Dagur


Dagur - 12.08.1937, Qupperneq 2

Dagur - 12.08.1937, Qupperneq 2
162 DAGUR 39. tbl. Ást íhaldstns á íslenzka iánanum í 37. tbl. »íslendings« skrifar rit- stjórinn grein, sem hann nefnir: »ís- lenzki fáninn og erlendu veifurnarc. Á greinarstúfur þessi að vera svar við niðurlagsorðum í smágrein í »Nýja Dagblaðinuc frá 20. f. mán., þar sem réttilega er fundið að misnotkun íhalds- ins á þjóðfánanum í pólitísku augna- miði. En í staðinn fyrir að svara nokkru hinum réttmætu ásökunum »N. Dagbl.c, þá grípur ritstjóri »ís- lendingsc til þess óyndisúrræðis að gera rauða fánann og hakakrossinn að aðalumtalsefni í grein sinni, til að reyna að draga athygli manna frá aðalatriðinu, sem sé misnotkun ís- lenzka fánans. Pví það ætti nú flestum að vera Ijóst, að íhaldsmönnum væri innan handar að óvirða þjóðfánann á þann hátt, sem þeir hafa gert, þótt hér hefði hvorki sézt rauður fáni eða hakakross. Um rauða fánann, sem rit- stjórinn segir að blakti upp í Mývatns- sveit, er það að segja, að hann hefir áreiðanlega enginn Framsóknarmaður dregið við hún. Og hvorki fyrnefnd grein »N. D.« né framkoma Fram- sóknarmanna í kosningum gefur minnsta tilefni til ásakana í garð Framsóknarfl. um ást á nokkrum flokksmerkjum, hvorki til hægri né vinstri. Ritstjóri »íslendings« er því orðinn það óstilt- ari en vissar skepnur, sem ekki þola að sjá neitt rautt, að hann sér þann lit þar, sem hann er alls ekki til, smbr. skilning hans á grein »N. Dagb).«. Hitt kemur þó úr hörðustu átt, þegar ritstj. «ísl.« hallmælir hakakross fánanum, sem var eitt af gunnfánum »Breiðf. allra íslendingac við sfðustu kosningar, þótt gjarnan megi hallmæla þeirri »veifu« fyrir Framsóknarmönn- um. Er það hverjum manni vitanlegt, að fjöldi íhaldsmanna lítur hakakross- inn hinum mestu vonaraugum í laumi sem tákn þess eina »frelsis«, er for- ingjar afturhaldsins þrá. En það er frelsið til handa örfáum einstaklingum til að fleyta rjómann af þeim verð- mætum, sem hin stritandi alþýða framleiðir. En þótt »íslendingur« ásaki nú Nazistana og stimpli þá ofbeldis- menn með réttu, þá þótti íhaldsmönn- um slíkir ofbeldismenn ágætir við síð- ustu kosningar. í niðurlagi greinar sinnar fullyrðir svo ritstj. »ís!.« að íhaldsmenn elski þjóðfánann allra manna mest. Á þessi fullyrðing víst að afsaka framkomu flokksbræðra hans í Reykjavík, er þeir safna þar saman botnfalli íhaldsins og kalla »Fánalið«. En í hverju hafa svo íhaldsmenn sýnt ást sína á íslenzka fánanum um fram aðra menn? Ritstjóranum gleymist alveg að geta þess. En þessu er fljót- svarað. Fiskimiðin íslenzku, innan landhelgi, eru varin af varðskipum, sem sigla að sjálísögðu undir íslenzk- um fána. Háttsettir íhaldsmenn hafa sýnt ást sína á fánanum með þvi að leiðbeina erlendum veiðiþjófum til að veiða í landhelgi, til að stela úr þess- ari gullkistu landsins, sem varðskipin eiga að verja í nafni ísl. fánans. Sumum slíkum njósnurum hefir svo íhaldið gefið það vottorð upp á vasann, að þeir væru hinir mestu heiðursmenn! Pá er ekki Iangt síðan að sumar helztu kempur íháldsins vildu sanna ást sína á íslenzka fánanum með því að láta togara sína sigla undir spönskum fána! Og þeir hafa víst haft sjálfstæði lands- ins í huga, þegar þeir keyptu fisksölu- firmað Gismondi til að bjóða lands- mönnum E K KI hærra verð fyrir fiskinn, en hægt var að fá annarsstaðar. Þannig fara þá leiðtogar íhaldsins hér á landi að því að innræta börnum sínum virðingu fyrir fána þjóðarinnar, sem er tákn hins fullvalda, ísienzka ríkis, með litum sævarins, eldsins og hinna tignu jökla. Pað er von að ritstj. »ísl.