Dagur - 19.05.1938, Síða 1

Dagur - 19.05.1938, Síða 1
D A G U R kemur út & hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 &rg. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son f Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaiddagi fyrir 1. júlí. XXI . árg. | Akureyri 19. maí 1938. Afgreiðslan e'r hjá JÓNl Þ. ÞOH, Norð- urgötu 3. Talsfmi 112. Upp- sögn, bundin við áramót, sé komin tii afgreiðslumanns fyrir 1. des. J 23. tbl. Erlingur ríður til Apavatns. Erlingur Friðjónsson, kaupfé- lagsstjóri, hefir um langt árabil átt sæti í bjæarstjórn Akureyrar og lengst af í rafveitustjórn kaup- staðarins. Skipar hann báðaf þess- ar trúnaðarstöður í þágu almenn- ings enn þann dag í dag. Hanr. hefir því notið hinnar beztu að- stöðu til að fylgjast með undir- búningi þeim, sem þessir aðiljar hafa gert um nýja rafveitu fyrir bæinn og nærsveitirnar. Hefði honum verið í lófa lagið að hafa áhrif á afdrif þessara mála með tillögum sínum og atkvæði, ekki síður en öðrum rafveitunefndar- mönnum og bæjarfulltrúum. Ekki skal það dregið í efa, að þessi bæj- arfulltrúi hafi gert sér þess ljósa grein, að hér er um hið mesta stórmál að ræða fyrir hið litla og fátæka bæjarfélag vort: Annars vegar brýn þörf alls almennings fyrir aukna raforku, bæði vegna búskapar hvers einstaklings og skilyrða fyrir auknum atvinnu- rekstri í bænum, en hins vegar sú mikla áhætta, sem. fólgin er í því, að skammsýni, mistök og fyrir- hyggjuleysi um undirbúning og rekstur þessa milljónafyrirtækis kunni að ríða bæjarfélaginu fjár- hagslega að fullu. En það er ljóst, að þá væri helzt von um skjóta og góða lausn þessara mála, ef for- ráðamenn bæjarfélagsins bæru gæfu til að standa sem einn mað- ur og vinna undirhyggjulaust að íramgangi þeirra, en létu ekki deilur um smávægileg aukaatriði blinda sér sýn á aðalatriðin, eða gerðu leik til að torvelda samstarf allra flokka með einhverjum á- byrgðarlausum loddaraleik, til þess eins að sýnast í augum þeirra, er utan við standa og illa fylgjast með málunum, sér til pólitísks framdráttar. Erl. Friðjónsson hefir nú tekið þann kostinn, sem verri var. Hann gengur fram úr hópi samstarfs- manna sinna, ber sér á brjóst og hrópar ámáttlega: Drottinn, ég þakka þér, að ég er ekki eins og þessir menn! S. 1. þriðjudag gerir hann í blaði sínu, „Alþýðumann- inum“, óp mikið að rafveitunefnd og bæjarstjórn í tilefni af tilboð- um þeim um virkjun Laxár og lánsfé í því skyni, sem Steinn Steinsen bæjarstjóri hefir útveg- að hjá dönskum firmum. Telur blaðið, að rafveitumál bæjarins hafi verið „ein samhangandi keðja af endemum“ í höndum fráfar- andi og núverandi bæjarstjói’nar og rafveitunefndar. Birtir E. Fr. nú í einu og sama tölublaði fjórar greinar um málið, hverja annarn stórorðari og digurbarkalegri. Skulu hér til gamans birt nokkur sýnishorn þess munnsaínaðar, er E. Fr. þykir hæfa að velja þeim mönnum, sem komið hafa nærri einhverjum undirbúningi og fram- kvæmdum í þessu erfiða og ör- lagaríka vandamáli: bæjarstjóra. rafveitunefndarmönnum (öðrum en Erlingi) og bæjarfulltrúum (sömuleiðis að undanteknum Erl- ingi). Öll viðleitni þeirra og störf í þágu þessa máls eru kölluð: „sinnuleysi“, „þarfleysa“, „van- virða“, „hneyksli11, „ónytjungs- háttur“, „óvitafálm“, „hringavit- leysa“, „óhæfa“, „pólitísk svindil-- mennska", „vesaldómur“, „hand- vömm“ og „spellvirki“, svo að nokkur dæmi séu nefnd um þann skemmtilega orðaforða, sem þetta blað hefir jafnan á takteinum t.il að örfa með fegurðarsmekk og prúðmennsku lesenda sinna! Jafn- vel sleppa ekki útlendingar þeir, sem gerzt hafa svo djarfir, að bjóðast til að virkja Laxá fyrir okkur, og lána fé sitt í því skyni, við svigurmælin. Kallar Erlingur þá „erlenda yfirgangsseggi“. Er einstætt, að yrði stórmáium hrundið í framkvæmd með illyrð- um einum og dólgshætti, þyrfti almenningur ekki að bíða raf- magnsins né annara þarfa sinna stundinni lengur, meðan hann nyti við hæfileika þeirra Frið- jónssona í þeirri grein. Gregnir furðu, hve mikið kemst fyrir af því tægi í þessu eina blaðkríli, enda verður að játa það, að for- sendurnar fyrir þessum hörðu dómum komast þar hvergi fyrir, sem varla er vonlegt, heldur eru þeir ýmist reistir á algerlega órök- studdum fullyrðingum eða full- komnum rangfærslum og blekk- ingum. Hafi E. Fi-. óskað þess, að á hon- um yrði mark tekið sem ábyrgum og allsgáðum þjóðmálamanni, gat hann aðeins hafið slíkt frum- hlaup á hendur samstarfsmönnum sínum