Dagur - 23.09.1937, Síða 2

Dagur - 23.09.1937, Síða 2
186 DAGUR 45. tbl. Jónas Kristjápsson: MjólKarlögin. Tilgangur mjólkurlaganna. Lögin, sem nú gilda um sölu mjólkur, rjóma o. fl. í kaup- stöðum gengu í gildi 7. janúar 1935 og um svipað leyti voru þau tekin til framkvæmda á Suður- landi og hafa verið þar í gildi síð- an. Lögin voru samin með tilliti til þess að þau gætu orðið fram- kvæmd í öllum landshlutum, eftir því sem þörf gerðist. Sú regla hefir ávallt gilt að mjólkin, sem seld er daglega til neyzlu, sé mun dýrari en sams- konar mjólk, sem tekin er til smjör- og ostagerðar. En eftir því sem ræktun og mjólkurfram- leiðsla hefir vaxið í kaupstöðum og sveitum, hefir sífellt aukizt það mjólkurmagn sem fer til vinnslu mjólkurvara, og meðalverð mjólk- urinnar lækkað af þeim ástæðum og margt bendir til þess að mjólk- urframleiðslan stór-aukist ennþá, eftir því sem ræktuninni miðar á- fram, en aukning smjör- og osta- vinnslunnar hlýtur að orsaka lægra meðalverð til bændanna. Því meiri verðmunur sem er á neyzlumjólkinni og vinnslu-mjólk- inni, því meira verður kapp- hlaup framleiðendanna um að notfæra sér neyzlumjólkursölu í kaupstöðum og slíkt kapphlaup leiðir af sér stöðug undirboð, þar til neyzlumjólkurverðið er raun- verulega orðið jafnt og verð vinnslu-mjólkurinnar. Þetta er mjög óheppilegt fyrir framleið- endur bæði í sveitum og kaup- stöðum, því mjög lágt verð á neyzlumjólk skapar lægra meðal- verð til bændanna í sveitunum og þó er þetta ennþá hættulegra fyr- ir ræktun og mjólkurframleiðslu innan kaupstaðanna, vegna þess hvað framleiðslan þar er kostnað- arsamari en í sveitunum. Með ákvæðum mjólkurlaganna vill löggjafarvaldið koma báðum þessum aðilum til aðstoðar, með því: í jyrsta lagi að lögákveða fast útsöluverð á mjólk í kaupstöðum, sem sé mun hærra heldur en verð vinnslumjólkurinnar, án þess þó að um okurverð sé að ræða. í öðru lagi með því að þeir aðil- ar, sem fá leyfi til að reka mjólk- urverzlunina í bæjunum, eru skyldir að greiða sérstakan skatt, er nefnist verðjöfnunargjald, og skal þessu gjaldi varið til verð- uppbótar á vinnslumjólkina, þann- ig, að einhver verðjöfnuður náist. í þriðja lagi fyrirskipa mjólkur- iögin um einfaldari og ódýrari rekstur á mjólkurverzluninni í kaupstöðum, en áður hefir verið, og aukið hreinlæti og hollustuhætti við framleiðslu og meðhöndlun neyzlumjólkur. Með því aukast sölumöguleikar framleiðendanna. Og hjá neytendunum skapast ör- yggi og tiltrú til vörunnar. Framkvæmd mjólkurlaganna. Eins og gefur að skilja, verða mjólkurlögin ekki framkvæmd án þess að persónulegt frelsi margra aðila skerðist, venjur og við- skiptasambönd manna á meðal séu slitin, og ýmsum markaður þrengri bás í athöfnum sínum en verið hefir. Það skal fúslega viðurkennt, að margir ókostir eru bundnir við framkvæmd þeirra laga, sem þvinga einstaklingana frá því starfi eða venjum, sem um langt skeið hefir verið leyft eða látið afskiftalaust, eins og hingað til hefir gilt um mjólkursölu í kaup- stöðum. En ef því marki á að ná, sem ætlast er til við setningu mjólkur- laganna, og ef þau eiga í reyndinni að verða eitthvað annað en dautt pappírsgagn, þá má ekki víkja frá grundvallaratriðum þeirra í fi amkvæmdinni með því að veita allskonar undanþágur frá lögun- um og á þann hátt leitast við að gera alla aðila ánægða frá upp- hafi. En hitt er jafn sjálfsagt að fiamkvæma þessi lög, eins og öll önnur lög, með tilhliðrunarsemi, ef með því er ekki gengið frá stefnu — eða grundvallaratriðum. Framkvœmd mjólkurlaganna d verðjötnunarsvœdi Rvikur og Ha/narljardar. í Reykjavík er lang stærsti mjólkurmarkaður landsins, þar var komið í fullt öngþveiti með mjólkursöluna, af svipuðum á- stæðum og annarstaðar þar sem mikil mjólk er framleidd, en mjólkursalan skipulagslaus. Lögin komu því til framkvæmda þar strax eftir að þau höfðu náð sam- þykki, og hafa því verið þar í gildi í rúmlega 214 ár. Mjólkursölunefnd landsins hef- ir allan tímann- farið með fram- kvæmd laganna á þessu svæði, en nefndina skipa sjö menn, sem valdir eru ýmist sem fulltrúar framleiðenda eða neyenda, eða sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar. I sambandi við framkvæmd þessara laga hefir staðið mikið stríð í Reykjavík og Hafnarfirði. Neytendur voru óánægðir með mjólkursöluna, eins og hún