Dagur - 20.01.1938, Síða 4

Dagur - 20.01.1938, Síða 4
12 D A G U R 3. tbl stúlka, sem aldrei hefir á leiksvið komið fyrr, og virtist því full~ djarft í ráðist að láta hana taka þetta töluvert vandasama hlut- verk að sér, en allt hefir farið vel. Hún er mjög falleg á leiksviðinu og aðlaðandi, og leikur hlutverk sitt af mestu prýði. Hefir blæ- fagra söngrödd (en framburður í söng helzt til óskýr). Pétur vinnumaður (Þorgeir Jónsson), Flækings-Nilli (Hall- grímur Björnsson) og Andrés vinnumaður í Holti (Jóhann Hannesson), eru allir laglega leiknir. Hinn síðasttaldi er aðeins of unglegur í útliti og hreifingum, því eftir leikritinu að dæma, virð- ist hann ekki vera ungur maður. Óðalseigandinn (Emil Björnsson) hefir gott gerfi. Um hina mörgu leikendur verður ekki rætt hér nánar, en heildarsvipur sýningar- innar er góður. Dansarnir, er Hermann Stefánsson hefir samið og æft, fjörga mjög upp sýning- una. — Þá má ekki gleyma því, sem Vigfús okkar Jónsson hefir lagt þarna til málanna. Hann hef- ir málað leiktjöldin, sem öll eru útileiksvið. Eru þau prýðisfögur. — Leikstjórn hefir Árni Jónsson annast, og verið lífið og sálin í því mikla starfi, sem útheimti það að koma þessum all-umfangsmikla leik á sviðið. Þeir, sem eitthvað til þekkja leikstarfsemi, geta rennt grun í, hvað öll sú fyrirhöfn hefir kostað mikinn tíma og umhugsun, en Árni Jónsson er gáfaður og áhugasamur leikhúsmaður, sem leggur mikla rækt og alvöru við starf sitt, sem efalaust á þó eftir að koma betur í ljós, er tímar líða, ef hann fæst meira við það. Þau þrjú kvöld, er leikurinn hef- Þakkarávarp. Öllum þeim, sem hafa rétt mér hjálparhönd í veikindum, minum, fyr og síðar, og einnig öllum þeim mörgu sveitungum minum, sem nú fyrir jólin auðsýndu mér samúð og vináttu með því að gefa mér vönduð viðtæki, votta eg hér með mitt innilegasta þakk- læti. — Eg bið guð og gæfuna að fylgja þeim. Ytra-Dalsgerði 15. janúar 1938. Krislinn Jónsson. ir verið sýndur, hefir verið troð- fullt hús áhorfenda, og svo mun verða áfram meðan leikið er. H. Skábþingið. Úrslitakeppni í skákþingi Norð- lendinga stendur nú yfir milli 5 úrvalsmanna. Teflt verður í kvöld og næstu kvöld á Hótel Gullfoss. Mjög spennandi leikur. KIRKJAN: Messað i Lögmannshlíð n. k. sunnudag kl. 12 á hádegi. Frásögn af aðalfundi Akureyrafdeildar K. E. A. sem haldinn var 17. þ. m., bíð- ur i.æsta blaðs. »Tugthúsið« hér í bænum brann nær til kaldra kola síðastl. sunnudagsmorg- un. Eitthvað brann þar af gömlum skjölum og bókum, er þar var geymt. Rannsókn hefir staðið yfir um upptök eldsins, sem vera mun af manna völdum. bormóöur Eyjólfsson hefir verið kos- inn formaður í stjórn síldarverksmiðja rikisins. Bæjarstjórastaðan á Akureyri er laus tit umsóknar og vetður veitt í næsta mánuði. - Nánari upp- lýsingar fást á skrifstofu bæjarstjora og skal skila umsóknum þangað fyrir 3. Febrúar næstkomandi. Bæjarstjórinn á Akureyri, 13. Janúar 1938. Steinn Steinsen. Umboðsmaður fyrir Líftryggingardeild Sjóvátryggingarfélags íslands í Suður-Pingeyjarsýslu er: ÁRNI RJARNARSON, Mógili, Svalbarðseyri. Allar upplýsingar viðvíkjandi líftryggingum, mun hann veita. Verið viðbúDir og athugið í tæka tíð hvað þér ætlið að kaupa af tilbúnum áburði fyr- ir komandi vor. Allar pantanir þurfa að vera komnar í vorar hendur fyrir 1. marz. — Höfum keypt járnsmíðaverkstæði Jóns J. Jónatanssonar Glerárgötu 3. — Tökum að okkur allskonar viðgerðir og járnsmíði. — Fljót og ábyggileg afgreiðsla. Sveinn Tómasson. Oestur Pálsson Nýr trlllubáfur, 24 fóta, vélarlaus, til sölu með tækifærisverði. Guðbjartur Friðriksson bátasmiður, Eiðsvallag. 7, sími 359. Jörð til sölu. Jörðin Kálfagerði i Saur- bæjarhreppi fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Heyfengur 250—300 hestar, að mestu nautgæft. Tún og engjar að miklu leyti véltækt. Kauptilboðum sé skilað fyrir 28. febr. n.k., til undirritaðs, sem gefur allar nánari upp- lýsingar. Akureyri 19. janúar 1938. Hólmgeir Pálmason, Sigurhæðum. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentverk Odds Björnsscmar Jörðin Grisará i Hrafnagilshreppi, sem er einkar vel fallin hvort held- ur sem er til búskapar eða sem sumarbúskaður, og liggur fast að Eyjafjarðar- braut, fæst keypt nú þegar og er laus úr ábúð i næst- komandi fardögum. — Semja ber við undirritaðan fyrir 20. febrúar næstkomandi. Kroppi 19. janúar 1938. Davið Jónsson. Býlið Hallandsnes í Svalbarðsstrandarhreppi fæst til kaups og ábúðar frá næstu fardögum. — Semja ber við undirritaðan eiganda Leonard Albertsson, Hóiabraut 15, Akureyri,

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.