Dagur - 18.03.1937, Page 3
11. tbl.
DAGUR
m
til þess, að smám saman taki
menn að nota rafmagn til suðu, ef
hægt verður að selja orkuna nógu
ódýrt. Myndi það auka mjög þæg-
indi húsmæðra, auk þess sem það
sparaði mikil kolakaup og um
leið erlendan gjaldeyri. Rafvirkj-
un fyrir Akureyri er áhugamál
allra stjórnmálaflokka, því mönn-
um er það Ijóst, að framtíð bæjar-
ins byggist á því, að hægt verði
að skapa meiri atvinnu handa
bæjarbúum, en verið hefir und-
anfarin ár. Má það vera hverjum
manni gleðiefni, að ástæða er til
að vænta bjartari framtíðar fyrir
Akureyri, en á horfðist um skeið.
En hver verður hlutur nærsveita
Akureyrar í Eyjafjarðar- og Þing-
eyjarsýslum hvað snertir raflýs-
ingu? Eitthvað mun hafa verið
rætt um það mál á síðasta sýslu-
furídi Eyjafjarðarsýslu, og senni-
lega hefir það líka verið rætt eitt-
hvað í Suður-Þingeyjarsýslu. En
það hefir verið furðu hljótt um
þetta mál svo mikilsvert, sem það
er. Leikur það þó ekki á tveimur
tungum, að sveitafólkinu væru
það margháttuð þægindi, ef það
gæti fengið ódýrt rafmagn til
ljósa og suðu og jafnvel til upp-
hitunar að einhverju leyti. Það er
að vísu gleðiefni, að kaupstaðir
landsins fái aukin þægindi. En
jafnframt verður að horfast í
augu við þann veruleika, að fólk-
inu fækkar stöðugt í sveitum en
fjölgar í kaupstöðunum, og at-
vinnuleysið þar fer fremur vax-
andi. Munu flestir sammála um,
að það sé illa farið að fólkið fari
frá atvinnu í sveitum, þótt rýr sé,
og gerist ómagar í kaupstöðunum.
Er auðsætt að slíkt getur ekki
gengið til lengdar. En því meiri
þægindi, sem kaupstaðirnir hafa
að bjóða fram yfir sveitirnar, því
meira aðdráttarafl hafa þeir á
hugi manna. Eina skynsamlega
ráðið til að stöðva fólksflóttann úr
sveitunum er að skapa jafngóð
lífsskilyrði þar og í kaupstöðun-
um. Og eitt af því, sem þyngst
verður á metum hvað þetta snert-
ir er einmitt raforka og þau þæg-
indi, sem hún skapar þeim, sem
hana geta veitt sér. Nú er það
augljóst, að sveitarfélög eða sýslu-
félög eru þess ekki megnug að
jafnaði að leggja háspennulínur
víða vegu. Það er því ekki nema
ein leið til að sveitirnar geti al-
mennt orðið aðnjótandi rafork-
unnar og hún er sú, að ríkið leggi
til efni í háspennulínurnar. Hins
vegar ættu sveitarfélögin að geta
lagt fram vinnu við að leggja há-
spennulínurnar hvert ríjá sér.
Síðan á síðasta sýslufundi Eyja-
fjarðarsýslu hefir rafmagnsmálið
lítið verið rætt opinberlega. Odd-
vita sýslunefndarinnar, ásamt þar
til kjörinni nefnd, mun hafa verið
falið að fylgjast með málinu fyrir
hönd sýslunnar og gæta hagsmuna
hennar. Er hérmeð beint þeirri
fyrirspurn til nefndarinnar, hvað
gert hafi verið til að tryggja Eyja-
fjarðarsýslu raforku frá væntan-
legu orkuveri við Goðafoss eða
Laxá og hvernig þetta mál horfi
Við. Slíkt stórmál sem þetta má
ekki liggja í þögn, og alþýðu
manna er full nauðsyn að fá upp-
lýsingar um það, ef einhverjar
eru.
Hér skal ekki farið íleiri orðum
um rafveitumálið að sinni. En
þess er full þörf að halda málinu
vakandi. Sveitarstjórnir í nær-
sveitum Akureyrar ættu að boða
til opinberra funda og ræða þetta
mikilvæga mál. Með sameiginleg-
um átökum ætti að mega takast
að tendra rafljósin á flestum eða
öllum bæjum í nærsveitum Akur-
eyrar á næstu árum.
Sveitamaður.
Mér þykir „Dagur“ fara nokkuð
langt, er hann ber Hallesby sam-
an við Stalin og Hitler, í greininni
„Þrjár útlendar ofsatrúarstefnur".
Nafn Hallesbys er varla þekkt
nema á Norðurlöndum, og áhrif
hans engin, nema í hans eigin sér-
trúarflokki, og því alls ekki sam-
bærileg við áhrif þeirra Stalins og
Hitlers.
