Dagur - 24.02.1938, Blaðsíða 2

Dagur - 24.02.1938, Blaðsíða 2
42 DAGUH 11. tbl. Kommúnistar renna þegar á hólminn kemur. Söguleg oddvitakosning í Húsavík. Allir íslendingar þekkja söguna um Björn í Mörk að baki Kára, — söguna um lítilmennið, sem hlykkjaðist niður af skelfingu, þegar á hólminn kom. Mynd Bjarnar í Mörk hefir jafnan síðan verið tákn þess lítil- mótlegasta og aumasta, sem með þjóðinni hefir búið. Allir þeir, sem unna manndómi og sjálfstæði, hafa tekið sér Kára til fyrirmynd- ar. Kveifarmennin og mannleys- urnar hafa fetað í fótspor Bjarn- ar í Mörk, og skotið sér undan því að koma nokkurstaðar fram þar er manndóm og kjark hefir þurft. Því miður eru þeir of marg- ir með þjóð vorri, sem bera í brjósti kveifarskap og eymd Bjamar í Mörk. Það eru menn- irnir, sem lúta valdi erlendra yfir- drottnara, — það eru mennirnir, sem skríða, þegar á hólminn kem- ur, — það eru kommúnistar. Vesaldómurinn og ræfilsháttur- inn komu svo einkar skýrt í ljós við oddvitakosningu á Húsavík, að afstöðnum sveitarstjórnarkosning- unum 30. f. m. Þegar kommúnist- unum þar voru fengin vopnin í hendur, til þess að berjast fyrir velgengni kauptúnsins, þá skutu þeir sér undan ábyrgðinni, fleygðu vopnunum og kusu andstæðing til oddvita. Þegar á hólminn kom, þá þorðu þeir ekki að takast á hend- ur vandasamt starf. Þeir skutu sér á bak við framfaramennina og ját- uðu eymd sína og hérahátt. Hin nýkjöma hreppsnefnd Húsa- víkur var þannig skipuð, að í henni áttu sæti 2 Framsóknar- menn, 1 íhaldsmaður, 1 alþýðu- flokksmaður og 3 kommúnistar, samtals 7 menn. Oddviti hreppsins hafði verið undanfarið kjörtímabil Karl Kristjánsson frá Eyvík, einn aðalleiðtogi . samvinnumanna í Þingeyjarsýslu, og var hann end- urkosinn i hreppsnefndina af hálfu Framsóknarmanna. Húsavíkurkauptún á vandasamt starf fyrir höndum. Rekstur hinn- ar nýju síldarbræðslu er fram- undan. Hversu mikilvægt það er fyrir þorpið að hann takist vel, er augljóst mál. Hin nýja hafskipa- bryggja þorpsins er orðin mjög dýr og sveitarþyngsli eru tölu- verð. Það var augljóst mál, að til þess að þorpinu mætti farnast vel í framtíðinni, þá þurftu stjórn- samir framfaramenn að vera við stýrið. Karl Kristjánsson var af öllum gætnum og- skynsömum mönnum talinn hæfastur til þess starfs. Þegar á hólminn kom, þá voru kommúnistar milli steins og sleggju. Þeir höfðu látið digur- barkalega fyrir kosningarnar, og nú sáu þeir engin ráð til þess að standa við fleiprið. Þeir kenndu sig ekki menn til .þess að ráða fram úr málefnum kauptúnsins, Þeir fundu til ættarmótsins við Björn í Mörk. Þegar leið að því að oddvita- kosning skyldi fram fara, þá báðu kommúnistar um frest og fengu hann svo dögum skipti. Hugsuðu þeir nú óráð sitt til þrautar, en kenndu jafnt eftir sem áður manndómsleysisins og lítil- mennskubragarins. Var þá gengið til kosninga. Karl Kristjánsson og íhaldsmaðurinn skiluðu auðum seðlum. Alþýðu- flokksmaðurinn kaus einn komm- únistann, og þóttist með því bezt koma þeim fyrir kattarnef að láta þá kenna ábyrgðarinnar, hinn Framsóknarmaðurinn kaus Karl Kristjánsson, og hið sama gerðu tveir kommúnistarnir, til þess að forða sér á bak við umbóta- mennina. Þriðji kommúnistinn, sá sem minnstur var fyrir sér, Síðastl. sunnudag var fundur haldinn í Jafnaðarmannafélagi Reykjavíkur. Varð fundur þessi nokkuð sögulegur og hafði mikil eftirköst. Nýir félagar, 175 að tölu, bætust í hópinn, allir í bandi Héð- ins Valdimarssonar og nokkur hluti þeirra yfirlýstir kommúnist- ar. Lið Héðins hafði hann í kjöri sem formann félagsins, en and- stæðingar hans í Alþýðuflokknum mótmæltu því, þar sem hann væri rekinn úr Alþýðuflokknum. Þegar mótmælin voru ekki tekin til greina, gengu yfir 100 Alþýðu- flokksmenn af fundi og stofnuðu nýtt félag á öðrum stað. Næsta dag kom stjórn Alþýðu- flokksins og Alþýðusambandsins saman á fund og samþykkti í einu hljóði að víkja Jafnaðarmannafé- lagi Reykjavíkur, þar sem Héðinn ræður, úr Alþýðuflokknum og Al- þýðusambandinu fyrir margar og þungar sakir, sem á félagið eru Samviflna við mprðifiikkiHP. Miðstjóm