Dagur - 11.02.1937, Side 2

Dagur - 11.02.1937, Side 2
22 DAGUR 6. tbl. Ungmennafélög fyrr og nú. Það leikur ekki á tveim tung- urn, að á síðustu áratugum haía landsmenn verið umsvifamestir um ýmiskonar framkvæmdir irá því land byggðist. í morgunroða hins unna frelsis óx mönnum á- ræði og þrek til stórra áíaka. Mönnum skildist, að skáldið Einar Benediktsson hafði rétt fyrir sér, er hann kvað: »Sofið er til fárs og fremstu nauða. Flý þó ei, þú svafst þig ei til dauða. þeim, sem vilja vakna og skilja vaxa þúsund ráð.« Myrkur ánauðaraldanna hafði lagzt eins og óslítandi fjötur um hugi og hendur flestra lands- manna, kyrkt framtakið og svæft hugsjónirnar. En þjóðin átti þó alltaf sína vökumenn og ofurhuga, sem vöktu meðan aðrir sváfu og börðust fyrir frelsi landsins, þótt aðrir héldu að sér höndum. Fyrir æfilanga baráttu Jóns Sigurðsson- ar, Fjölnismanna og fleiri góðra drengja tókst að endurheimta frelsi landsins og bjarga ís- lenzkunni og okkar þjóðlegu menningu frá glötun. Um og eftir síðustu aldamót má segja, að hug- sjónir Fjölnismanna og annarra forvígismanna í sjálfstæðisbarátt- unni færu um hugi fjölmargra hinna yngri manna. Þá hófst sú félagsalda, sem hæst hefir risið meðal íslenzks æskulýðs, en það er ungmennafélagshreyfingin. — Æska þeirrar þjóðar, sem hafði sofið, vaknaði við árroða nýrrar aldar. Hún sá, að óteljandi verk- efni biðu vinnufúsra handa og gekk einhuga og djörf til starfa. Ungmennafélögin störfuðu á þjóð- legum grundvelli. Fyrir þeirra at- beina var aftur farið að æfa ís- lenzku glímuna og aðrar íþróttir eftir því, sem ástæður framast leyfðu. Þau beittu sér og fyrir vöndun móðurijiálsins og létu sér ekkert óviðkomandi, sem þau hugðu að þjóðinni mætti verða til gagns og sóma. En þótt þau hlynntu að því þjóðlega, sem þau töldu þjóðinni heillavænlegt, þá var langt frá því að þau forðuðust öll erlend áhrif og strauma. Þau voru einmftt mjög vakandi í þeim efnum, því óneitanlega var og er margt hægt að læra af framandi þjóðum. En frumherjum ung- mennafélaganna var ljóst, að það er fásinna að taka það útlenda fram yfir jafn gott eða betra inn- lent. Ungmennafélagarnir virtu hið þjóðlega án þess að inniloka sig fyrir erlendum áhrifum með nokkrum kínverskum múr ein- strengingsháttar og þjóðrembings. Ungmennafélögin stóðu víða með miklum blóma um 20—25 ára skeið. Þau höfðu geysimikil áhrif á þjóðlífið og það er óhætt að íullyrða, að margt af því, sem bezt hefir verið gert hér á landi á undanförnum árum, á einmitt rót sína að rekja til þeirrar hreyf- ingar. En öldurnar rísa og falla á lífsferli félaga og þjóða. Nú um nokkur ár hafa ungmennafélögin víðast hvar verið eins og skuggi þess liðna. Til þess liggja margar orsakir. Mörg þau áhugamál, sem félögin höfðu áður á stefnuskrá sinni, svo sem sjálfstæðismálið o. fl. eru nú leyst og ekki lengur slíkt brennandi áhugamál æsku- fólksins, sem það ætti að vera. Fé- lög hafa risið upp, sem hafa ein- göngu íþróttir á stefnuskrá sinm og tvístruðust þá kraftarnir. En meginorsökin er þó losið í þjóðfé- laginu á undanförnum árum, sem hefir verið háskasamlegt öllu