Dagur - 23.09.1937, Qupperneq 3
45. tbl.
DAGUR
187
L06TAK.
Samkvæmt krötu umboðsmanns Brunabótafélags Islands á
Akureyri og að undangengnum úrskurði, verða ógreidd brunabóta-
gjöld til Brunabótafélags Islands fyrir vátryggingarárið 15. okt
1936 til 14. okt. 1937, tekin lögtaki að liðnum átta dögum
frá birtingu þessarar auglýsingar.
Akureyri 16. sept. 1937.
Sýslumaður Eyjafjarðarsýslu og bæjarfógeti Akureyrar.
O. Eggerz.
settur.
hér geta menn einnig valið um
þetta. Framleiðendur, sem eiga
þrjár kýr og fleir-i, munu telja sér
hag í að fá undanþágu frá lögun-
um, ef þeir hafa vissu fyrir næg-
um kaupendum að mjólkinni. Hin-
ir, sem hafa t. d. eina til tvær kýr
munu fæstir telja sér hagfelt að
fá undanþágu laganna, þar sem
undanþágan kostar, samkvæmt
mjólkurverðinu hér á Akureyri
kr. 72.00 pr. mjólkurkú.
Verðjöfnunargjaldið samsvarar
2.4 aurum pr. mjólkurlítra, sé
miðað við 3000 ltr. ársnyt, en sé
hún minni, t. d. 2.700 ltr., eins og
mun verða meðaltal í nautgripa-
ræktarfélögunum hér í umhverf-
inu, þá samsvarar verðjöfnunar-
gjaldið 2.7 aurum pr. mjólkurltr.
Geta því undanþágu-mennirnir
fengið 27.3 aura pr. ltr. mjólkur í
stað 25 aura, sem þeir fengu áður
en mjólkurlögin komu hér til
framkvæmda.
Benda skal þó á það, að ef
mjólkurframleiðendur hafa léleg-
ar kýr, sem mjólka mikið neðan
við meðallag, þá kemur það fram
sem hærra verðjöfnunargjald pr.
mjólkurltr. Enda er það gömul og
ný reynsla að það er fjárhagslegt
tap á því að eiga slæmar kýr. En
þetta háa verðjöfnunargjald á
mjólkina úr lélegu kúnum, á að
geta verið mjólkurframleiðendum
ný hvöt til að slátra lélegu kúnum
og fá-bet'ri í þeirra stað.
(Framhald).
vanur sveitavinnu og er
lærður búfræðingur ósk-
ar eftir vetrarvist.
Uppl. í Þingvallastræti 12.
V etrarmann
vantar mig að Dagverðar-
eyri frá 1. október. Get
tekið fjölskyldu, sem
vantar húsnæði.
Kristján Sigurðsson.
Bændur!
Að gefnu tilefni viljum vér
benda á, að
BráðapesiarlliieiÉ
frá Rannsóknarstofu Háskól-
ans í Rvík og Seruminsti-
tutet í Kaupm.höfn, er komið.
Stjörnu flpótek K.E.A.
Eggerts Guðmundssonar var lokið
í gærkveld að sinni. En þar sem
aðsókn að sýningunni hefir verið
óvenjulega mikil, hefir sú ákvörð-
un verið tekin að sýningin verði
enn opin næstk. sunnudag frá kl.
2—6 síðdegis, og henni þá lokað
til fulls.
Sýninguna hafa sótt 500 sýning-
argestir, og er það mikið meiri að-
sókn hlutfallslega, miðað við
fólksfjölda, en nokkurntíma hefir
átt sér stað með samskonar sýn-
ingar í Reykjavík. Af listaverkun-
um hafa 8 selzt, 3 málverk og 5
teikningar.
Síðasta tækifærið, til þess að sjá
málverk og teikningar Eggerts
Guðmundssonar, er á sunnudag-
inn. Sérstaklega verður mönnum
starsýnt á hinar afbragðs vel
gerðu andlitsteikningar lista-
mannsins.
KIRKJAN: Miissað n. k. sunnudag kl.
2 e. h. í- Akureyrarkirkju.
□ .*. Rún 59371)265. -
Fjárhst.