Hallesby þykir íslendingar ekki
vel kristnir. Mörgum íslending-
um, lærðum og leikum, hefir þótt
hið sama, og má auðvitað hver
maður eiga sína skoðun um þetta,
eins og annað. „Sínum augum lít-
ur hver á silfrið.“ Það er alt kom-
ið undir því, hvaða skilning mað-
ur leggur í orðið „kristinn“.
„Illa kristna telur Hallesby alla
þá, sem ekki vilja aðhyllast hans
kenningar í trúarefnum,“ segir
„Dagur“. Þetta er líklega hárrétt
hjá blaðinu. En svo flytur það á
næstu síðu grein frá öðrum manni,
sem gerir hið sama, eða verra. í
greininni „Guðlastandi menn“ fer
Pétur Sigurðsson, trúboði, lengra
en Hallesby. Hann telur alla þá
„guðlastandi menn,“ sem ekki
vilja aðhyllast hans kenningar í
trúarefnum.
Sagan „Don Quixote“ (framb.:
,,Kviksót“) eftir Spánverjann Cer-
vantes, gefur snilldarlýsingu á
riddara, sem réðist með miklum
móði á ímyndaða óvini. Hann sá
illa og reið út einu sinni með
brugðnu sverði og miklu hugrekki
á móti óvinaher. En sá galli var á
því, að herinn var aðeins kinda-
hópur. Eins hætti hann lífi sínu í
einvígi við risavaxinn riddara, en
riddarinn var aðeins lítil vind-
mylla.
Við og við gerir Pétur Sigurðs-
son svæsna árás á ímyndaða ósiði
eða „guðlast“. í bók sinni „Takið
steininn burt“ fyltist hann vand-
lætingu út af því, að íslendingar
væru sífellt að deila um atriði,
sem hann taldi upp. En þessi at-
riði áttu sér hvergi stað, nema í
ímyndun Péturs Sigurðssonar,
eins og ég sýndi ítarlega í „Norð-
urljósinu" fyrir nokkru.
Eins í hinni umræddu grein
hans talar hann um það, t. d., að
biblían segi, að „Guð hafi látið
strádrepa menn í þúsunda tali
vegna þess að einn maður stal.“
Þetta er aðeins einkenni ímynd-
unarveiki hjá Pétri, því að hvergi
stendur þetta í biblíunni,
Það er rétt hjá Pétri, að nokkrir
fáfróðir menn hafa haldið því
fram, að saklaust barn, sem ekki
væri skírt, myndi glatast. En hvað
kemur þetta biblíunni við, eða
kristindómi? Hvergi er flugufótur
fyrir þessari heiðnu hugmynd í
ritningunni. Hún er eðlilegur á-
vöxtur kenninga þess trúarfélags,
sem P. S. stendur í, en ekki af
kenningum þeirra, sem fylgja
vilja ritningunni. Væri honum
það nær, að hreinsa fyrir eigin
dyrum, áður en hann ræðst á þá,
sem öðruvísi trúa, með skömmum
og stóryrðum, eins og hann gerir
í grein sinni.
Önnur ímyndun Péturs er sú, að
þeir, sem halda sér við kenningar
Krists í ritningunni, kúgi fólk og
t. d. banni því, að fara í leikhús.
Ég hefi aldrei orðið var við slíkt.
Skynsamlegasta stefnan er að
hjálpa fólki til að þroskast, svo að
það sé dómbært sjálft til að kjósa
rétt, hvert fara skal og hvert ekki.
En stefna P. S. er blátt áfram
kúgunarstefna í líkingu við þving-
un páfastólsins. Ég hefi nýlega
fengið áreiðanlega frétt frá kaup-
stað á Austfjörðum, um það, að P.
S. hafi stofnað þar „Voraldar“ fé-
lag, og meðal annars hafi hann
bannað meðlimunum að lesa viss,
nafngreind blöð og rit (ég hefi
listann). Fólki þótti þetta svo ó-
frjálst, að félagið leystist upp og
varð að engu, þrátt fyrir það, að
Pétur helti úr skálum reiði sinnar
yfir það.
Væri það vel viðeigandi, að við
fengjum ekki að heyra meira um
„kúgun“ úr þeirri átt. Og þó að
hinum ímyndunarveika Pétri
gangi illa að skilja ýmis atriði í
ritningunni, — sem engum heil-
vita manni dettur í hug að neita,
að sé sumstaðar þungskilin, —
sýndi harm meiri hógværð, ef
hann ransakaði þau betur og
reyndi að finna tilganginn, sem
liggur bak við frásagnirnar, áður
en hann hleypur með skammir, í
opinbert blað, um milljónir trú-
aðra manna, sem hafa jafn mik-
inn rétt til að mynda skoðun og
hann. Og hafi þeir gefið sér tíma
til að rannsaka atriðin með þolin-
mæði og sanngirni, en hann ekki,
þá hafa skoðanir þeirra betri rétt
á sér en skoðanir hans.
