Dagur - 30.12.1937, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XX
■ árg. |
Afgreiðslan
er hjá JÓNI Þ. ÞÓK, Noró-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri 30. desember 1937.
62. tbl.
Leiðtogi á fjöllum
(Tryggvi í Vfðikeri).
Sorg er yfir Suðurbruna,
syrtir þungt um Herðubreið.
Gerist dapur dagsins bjarmi
Dyngjufjalla yfir leið.
Lindir hægt og hljóðan streyma,
hjarta lands er þungt um slátt.
Sólarlag í sjálfu vestri.
— Sveigir allt að myrkri nátt.
Vakir ljós í Víðikeri;
verpur skini um dapran rann.
Vinarhugir vífs og barna
vefjast blítt um hniginn mann.
— Hvílir rótt á felldum fjölum
— fölvan lýsa geislar hvarm —
hússins ráður; — hetju-arma
hefir í kross við stirðan barm.
Drottinlaust er búfé bónda,
brettir eyru jór við stall;
órótt nauða naut í fjósi,
náhljóð kveða ás og fjall.
Sunnan allt úr Suðurárbotnum
Svartá ymur kveðjumál;
— hellir þimgum angursöldum
inn í „Fljótsins“ jökul-sál.
Garpur fyrr með rausnar ráði
réði för um eyði-lönd;
unað fann í öræfanna
ægi-frið við jökul-rönd.
Leiðangrunum lagði slóðir,
lenda menn frá góssum dró.
— Umsjón fyrir mar og manni
metaskálum spakur vóg.
Bjart var oft um Bruna og
Glœður,
blessun yfir hljóðri vídd. —
Stundum þoka og úrsvöl ísing,
— æ var för þín heillum prýdd.
Jafnan vel þér orka entist
auðnudrjúgur rata heim;
— bjarga frú og fyrirmanni
íraman lengst úr auðnar-geim.
Komstu að mínu sængur-seti,
sóttir heim og vaktir starf,
utan lengst úr fjarskans fylkjum,
— fljótt mér sýnin gafst og hvarf.
Veit eg því, að veran lifir
vökumanns, er strangan dag
sinnti þörfum bús og barna,
bætti og skildi þjóðar hag.
Allt er breytt. — En blærinn
andar
blessun yfir litverpt svið.
— Bárðardals um byggð og engi
brunar fljót með sorgar-nið.
— Niðjar líta á felldum fjölum
írægðar-mann og bjargar-ráð.
— Vakir þó í Víðikeri
von um líf og Drottins náð.
K. V.
Söngvarar vorir.
Mjög láta erlend blöð af söng
Kai'lakórs Reykjavíkur í Leipzig,
var kórnum tekið afbragðs vel og
þótti söngurinn fyrirtak, bæði á
sterkum og veikum tónum. Afar-
mikið þótti til koma „Förumanna-
flokkar" Karls Runólfssonar og
„Grænlandsvísur“ Sigfúsar Ein-
arssonar. Aftur þótti þeim lítið til
koma „Wienervals" eftir Strauss,
að því er meðferð snertir, og er
slíks von. — Þá söng María Mark-
an í Osló við góða aðsókn og dá-
læti mikið. Af íslenzkum tón-
skáldum þótti bera af Karl Run-
ólfsson (Den farende Svend). —
Þá söng Guðm. Kristjánsson iyrir
skömmu í New York og þótti mik-
ið til hans koma. Mest söng hann
lög eftir útlend, heimsfræg tón-
skáld, en líka nokkur íslenztí lög,
og þótti Sigfús Einarsson þar bera
af (Draumalandið) og varð söng-
varinn að endurtaka það.
KIÍÍKJAN: Messað á Akureyri á Gam-
alárskvöld kl. 6 e. h. og nýjársdag kl.
2 e. h. — 2. jan. 1938: í Glerárþorpi kl.
12 á hádegi.
Áramátadansleik heldur Rauða-Kross-
deild Akureyrar í Sarnkomuhúsi bæjarins
á nýjársnótt. — Áskriftarlistar liggja
frammi í »Verzlun Norðurland« og Ryels
B-deiId til gamalársdags. — Ágæt
músík. Salurinn fagurlega skreyttur.
Minnist mannúðarstarfs Rauða-Kross-
ins.
Bækur.
Minningar, eftir Ingunni
Jónsdóttur.