af tveimur gildum ástæð- um — en heldur ekki fleiri: Fyrst þeirri, að tillögur hans til framkvæmda í rafveitumálinu hafi verið að engu hafðar í raf- veitunefnd og bæjarstjórn. í öðru lagi vegna þess, að einhverjar þær ráðstafanir, er hann telur háska- legar, hafi verið gerðar af þessum aðiljum gegn atkvæði • hans. En hvorug þessi ástæða er fyrir hendi: Tillögur E. Fr. um fram- kvæmdir hafa ekki verið felldar af þeirri einföldu ástæðu, að hann hefir aldrei gert neinar tillögur í því efni, sem máli skipta. Og ekki er heldur vitað, að E. Fr. hafi greitt atkvæði gegn nokkrum markverðum tillögum um tilhög- un framkvæmda né undirbúnings. Framkoma hans í þessum málum hefir jafnan verið fádæma loðin og lítilmannleg. Hann sat t. d. hinn sameiginlega fund rafveitu- stjórnar og fjárhagsnefndar, sem tók afstöðu til tilboða þeirra, er bæjarstjóri hefir útvegað og E. Fr. gerir nú að árásarefni, en greiddi þar ekki atkvæði og laum- aðist af fundi án þess að skrifa undir fundargerðina. Þegar til- lögur nefndanna lágu fyrir bæj- arstjórn, var hann einnig á fimdi og reyndi að vefja málin eftir beztu getu, án þess þó að nokkuð yrði um það ráðið, hvort hann væri með tillögunum í höfuðatrið- um eða ekki. Refjaðist hann enn um að greiða atkvæði, á þann hátt, að hann laumaðist enn af fundi rétt áður en tillögurnar skyldu bornar upp til samþykktar. — En þegar bæjarstjóri og þríx nefndarmenn eru fjarverandi úr bænum, grípur kempan tækifærið og eys þá skefjalausum óhróðri vegna þeirra framkvæmda, sem hann lét afskiptalausar, meðan enn var tími til að fá þeim breytt Þótt E. Fr. hafi þannig skotið sér undan að taka afstöðu til allra markverðra tillagna um þetta mál nú upp á síðkastið, hefir hann ver- ið óspar á að reyna að vefja málið með ýmsum aukaatriðum og vífi- lengjum Mönnum er það t. d. minnisstætt, að þegar lög um virkjun Laxár lágu fyrir Alþingi í fyrra vetur, og bæjarstjórnarfund- ur var kallaður saman, til þess að ýta á eítir því máli, þá hamaðist Erlingur gegn því, að Laxá yrði virkjuð, þótt allir verkfróðir menn, er um málið höfðu fjallað, teldu hana langálitlegasta vatns- fallið til virkjunar. Hélt Erlingur Goðafoss fram með þeim einum rökum, að áætlanir þær, er fyrir lágu gerðu ráð fyrir nokkru meiri vinnu þar en við Laxá. Flutti hann tillögu um það, að bæjarstjórn frestaði að taka ákvörðun um staðinn, og þar með er sennilegt að lögin um virkjun Laxár hefðu orðið að bíða næsta þings, ef E. Fr. hefði fengið að ráða. Erlingur hafði þá skoðun, að honum myndi takast að hæna verkamenn í bænum til fylgis við sig á þeim grtmdvelli að þeir myndu meta meira ímjmdaða stundarhagsmuni sína en fjár- hagslegt öryggi fyrirtækisins í bráð og lengd, sem auðvitað var bimdið við það, að valinn yrði hentugasti staðurinn til virkjvmar- innar með hagsmuni rafveitunnar eina fyrir augum. Þetta reyndist þó falsvon ein. Það kom í ljós, þvert á móti þvi, sem Erlingur hafði búizt við, að verkamennim- ir voru skarpskyggnari og þegn- hollari en svo, að þeir rynnu á þetta auðvirðilega agn. Og svo mun enn fara, að verkamenn mrrnu sjá við brögðum Erlings, er hann reynir að telja þeim trú um, að bæjarstjóm ætli sér að „semja af“ bæjarbúum forgangsrétt til vinnunnar við virkjunina, þótt hún hafi þvert á móti samþykkt tvær tillögur á síðasta bæjar- stjórnarfimdi í þá átt að gera allt sem unnt er, til að tryggja þenn- an rétt bæjarmanna. Hefir annað firmað, sem býður í verkið, þegar gengið að þessum kröfum, en hitt firmað lofað bréflega að láta Ak- ureyringa njóta vinnunnar „öðr- um fremur“ (,,fortrinsvis“). Hins vegar tókst F. Fr. ekki að sigla öllum frekari samningum við .firmun í strand, með því að fá samþykkta tillögu, er gerði þessa kröfu að skilyrði fyrir áframhald- andi samningaumleitunum. Þess má geta, að tregða Höjgaard & Schultz í þessu atriði stafar vissu- lega ekki af því, að þeir ætli sér að taka sunnlendinga fyrst og fremst til vinnunnar, eins og Er- lingur fullyrðir, heldur af því, að þeir óttast samkvæmt þeirri reynzlu, er þeir hafa fengið við Sogsvii’kjunina, að vinnumiðlunar- skrifstofa bæjarins muni — ef hún ráðstafar vinnunni, eins og E. Fr. telur sjálfsagt — leggja til í sumum tilfellum menn, sem eng- inn annar vill hafa í vinnu. Vill firmað því einfaldlega tryggja sér það, að geta valið duglegustu og starfhæfustu mennina til vinn- unnar á hverjum tíma. Á b^ejarstjórnarfundi þeim, er /

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.