Dagur - 23.12.1937, Page 2

Dagur - 23.12.1937, Page 2
248 DAGUR 61. tbl. sem húu hugleiddi það í hjarva ast frægð eða auðæfi, óhóf og sínu hvílíkur sonur sinn ætti að iðjuleysi, eða að þau komist til verða. Og daglega lagði liún valda og metorða, sem kallað er? hin fyrstu jól, er hún hugleiddi þennan atburð í hjarta sínu. Höf- undur Lúkasar-guðspjalls sér glöggt inn í sál hennar, er hann leggur henni þennan fagnaðar- söng á tungu: »Önd mín miklar drottinn og andi minn hefir glaðst í guði, frelsara mínum. — Sjá, héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja, því að hinn voldugi hefir gjört mikla hluti fyrir mig. Heilagt er nafn hans!« * Þegar vér því erum að halda fæðingar-hátíð Jesú, þessa eilífa jólabarns, sem hrifið hefir ímynd- unarafl allra kynslóða, þar sem hann hvílir í lágum dýrastalli um- vafinn ljósi heilagleikans og söng himneskra engla, og þegar vér leitumst við að gera þessa hátíð að táknrænni og þýðingarmikilli hátíð fyrir börn vor, þá megum vér sízt af öllu gleyma því, að reyna að gera oss í hugarlund, hvernig María frá Nazareth hugs- aði í hjarta sínu yfir barni sínu ómálga. Því að mun ekki fagnaðarsöng- urinn yfir vöggunni hafa sína þýðing? Mun Jesús ekki hafa átt margt því að þakka, sem móðir hans hugsaði við jötuna hin fyrstu jól? Oss er gjarnt að ímynda oss Jesú sem einstæðan persónuleika, sem vegna máttar síns og mikil- leika standi einn sér og fráskilinn öllu mannkyni, og að hann hafi aldrei látið stjórnast af neinu öðru en sínum eigin guðdómlega innblæstri og viti. Sá Kristur, sem guðspjöllin segja mest af, er Kristur hins guðdómlega máttar, sem kemur í krafti köllunar sinn- ar beint út úr eyðimörkinni, vígð- ur til síns mikla starfs. Þess vegna hættir oss svo oft við að gleyma þeim þrjátíu árum, sem sagan veit svo lítið um, en hermir að lið- ið hafi þangað til Jesús fer úr föðurgarði út til að kenna. En þó hljóta það að hafa verið þessi ár, sem mest áhrif höfðu á hann og mótuðu hann til þeirrar ákvörð- unar, sem hann tók. Æskan og uppvöxturinn hafa verið hönum eins og öllum öðrum óumræðilega örlagarík ár. Það var þá, sem hann varð fyrir öllum þeim áhrif- um og var innrætt öll sú trú sem varð undirstaðan að lífsstarfi hans. Vafalaust hefir hann iðulega sem barn horft á föður sinn er hann vann að húsagerð eða hlýtt á sögur móður sinnar, er hún sagði honum frá spámönnunum og hetjum ísraels. Og í þeim skóla hefir hann hlotið undirbúning sinn undir lífið og orðið fyrir þeim andlegu áhrifum, sem knúðu hann sjálfan til að takast spá- mannsköllun á herðar. En öll þessi friðsælu ár i Nasareth, sem trúarbækur vorar eru hljóðar um hefir sveinninn Jesús tekið á móti og drukkið í sig trú Maríu og mótast af áhrifa- valdi þeirra vona og drauma, sem íylltu hjarta hennar nóttina heigu við jötuna í Betlehem. Það var þá, stund á að móta hann til þeirrar hugsjónar, og beina huga hans í þá átt. Frá fæðing hafði hún sjalf ákvarðað hann til mikilla hluta, og einmitt þessi mikla alúð og sjálfsfórn hennar og ábyrgðartil- finning gagnvart framtíð sonarins hlaut að snerta göfugustu tilfinn- ingar hans og æðstu hvatir. Hún vildi sjá drauma sína rætast í