Dagur - 28.04.1938, Page 3
20. tbl.
DAGUR
81
Krisljáfl liuliran
frá Grænavatni.
Valdimar Guðmundsson
frá Hrísey
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar 22. þ. m., verður flutt-
ur til Hríseyjar með póstbátnum, föstudagsmorgun 29. þ.
m. kl. 8, og verður jarðsunginn þar kl. 3 e. h. sama dag.
Pórdís Hallgrímsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Pað tilkynnist hér með, að móðir og tengdamóður okkar,
Kristín Rannveig Magnúsdóttir, andaðist þann 25. þ. m.
Jarðförin er ákveðin miðvikudaginn þann 4. maí og hefst
frá heimili okkar Brekkugötu 15., kl. 1 e. h.
Kristinn M. Jónsson. Guðrún Jakobsdóttir.
Minningarræða flutt í heimili hans
að Húsavík, er kista hans var flutt
að Skútustöðum 20. mars 1938.
(Niðurlag)
Mér kemur í hug frásögn, sem sögð
er að vera í Péturs guðsspjalli. En
það hefir eigi komist inn í Nýja testa-þU
mentið. Sú saga er í gömlum Dýra-^j
vin: Lausnarinn var eitt sinn á gangi,
þar sem ójafnt var undir fæti og
mætti manngarmi, sem lét asna eða
múldýr draga þungt hlass. Skepnan
var örmagna. Og eigandinn barði hana,
þegar hún féll lyiir ækinu, barói hana
miskunnarlaust með keyri. Þá mælti
Lausnarinn. Hví ferð þú svo illúðiega
með málleysingjann ? Hann stökk upp á
net sér og mælti: Hvað varðar þig
um þetta! Eg á dýrið og má fara
með það eins og mér sýnist. Láttu
mig um það. Þá viknaði sonur guós
og leit á skepnu og mann og mælti
innilega:
Sýndu dýrinu miskunn, svo að þú
megir síðar miskunn hljóta. Það er
eigi gleðilegt, að þessi hlið Lausnar-
ans skuli vera ótúlkuð i helgiritunum
svo fögur sem hún er og svo brýn
nauðsyn, sem á því er, að grimmir
menn lái áminningu aö Ofan — fyrir
harðúð við málleysinga.
Sá fjármaður, sem man það enn í
dag, og sýnir í umgengi við fénað,
að Lausnarinn kailaði sig gúfian tliiðj
— hann mundi vera ástfólgnari guði,
en sá eða sú, sem fer í kirkju fyrir
siðasakir og hefir á sér yfirskin guð-
rækninnar. Hvað sem nú því líður,
kom elska Kristjáns fram við fénaðinn.
Hver maður verður að njóta elsku, eða
sýna af sér ástúð, ef honum á að geta
liðið þolanlega. Honum hlotnaðist eigi
kona né eriingi. En hann elskaði það
iíf, sem hann veitti umönnum og göfg-
aði sig á þann hátit og með því
móti.
í tómstundum sínum las hann —
helst söguleg efni. Hann var vandlátur
að skáldskap; þótti ungir höfundar í
Noregi og í voru landi minniháttar en
»þeirgömlu«. Honum þótti tök þeirra
eldri fastari og efnisvai höfðinglegra.
Og á sama hátt leit hann niður á
stjórnmálamenn vora — þótti þeir vera
lítilmótlegir í bardagaaðferð og of
tilhlutunargjarnir um menn og lifnað-
arháttu. Annars var hann f jorður um
annmarka náuuganna, og lofaði fáa og
fátt. Svo fer mörgurn, sem reka skip
sitt á sker, að þeir líta »veröldina«
hornauga.
Annars var viðlíka örðugt að kom-
ast að innra manni Kristjáns, sem tor-
velt er að ná niðrí þíða mold, þar
sem þeli hefir sest í grasróúna.
En þrátt fyrir fálæti sitt var hann
til híbýla bótar, þar sem hann hafði
samastað, enda var hann barngóður.
Hann bjó hjá systrum sfnum og mági,
og hafði þar það skjól, sem ekki gat
fokið í.
Þessi ræða mín mun þykja jarðnesk
fremur en himnesk.
Það er eigi sorgarefni, að maður er
fallinn frá, sem hefir hreinan skjöld og
er kominn á þann aldur, að lágt er
orðið undir sól æfidagsins.
Páll ulafsson segir í kvæði:
»Þegar eg kem á Iífsins land,
ljær mér einhvler sokka*.