Þetta er tilvalin bók, bæði fræð-
andi og ekki síður skemmtileg.
Hún er eiginlega áframhald af
„Bókin mín“, eftir sama höfund,
sem út kom fyrir nokkrum árum
og gat sér góðan orðstír. For-
mála að bókinni hefir ritað Guð-
rún A. Björnsdóttir, dóttir Ing-
unnar, og er hann til skilnings-
auka og varpar ljósi yfir „Minn-
ingarnar“ og höf. þeirra, sem var
stritandi og önnum kafin sveita-
kona, en kunni jafnframt þá list
að segja sögur og skýra frá atburð-
um, svo að unun þótti á að hlýða.
Á gamals aldri hefir hún að
áeggjan annara fært þessar sögur
sínar í letur, og geta nú öll lands-
ins börn sezt við fætur gömlu kon-
urmar og hlýtt á með því að afla
sér þessarar bókar.
Viðar,
ársrit íslenzkra héraðsskóla, II.
árg., er kominn út. Hefst ritið á
grein, er nefnist „Á framtíðar-
vegi“, eftir Þórodd Guðmundsson.
Þar segir svo m. a.:
„Sú breyting hefir orðið á, að
Félag héraðs- og alþýðuskóla-
kennara hefir nú tekið ritið að
sér og reynir að sjá því ,borgíð
hvað ritstjórn og útgáfu snertir.
Hins vegar verða nemendasam-
böndin sá grundvöllur, er ritið
byggist raunverulega á fjárhags-
lega. Þó er þess vænzt, að skólarn-
ir taki einnig nokkurn peningaleg-
an þátt í útgáfunni“.
Meðal annars eru ennfremur í
ritinu Vísindi og hamingja, eftir
Bertrand Russel, í ísl. þýðingu,
eftir Ármann Halldórsson, Al-
þýðuskólarnir og þjóðin, eftir
Þorgeir Sveinbjarnarson, Ung-
mennafélögin og uppeldismálin,
eftir Eirík J. Eiríksson, Einn þátt-
ur móðurmálsins, eftir Guðmund
Olafsson, Söngur í héraðsskólun-
um, eftir Þórð Kristleifsson, Á
Sprengisandi, eftir Konráð Er-
lendsson, Bjarnarey, eftir Þórodd
Guðmundsson, margvíslegt frá
héraðsskólunum o. m. fl.
Héraðsskólarnir eiga að vera
andlegir og efnislegir gróðrarreitir
íslenzkrar sveitamenningar. Hver
sá, er fylgjast vill með hinu
merkilega starfi þeirra, verður að
lesa ársrit skólanna.
(Framh. á 3. síðu).
NÝJABÍÓ
Fimmtudaginn 30. þ. m.,
klukkan 9:
Kátir tiökkiinienn.
Aðalhlutverkin leika:
Gög °g Gokke.
Nýjársdag, kl. 5 «g 9:
„t’ó ert
mér allt“
(Du bist mein Glúck.)
Þýzk tal- og söngmynd i 10
þáttum. — Aðalhlutverkið
syngur og leikur frægasti
tenorsöngvari heimsins:
Benjamino Gigli
ennfremur leikur
Isa Mirande.
í operuhlutverkunum syngja og
leika söngkonurnar Hildesgard
Ranglak, Maria Cornelius og söng-
varinn Ludwig Weber ásamt kór
og hljómsveit ríkisoperunnar í
Miinchen.
Þessi fagra og heillandi söngmynd
gerist í Genua og Mönchen og
syngur Gigli ariur úr operunum
»Aida« eftir Verdi, »La Tosca« og
»Manon Lescaut« eftir Puccini
og hið gullfallega lag »Du bist
mein Gluck-mein Leben« eftir G.
Becce.
Sunnudagskvöld 2. jan.,
klukkan 9:
Svörtu
angun.
Frönsk tal- og hljómmynd
i 10 þáttum. — Aðalhlut-
verkin leika:
Simóne Simón og Harry Baur.
Fögur og hrífandi mynd, sem
hlotið hefir alveg óvenjulega góða
dóma utanlands og feikna aðsókn,
enda leika í henni afburðagóðir
og frœgir leikarar. Efni myndar-
innar er tekið úr stórborgarlífinu,
hvernig hægt er að leynast þar
svo árum skiftir, án pess að jafn-
vel börnin pekki alvinnu feðra