Skntajölagið »Fálkctr« heldur hluta-
veltu í samkomuhú.si bæjarins næstkom-
andi sunnudag kl. 4 e. h. og eru margir
ágætir drættir þar- á boðstólum. Um
kvöldið halda þeir svo dansleik á sama
stað. Er það síðasta hlutaveltan og dans-
leikurinn í samkomuluisinu, sem H. A,-
hljómsveitin spilar á. »FáIkarnir« hafa
margt gott gert fyrir bæjarbúa bæði að
»Fálkafelli« og með »skátagarðinum«,
sem þeir erú nú að verða búnir með,
eihir af þrem félögum, sem tóku hann
að sér í fyrstu, svo ekki þarf að efa að
vel verður sótt hjá þeim hlutaveltan og
dansleikurinn.
Bcrnharð Stefánsson alþm. og frú hans
komu heim frá útlöndum með Brúarfossi
siðast. Er B. S. forntaður milliþinga-
nefndarinnar i bankamálum og fór hann
utan til þeSs að afla sér frekari upplýs-
inga um þau mál.
Dánardægur. Þann 21. þ. m. andaðist
að heimili sínu, Þrastarhóli í Arnarness-
hreppi, Ásgrímur Sveinsson, faðir Þór-
halls bónda þar og þeirra bræðra. Hann
, var uijt áttrætt og farinn að heilsu.
Frú Valgerður ólafsdóttir, kona Karls
Nikulássonar konsúls, andaðist í Rvík
20. þ. m.
Alþingi kentur saman 9. október næst-
komandi. Þingmenn Framsóknarflokks-
ins koma saman um næstu mánaðantót
og þingmenn Alþýðttflokksins sennilega
um líkt leyti,
Valdimar Hólm Hallstað.
Franisóknarflokkurinn
og æskan.
(Framhald).
Áður fyrr átti æskan ekki aðgang
að neinum slíkum skólum, ekkert það
athvarf í menningarlegu tilliti, sem
svalað gæti þrám hennar og veitt
fróðleikslöngun hennar þá fullnæg-
ingu sem hverju siðuðu þjóðfélagi
ber að láta í té. — Vanrækslu þeirri,
sem afturhald liðinna tíma sýndi á
þessu sviði, hefir nú Framsóknarflokk-
urinn bætt úr, og hann mun fram-
vegis vinna að því óskiptur að skapa
æskunni þau lífvænlegu viðhorf, sem
hyggja lífsafkomu hennar og fram-
tíðarmöguleika í efnalegu og andlegu
tilliti. — Það er ekkert undarlegt, þó
Framsóknarflokkurinn hafi hlotið ill-
vígt hatur andstæðinga sinna, sem
reynt hafa á allan hátt að sverta og
svívirða þær heilbrigðu og hraðstígu
umbætur, scm hann hefir komið til
leiðar á hinum ýmsu sviðum. Aftur-
haldinu og þjónum þess er það full
komlega ljóst, að viðgangur þess og
velmegun byggist á því, að æskan og
yfirleitt alþýðan í landinu sé sem
minnst upplýst og hafi sem takmark-
aðastá möguleika til aukins andlegs
þroska og menntunar. Nú hefir Fram-
sóknarflokkurinn með afskiptum sín-
um af skólamálunum rofið hina menn-
ingarsnauðu skjaldborg afturhaldsins
og kveðið niður hina síðustu drauga
þess dauðadæmda hugsunarháttar.
III.