Þetta er bersýnilega runnið undan
rifjum fjármanns. Þeir verða sífelt
að vaða kröpin og vökna í fætur.
Þurfa því að hafa sokkaskifti að kveldi.
Menn leita ýmissa orða og útlist-
ana um þessi mál, sem vér köllurn
eilifðarmái. Grímur á Bessastöðum
líkir æfinni við útivist í hafi og enda-
lyktum við það að setja skip sitt í naust.
Hann segir um þá útivistarmenn.
»Þó að þeir séu þolnir menn,
þeir koma bráðum að« —
Skip þeirra er sett í naust.
Hermann Vildenvei yrkir um sigling
á llVÍtli skipi yfir að ströndum pálma-
viðar o. s. frv.
Kristján Guðnason átti ítök í bát
eða nokkurskonar listisnekkju, þegar
hann var drengur í Vogum við Mý-
vatn — áóur en foreldrar hans og
systkini fluttust að Grænavatni. Þar í
Vogum er kaldavermsl vegna upp-
sprettulinda, sem búa að jaiðyl. Kalda-
vermsl! það er undailegt orð. Getur
það átt sér stað, að kuldinn verrai?
Þetta orð minnir annats á íslendings-
eðliö. Eigendur þess hafa iöngum þótt
kaldir á yhrborði, en þó hlýir innan-
brjósts. Svo var Kristjáni farið, altént
á efri árum æfinnar. Hvort sem þú
heyrir til mín eða ekki, skólabróðir,
ávarpa eg þig nú blátt áfram:
Hafðu alúðar þökk fyrir viðkinning-
una á Möðruvöllum.
Halðu kæra þökk fyrir drengskap í
verkum og framkomu við menn og
dýr.
Hafðu hjartans þökk fyrir híbýla
prýði, þar sam þú bjóst aftans — og
náttmálaeykt æfidagsins.
Nú liggur leiðin >upp í sveitinac
þína — inn í forsæluna undir Bláfjalli,
þar sem foreldri þitt býður drenginn
sinn velkominn, en »FjaIladrotning
móðir mín« og Laxá lesa yfir þér
blessunarorð — á sínu máli.
St. G. St segir um fóstru vora Fjall-
konuna.
. . . því drotningarhjarta er viðkvæmt
og varmt,
þó varirnar fljóti ekki í gælum,
Það er meira en gaman að hafa átt
heima í Vogum, þar, sem aldrei festir
ís á vatni, og á Grænavatni, þar sem
álft og svanur búa alla vetur, þvr þar
er einnig autt þó harðindi sé.
Unglingur, sem þeirra stöðva hefir
notið, þó að í harðviðrum lendi, á
skilið það eftirmæli, sem Ibsen og
Matthías breiða ofan á Þorgeir í Vík:
»Bæði við sólskin og súg hann lá,
það sýndu mér gisin kuldastrá, og
líka liljugrös nóg«.
Guðm. Friðjónss.
Ferdafélag Akurcyrar efndi til skemti-
ferðar upp á Vindheimajökul síðasta
sunnudag. bátttakendur voru 23, þar af
5 konur. Veður og skyggni var sæmilegt
og ferðalagið yfirleitt hið ánægjulegasta.
Keyrt var vestur að Bægisá og. gengið
þaðan á jökulinn, niður að Útgarði og
siðan heim. Ferðalagið tók alls um 12
klukkustundir.
Næsta ferð F. A. er 8 maí á Trölla-
fjall.
Ungmcnnafélag Skriðuhrcpps heldur
skemmtisamkomu að Melum, laugard. 7.
maí n. k. Smárakvarteítinn syngur. —
Ouðm. Frímann les upp og að lokunr
dans. Aðgangur aðeins 1 króna. Allur á-
góðinn rennur í trjáræktarsjóð f'élagsins.
Vorþing
UMDÆMISSTÚKUNNAR NR. 5.
Vorþing Umdæmisstúkunnar nr.
5 var háð á Akureyri dagana 23.
og 24. apríl s. 1. Á þinginu mættu
38 fulltrúar frá 10 stúkum og auk
þess margir fleii'i templarar. Hinn
1. febr. voru 712 templarar í um-
dæminu, eða 50 fleiri en á sama
tíma í fyrra. Ungtemplarar voru
898 og hefir fjölgað um 92 á ár-
inu. Er starfið í flestum barna-
stúkunum með miklum blóma.
