Dagur - 19.08.1937, Síða 4

Dagur - 19.08.1937, Síða 4
168 DAGUR 40. tbl. N ý k o m i ð: Haglabyssur, cal. 12, 16 og 20. Riflar. Fjárbyssur. Skotfæri. Kaupfélag Eyfirðinga. Bíla- og radiodeild. Brezkur íslandsvinur sjötugur. (Framh. af 1. síðu). líka alveg sérstaka ástæðu tii að minnast hans með þakklæti og vinarhug. Ungur nam hann tungu vora til hlýtar og fékk ást á landi voru og þjóð og bókmenntum hennar. Síðan hefir vinátta hans til íslands aldrei brugðizt. Sir William A. Craigie er bók- menntafræðingur og málfræðing- ur. Vísindastörf hans í þágu ís- lenzkra bókmennta eru bæði mikil og merkileg. Hann hefir breitt út þekkingu á landi voru og þjóð, ekki aðeins í Bretlandi, heldur og um allan hinn menntaða heim. Þess vegna minnumst við hans með þakklæti og virðingu. í tilefni af sjötugsafmæli þessa íslandsvinar gáfu nokkrir íslenzk- ir fræðimenn út vandaða útgáfu af Númarímum Sigurðar Breið- fjörð og helguðu útgáfuna Craigie. Ennfremur var honum send af- mæliskveðja ásamt íslenzku mál- verki. Er kveðjan undirrituð af ríkisátjórninni og fjölda annarra íslenzkra menntamanna. Maður slasast á Akureyrargötum. Um miðja síðustu viku var Her- luf Ryel skipasmiður hér í bæ á leið heim til sín síðla kvölds og fór á bifhjóli. Maður í innbænum, Gunnar Thorarensen, heyrði að ekið var bifhjóli eftir götunni, en skyndilega heyrði hann þungt högg og í sama bili að tók fyrir gang bifhjólsins. Fór hann þá á fætur og fann Herluf liggjandi á göltunni meðvitundarlausan í nánd við húsið nr. 19 við Aðalstræti. Hjá því húsi var gryfja í austur- hluta götunnar, en allstór sleði hafði verið lagður yfir gryfjuna, og á hann er álitið að Herluf hafi ekið. Læknir kom brátt á vett- vang, og var Herluf fluttur á sjúkrahús. Hafði hann hlotið meiðsl á höfuð og hefir legið með- vitundarlítill síðan. Messað í Lögmannshlíð kl. 12 á hád. nk. sunnudag. (Ferming. Safnaðarfund- ur.) Kaupfélag Eyfirðinga hefir nýskeð haf- ið byggingu hinnar nýju mjólkurvinnslu- stöðvar við Kaupvangsstræti. Verkið er unnið í tímavinnu og hefir Snorri Guð- mundsson múrarameistari verkstjórnina með höndum. Gert er ráð fyrir að húsið verði gert jokhelt í haust. iBÚÐ. 2—3 herbergi og eldhús óskast til leigu frá 1. okt. n.k. Kári Sigurjónsson. SÉfpgnlitapartar, hentugir yfir hey og svörð, selur ódýrt Bjaroi Einarsson. Strandgötu 17. Mamma og heim. Þau, orð, sem við þekkjum, unnum og metum, eru orðin »mamma* og >heim«. f*au orð rikast rótfest getum og rætt um í hryggð og seim. Þau fylla og helga vort hjarta og heimþrána mynda kæra og bjarta. Mamma er það, sem við flúðum til forðum að fá okkur huggun og þrótt, gnægð hún átti af græðandi orðum, svo grátur og sár okkar iæknaðist fljótt. Mamma er læknirinn, Ijósið og gleðin, hún leiðir á daginn, en krýpur við beðinn. Sálunum lyftir til heimanna háu, hjörtun göfgar og kærleik tér. Hún leiðbeinir okkur að líkna þeim smáu og lúta að þeim, sem minni er. Hún gefur okkur það göfgasta og bezta, sem guð vill í manna hugskot festa. Heim er það, þar sem vöggu okkar var með viðkvæmni og alúð gætt. Heima okkur mamma við brjóst sín bar, blíðlyndi og sannleiksást fyrst var þar glætt. Heima á sér upptök vor æfisaga og al It, sem er tengt við bernskunnar daga. Katrín Jósepsdöttir. Barnastúkan Sakleysið fer skemmtiför til berja vestur á Þelamörk nk. sunnu- dag, ef gott verður veður. Lagt af stað frá Ráðhústorgi kl. 10 f. m. Farmiða skal vitja til Marinós L. Stefánssonar í sið- asta lagi fyrir hádegi á laugardag. Þeir kosta kr. 1.50. J Sundmót Norðlendingafjórðunos hefst í sundlauginni á Akureyri laugar- daginn 21. þ. m., kl. 8 e. h. — Á sunnudaginn 22. þ. m., kl. 2 e. h, hcldur svo mótið áfram, Húseign til sölu. Húseignin við Hafnarstræti 86 A, er til söiu með tækifærisverði og góðum borgunarskilmálum. í húsinu er laus til íbúðar 4 herbergja íbúð á miðhæð Ú tb ú Útvegsbanka ísiands h.f. S í m i 3 6 0. TILKYNNING um framkvæmd mjólkurlaganna á verójöfnunarsvæði Akureyrar. Hér með tilkynnist að mjólkurlögin koma til framkvæmda á Akur- eyri og nágrenni frá og með Miðvikudeginum 1. September n. k.' Frá sama tíma hefir Mjólkursamlaginu á Akureyri verið falið að annast alla sölu á mjólk, rjóma og nýju skyri á Akureyri, og hefir því eng- inn mjólkurframleiðandi eða aðrir leyfi til sölu mjólkur eða ofangreindra mjólkurvaia innan lögsagnarumdæmis Akureyrarkaupstaðar. Undanþágu frá þessu geta þeir einir vænst að fá, sem framleiða mjólk innan lögsagr.arumdæmis Akureyrarkaupstaðar og fullnægja þeim ákvæðum, sem krafist er í mjólkurlögunum og tilheyrandi reglugerð. Þeir sem óska undanþágu sendi umsóknir framkvæmdarnefnd mjólk- urlaganna, pósthólf 1 Akureyri og séu þær komnar til nefndarinnar fyrir 25, þ. m. Akureyri 14. Ágúst 1937. í framkvæmdanefnd mjólkurlaganna Jtinas Kristjánsson, Halldúr Gnðlaugsson, Stefán Stefánsson. BE - Kaupum bláber og aöalbláber frá og með þriðjudeginum 24. þ. m. Smjörlíkisgferð K. E. A. Júgtirsmyrsl verja, séu þau notuð daglega, að spenarnir særist við mjólkunina og lækna á stuttum tíma sár og bólgu utan á júgrinu. — Júgursmyrsl eru mjög drjúg í notkun, því að þau eru mjög efnarík og halda sér stöðugt eins. Við hverjar mjaltir nægir á einum fing- urgómi. — Júgursmyrsl eru algjörlega' lyktar- og bragðlaus. Þau geta ekki þránað eins og tólg eða aðrar lélegar og óviðeigandi áburðarfitur. Reynslan hefir sýnt, að notkun tólgar við mjaltir á kúm með spenasár, getur orsakað alvarlega júgursjúkdóma (húðbólgu o. s. frv.). Júgursmyrsl gera mjólkina tiltölulega gerlasnauða séu þau notuð við mjaltirnar, andstætt við það, ef mjólkað er með höndum vættum í mjólk, smurt með tólg o. s. frv. Sápnverksm. SJÖFK. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentverk Odds Björnssonar. i '

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.