Af þeim málum, sem verið hefir einna
mesta áhyggjuefni öllum hugsandi
mönnum nú á seinni tímum, er hinn
öri straumur fólksins úr sveitum lands-
ins til kaupstaðanna. Petta aðstreymi
til kaupstaðanna hefir orsakað margs-
konar truflanir í atvinnu- og fjármála-
Iífi þjóðarinuar, og yfirleitt öll sú
lausung, sem átt hefir sér stað í þessu
efni, á sér alvarlegri afleiðingar en
flesta grunar í fljótu bragði. Hinn
stórkostlegi vöxtur kaupstaða og bæja
hér á landi á síðustu árum, og hið
fjölbreytta og tiibreytingaríka líf, sem
þar hefir þróast, hefir átt drýgstan
þáttinn í því að seiða hina yngri kyn-
slóð sveitanna í burt þaðan, því heima
í sveitunum hefir þróunin ekki verið
eins hraðstíg í þessu efni og meiri
kyrstaða verið þar ríkjandi yfirleitt
heldur en í kaupstöðnnum. Nú mun
öllum vera það Ijóst, að svo bú ð má
ekki standa og gríþa verður til ein-
hverra þeirra ráða, sem gætu áorkað
því, að æskan geti fest yndi í sveitum
landsins og notið þar krafta sinna og
hlolíð þá bættu lífsafstöðu, sem er í
fullkomnu samræmi við starfslöngun
heunar og framtíðarhugsjónir. Manni
þarf þó í raun og veru ekki að koma
það neitt á óvart þó þetta burtstreymi
fólks úr sveitunum hafi átt sér stað.
Hinar erfiðu kringumstæður, sem
sveitafólk yfirleitt hefir átt við að búa
á seinni tímutn, og sú harða barátta,
sem það hefir þurft að heyja fyrir
brýnustu lífsþörfum sínum, hefir or-
sakað hreina uppgjöf fjölda þess, og
síðasta úrræðið hefir orðið það, að
flýja í bæina, þar sem því hefir hlotn-
ast meira kaup fyrir minni vinnu,
meira frjálsræði, meiri skemmtanir o.
s. frv.
Þann 18. sept. andaðist á
heimili sinu Grjótgarði, Ólöf Rósa
Manasesdóttir. Jarðarförin fer
fram föstudaginn 1. okt. n.k. og
hefst frá heimilinu kl. 1 e. h.
Kránsar afbeðnir.
Aðstandendur.
2-3 stofur es elötiús
óskast frá 1. okt. n. k.
helst í útbænum.
Fyrirfram greiðsla getur átt sér
stað. — Upplýsingar gefur
Árni Jóhannsson K. E. A.
íbúðarhús
á Hjalteyri til sölu. Laust
til íbúðar á næsta vori. —
Upplýsingar gefa: Vilhjálmur
Árnason, Hjalteyri og Viggó Öl-
afsson, Brekkug. 6, Akureyri.
Fyrir skömmu stofnuðu nokkrir
frjálslyndir rithöfundar og
menntamenn í Reykjavík nýtt
bókmenntafélag, er þeir nefna
„Mál og menning11. Er tilgangur
félagsins að bæta og auka bóka-
kost almennings. Þeim tilgangi
sétla stofnendur félagsins sér að
ná með því að safna nægilega
mörgum félagsmönnum til þess,
að hægt verði að selja bækur við
miklu vægara verði en nú gerist á
íslenzkum bókamarkaði. í fáum
orðum sagt hugsa forgöngumenn
þessa máls sér framkvæmdir á
þessa leið: Félagsmenn hins nýja
bókmenntafélags greiði kr. 10.00 í
árstillag. Á þessu ári hefir stjórn
félagsins ákveðið að gefa út og
láta félagsmenn fá 2 bækur fyrir
árstillagið, sem annars myndu
kosta 16 kr. með algengu bóka-
verði. Er verðið sett svo lágt í
trausti þess, að í sumar gangi
minnst 1000 félagar í félagið. Þess-
ar 2 bækur eru tímaritið „Rauðir
pennar“ og „Vatnajökull“ eftir
hinn danska náttúrufræðing Niels
Nielsen í þýðingu Pálma Hannes-
sonar rektors. Sú bók er ferðasaga
höfundar til Vatnajökuls og þar
birtar merkilegar athuganir um
gos í jöklinum. í ritinu verða um
70 vandaðar myndir.
Næsta ár vonast stofnendur hins
nýja bókmenntafélags til, að fé-
lagsmenn verði orðnir 2000 og ætla
þá að gefa út 4 bækur, er félags-
menn fái fyrir árstillagið 10 kr.
Og árið 1939 vonast stofnendurnir
til, að félagsmenn verði orðnir
3000 og ætla sér þá að gefa út 6
bækur það ár og síðan árlega
(hver bók 8—12 arkir að stærð)
allt að 1200 bls, samtals, fyrir sama
(Franthald).