syninum. Formæður vorar gaíu sonum sínum skínandi vopn er þær leiddu þá úr garði. María gaf syni sínum sverð andans og hvíta- guT hugsjónanna í vegarnesti. Ef vér köllum jólin hátíð barn- arra, er þá ekki jólaboðskapucimi til foreldranna og mæðranna fólg- inn í þessari frásögn um Maríu, sem hugleiddi framtíð barns síns í hjarta sínu yfir jötunni í Betle- hem fyrir nítján öldum síðan? Hvað spratt upp af því? Hið fegursta líf, sem heiminum hefir hlotnast, persóna, sem ennþá lýsir eins og blossandi viti yfir djúp aldanna. En allt, sem gnæfir hátt, hlýtur að eiga sér einhverja undirstöðu. Þar sem lífið nær vegsemd, hefir verið starfað og strítt, sáð og vökvað og beðið til guðs um ávöxtinn. Hvort það er dauður hlutur eða lifandi mannssál, allt sem er fagurt og ágætt hefir kost- að hugsun og vilja og starf, eigi aðeins einstaklingsins, heldur og kynslóðanna. Þannig er gott er til í oss, nokkur skilningur á réttlæti eða sannleika, nokkur tilfinning fyrir fegurð, eða nokkur sannfæring um guð og hans dýrð — hverjum eigum vér það þá fremur að þakka en þeim, sem fyrstir studdu oss á fót, sem blíð- lega vöktu yfir þroska vorum, sem vonuðu og létu sig dreyma um það og báðu fyrir oss, að vér mættum verða göfugar og nýtar manneskjur? Þroska vorn eigum vér ætíð að miklu leyti að þakka mæðrum vorum, sem létu sig dreyma um framtíð vora meðan vér enn vorum hugsunarlausir óvitar í vöggu. Og hið sama gildir um 'öll mikilmenni og alla frelsara og spámenn mannkynssögunnar. Þeir eiga einnig meira að þakka hugsjónum þeirra og vonum, sem ólu þá upp og komu þeim á legg en menn almennt gera sér grein fyrir. Því að enginn maður getur staðið einn sér hversu mikill sem hann er. Vér hljótum öll að standa á herðum forfeðra vorra. * Ef vér því ætlumst til að börn vor verði göfugar og hamingju- samar manneskjur — kynslóð, sem lifir æðra lífi en oss auðnað- ist og kemst hjá að drýgja hin sömu glöp og oss verða að falli, þá verðum vér sjálf að byrja á því að leggja grundvöllinn. Vér verðum, eins og María guðsmóðir að hugleiða framtíð þeirra í hjarta voru og skilja það fyrst af öllu, hvað vér kjósum þeim til handa. Óskum, vér, að þeim megi hlotn- Þetta er það, sem lífsbaráttan er svo ákaflega oft háð um, sú bar- átta, sem svo hryllilega oft lendir í blóðugu stríði, hatri og eyðilegg- ing. Menn hljóta frægð, en skyldu það ávallt vera þeir, sem eiga hana helzt skilið? Og hversu bit- urlega næðir stundum kalt um tinda frægðarinnar. Mönnum hlotnast auður og óhóf, en þetta nota þeir eins oft sér til ógæfu og ófarnaðar. Og á sama hátt er farið með valdið. Sé því beitt með sam- vizkusemi og í því skyni, að láta gott af sér leiða, kostar það óend- anlegar áhyggjur og erfiði. Sé því beitt af hirðuleysi og óbilgirni, verður það öllum til glötunar. Til þess að hafa nokkra möguleika til að geta notið eða haft stjórn á hinum ytri hlutum verðum vér fyrst og fremst að hafa stjórn á hinum innri. Vér verðum að vera menn en ekki dýr. Vér verðum að eiga lifandi sál, sem ræður yiir hinum blindu og grimmu eðlis- hvötum líkamslífsins. Skepnurnar bíta hver aðra af stalli, af því að hver hugsar um sig. ímynduncr- aflið nær ekki út yfir