var framkvæmd, og sumir framleið- enda neituðu að greiða lögboðið verðjöfnunargjald af kúm sínum. Þrátt fyrir all mikla andstöðu hefir Mjólkursölunefndin komið lögunum í framkvæmd. Hún hef- ir í nokkrum tilfellum orðið að fá aðstoð lögreglunnar við inn- heimtu verðjöfnunargjaldsins og til þess að gera þær mjólkurvörur upptækar, sem á óleyfilegan hátt voru fluttar inn á hið lögfesta sölusvæði. En heildarárangurinn af framkvæmd mjólkurlaganna á þessum tíma hefir orðið hag- kvæmari, heldur en ýmsir áhuga- menn þessa skipulags þorðu að gera sér vonir um í upphafi. í þessu sambandi s^al þess get- ið, að útsöluverð á mjólk í Rvík í lausu máli er 38 aura pr. ltr., en 40 aura í flöskum og 42 aura pr. ltr. í flöskum ef flutt er heim til neytenda. Þeir, sem fá undanþágu til beinnar sölu til neytenda, þurfa að greiða ki’.90.00 í verðjöfnunar- gjald af hverri mjólkurkú eða um 3 aura pr. ltr. Þeir menn, búsettir innan lög- sagnarumdæmisins, sem sannan- legt er um að reka búskap og mjólkurframleiðslu í nágrenni Rvíkur eða Hafnarfjarðar, fá leyfi til þess að taka mjólk frá bújörð sinni til eigin neyzlu, gegn því ófrávíkjanlega skilyrði, að mjólkin gangi í gegnum viðkom- andi sölumiðstöð og sé gerils- neydd, og skal viðkomandi greiða kostnaðinn, sem af því leiðir. Þeir menn, sem ekki hafa upp- fyllt þetta skilyrði nefndarinnar og hafa flutt mjólkina beint frá bújörð sinni til dvalarstaðar síns eða heimilis í Rvík, hafa nú verið sviftir þessu leyfi. Mjólkurlögin á Akureyri. Fyrir einróma óskir mjólkur- framleiðenda í Eyjafirði hafa mjólkurlögin verið tekin hér til fiamkvæmda og mjólkursölu- nefndin í Reykjavík hefir falið stjórn Mjólkursamlagsins á Akur- eyri að sjá um framkvæmd mjólk- urlaganna hér að ýmsu leyti, og hefir þetta starf verið látið í hendur sérstakrar nefndar. Nefndin mun að sjálfsögðu haga störfum sínum eftir líkum reglum og landsnefnd mjólkurlaganna hefir gefið fordæmi til með fram- kvæmdum sínum á verðjöfnunar- svæði Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, og það munu fáir láta sér detta það í hug að mjólkursölu- nefndin í Reykjavík hafi farið það illa með vald sitt í þessum skipu- lagsmálum, að hún hafi hagað framkvæmdum sínum þvert á móti bókstaf og anda mjólkurlag- anna, eins og sumir „blaðamenn" hér á Akureyri álíta, ef dæma á eftir skrifum þeirra síðustu dag- ana. Mjólkurframleidendur í Eyjafirdi. Samkvæmt mjólkurlögunum mega bændur, sem búsettir eru utan Akureyrar, ekki selja eða út- býta sem gjöfum mjólk, rjóma og nýju skyri á Akureyri. Þeim er einnig óheimilaður allur mjólkur- flutningur til Ak. nema mjólkinsé flutt til hinnar löggiltu mjólkur- stöðvar. Bændur, sem af einhverj- um ástæðum dvelja á Akureyri og óska að taka mjólk sína til eigin neyzlu þar, verða að sækja um leyfi til þessa til framkvæmdar- nefndar mjólkurlaganna hér á Ak- ureyri. Hvað mjókurframleiðendur ut- an Akureyrar geta hagnazt á framkvæmdum mjólkurlaganna er ekki unnt að gera sér grein fyrir, þar sem framkvæmd laganna er aðeins í byrjun. En verðjöfnunar- gjaldið verður að sjálfsögðu lítil upphæð. Lauslega áætlað mætti búast við að íramkvæmd mjólkur- laganna gæti gefið bændum um eins eyris hækkun á hvert mjólk- urkg. sem fer til vinnslu á smjöri og ostum. Mjólkurframleiðendur á Akureyri. Við undirbúning og samningu mjólkurlaganna munu löggjafarn- ir í fyrstu hafa ætlazt til að öll mjólk framleiðendanna í kaup- stöðum, — önnur en þeirra eigin neyzlumjólk — færi beint til við- komandi mjólkurstöðvar, og væri seld þaðan. Framleiðendurnir væru undanþegnir verðjöfnunar- gjaldi ef þeir hefðu einn ha. af ræktuðu landi á bak við hverja kú, en annars bæri þeim að greiða verðj öfnunargj ald. En við umræð- ur um lögin náði sú breyting fram að ganga að mjólkurframleiðend- ur í kaupstöðum gætu valið run hvort þeir vildu heldur fá leyfi til beinnar sölu til neytenda og greiða verðjöfnunargjald af allri mjólkinni, einnig þeirri, sem þeir tækju til heimilisþarfa, eða létu mjólkina beint til viðkomandi samsölu og væru undanþegnir verðjöfnunargjaldi, ef þeir hefðu ræktað land innan kaupstaðarins. Við framkvæmd mjólkurlaganna ■fWWWWWtHWHWHW B Inniskór 3 í fjölbrcyttii úrvali nýkomnir. Kaupfélag Eyfirðinga. Skódeildin. ^••••••••••••Tnnmiff

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.