Dagur - 07.04.1938, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÚNl Þ. ÞÚB, Norö-
urgötu 3. Talsimi 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri 7. apríl
Forsætisráðherra
þjóðinnl úr voða
bjargar
Deila sjómanna og útgerðar-
manna um kaup og kjör á togur-
unum stóð yfir hátt á þriðja
mánuð. Allan þann tíma lágu tog-
ararnir í höfn og höfðust ekki að.
Allar sáttatilraunir voru strand-
aðar. Ástandið framimdan var
ekki aðeins ískyggilegt, heldur
blátt áfram hræðilegt. Verkamenn
og vinnuveitendur notuðu misk-
unarlaust þann rétt, er báðir þótt-
ust eiga, til þess að svelta hvorn
annan til hlýðni. En hér var
meira en um sult þessara deiluað-
ila að ræða. Áframhaldandi að-
gerðaleysi togaranna hlaut að
leiða af sér hið þyngsta böl fyrir
alla þjóðina. Stóraukið atvinnu-
leysi og eymd verkalýðsins í
landi blasti við sjónum allra viti
borinna manna. Gjaldeyrisskortur
landsins hlaut að margfaldast frá
því sem áður var. Líf allrar þjóð-
arinnar var í voða.
Þegar svona var komið, var það
sjálfsögð skyldi ríkisstjórnarinnar
og Alþingis að skerast í leikinn og
afstýra þeim hörmungum, er
fram undan voru, einkum var
þetta skylda stjórnarflokkanna,
enda var þeim það báðum ljóst.
En ágreiningur varð um leiðir að
lausn þessa máls. Alþýðuflokkur-
inn vildi aðeins leysa nokkurn
hluta deilunnar með því að lög-
festa kaup sjómanna á togurun-
um. Er þessi aðferð þó bersýni-
lega hættulegt fordæmi fyrir
verkalýðinn í framtíðinni, ef óbil-
gjarn meiri hluti þingsins vildi á
þenna hátt þröngva kosti sjó-
manna með hlutdrægni. Forsætis-
ráðherra og Framsóknarflokkur-
inn allur tók það ráð, að leysa
deiluna alla með lögum um gerð-
ardóm, þar sem deilumálinu væri
stefnt til fullrar úrlausnar fyrir
óhlutdrægan dómstól, skipuðum
af hæstarétti og deiluaðilum
sjálfum. Var þar farið að fordæmi
annara lýðræðisþjóða.
Sjálfstæðisflokkurinn á þingi
féllst á þessa úrlausn Framsókn-
arflokksins með forsætisráðherra í
broddi fylkingar, en vegna þessa
ágreinings um leiðir út úr voðan-
um, baðst Haraldur Guðmundsson
lausnar úr ríkisstjórninni og var
honum veitt hún.
Með lögunum um gerðardóm
• hefir forsætisráðherra og Fram-
sóknarflokkurinn bjargað þjóðinni
úr hinum mesta voða, er yfir
hana hefir komið á síðari árum.
Togararnir eru teknir til starfa.
Gerðardómslögin eru að vísu ill
Skúli Guðmundsson
ráðheica í stað Har-
alds Guðmundssonar
Þegar Haraldur Guðmundsson
baðst lausnar úr stjórninni laust
eftir miðjan síðastl. mánuð, tók
forsætisráðherra, Hermann Jónas-
son, við störfum hans um stund-
arsakir, og voru því aðeins tveir
ráðherrar í stjórninni í bili.
Eitthvað bryddi á röddum um
það, að vísu utan þingsins, að það
væri ekki allskostar rétt, að
stjórnin sæti, eftir að slitnað hefði
stjórnarsamvinna milli fyrv.
stjórnarflokka.
Út af þessu gaf forsætisráðherra
þá yfirlýsingu í neðri deild Al-
þingis 22. f. m., að þau rök lægju
til þess, að stjórnin hefði ekki
sagt af sér, að af sumum væri tal-
ið líklegt að gerðardómslögin
myndu reynast erfið í fram-
kvæmd. Þess vegna teldi hann
eðlilegt, að hann segði ekki af
sér, né grennslaðist eftir mögu-
leikum til stjórnarmyndunar áður
en endi yrði bundinn á það mál.
En þar sem lausn vinnudeilunnar
væri fyrir dyrum, þá myndi haxm'
byrja eftirgrennslanir sínar á hinu
pólitíska ástandi á Alþingi og síð-
an eins fljótt og unnt væri til-
kynna þinginu þær niðurstöður,
er hann kæmist að.
