Dagur - 05.05.1938, Blaðsíða 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 érg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
XXI
• árg. !
Afgreiðslan
er hjá JÓNl Þ. ÞÓR, Nor6-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir 1. des.
Akureyri 5. maí 1938.
Tvær pjóðaratkvæðagreiðslur.
Austurríkismaður, sem dvalið
heí'ir erlendis um hríð, skrifar
þannig í heimsblaðið „Manchester
Guardian“ 8. f. m. um ástandið i
Austurríki, síðan nazistar hrifsuðu
völdin þar í sínar hendur:
„Eins og svo margir aðrir land-
ar mínir, lagði eg af stað H. f- m.,
áleiðis heim, til þess að stuðla að
frelsi og sjálfstæði míns fagra
lands með atkvæði mínu. Við vor-
um öll bjartsýn á framtíðarmögu-
leika lands okkar.... Við vorum
ekki komin nema til Þýzkalands,
þegar við heyrðum þau tíðindi, að
þýzkar hersveitir hefðu ráðist inn
fyrir landamæri Austurríkis. Og
þegar eg loksins komst heim, þá
var það ekki mitt gamla föður-
land, sem eg sá. Það er nú aðeins
minning.
.... Þjóðverjar eru hreyknir af
„sigri“ sínum. En fáa grunar,
hverja þýðingu hann hefir haft
fyrir okkur.
Hvers vegna hindraði Hitler
þjóðaratkvæðagreiðsluna? Vegna
þess að hann þorði ekki að horfast
í augú við réttláta og raunveru-
lega þjóðaratkvæðagreiðslu, því
þá var ósigur hans viss. En nú aft-
ur á móti reikna nazistar með
98% meirihluta, og er áreiðanlega
mjög nærri lagi. Því undir þeirri
svipu, sem nú er reidd að höfði
þjóðar minnar, þá er naumast að
það borgi sig fyrir þá að telja at-
kvæðin. Svo mikil er kúgunin, og
„sigurinn“ því viss-
Það var skelfileg sýn, sem blasti
við 'augum mínum, þegar eg kom
til Austurríkis. Sextán og sautján
ára gamlir unglingar voru að
flytja marga af eldri kynslóðinni í
fangabúðir. Á hinn ruddalegasta
hátt fóru nazistarnir ránshendi um
einkaíbúðir manna, rífandi niður
og traðkandi á myndum af Dr.
Schussnigg og hinum gamla keis-
ara. Fangelsin eru yfirfull. Tveim-
ur dögum eftir að innrásin var
gerð, sá eg í Innsbruck póstkort,
þar sem hakakrossinn var látinn
ljóma yfir bænum, eins og upp-
rennandi sól, s'vo að ekki virðist
undirbúninginn hafa vantað. í
Innsbruck sá eg aðeins fátt manna
á götum úti. Aðeins á aðalgötunni
sá eg dálítinn hóp unglinga, sem
hyllti þýzka hersveit sem fór um
borgina. Þessi hópur var aðeins
örlítið brot af 64000 íbúum borg-
arinnar. En eg sá margt fólk
heima og margt grátbólgið.........
Eftir 48 kl-stunda dvöl sneri eg
burt aftur. í þetta sinn GAT eg
ekki sagt „Auf wiedersehen". En
Guði sé lof, — eg er einn þeirra
fáu, sem á þess kost að vinna mér
brauð utan míns forna föður-
lands“.
Þannig skrifar þessi Austurrík-
ismaður. Og þannig hafa fleiri
skrifað. Erlend blöð eru full af
frásögnum um grimmdaræðið og
kúgunina í Austurríki. Sjálfs-
morðafjöldinn er bezta vitnið um
sannleiksgildi þessara fregna. Við
Islendingar erum varnarlaus þjóð.
Sjálfstæði okkar helzt því aðeins,
að réttur smáþjóða, til að lifa
menningarlífi sem sjálfstæð heild,
verði ekki að engu hafður af þeim
sem sterkari eru. Þess vegna er
það raunaleg staðreynd, að til
skuli vera menn á þessu landi,
sem hælast um, þegar réttur
21. tbl,
smælingjans er fyrir borð borinn,
með valdi. íslendingar, sem hafa
samúð með kúguninni í Austur-
ríki, greiða með því hnefahögg í
andlit frelsis og sjálfstæðis-
kennda þjóðar sinnar- Þeim mun
raunalegra og alvarlegra er þetta,
þegar menn í þjónustu ríkisins
láta á sér skilja, að þeir séu unn-
endur lögleysis og ofbeldis. Sem
betur fer eru fylgjendur nazism-
ans fáir hér. En þeir eru því mið-
ur til. Það er nauðsynlegt að vera
á verði gegn starfsemi slíkra
manna, einkum ef ætla má að þeir
hafi aðstöðu til þess að hafa áhrif
á æskulýð landsins. Verði þess
vart að slíks gæti, þarf að taka al-
varlega í taumana.