tilfinning hungursins hjá þeim sjálfum. Þetta gerir þær grimmar og ril- finningarlausar hver gagnvart annarri. Þetta sálarleysi endur- speglast iðulega í mannlífinu, og veldur þar mestum árekstrum og flestu bölvi. skyldum óska þess, að börn vor yrðu hugprúð og réttlát, hvort sem þeim fellur auður eða frægð í skaut eða ekki. Vér skyldum vilja láta þau verða fórnfús í stað þess að vera eigingjörn. Vér skyldum óska að þau ættu í ríkum mæli gáfu samúðarinnar og að þau þekktu gleði þjónustulundar- innar og þá hamingju að vita sig hafa unnið eitthvert nýtilegt starf í þágu samfélagsins. í einu orði sagt: Vér ættum að óska, að sá andi sem bjó í Kristi, samskonar lundarfar hógværðar- innar og hreinleikans, þolinmæð- innar, góðviljans og miskunnar- ari ósk vorri og bæn veltur öll framtíðarheill þeirra. Því að börnin hljóta ávallt að verða eitthvað í áttina við það, sem vér viljum að þau verði. Ör- lög þeirra stjórnast ávallt að ein- hverju leyti af því andlega um- hverfi er vér sköpum fyrir þau. í þessu er einmitt fólgin vor æðsta skylda og vort aivarlegasta umhugsunarefni, í sambandi við jólin, að vér sjálf megum vera því vaxin, að hneyksla ekki smælingj- ana, sem vér höfum á meðal vor, að vér brennum ekki með hug- sjónaleysi voru og andlegum ves- aldómi brýrnar, sem æskuna eiga að flytja inn í æfintýralönd fram- tíðarinnar. Og það sem um er að gera, er ekki aðeins, hvað vér kennum, heldur hvernig vér erum, hvaða lífsskoðun framkoma vor og lífern- ishættir boða. Því að ósjálfrátt, jafnvel áður en börnin fara að hugsa, móta þau líf sitt og venj- ur, eftir þeim lífernisvenjum sem vér höfum fyrir þeim. Eftirhermu- hvöt barnanna er svo rík, að jafn- vel áður en þau fara að móta hug- sjónir sínar og hugmyndir eftir því sem vér kennum þeim, eru þau búin að drekka í sig og laga sig eftir eðli voru og háttum. Þau hafa lesið vorar innstu hugsanir og samstillt sig einlægni vorri eða yfirdrepskap. Þau hafa lært að leggja samskonar mælikvarða á lífið og vér og krefjast jafnmikils af því. Þau hafa öðlazt samskonar metnað, samskonar þrár og vonir. Hér veltur því allt á því, að hugsjón vor sé stór og vilji vor mikill fyrir hönd hinnar ungu og vaxandi kynslóðar. Vér skyldum óska að hún verði ágætari og hamingjusamari kynslóð en vér höfum verið. Annars hefir móður- blutverkið, að gefa lífinu nýtt tækifæri misheppnast. Lífið hefir eigi endurfæðst til nýrrar æsku og fegurðar, heldur aðeins marg- faldast í eymd sinni og vanmætti. * Jólahátíðin á sitt undursamlega vald og ljóma meðal annars því að þakka, að hún boðar trúna á æskuna, sem vér öll elskum innst inni í hjarta voru. Enda þótt vér sjáum ekki við ofríki áranna og látum tímann iðulega gera oss gömul að ófyrirsynju, þá slær þó hjartað alltaf örar, er vér heyrum innar fylli vitund þeirra. Á þess- 1»WWWI»»WWWW»W Góð og þarflcg Kaupfélag Eyfirðinga. Skódeildin. jölagjof eru fallegir barnaskór frá okkur. ............r Hvers eigum vér þá að óska börnum vorum fyrst og íremst? það, að ef nokkuð *Þess. að þau megi eignast lifanái sál. Það er sál, sem skynjar og finnur til út yfir sjálfa sig. Vör

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.