U. T. Snorri Sigfússon gaf
skýrslu um störf framkvæmda-
nefndar á árinu. Hafði þetta síð-
astliðið ár víða verið sæmilega
gott starf í Reglunni í umdæminu
og sumstaðar ágætt. Gefið hafði
verið út á árinu eitt tölublað af
blaðinu „Baldur“, sem var dreiít
ókeypis út um umdæmið.
Á sunnudaginn var gengið í
skrúðgöngu um bæinn og til
kirkju og hlýtt þar á messu. í
skrúðgöngunni tóku þátt um 400
manns.
Eftirtaldir menn voru kosnir í
framkvæmdanefnd fyrir næsta ár:
U. T. Snorri Sigfússon.
U. Kansl. Stefán Ág. Kristjánsson.
U. V. T. Þórhildur Hjaltalín.
U. R. Eiríkur Sigurðsson.
U. G. Hallgrímur Jónsson.
F. U. T. Brynleifur Tobiasson.
y. Kap. Lárus Thorarensen.
U. G. U. Hannes J. Magnússon.
U. G. L. Pétur Bjömsson.
U. G. F. Marinó L. Stefánsson.
*
U. Skr. Njáll Jóhannesson.
Að þinginu loknu var haldinn
almennur templarafundur á
sunnudagskvöld, að tilhlutun Um-
dæmisstúkunnar. U. T. stjórnaði
fundinum. Húsið var þéttskipað
af fólki. Ræður fluttu: Pétur Á.
Brekkan, Magnús Jónsson og
Hannes J. Magnússon. Sungið var
á milli. Á eftir var stiginn dans.
Yfirleitt bar þing þetta vott um
aukið líf og áhuga meðal templ-
ara, og var í alla staði hið ánægju-
legasta.
Á þinginu voru samþykktar
ýmsar tillögur um bindindismál.
Þar á meðal þessar:
1. Þingið telur það mjög at-
hugavert, og stórum hættulegt
fordæprri fyrir æskulýð landsins,
U P P B O Ð
verður haldið að Borgum við
Akureyri þriðjud. 10. maí n. k.
og þar selt ef viðunandi boð fást
1 kýr vorbær, 20-30 ungar hæn-
ur, nokkrir bestar af töðu, e. t.v.
nokkrar kindur, nýlegur grammo-
fónn og ofurlítið af búsblutum.
Uppboðið hefst kl. 1.30 e. m.
Steingr. Sigvaldason,
Borgum.
að viðhalda drykkjusiðum og örfa
þá, með því að útvarpa glasa-
glaumi og drykkjuvísum.
2. Vorþing Umdæmisstúkunnar
nr. 5 á Akureyri skorar á bæjar-
stjórnir og hreppsnefndir í um-
dæminu að auka eftirlit með vín-
bruggun og óleyfilegri vínsölu, og
ennfremur að auka mjög lög-
gæzlu vegna áfengismálanna yfir-
leitt og velja aðeins til þeirra
starfa röggsama og örugga bind-
indismenn. Framkvæmdanefndin
beiti sér fyrir nánara eftirliti og
samstarfi um þessi mál.
3. Vorþing umdæmisstúkunnar
nr. 5, haldið á Akureyri dagana
23. og 24. apríl 1938, harmar þá
staðreynd, að áfengisneyzla þjóð-
arinnar hefir stórum aukist á síð-
astliðnu ári, og virðist stefna til
hins mesta ófarnaðar í þeim efn-
um. Jafnframt lýsir það undrun
sinni og vanþóknun á því tómlæti,
er ríkja virðist hjá Alþingi og rík-
isstjórn, að því er snertir sjálf-
sagðar umbætur á verstu ágöllum
áfengislaganna og framkvæmd
þeirra, og þeirri skammsýni, að
virða að vettugi allar tillögur og
bendingar bindindissamtakanna i
landinu.
Sjónlcikina »Qráa frakkann* og »Apa-
köttinn« er nú verið að æfa hér í bæ
undir leikstjórn Jóns Norðfjörðs. Leik-
irnir munu verða sýndir í næstu viku,
og koma þar ýmsir nýir leikendur fram
á sjónarsviðið. Ágóðanum af leiksýning-
unum verður varið til Þingvallafarar
skáta í sumar.
Aðalfundur Ræklunarfétags Norður-
lands verður haldinn í Gróðrarstöðinni á
Akureyri laugardaginn 28. niaí næstk.
Hefst kl. 10 f. h.