Dagur - 20.05.1937, Blaðsíða 3

Dagur - 20.05.1937, Blaðsíða 3
23. tbl. DAGUR 93 Hafnarmál Það er svo að sjá á dagblöðun- um nú, að þau ætli að nota sem landsmálaagn handa okkur Svarf- dælingum hafnarmál Dalvíkur, sem vitað er, að er okkar stærsta mál nú, og sem ég hygg að óhætt sé að segja að allir Svarfdælingar standi óskiptir að. Mál, sem ég veit fyrir víst, að hver kjósandi í Svarfaðardal, af hvaða landsmála- flokki sem hann er, ætlar sínum fulltrúa að styðja til fulls frdm- gangs, nái hann að taka sæti á Alþingi. Hafnarmálið á Dalvík er ekki pólitískt flokksmál í Svarfað- ardal. Það er einmitt þessi aðstaða sveitunga minna, sem kemur mér itl að rita þessar línur. Allar mis- sagnir um málið tel ég hættulegar og því til ófarnaðar. Nú fyrir skömmu birtist í Degi grein eftir Svarfdæling, sem ég veit ekki hver er, enda skiptir það engu máli. Grein þessi er að mín- um dómi athugunarverð að nokkru. Þó ég hinsvegar telji víst — enda ber greinin það með sér sjálf — að þar ráði meiru að höf- undurinn veit ekki betur, en hitt, að hann láti pólitískan lit ráða penna sínum. Tölur þær, sem hann tekur upp í grein sína úr hafnarlögum Dal- víkur, eru rétt til færðar, eins og lögin gera ráð fyrir að sú höfn kosti, er þau eru sniðin við, en hann getur hins ekki, að sú fyrir- hugaða höfn nú er nokkru dýrari og önnur en þau eru byggð á. Af umræddri grein virðist mega ráða, að greinarhöfundur telji, að hafnarmálið hafi aldrei átt, og eigi nú engan stuðning frá neinum öðrum þingflokki en Framsóknar- flokknum, og þá heldur ekki heima í héraði. Mér er ekki kunnugt um afstöðu einstakra þingmanna annarra flokka en Framsóknarflokksins á því þingi, er lögin voru samþykkt, en hitt veit ég, að eitthvað af Sjálfstæðisflokksmönnum greiddi þeim atkvæði, en að sjálfsögðu fyrir atbeina Framsóknarflokksins og þá fyrst og fremst þingmanna hjartfólgnustu hagsmunamálum einlægustu fylgismanna sinna úr „breiðfylkingunni“ fyrir einskær- um náungakærleika í garð fjöld- ans og allrar alþýðu. En hann gleymdi líka ýmsu öðru: Hann gleymdi að geta þess, hvaða að- ferðum flokkur hans hyggst að beita til að gera a. m. k. eitthvert brot þessara fögru loforða að veruleika. Hann gleymdi fortíð flokksins og hinum alræmda orð- stír ýmsra helztu foringja hans. Hann gleymdi því, að kjósendur landsins hafa áður sýnt það við kjörborðið, að þeir gleyma ekki. Hann gleymdi, þegar öllu er á botninn hvolft, öllu nema stóru orðunum. Það er von að aumingja „íslendingur“ falli í stafi yfir kraftinum, málsnilldinni og rök- fiminni! Dalvíkur. Eyjafjarðarsýslu. — Framsóknar- flokkurinn stóð óskiptur að því máli þá, sem hann og gerir enn. Það skal ennfremur tekið fram, enda er mér það ljúft og skylt, að sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu tók á nýafstöðnum sýslufundi á sýsluiia ábyrgð þá, er hafnarlög Dalvíkur gera að skilyrði fyrir hafnarbygg- ingunni, og að þeirri málaleitun Svarfdælinga studdu með atkvæði sínu sýslunefndarmenn úr öllum flokkunum þremur, Framsóknar- ílokknum, Bændaflokknum og Sjálfstæðisflokknum, þó sá stuðn- ingur væri óskiptastur hjá Fram- sóknarflokksmönnum. Þessa tel ég rétt að geta, til að taka fyrir misskilning, er mér virðist umrædd grein geta gefið tilefni til, en skal að öðru leyti ekki fjölyrða um hana. Þann 12. maí sl. birtist svo for- ustugrein í Bændablaðinu, með fyrirsögninni „Eftir 6 ára svefn“. Grein þessi ræðir um hafnarmál Dalvíkur á þeim grundvelli, að sú kyrrstaða, sem komst á það mál, af þeim sökum, að Svarfdælir voru ekki undir búnir að leggja sinn hluta kostnaðar mannvirkisins fram, sé að kenna þingmönnum kjördæmisins. Þeir hafi „gleymt“, eins og blaðið orðar það, hafnar- málinu á Dalvík, þar til nú að kosningar standi fyrir dyrum, þeir beri ábyrgðina á því að málið er ekki komið í framkvæmd. Ég segi nú bara: „Fyrr má nú rota, en dauðrota.