Dagur - 17.06.1937, Blaðsíða 2
132
DAGUR
31. tbl.
Það sé fjarri mér að fara að
deila við Pétur Eggerz eða höfund
Bændablaðsgreinarinnar og læt
sennilega máli mínu lokið með
þessari grein; ég vildi aðeins lofa
greinarhöfundum að sjá, að ég
hefi lesið greinar þeirra og svara
þeim að svo miklu leyti sem þær
snerta grein mína í Degi.
Hinu öðru í umræddum grein-
um, sem gripið er úr lausu lofti
og talinn sannleikur, skal ég ekki
svara, þótt ekkert sé léttara. Ég
skrifaði ekki af pólitískum eltinga-
leik, heldur af hinu, að ég taldi
mér skylt að leiðrétta það, sem ég
vissi að var rangt. Og dóminn
þann, að grein mín sé furðuleg, af
því að hún sé rétt, hann ætla ég
að þola, og tel mig vaxa af en
hvergi minnka.
Þór. Kr. Eldjárn.
íhaldsmenn
segjast bera mikla umhyggju fyr-
ir fjárhag ríkisins. Sú umhyggja
hefir meðal annars birzt í því, að
íhaldsmenn hafa komið róggrein-
um um fjárhag landsins inn í er-
lend blöð. Eina slíka róggrein
fengu þeir birta í Tidens Tegn og
aðra ætluðu þeir að fá birta í
Times, en því blaði velgdi við að
gleypa slíka landráðavofu og út-
hýstu henni. Út af því máli varð
Morgunblaðið sér til stórskamm-
ar, sem kunnugt er.
Breiðfylkingarmenn
klifa sí og æ á því, að skattar og
tollar hafi hækkað í tíð núverandi
stjórnar. Sannleikurinn er nú
samt sá, að skattar og tollar hafa
lækkað um 15 kr. á mann síðan í
blómatíð íhaldsins, úr 120 kr. nið-
ur í 105 krónur.
Er skuldakónginum
trúandi fyrir fjármálum
þjóðarinnar?
Ef Breiðfylkingin kemst í meiri
hluta við kosningarnar, þá krefst
Ólafur Thors þess að verða fjár-
málaráðherra og verður það.
Nú vill svo vel til að fengin er
nokkur vissa um fjármálavit Ól.
Th. Fjármálastjórn hans í Kveld-
úlfi er á þá leið, að Kveldúlfur
skuldar 5—6 miljónir, sem hann
getur ekki borgað, og var fyrir
skömmu settur undir opinbert eft-
irlit. Þar við bætist að Landsbank-
inn hefir nú séð það ráð vænst, að
þoka Ólaíi Thors út úr fram-
kvæmdastjórn Kveldúlís.
Þenna mann litur „Breiðfylk-
ingin“ á sem efnilegasta fjármála-
ráðherra íslands!
Kosningalygar
»Breiðfylkingar allra íslendinga«
Breiðfylkingarmenn halda því
stöðugt fram gegn betri vitund, að
Framsóknarmenn hafi gert kosn-
ingabandalag við kommúnista. Það
er alveg öruggt og áreiðanlegt, að
þetta er gert í ákveðnum tilgangi
og með visst takmark fyrir aug-
um, Fari svo, að Breiðfylkingin
komist í meiri hluta, þá vill hún
hafa skapað sér grundvöll fyrir
ofbeldisráðstöfunum. Og sá grund-
völlur telur hún að fáist með því
að stimpla Framsóknarflokkinn
sem kommúnistaflokk fyrir kosn-
ingarnar, svo að hún á þeim for-
sendum geti hafið ofbeldisofsókn-
ir gegn honum að kosningum
afloknum, þar sem hann sé bylt-
ingaflokkur.
Kjósendur! Látið ekki Breið-
fylkinguna sigra með þessari kosn-
ingalygi.
Ól. Th. gerður grikkur.
í útvarpsumræðum í gærkveldi
gat Hermann Jónasson þess, að
hann færi með næsta morgni
norður í Skagafjörð, til þess að
mæta á fundum þar í dag. Þá brá
Ólafur Thors við og skoraði á H.
J. að mæta sér norður á Strönd-
um á sama tíma, auðsjáanlega af
því Ól. Th. hélt, að hann gæti
ekki komið því við. En þá gerði
H. J. honum þann grikk að skýra
honum frá því, að hann gæti orð-
ið við þessari áskorun hans, því
Eysteinn Jónsson ætlaði til Skaga-
fjarðar í sinn stað. Þá kvað Ólaf-
ur hafa fölnað.
Sfaka.
Atkvæðisrétt að eta sinn
eílaust þykir fremur gott,
ef blessaður „Sjálfstæðis“-
burgeisinn
breytir honum í þurrt og vott!
S.
Zíon. Næstkomancli sunnud. kl. 1014:
Sunnudagaskóli. öll börn velkomin. Kl.
8%: Almenn samkoma. Allir velkomnir.
Svar til »Karls í Koti« komst ekki í
þctta blað vegna þrengsla.
Varðtimi lækna:
17. júní, fimmtud. og kv.: V, Steffensen,
18. — föstudag: Jón Oeirsson;
19. — laugardag: Pétur Jónsson,
20. — sunnud. og kv.: Á. Guðmundss.
21. — mánudag: Vald. Steffensen.
22. — þriðjudag: Árni Guámundsson.
23. — miðyikudag: Jón Geirsson.
Ritstjóri: Ingimar Eydal.
Prentverk Odds Björnssonar.
Opnað 15. júní. Dvöl, gisting, veitingar.
Munið sundlaugina á Laugum.
Sumargiifihúsið á
Sími: Breiðamýri.
Laugum
Valdemar Hólm Hallstað:
Eg er á förurn
Kvæðið fallega, sem allir syngja við Iagið Folk-
visa eftir Merikanto,
Fæst sérprentað í vandaðri útgáfu hjá
Þorst. Þ. Thorlacius.
Ibúð
4 herbergi og eldhús,
vantar mig frá 1. okt.
næstkomandi.
Barði Bryn/'ólfsson.
Aðalstræti 32.
Kjósið Framsóknarflokkinn!
Kaupum KJÖT af sjálf-
dauðum skepnum,
nothæft til refaeldis;
Ari og Árni, Þverá.
PLÖNTURNAR eftir St. Stefáns-
son, eitt eintak, óskast keypt nú
þegar. Sn. Áskelsson, prentari.