fé- lagslífi. Unga fólkið hefir streymt úr sveitunum, svo erfitt hefir ver- ið að halda þar uppi félagslífi. í kaupstöðunum, þar sem skilyrð- in eru að flestu leyti betri til fé- lagslífs, h'efir straumurinn hnigið í aðrar áttir. Margir unglingar sog- ast inn í hina pólitísku hringiðu áður en þeir hafa nokkurn þroska til að átta sig á hvað er að gerast og hafa enga möguleika til að mynda sér sjálfstæða skoðun um þjóðfélagsmál. Og margir ungling- ar virðast því miður áhugalausir með öllu, nema þá til að njóta líð- andi stundar. Þetta ástand hefir skapazt í uppflosnun og losi ár- anna eftir stríðið, atvinnuleysi og heimilisleysi unga fólksins. Sumir verða áhugalausir og láta sig engu varða hvað snýr upp og hvað nið- ur, en aðrir fyllast æsingi og of- stopa, svo heilbrigð hugsun á hjá þeim örðugt uppdráttar, ef hún er ekki blátt áfram bannlýst. II. Hér að framan hefir örlítið ver- ið rætt um ungmennafélögin, með- an þau báru sitt barr. í fáum orð- um hefir verið sagt frá viðhorfi þeirra til þjóðmálanna og lífsins. Það er fullvíst, að ungmennafé- lagshreyfingin hefir haft mikil og heillavænleg áhrif á þjóðlífið i heild, eins og allar þær æskulýðs- hreyfingar, sem rísa á þjóðlegum og heilbrigðum grunni. Ýmsir á- gætustu synir þjóðarinnar frá því um aldamót hafa verið ungmenna- félagar og verk þeirra hafa mótazt af þeim hugsjónum, er þeir sóru ungir eiða. T. d. má nefna forvíg- ismann eins og Tryggva heitinn Þórhallsson, sem alltaf var fyrst og fremst ungmennafélagi í bezta skilningi þess orðs, meðan hann gaf sig að ráði að opinberum mál- um. Fjölmargir núlifandi manna, sem hrundið hafa í framkvæmd ýmsu því, er til framfara horfði í atvinnumálum, skólamálum og í- þróttamálum, hafa verið ung- mennafélagar í æsku. Hér .að framan hefir líka verið getið um hnignun ungmennafélagshreyfing- arinnar og að nokkru raktar þær orsakir, sem til hennar liggja. Til allrar hamingju virðist nýtt .líf vera að færast í sum ungmenna- félög sveitanna, þrátt fyrir dreif- býlið og fámennið. Næstu kaflar þessarar greinar verða um viðhorf þeirra æskumanna, sem nú starfa innan ungmennafélaganna, til þeirra mála, sem nú eru efst á baugi með þjóðinni. Að vísu kem- ur ekki til mála, að ungmennafé- lögin taki nokkurn þátt í hinum pólitíska hráskinnaleik og mold- viðri, þar sem flokkarnir leggja mest kappið á að sverta andstæð- inga sína. En þau verða þó að taka ákveðna afstöðu til þeirra mála, sem varða framtíð þjóðarinnar. Nú sem áður fyrr, verður æskan að Ijá hverri fagurri hugsjón vængi vona sinna og styrkja hvert gott mál í orði og verki. Enn sem áður bíða óteljandi verkefni þrótt- mikillar æsku. Og ef vel er að gætt, þá væri ef til vill ekki síður ástæða til þess nú en áður að ljá ýmsum þeim málum lið, sem ung- mennafélögin veittu brautargengi meðan þau störfuðu af áhuga og áttu betra gengi að fagna. Framh. Kvenfélai 130 ára. Kveníélagið Hlíf, sem- nýlega hefir minnzt langrar og merki- legrar starfsemi sinnar innan bæj- arfélags Akureyrar, var stofnað 4. febrúar 1907. Stofnendur félagsins voru 7 eða 8 konur, allar búsettar á Akureyri. Fyrsti formaður