Dagur


Dagur - 12.08.1937, Qupperneq 1

Dagur - 12.08.1937, Qupperneq 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfél. Eyfirðinga. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Afgreiðslan er hjá JÓNI Þ. ÞOR, Norð- urgötu 3. Talsími 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslumanns fyrir 1. des. Akureyri 12. ágúst 1937. 39. tbl. Nokkur atriði úr kosningasögu áranna 1923-1937. Á því tímabili hefir Framsóknarflokkurinn bætt 80°|0 við fylgi sitt, en íhaldið aðeins 48°|0. — Af því sést að Framsóknarflokkurinn er vaxandi flokkur, en íhaldsflokkurinn minnkandi. Við kosningarnar árið 1923 nefndi íhaldið sig Borgaraflokk, sigraði og fékk meirihluta þing- manna. Fór íhaldið síðan með völd þar til árið 1927. Á þessu valdatímabili íhaldsins var góðæri, sem er mikill styrkur hverri stjórn. Þrátt fyrir það tap- aði íhaldið í kosningunum 1927 þeim þingmeirihluta, sem það hafði haft, og jafnframt þeim meirihluta atkvæða, er það áður hafði hjá þjóðinni, og hefir ekki unnið hann síðan. Eftir kosningarnar 1927 myndar Framsóknarflokkurinn stjórn með stuðningi Alþýðuflokksins. Gekk svo þar til 1931. Þá sleit Alþýðu- flokkurinn samvinnu við Fram- sóknarflokkinn og gekk í lið með íhaldinu um breytta kjördæma- skipun. Upp úr þessu varð þing- rof og nýjar kosningar á þessu ári. Við þessar kosningar jók Fram- sóknarfiokkurinn atkvæðamagn sitt svo gífurlega, að hann fékk hreinan meirihluta þingmanna. Myndaði hann þá stjórn á ný án stuðnings annara flokka. Eftir þenna mikla sigur Fram- sóknarflokksins fór að bera á sundrung og klofningi innan flokksins, er leiddi til þess, að mynduð var hin eftirminnilega sambræðslustjórn 1932, þegar þeir Ásgeir Ásgeirsson, Magnús Guð- mundsson og Þorsteinn Briem settust að völdum. Árið eftir, 1933, fara fram hinar síðustu kosningar eftir eldri kosn- ingalögum. Þá er Framsóknar- flokkurinn stórum lamaður af sundrungarviðleitni og klofnings- tilraunum nokkurra manna innan flokksins. Kosningaþátttakan er dauf, fylgi Framsóknarflokksins hrapar niður, og flokkurinn tapar 7 þingsætum. Fylgi flokksins er þá hlutfallslega svipað gagnvart í- haldinu og það var 1923. Árið 1934 fara fram fyrstu kosn- ingar undir hinum nýju kosninga- lögum. Þá er Bændaflokkurinn myndaður og býður fram nokkra af eldri þingmönnum Framsókn- arflokksins, en Ásgeir Ásgeirsson orðinn utan flokka. Klofningur- inn í flokknum er þá fullkomnað- ur og aðstaða hans að því leyti hin versta. Þrátt fyrir þessa sleemu aðstöðu vex fylgi Fram- sóknarflokksins um hér um bil 3000 atkvæði. Sambræðslustjórnin verður að leggja niður völd, og Framsóknarflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn mynda stjórn. Loks koma kosningarnar nú í vor. Voru þær afleiðing þess, að Alþýðuflokkurinn sleit samvinnu við Framsóknarflokkinn vegna málefnaágreinings. Ágreiningur- inn er lagður undir dóm þjóðar- innar. íhaldið hyggst að nota sér þetta ástand til sigurvinninga og stofnar „Breiðfylkingu allra ís- lendinga“, sem á að ríða stjórnar- flokkunum að fullu. Úrslitin verða þau, að Framsóknarflokkurinn bætir við sig 4 þingsætum og eyk- ur fylgi sitt um á 4. þúsund at- kvæða. Breiðfylkingin bíður ósig- ur, og „Sjálfstæðisflokkurinn" hefir tveimur þingmönnum færra en Framsóknarflokkurinn, þegar 5 uppbótarþingmenn eru taldir með. Með kosningabandalagi „Sjálf- stæðisins“ og kofningsmannanna úr Framsókn átti mikið að vinn- ast. Þessi samfylking boðaði fyrir- fram kosningasigur sinn. Meðal annars tilkynnti hún, áð Hermann Jónasson væri sama sem fallinn á Ströndum, áður en gengið var til kosninga. Ólafur Thors var farinn að undirbúa flutning sinn í stjórn- arráðsbústaðinn og allt fram eftir þessu. Endirinn varð sá, að nú formæla foringjar íhaldsins og foringjar klofningsliðsins hverir öðrum fyrir verzlunarsamninginn og kenna hverir öðrum um ósig- urinn. Á yfirliti því, sem hér