« sé hrifinn! Vonandi kemst hrifn- ingin á það stig, að hann geti kreist úr sér kvæði um ást íhaldsins á ís- lenzka fánanum. Framsóknarmenn líta á þjóðfánann með svo djúpri virðingu og meta hag þjóðarinnar svo mikils, ?ð þeir fordæma með öllu athæfi land- helgisþjófa og njósnara íhaldsins, hversu mörg vottorð, sem þeir hafa upp á vasann frá flokksbræðrum sinum um heiðarleik. Framsóknarmenn for- dæma íneð öllu uppástungu íhalds- manna um að sigla íslenzkuin skipum undir erlendum fána, og selja þannig sæmd sína og þjóðarmetnað fyrir á- batavon. Og Framsóknarmenn for- dæma hiklaust misnotkun íhaldsins á þjóðfánanum, er þeir draga hann við hún í nafni flokksins í blekkingarskyni við þjóðina. »Breiðfylking allra íslendinga* full- yrti í vor, að fylgismenn sínir væru hinir einu sönnu íslendingar (Nazistar með hakakrossinn ekki undanskildir). Er það sennilega með það sjónarmið fyrir augum er íhaldsmenn óvirða ísl. fánann með því að hafa hann að flokksfána við kosningar og á sam- komum sínum, sem sumar hverjar enda með ölæði og barsmíðum. En það er nú samt hægt að fræða íhald- ið um það, að meiri hluti þjóðarinnar er andvígur því og öllu þess athæfi, þótt O. Th. huggi fylgismenn sína með því, að það hafi fengið meirihluta allra atkvæða bæði í kaupstöðum og sveita- kjördæmum við síðustu kosningar. Og meirihluti þjóðarinnar krefst þess, að íhaldið í Reykjavík óvirði ekki þjóð- fánan á þann hátt, sem það hefir gert. Þjóðfáninn á aðeins að dragast við hún á merkisdögum þjóðarinnar, í heiðursskyni við sérstök tækifæri og á hátíðum. En meiri hluti þjóðarinnar sér ekkert háfíðlegt við það, þóft nokkrir innantómir í lald-strákar í Reykjavík séu dubbaðir upp í einkenn- isbúning til að skýla sinni andlegu nekt, og síðan fenginn fsl. fáninn í hönd um leið og þeir eru sendir út af örkinni til að flytja »fagnaðarboð- skapc íhaldsins með óþum og her- æfingum að hætti erlendra ofbeldis- flokka. Meiri hluti þjóðarinnar krefst þess, að Reykjavíkurauðvald íhaldsins hætti að sýna þjóðfánanum slíkan »sóma«. Pví þjóðfáninn er ekki merki neins sérstáks stjórnmálaflokks, og ekkert fremur fyrir það, þótt liðsmenn eins flokksins séu haldnir því mikil- mennskubrjálæði að þykjast vera »hinir einu sönnu íslendingar«. Pjóðfáninn er tákn hins fullvalda íslenzka ríkis, tákn frelsis og jafnréttis allra íslenzkra þegna, en ekki neitt flokksmerki manna, sem svíkja fánann með landhelgisnjósn- um og vilja gera sannfæringu frjáls- borinna manna að heildsöluvarningi. Stofnun sambands ungra framsóknarmanna er nauðsynjamál. Áhugi er þegar vakinn um land allt. I. Hinn glæsilegi sigur, sem Fram- sóknarflokkurinn vann við kosn- ingarnar 20. júní sl., bar augljósan vott um þroska þjóðarinnar í póli- tískum og menningarlegum efn- um. Kosningasigur sá, sem þjóðin veitti Framsóknarflokknum, felur fyrst og fremst í sér viðurkenn- ingu á hinu þróunarríka viðreisn- arstarfi, sem umbótaflokkarnir