felur stjórninni að gera
sitt ítrasta til þess að svo verði.“
Tillagan var samþykkt í einu
hljóði.
Þess skal getið, að komi mjólk-
urlögin til framkvæmda hér, verð-
ur samkv. þeim sett á laggirnar 5
manna verðlagningarnefnd, sem
meðal annars ákveður útsöluverð
mjólkurinnar. Kýs félag mjólkur-
framleiðenda 2 menn í nefndina,
bæjastjórn Akureyrar aðra 2, en
landbúnaðarráðh. útnefnir odda-
mann.
Bygging nýs mjólkursamlags-
húss.
Meðal fyrirspurna, er fram
komu, var spurt um, hvað stjórn
K. E. A. hefði gert til undirbún-
ings byggingar nýs mjólkursam-
lagshúss. Framkvæmdastjóri ViÞ
hjálmur Þór, svaraði og taldi lík-
ur til, að framkvæmd þessa máls
kæmist verulega áleiðis á þessu
ári og byrjun næsta árs.
Ferðafélag Akureyrar
hélt aðalfund að Hótel Gullfoss 9.
þ. m. F. F. A. var stofnað í apríl
1936 og hét fyrst Akureyrardeild
Ferðafélags íslands, en heitir nú
Ferðafélag Akureyrar, skammstaf-
að F. F. A. Tilgangur félagsins er
að opna nýjar leiðir til þeirra
staða, sem vegna náttúrufegurðar
eða annarra sérkenna draga til
sín hugi ferða- og fjallgöngu-
manna. Nú er búizt við, að á næst-
unni verði farið að leggja hinn
nýja Austurlandsveg, er liggja á
um Reykjahlíð og austur að Jök-
ulsá á Fjöllum. F. F. A. hefir sam-
þykkt að beita sér fyrir að rann-
sökuð verði hið bráðasta leiðin
frá þessum vegi og fram í Öskju.
Kunnugir menn telja miklar líkur
til að á þeirri leið séu langir bíl-
færir kaflar eftir melum og sönd-
um. En takmark F. F. A. er að
opna leið upp í Öskju og koma
þar upp sæluhúsi og einnig í
Herðubreiðarlindum. Kosin var 5
manna ferðalaganefnd er starfar
að skipulagning og undirbúningi
sumarferðalaga. Stjórn félagsins
var endurkosin, þeir Steindór
Steindórsson kennari frá Hlöðum,
Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri,
Gunnbjörn Egilsson skólabryti,
Þormóður Sveinsson bókhaldari
og Björn Björnsson frá Múla,
kaupmaður. — Tala félagsmanna
er nú þegar 116,
KIRKJAN: Messað n. k. sunnudag
(14. febrúar) í Lögmannshlíð kl. 12 á
hádegi.
Zíon. Næstkomandi sunnud. kl. 10 Y2 :
Sunnudagaskóii. Öll böm velkomin. Kl.
8%: Almenn samkoma. Allir velkomnir.
Kvenfélagiö Hlíf hélt hátíðlegt 30 ára
afmæli sitt hinn 4. febrúar sl. með
samsæti í »Skjaldborg«. Sátu það á
annað hundrað manns. Skemmtu menn
sér þar fram undir morgun við ræðu-
höld, söng, spil og dans. Heillaóskir
bárust félaginu bæði í óbundnu og
bundnu máli, og verður ef til vill eitt-
hvað af því birt síðar. Núna aðeins
þessi eina visa frá gömlum félagskon-
um í Reykjavík.
Segjum allar: heill þér Hlíf,
hags og sæmdar njóttu.
Eitthvað líkt og eilíft líf
á Akureyri hljóttu!
Ungmennastúkan Akurlilja nr. 2
heldur opinn fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 14. þ. m. kl. 8% e. h. Unglingar
í bænum, aðstandendur félaga og aðrir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Bsejarbruni. Fimmtudagskvöldið 28.
jan. brann bærinn Nunnuhóll í Hörgár-
dal. í bænum bjuggu hjónin Sigtryggur
Sigtryggsson og Sigurrós Sigtryggs-
dóttir ásamt tveimur börnum þeirra.
Upptök eldsins eru ekki kunn; hjónin
voru í fjósi, sem stendur spölkorn frá
bænum; meðan þau voru að sinna fjós-
verkum, komu börnin til þeirra. Þegar
fjósverkum var lokið og hjónin komu
aftur heim að bænum, var hann alelda.
Hjónin misstu alla sína búslóð, sem var
óvátryggð.
Dansinn í Hruna var leikinn síðastl.
sunnudag fyrir troðfullu húsi, svo
margir urðu frá að hverfa. Næst verð-
ur ieikið á sunnudaginn kemur í næst-
síðasta sinn. LÆKKAÐ VERÐ.
'»Kaniinn í kassanu/m«, leikur i 3 þátt-
um, verður sýndur í samkomuhúsi
Hrafnagilshrepps laugardaginn og
sunnudaginn 13. og 14. febr. n. k. —
Hefst stundvíslega kl. 9 e. h.
Borgin Malaga á Suður-Spáni er
fallin í hendur uppreisnarmanna eftir
miklar orustur. Telja uppreisnarmenn
fall þessarar borgar hafa mikla. hern-
aðarlega þýðingu fyrir sig og eru von-
góðir um að nú dragi til fullnaðarsig-
urs þeirra í Spánarstyrjöldinni.
Fullyrt er, að um 16 þús. ítalskir
hermenn hafi verið settir á land á
Spáni nú nýlega til aðstoðar uppreisn-
arhernum.
NÝJA-BÍÓ «—
„Tunglskins-
Sonatan"
Hrífandi fögur mynd um
vald hljómlistarinnar yfir
hjörtum mannanna.
Aðalhlutverkin leika:
Elissa Landi,
Frank Morgan,
Josep Schildkraut.
Til sölu
er nýlegt og vandað eikar-
borðstofuborð, einnig skáp-
grammofónn með rafmagns-
verki.
Sérstakt fækitærlsverð.
Upplýsingar i Helga magra-
stræti 3 (uppi).
NÆTURVÖRÐUR er í Stjömu Apó-
teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er
næturvörður í Akureyrar Apóteki.)
Jón Steffensen læknir hefir verið
skipaður prófessor í læknisfræði við
Háskóla íslands frá 1. þ. m.
Jómus Rafnar yfirlæknir á Kristnes-
hæli varð fimmtugur 9. þ. m.
Gullfoss fór héðan á mánudagskvöld-
ið áleiðis til Rvíkur. Meðal farþega var
Bernharð Stefánsson alþm. og frú hans
og fulltrúar á flokksþing Framsóknar-
flokksins, sem hefst í Rvík .12. þ. m.
Sigurður Guðmundsson, danskennari
i’rá Reykjavík er væntanlegur hingað
til bæjarins með e. s. »Island« um
næstu helgi. — Mun vera í ráði að
hann hafi hér danskennslu fyrir skóla-
fólk, en auk þess kennslu í eldri og
nýrri dönsum fyrir bæjarbúa almennt,
sem það vilja læra. — Tilhögun kennsl-
unnar verður væntanlega auglýst síðar.
Jarðarför okkar hjartkæru dótt-
ur og systur, Önnu Eggertsdóttur,
er andaðist 2. þ. m., fer fram frá
heimili okkar, Gránufélagsgötu 11,
Akureyri, laugardaginn 13. febr.
og hefst með húskveðju kl. 1 e. h.
Foreldrar og systkini.