hefir verið gert, kemur það í ljós, að Framsóknarflokkurinn er vaxandi og lífrænn flokkur frá 1923 og til þessa dags. Við hverjar kosningar hefir honum aukizt fylgi, nema 1933. Þá var hann niðri 1 öldu- dalnum af orsökum, sem áður eru greindar. Þá hafði hann orðið fyr- ir tilræði sinna eigin flokksmanna, sem er miklu hættulegra en of- sóknir opinberra andstæðinga. En lífsþrótt sinn hefir flokkurinn einkum sýnt í því að standa af sér þá miklu raun á þann hátt, sem nú er orðið. Veikbyggðum flokki hefði orðið það að aldurtila að fá vinsælan og vel metinn for- mann sinn og nokkra þingmenn aðra úr sínum hóp í andstöðu við meginflokkinn og síðan sem nýjan andstöðuflokk við kosningar. En þessi hefir ekki orðið raunin á með Framsóknarflokkinn. Þrá-tt fyrir þetta mikla áfelli er hann nú orðinn mun hærri að atkvæða- tölu en nokkru sinni áður. Er það talandi vottur um styrkleika flokksins sem félagsheildar. Það er og næsta eftirtektavert, að í bæði skiptin sem Aþýðuflokk- urinn hefir slitið samvinnu við Framsóknarflokkinn, hefir hann aukið fylgi sitt hvað mest í næstu kosningum á eftir. Svo var það 1931 og svo var það 1937. Er af þessu nokkuð ljóst, hvern veg kjósendur líta á ágreiningsmálin milli þessara tveggja flokka. Af þessu ætti Alþýðuflokkurinn eitt- hvað að geta lært. Saga íhaldsins hefir verið nokk- uð á annan veg á þessu um- rædda tímabili. Formaður íhalds- flokksins og blöð hans hafa reynt að þyrla upp miklu ryki um hlut- fallslega fylgisaukningu íhalds- flokksins og Framsóknarflokksins á síðustu 14 árum, auðsýnilega í þeim tilgangi að dylja í því ryki raunverulegan ósigur sinn, sem felst í því, að Framsóknarflokkur- inn er vaxandi flokkur, en íhalds- ílokkurinn hlutfallslega minnk- andi flokkur. Skal þetta nú sýnt með óvéfengjanlegum tölum: Árið 1923 er fylgi Framsóknar- flokksins 8062 atkvæði. Árið 1937 er fylgi flokksins komið upp í 14556 atkvæði. Aukningin er 6494 atkvæði eða 80%. Árið 1923 er fylgi íhaldsflokks- ins 16272 atkv. Árið 1937 er fylgi flokksins 24132 atkv. Aukningin er 7860 atkv. eða 48%. Vilji því íhaldsblöðin halda því fram, að íhaldsflokkurinn hafi aukið’ fylgi sitt hlutfallslega meira NÝJABÍÓ Sýnir fimmtudaginn 12. þ. m., kl. 9: Tíðindalaust a! U 21 Framúrskarandi spennandi mynd frá ófriðnum mikla. Niðursett verð. Sýnd í síðasta sinn. en Framsóknarflokkurinn, þá er það einungis hægt með því móti að staðhæfa að talan 48 sé hærri en talan 80. Vilji þau gera sig að því stærðfræðilega viðundri, þá er þeim það svo sem guðvelkomið. Sé aðeins litið til síðustu kosn- inga og fylgisaukningar flokkanna frá næstu kosningum á undan, þá er útkoman þessi: 1934 hafði Framsóknarflokkur- inn 11377 atkv., en 1937 hafði hann 14556 atkv. Aukningin er 3179 atkv. eða 28%. 1934 hafði íhaldsflokkurinn 21974 atkv., en 1937 hafði hann 24132 atkv. Aukningin er 2158 atkv. eða aðeins tæplega 10%. Atkvæða- aukning Framsóknarflokksins er því næstum þreföld móts við at- kvæðaaukningu íhaldsflokksins. Út af því er síðasti Dagur sagði um verð á kolum hjá K. E. A., skýrir „Alþýðumaðurinn“, er út kom í fyrradag, þannig frá meðal annars: „Daginn áður en „Dagur“ kom út er sannanlegt að' engin kol fengust hjá K. E. A., hvorki á 50 kr. né við öðru verði, og situr því sízt á Degi að vera að setja ofan í við aðra og gera þeim upp mis- sagnir.“ Hvað er nú satt í þessu? Daginn áður en síðasti Dagur kom út, þ. e. 4. þ. m., seldi K. E. A. samkvæmt nótubókum 170 smálestir af kolum á 50 kr. tonn- ið. Næsta dag seldi félagið 53 smálestir af sömu vöru með sama verði, og næsta dag þar á eftir, þ. e. 6 þ. m., seldi K. E. A. enn kol við sama verði. Það var fyrst laugardaginn 7. þ. m., eftir að nýr kolafarmur var kominn, að kola- verðið var sett upp í 53 kr. Það er því sannanlegt, að Alþm. hefir reynzt ósannsögull í þessu máli,

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.