hafa unnið á undanförnum árum og sem óhætt er að íullyrða, að eingöngu hefir verið mótað af Framsóknarflokknum og stefnu hans. Sömuleiðis verður ekki framhjá því gengið, að þessi kosn- ingasigur þýðir vaxandi traust meginþorra þjóðarinnar á sitefnu- málum Framsóknarflokksins og þeim starfskröftum, sem hann nú hefir yfir að ráða. Eitt af höfuðstefnumálum Fram- sóknarflokksins, sem hann hefir barizt fyrir að undanförnu og mun einnig berjast fyrir í fram- tíðinni, er verndun lýðræðisins á öilum sviðum þjóðlífsins og bar- átta gegn fasisma og hverskonar ofbeldi, sem nú vofir yfir lífi og menningu þjóðanna, líkt og varg- ur yfir bráð. Framsóknarflokkur- inn hefir gert sér það fullkomlega ljósit, að lýðræðið er verndari og aflgjafi alls siðlegs menningarlífs og sá trausti grundvöllur, sem framtíðarheill hverrar þjóðar er byggð á. Hann hefir sýnt, öðrum stjórnmálaflokkum fremur, glögg- an skilning á þeirri nauðsyn, að aiþýðan, og þá ekki sízt æskan í landinu, fái notið þeirra mennt- unarskilyrðá, sem gera hana hæfa til þess að vera, ekki einungis sjálfri sér nóg í baráttunni fyrir lífinu, heldur og líka til þess að hún geti verið í sem beztu og full- komnustu samræmi við menning- arkröfur nútímans. — Afskipti Framsóknarflokksins af skólamál- um þjóðarinnar bera gleggstan vott um þetta atriði. Enginn stjórnmálaflokkur hefir nokkru sinni stigið eins mörg og stór skref til framfara í þeim efn- um eins og Framsóknarflokkurinn það tímabil sem hann hefir farið með völdin í landinu. Og enginn stjórnmálaflokkur hefir sýnt málefnum æskunnar til sjávar og sveita jafn mikla samúð og beitt sér fyrir velgengni þeirra með jafnmiklum eldlegum áhuga eins og margir beztu forvígismenn Framsóknarflokksins hafa gert og gera enn. Það er þess vegna ekk- ert undarlegt þó flesitir mennta- menn þjóðarinnar hafi á undan- förnum árum , fylgt stefnu Fram- sóknarflokksins. Og það er heldur ekkert uncjarlegt, þótt æskan í landinu hafi fylkt sér undir merki hans og talið hann vera sinn flokk öðrum stjórnmálaflokkum fremur, þar sem hún hefir borið gæfu til að njóta margs þess bezta, sem Framsóknarflokkurinn hefir náð að vinna landi og þjóð til gagns og velferðar. Æskan hefir náð að upplifa þá tíma, sem ríkastir hafa verið af menningarlegum umbótum, allra þeirra tíma sem yfir íslenzku þjóðina hafa runnið. Framsóknar- fiokkurinn er flokkur framitíðar- innar, flokkur æskunnar í land- inu. Hann hefir með hinu menn- ingarlega umbótastarfi sínu bætt afstöðu hinna ungu kynslóða og þeirra komandi, til allrar mennt- unor og þess andlegs og líkamlegs þroska, sem hún veitir. Nú er það undir æskunni sjálfri kcmið hversu vel hún ávaxtar það pund, sem henni heíir nú verið falið til varðveizlu. — Enginn, sem þekkir djörfung og dug ís- lenzkrar æsku, lætur sér detta í hug annað, en henni veitist það létt verk. II. Á síðastliðnu ári tóku að heyr- ast allháværar raddir um það, að nauðsyn bæri til að stofnað yrði landssamband ungra Framsóknar- manna, þar sem sameinaðar yrðu allar þær félagsdeildir, sem stofn- n ýk o m ið Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeild. ■WWHiWWIWWiWIHi Vatnsfötur Pottar galvaneseraðir, sfórir Þvottabalar ýmsar sfærðir

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.