Þessum eftirgrennslunum for-
sætisráðherra var lokið í síðustu
viku. Tilkynnti hann þá Alþingi,
að Skúli Guðmundsson þingmað-
ur Vestur-Húnvetninga tæki við
ráðherradómi í stað Haralds Guð-
mundssonar, og veitti Alþýðu-
flokkurinn stjórninni þannig skip-
aðri hlutleysi fyrst um sinn. Stað-
nauðsyn en þó réttlát. Löggjöfin
ei reist á þeim trausta grunni, að
réttur þjóðarinnar til að lifa sé
hinn æðsti og helgasti réttur, sem
allt annað verði að víkja fyrir.
festi Alþýðuflokkurinn þessa
skýrslu forsætisráðherra.
Eftir slit stjómarsamvinnunnar
töldu ýmsir, að þingrof og nýjar
kosningar myndu eina leiðin í því
stjórnmálaástandi, er þá hefði
skapazt. En eins og hér er sagt,
hefir það snúizt á annan veg. Er
það vel farið að því leyti, að þjóð-
in myndi ekki fagna árlegum
kosningum.
Þessi niðurstaða er í samræmi
við þann vilja kjósenda, er fram
kom í kosningunum síðastl. sum-
ar. Sá vilji var ótvíræður um það,
að þjóðin vildi ekki hægri manna
stj órn.
Foringjar Sjálfstæðisflokksins
eru úfnir í skapi.
Koimiúnistar iefa fyrv. tiús-
bændum sínum éísIikí.
.Hinar hræðilegu aftökur helztu
foringja kommúnista í Rússlandi,
sem Stalin lætur framkvæma
austur þar, vekja hrylling í öllum
þeim löndum, þar sem nokkur
siðmenning er.
Fjölda margir eru þeirrar skoð-
unar, að flest eða öll þessi fórnar-
lömb Stalins séu drepin saklaus,
aðeins til að svala blóðþorsta
harðstjórans.
En kommúnistunum íslenzku
segist öðruvísi frá. Þeir staðhæfa
með miklum krafti, að hinir
dæmdu foringjar og trúnaðar-
menn hafi átt það margsinnis
skilið að vera drepnir, því þeir
hafi verið erkisvikarar, verstu
Breyting á
landssf jórninni.
Hrein Framsóknarstfórn sezt að völdum
með hlutleysi Alþýðuflokksins.
landráðamenn og leigutól nazista
I öðrum löndum; í einu orði sagt:
hið argasta illþýði, sem nauðsyn-
legt hafi verið að afmá af jörðinni.
Nú er það öllum vitanlegt, að
kommúnistar hér hlýða fyrirskip-
unum frá Rússlandi, líkt og auð-
sveipir rakkar hlýða boði og
banni húsbænda sinna. Þessir
sömu menn, sem kommamir
stimpla nú sem ærulausa svikara
og landráðamenn, eru einmitt
fyrverandi húsbændur og leiðar-
ljós þeirra sjálfra. Þess vegna
spyr margur: Hvernig geta komm-
únistar hér á íslandi litið kinn-
roðalaust framan í nokkurn mann,
eitir að þeir hafa að eigin sögu-
sögn verið blind verkfæri í hönd-
um útlendra föðurlandssvikara og
fúlustu fanta?
Snjóflóö
fellur á Varmavalnshóla.
90 fjár farast,
en manntfón varð
ekki.
Síðastliðna þriðjudagsnótt féll
snjóflóð á þrjú samföst fjárhús,
rétt utan við bæinn á Varma-
vatnshólum í Öxnadal. í húsimum
voru 90 fjár. Af því náðust 20
kindur lifandi, en mikið meiddar,
svo búizt er við að slátra verði
sumum.
Stórt, nærri ósnert, hey stóð að
húsabaki, og sópaði flóðið því ger-
samlega á burtu. Þegar grafið var
til húsanna, reyndist flóðskaflinn
um 10 metra djúpur. Mikið af
grjóti og aur barst yfir túnið og
er búizt við að það sé eyðilagt
fyrst um sinn.
í húsunum, sem flóðið féll á,
var um helmingur af sauðfé bónd-
ans.
Forseti sameinaQs piogs,
í stað hins látna forseta Jóns
Baldvinssonar, hefir verið kosinn
Haraldur Guðmundsson, fyrv,
ráðherra, með 26 atkvæðum, þ. e.
öllum atkvæðum Framsóknar- og
Alþýðuflokksþingmanna. Aðrir
skilijðu auðum seðlum,