fé- lagslagsins var frú Hólmfríður Þorsteinsdóttir og í húsi hennar á Oddeyri var stofnfundur félagsins haldinn. Tilgangur" félagsins var að hjálpa fátæklingum og öðru bágstöddu fólki í Akureyrarbæ, en strax á fyrstu starfsárum sínum tók félagið upp fasta hjúkrunar- starfsemi og hafði í þjónustu sinni tvær hjúkrunarkonur og eina vökukonu, en innan félagsins starfaði jafnan nefnd, skipuð fimm konum, og riefndist hún hjúkrunarnefnd. Hlutverk þeirrar nefndar var að leita uppi fátæka sjúklinga og í samráði við stjórn félagsins að sjá þeim fyrir hjúkr- un, mat og annarri þeirri hjálp, sem kostur var á að veita. Sam- fara hjúkrunarstarfinu lét Hlíf sér einnig annt um þá sjúklinga er dvöldu á sjúkrahúsi bæjarins og sendi þeim árlega einhverja gjöf á jólunum, og sá um að mess- að væri í sjúkrahúsinu á jóladag- inn, en að guðsþjónustu lokinni var jafnan útbýtt ávöxtum, eða einhverju öðru góðgæti meðal sjúklinganna. Á afmæli sínu 4. febr. hélt félagið jafnan skemmti- fund, og þá var jafnan útbýtt úr íélagssjóði 200—300 kr. til að gleðja einhverja einstæðinga. A þessum árum átti Hlíf mikl- um vinsældum að fagna, enda vóru þær nauðsynlegar, því aðal- tekjustofn félagsins var aðeins á- góði af ýmiskonar opinberum skemmtisamkomum, er félagið gekkst fyrir. Þegar hjúkrunarfé- lagið Hlíf — eins og það nefnd- ist á því tímabili, er sagt er frá — hafði starfað í 20 ár, var farið að dofna nokkuð yfir hjúkrunarstarf- inu, en til þess lágu margar og eðlilegar orsakir. Ýmsar af beztu konurp félagsins höfðu flutt burtu af félagssvæðinu, annaðhvort lífs eða liðnar, en nýir starfskraftar höfðu ekki borizt félaginu að sama skapi. Þá risu einnig upp önnur félög: Nýtt hjúkrunarfélag, Rauð i-K r o s s i n n, er stofnað, Sjúkrasamlag Akureyrar er stofn- að og ýmiskonar stéttafélög rísa upp, sem hafa sína sérstöku sjúkrasjóði. * Þá er Hjúkrunar- kvennafélag íslands einnig stofn- að, það heimtar mikla menntun handa hjúkrunarkonum, en þá einnig hátt kaup. Eitt atriði er enn ótalið, sem hafði mikil áhrií á starf félagsins Hlíf, en það var hið breytta verðgildi peninga. Það sem hafði verið auðvelt að fram- kvæma fyrir 20 árum, með góðum og einbeittum vilja, og þrotlausri elju, var orðið ómögulegt að framkvæma, því allt kostaði svo mikið. Öll hin mörgu félög, sem risu upp innan bæjarins urðu einnig að lifa og leita sér afkomu á einn og sama hátt, nl. með opnberum samkomum; en því fleiri, sem fé- lögin urðu, því minna kom í hlut hvers eins. Raddir fara einnig að koma fram, er telja að öll líknar- starfsemi sé ekki einu sinni lítils- virði, heldur jafnvel til ills eins. Hún tefji fyrir þeim endurbótum er gera þurfi á þjóðskipulaginu, og að þeim fengnum verði líknar- og góðgerðastarfsemi með öllu ó- þörf. Þann veg var þessum mál- um komið á 25 ára afmæli félags- ins Hlíf 1932, og þá kemur fram tillaga um að leggja félagið niður, en af því varð þó ekki, heldur breytti félagið um stefnuskrá og tekur aftur upp sitt fyrra heiti Fjölbreytt únal. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeild. ^MHiiMHiHIMHHMÍ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.