Framsóknarflokksins hefir á fundi sínum í Reykjavík samþykkt í einu hljóði að leita eftir samvinnu við Alþýðuflokk- inn um stuðning við núverandi ríkisstjórn og framgang mála á yfirstandandi þingi. Jafnframt lýsti miðstjórnin yfir því, að samstarf við annam flokk yrði aðeins hafið með því ófrá- víkjanlega skilyrði, að samstarfs- flokkurinn viðurkenndi óskorað að vinna bæri á grundvelli þjóð- ræðis og þingræðis. kaus félaga sinn. Úrslit kosning- anna urðu því þau, að fulltrúi minnihlutans, Karl Kristjánsson, var réttkjörinn oddviti með 3 at- kvæðum, en kommúnisti fékk 2. Reyndist þetta vera svo jafnt eftir þrjár atrennur, sem allar fóru á sama veg. Karl Kristjáns- son hafði enga samninga gert við hina flokkana. En hugsandi menn kauptúnsins voru á bak við hann. Meiri hlutinn í kauptúninu hafði varpað atkvæði á þann flokkinn, sem kenndi svo átakanlega van- máttar síns, þegar á hólminn kom, að hann þóttist nauðbeygður til þess að kjósa andstæðing fyrir oddvita. Niðurstaða þessara kosn- inga á Húsavík er mjög lærdóms- rík. Hún leiðir í ljós fullkominn vanmátt og' ábyrgðarleysi mál- skrafsmannanna. Þegar út í vand- ann er komið, þá treystir þeim enginn, og þeir treysta ekki einu sinni sjálfum sér. Það eru samvinnumennirnir, sem verða að lokum að taka að sér að leysa vandann og bjarga rekanum frá skipbroti hinna ábyrgðarlausu og getulausu skrumara. bornar. Jafnframt voru fulltrúar félagsins í fulltrúaráð og á Al- þýðusambandsþing dæmdir ógild- ir. Verður ekki annað sagt, en að átökin milli Héðins og foringja Alþýðuflokksins séu orðin ærið hörð, þegar grípa þarf til þess ráðs að reka heilt félag úr flokkn- um. Er sýnilegt, að klofningsstarf- semi H. V. innan Alþýðuflokksins, sem gerð er að vilja og í þjónustu kommúnista, sé farin að bera á- vöxt, hvernig sem henni lyktar. Hjótiaband. Ungfrú Elsa Friðfinnsson verzlunarmær og Haukur Snorrason skrifstofumaður hjá K. E. A. voru gefin saman í hjónaband af bæjarfógeta síð- astliðinn sunnudag. »Óðinn«, hinn nýsmíðaði varðbátur, fór héðan áleiðis til Reykjavíkur í síð- ustu viku. Hér á hö.ninni skaut hann þremur viðhafnarskotum í kveðjuskyni. Alþingi. Nefndaskipun á þinginu er mjög á sama veg og á síðasta þingi. Helzta breytingin sú, að í fjár- veitinganefnd og utanríkismála- nefnd hefir Ásgeir Ásgeirsson komið í stað Héðins Valdimars- sonar. Fjárlögin voru til fyrstu um- ræðu í gær og var umræðunum útvarpað. Frumræða fjármálaráð- herra snerist að mestu um afkom- una á árinu 1937 og var mjög skýr og skilmerkileg að vanda. Af and- stöðuflokkum stjórnarinnar og fyr- ir þeirra hönd töluðu þeir Stefán Stefánsson, Magnús Jónsson og Brynjólfur Bjarnason, en af hendi Alþýðuflokksins talaði Haraldur Guðmundsson. Auðheyrt var á stjórnarandstæðingum að þeim var brátt að komast í „eldhús.ð“, og voru ræður þeirra óspart blandaðar blekkingum og hreinum og beinum ósannindum, eins og Eysteinn Jónsson sýndi fram á í lokaræðu, en til þeirrar svarræðu gegn öllum hinum hafði hann að- eins 15 mínútur. Það vissu and- stæðingarnir og skákuðu í því hróksvaldi að honum ynnist lítill tími til andsvara, en það fór þó nokkuð á aðra leið, eins og út- varpshlustendur fengu að heyra. Hinar reglulegu eldhúsumræður bíða síðari tíma. »Táp og fjör og frískir menn finnast hér á landi enn*. Tvítugur dugnaðarmaður fór heiman að frá sér frá Geldingaholti í Skagafirði, s.l. þriðjudag, kl. 8 f. hád., og kom hingað til Akureyrar að kvöldi sama dags, kl. 8,30 síðd. Er það rösklega af sér vikið. Tafði hann á tveimur bæjum og beið eftir kaffi. Ferðamaðurinn var á hjóli. Gat hann notað hjólið alla leið, nema dálitinn spöl á Öxnadalsheiði. — Pilturinn, sem fór rúma 100 km. á ein- um degi, á þenna hátt, heitir Brynleifur Sigurjónsson. Ljósmyndastofan i Uranuté agszötu H er opin Irá kl. 10—6. HVERGI ÓDÝRAR. Guör. Funch-Rasmussen. S Alhngið! 2 iÁborðarpantanir I gþt þurfa að vera komnar til okkar fyrir næstu mánaðam. Kaupfólag Eyfirðinga. ■MMHHIMIMiliMHMMB Klofningistarf Héðins ■ þjónustu kommúnisfa.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.