Fliigvéliii er koiviin.
Hin nýja flugvél Flugfélags Ak-
ureyrar, TF „Örn“, kom hingað til
bæjarins s. 1. mánudag, eftir rúm-
lega tveggja stunda flug frá
Reykjavík. Vélinni stýrði Agnar
Kofoed-Hansen flugmaður. Eins
og vænta mátti var komu vélar-
innar fagnað mjög af bæjarbúum
og var mikill mannfjöldi saman-
kominn við lendingarstaðinn, er
flugvélin lenti laust eftir hádegi.
Forseti bæjarstjórnar bauð flug-
mennina velkomna norður hingað
og órnaði félaginu heilla, en
rnannfjöldinn hyllti flugrnennina
og Flugfélagið með húrrrahrópi.
Flugvélin er af amerískri gerð,
smíðuð af Waco flugvélaverk-
smiðjunum í Troy í Ohio. Vélin
getur flutt fimm menn, fjóra far-
þega og flugmann. Hún er búin
öllum nýjustu tækjum til öryggis
farþegaflugi nú á tímum. Vélinni
má breyta í landflugvél hvenær
sem henta þykir, en meðan flug-
vellir eru engir til hér, er vélin
búin sjóskíðum. Waco-flugvélar
hafa reynzt prýðilega, t. d. á
Norðurlöndum til farþegaflugs og
þykia meðal beztu véla til þeirra
hluta.
Undanfarna daga hefir vélin
farið ýmsar smærri flugferðir, er
allar hafa gefið beztu raun. Mun
hún jafnan verða til taks til hvers-
kyns farþegaflutninga, en mun
ekki fljúga eftir fastri áætlun.
Það er gleðieíni öllum þeim, er
unna framförum í landi voru, að
nú skuli hafa ræzt draumur
þeirra, er þráð hafa örari sam-
göngur og styttingu vegalengd-
anna með því að brúa hina „háu skuli nú gerð út fyrsta alíslenzka
vegaleysu11. Það er sérstakt gleði- flugvélin.
efni að það skuli einmitt hafa orð- „Dagur“ óskar Flugfélagi Akur-
ið hlutskipti Akureyrarbæjar að eyrar gæfu og gengis í þessu
hefja þetta starf með því að héðan merkilega brautryðjendastarfi.
Nýjar aftökur í Rússlandi.
I Rússlandi hafa verið hand-
teknir og sakaðir um landráð
nokkrir af æðstu mönnum kirkj-
unnar þar í landi, t. d. erkibiskup-
inn og biskupinn af Moskva, á-
samt 25 prestum- Ekki er efazt
um að dauðadómur muni bíða
þeirra allra
í sambandi við hátíðahöldin 1.
maí fór fram víðtæk „hreingern-
ing“ til þess að hinir elskuðu for-
ingjar verkalýðsins gætu sýnt sig
óhultir á almannafæri. Fjölda
manns var varpað í fangelsi og
bíður þar dóms síns. Svona er
kærleikurinn mikill í þessari
paradís kommúnismans og svona
rík ást fólksins á einræðisherran-
um Stalin!
1. m a i
héldu kommúnistar „hátíðlegan"
hér í bænum, eins og þeirra er
vandi, með kröfugöngu og sam-
komum. Heldur þótti gangan með
aumara móti, enda fer nú fylgi
kommúnista hér í bænum óðum
þverrandi. Um 60 unglingar og
fullorðnir voru taldir í göngunni
þegar flest var, og þar að auki
einhver slæðingur af börnum. Er
þetta mun færra en s. 1. ár.
Ýms skilti voru borin fyrir
hópnum og mátti á þeim lesa t. d.
„Verndum lýðræðið“. Þótti mörg-
um næsta spaugilegt að þessir
boðberar einræðisins og dýrkend-
ur harðstjórnarinnar og blóðveld-
isins í Rússlandi skyldu viðhafa
orð eins 'og þetta.
KIRKJAN: Atessaö á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 2 e. h.
Zion. Næstkomandi sunnudag kl. 10%
f. h. sunnudagaskóli. Kl. 8% e. h. al-
menn samkoma. Allir velkomnir
Farþegar mcð flugvélinni til Reykja-
víkur í dag eru frú Sigríður Kristjáns-
dóttir og þrir farþegar frá Siglufirði.
I. O. O. F. = 120050 = III
Blandaði kórinn, sem hr. Róbert
Abraham stjórnar; ætlar að halda siun
siðasta samsöng að þessu sinni sunnu-
daginn 8. þ. m. í Nýja Bíó og hefst iiann
kl. 3 e. h. stundvíslega. Aðgöngumiðar
verða seldir d aðeins eina krónu, til þes-r
að sem flestir fái notið söngsins. Eins
og kunnugt er, eru viðfangsefni kórsms
eingöngu úrvalstónsmíðar.
Þarf ekki að efa, að höluvMint verður
á samsöngnum.