Arthur Gook.
16. HéraDsping I). M. S. E.
(Útdráttur úr þinggerðinni.)
(Niðurl.).
2.
»16. þing U. M. S. E. vill beina þeirri
áskorun til sýslunefndar Eyjafjarðar-
sýslu, að hún, af því fé, sem árlega er
varið til sundkennslu í sýslunni, veiti
öllum hreppum, er þess óska, fjárstyrk
nokkum, án tillits til þess hvort kennsl-
an fer fram utan hrepps eða innan.«
Einnig voru samþykktar hvatningar
til sambandsfélaganna um að vinna að
eflingu hverskonar íþrótta, hvert í
sinni sveit.
Ennfremur samþykkti héraðsþingið
eftirfarandi tillögur og áskoranir:
1. Að sambandsfélögin geri tilraunir
með lesfrKðsluhringa.
Jarðarför Kristinar Jónsdóttur,
sem andaðist að heimili sínu,
Vatnsenda í Eyjafirði, 4. þ. m., er
ákveðið að fari fram að Hólum
þriðjudaginn 23. s. m. kl. 12 á
hádegi,
Aðstandendur.
2. Að þau með fyllsta áhuga starfi
að trjárækt og- garðyrkju.
3. Að vinna af alefli að vöndun móð-
uimálsins, og stuðia að uppfræðslu í
meðferð þess bæði í ræðu og riti.
4. »Héraðsþing U. M .S. E. skorar á
yfirstandandi Alþingi að breyta lögum
nr. 34 fra 22. nóv. 1918 þannig, að
ungmennafélög og- sambönd þeirra verði
undanþegin skemmtanaskatti«.
5. »Héraðsþing U. M. S. E. beinir
því til sambandsféiaganna, og lands-
inanna yfirleitt, að styðja íslenzkan
iðnað eftir fremsta megni, og þó eink-
um þann iðnað, sem framleiddur er úr
innlendum hráefnum. Telur þingpð það
hina mestu nauðsyn, að hið opinbera
láti fara fram sem ítarlegasta rann-
sókn á hráefnum landsins.
Einnig beinir héraðsþingið því til
sambandsfélaganna að stuðla að notkun
íslenzkra fæðutegunda og- telur að
spana mætti kaup á ei-lendum vörum,
ef innlendar fæðutegundir væru betur
notaðar«,
Er lokið var. þingstörfum bauð U. M.
F »Reynir« þingfulltrúum til kaffi-
drykkju, er stofnað var til í tilefni af,
að það félag' er um þessar mundir 30
ára. Var þar samankomið margt manna
úr sveitinni, auk þingfulltrúa.
Bauð formaðúr félagsins, Angantýr
Jóhannsson, gestina velkomna. Minntist
hann nokkurra atriða úr störfum þess
og bað menn síðan gera sér gott af því,
er fram væri reitt.
Var þá ósleitilega til tekið og dugði
margur vel. Kom mönnum þar helzt í
hug, þá er Þór þreytti drykkjuna í Út-
g'örðum forðum. Voru þar fluttar marg-
ar ræður, er sýndu það greinilega, að
U. M. F. »Reynir« er, og hefir jafnan
verið, eitt hið öflugasta og glæsilegasta
ungmennafélag hér um slóðir. Var sér-
staklega ánægjulegt að heyra, hversu
forráðaménn sveitarinnar töldu hana
standa í ótvíræðri þakkarskuld við það,
fyrir þau störf er það hefir leyst af
hendi í þágu hennar.
Er borðum var hrundið, skemmt'i
blandað kór, undir stjóm Marinós
Þorsteinssonar, með söng. Taldi söng-
stjóri það nýstofnað og æfingar hefðu
enn verið mjög fáar. Væri óskandi að
því auðnaðist að halda áfram á þeirri
braut, sem það hefir byrjað á, og má
þá óhætt spá björtu um framtíð þess.
Að söngnum loknum var hafinn dans,
og stóð hann enn í fullu fjöri er dag-
ur rann. Munu allir viðstaddir ljúka
upp einum munni um, að sjaldan hafi
þeir í glaðari hópi verið, og að jafnan
muni þeim í hug koma dagarnir á
Hauganesi, en- þeir heyra getið gleð-
skapar og góðra daga. Færi ég hér
með U. M. F. »Reyni« og Árskógs-
strendingum yfirleitt alúðai--þakkir fyr-
ir gestrisni þeia-ra og góðvild í garð
þingfulltrúanna. PAll Helgason.
NÆTURVÖRÐUR er í Akureyrar
Apóteki þessa viku. (Frá n. k. mánud.
er nieturvörður í Stjömu Apóteki.)