“ Fyrr má nú affæra það rétta, en snúa því alveg við. Þetta er Bændablaðið, sem skrifar svona, og ætlar svarfdælsk- um bændum að gleypa svona and- lega matarframleiðslu. Sem Framsóknarflokksmanni má mér þetta ritsmíð vel líka, hjá flokki, sem ég treysti ekki. Því háskalegri vopn á sjálfa sig og sinn fldkk og málstað, hygg ég að naumast verði smíðuð. Þessi ritsmíð er óefað ætluð okkur Svarfdælingum einum, og verður ekki hjá komist að líta á hana sem fjandsamlega í okkar garð, og erum við litlir menn, ef við launum í engu. Við Svarfdælir vitum ofur vel, að við ein'ir eigum sök á um svefn þann í 6 ár, sem hafnarmál okkar hefir sofið, ef sök á að kalla. Það hefði mátt drengilegt telja frá þeirra hendi, sem í þessum drætti á framkvæmdum sjá aðeins svefn áhugalausra manna, að benda okkur á þetta. Nú er þetta ekki gert, heldur er þingmönnum kjör- dæmisins kennt um, og má furðu- legt kallast, ef nokkur treystir svona málaflutningi. Ég vil ætla greinarhöfundi þá meinlausustu forsendu fyrir þess- ari grein sinni, að hann treysti því, að Svarfdælir séu meinlaus flón, flón, sem segja megi hvað sem vera skal, jafnvel að segja þeim, að það, sem þeir sjálfir vita að er rétt, það sé órétt, sannleikur sé lygi og lygin sannleikur. Hvernig ættu nú Svarfdælingar Minni§blað fyrir „Bændallokk§“-menn. IV. »Ofbeldisfiokkarnir báðir, kommúnistar og nazistar, eiga að verða sjálfdauðir á íslandi. Við munum, íslendingar, feta í fótspor frændþjóðanna um að halda fast í lýðræðið, málfrelsi, fundafrelsi, skoðanafrelsi, sjálfsstæði dómstólanna og svo framvegis. En ekki einungis skulu þessir ofbeldisflokkar verða sjálf- dauðir. Auk þess á hver sá flokkur, sem fær á sig grun um dekur við ofbeldisstefnurnar, að fá á sig tortryggni þjóðarinnar og bera skarðan hlut frá borði. Tryggvi Þórhallsson^ (»Framsókn« 27. tbl. 1933). F>að er ekki einungis að Bændaflokksforingjarnir hafi fengið á sig »grun um dekur« við ofbeldisstefnu nazista, því þeir hafa blátt áfram sameinast íhaldinu, sem allir vita að elur við brjóst sér ofbeldisstefnu nazista. Sjálfstæðisfl. — Bændafl. — nazistar, það er hin þríeina »BreiðfyIking« eins og kunnugt er. Samkv. ofangreindum dómi Tryggva Pórhallssonar, hins upphaflega foringja Bændaflokksins, hlýtur því Bændafl. nú, eða öllu heldur foringjar hans, sem gengið hafa í bandalag við nazistaofbeldið, að fá á sig eitthvað meira og verra en tortryggni þjóðarinnar og bera skarðan hlut frá borði. Pessi orð hins Iátna foringja síns þurfa kjósendur, sem eru í Bændaflokknum, að hafa fast í huga, þegar þeir ganga að kjörborðinu 20. júní næstkomandi. að treysta manni með svona hugs- anagangi til að vinna að þeirra málum á þingi þjóðarinnar, ef hann ætti setu þar. Mundi ekki eðlilegast að gera ráð fyrir því, að hann færi sínu fram, án tillits til þeirra vilja, ekki væri að óttast þá, að þeir gætu sér hið rétta, þó hann dræpi fyrir þeim þeirra eig- in mál, gæti hann bara sagt þeim, að hann hefði gert það eftir beiðni frá þeim. Og þeir mundu trúa. Nei, greinarhöfundur má trúa því, að Svarfdælingar eru ekki svona manntegund. Þeir kunna góð skil á sönnu og ósönnu og allur ódrengilegur málaflutningur er þeim andstygð. Því tökum við það illa upp, að þingmenn okkar, sem hafa verið boðnir og búnir, hvenær sem til þeirra hefir verið leitað, í þessu máli, að vinna því allt gagn, og meira en nokkrum öðrum má þakka hvað því máli er komið, skuli nú vera bornir þeim sökum, sem Bændablaðsgreinin ber á þá, því má ekki láta ómótmælt úr Svarfaðardal. Að endingu þetta: Telji Bænda- blaðið íslenzka bændur á líku þroskastigi og greinin virðist benda til að það hugsi sér svarf- dælska bændur, þá þarf það svei mér ekki að vera hreykið af hjörð- inni sem það telur sig vera að berjast fyrir. Og eitt er víst, að eigi blaðið ekki beittari vopn að bera á þingmenn Framsóknar- flokksins, eru þeir ekki í hættu staddir í Svarfaðardal. Hæfilegar kvittanir við Bænda- blaðsgreininni veit ég að Svarf- dælir gefa á þeim rétta veittvangi, við kjörborðið við kosningarnar í vor. Þór. Kr. Eldjám. í eiQin fótum. í fyrsta leiðara „Bændablaðs- ins“, sem ritaður er af Stefáni á Varðgjá, segir, að „Bændablaðið“ vilji styðja „Bændaflokk, er standi á eigin fótum“ og sem ekki þurfi að standa upp við aðra. — Nú eru óðúm að berast fréttir af framboðum flokkanna og fréttirn- ar eru á þá leið, að Bændaflokk- urinn og Sjálfstæðisflokkurinn bjóða næstum alstaðar fram í fé- lagi, sem einn flokkur væri. Þann- ig stendur Bændaflokkurinn. á eigin fótum. Hann stendur svo sem ekki upp við neinn annan flokk, hann er bara gjörhorfinn inn í Sjálfstœðisflokkinn. NÆTURVÖRÐUR er í Stjömu Ap6- teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er næturvörður í Akureyrar Apóteki.) Hérmeð tilkynnist að jarðarför Iíristinar Guðlaugsdóttur, er andaðist á Kristneshæli 11. þ. m., er ákveðin laugardaginn 22. þ. m., kl. i e. m, Qg hefst með húskveðju á heimili okkar, Aðalstræti 23. Pálina Guðjónsdóttir. Guðlaugur Iiristjánsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.