Dagur - 04.08.1938, Page 1
D A O U R
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
snn í Kaupfél. Eyfiröinga.
Gjalddagi fyrir 1. júli.
AfgresðsSan
er hjá JÖNl Þ. ÞÓK, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fvrir 1. des.
Akureyri 4. ágúst 1938.
-♦ -í> -<»- •O’ ö--í» í* * ♦ *<**•> íð
í 34. tbl.
För krónprinshiónanna.
Síðastliðinn fimmtudagsmorgun
héldu krónprinshjónin héðan og
austur að Laxárfossum. í för með
þeirn var fylgdarlið þeirra að
sunnan, bæjarstjóri Akureyrar,
bæjanfulltrúar og bæjarfógeti.
Hafði allmargt fólk úr nágrenninu
safnazt saman við fossana. Flutti
bæjarstjórinn þar ræðu og skýrði
hina fyrirhuguðu virkjun. Gat
hann þess, að krónprinsinn ætlaði
að hefja virlcjunina, sem hann
gerði með því að skjóta fyrsta
sprengjuskotinu.
Að lokinni veru á þessum slóð-
um var haldið að Laugaskóla.
Þar snæddu krónprinshjónin og
fylgdarliðið að sunnan miðdegis-
verð í boði ríkisstjórnarinnar. En
aðrir fóru að Einarsstöðum og
borðuðu þar.
Að þessu búnu var ekið til Mý-
vatns. Þar heilsaði Karlakór Mý-
vetninga með söng og Júlíus Hav-
Sr. Bjarfli Porsteinsson
prófessor,
fyrv. prestur á Sigluifirði, andað-
ist í Reykjavík í fyrradag, 77 ára
að aldri.
Síra Bjarni var þjóðkunnur
maður, einkum sem tónskáld og
þjóðlagasafnari. Liggur eftir hann
geysimikið verk á því sviði. Hann
var og orðlagður latínumaður,
sem nú mun fátítt orðið með
prestum, og á margan hátt var
hann mikilhæfur maður.
GuDmufldur Guðtionsson
héraðslæknir í Fáskrúðsfirði and-
aðist á laugardaginn var, 54 ára
að aldri. Hann kom heim til
Fáskrúðsfjarðar úr augnlækn-
ingaferð á Lagarfossi kvöldið áð-
ur og var þá heilbrigður. En á
laugardagsmorgun veiktist hann
snögglega og andaðist eftir fáar
mínútur. Hjartaslag varð honum
að fjörtjóni.
Hann útskrifaðist úr læknaskól-
anum árið 1909. Var síðan þjón-
andi læknir í Öxarfjarðarhéraði
og Rangárhéraði, en gerðist síðan
augnlæknir í Reykjavík. En 1933
gerðist hann héraðslæknir í Fá-
skrúðsfjarðarhéraði og gegndi því
starfi síðan.
Á kjörtímabilinu 1920—23 var
steen sýslum. hélt ræðu. Til Ak-
ureyrar var komið kl. 8 um
kvöldið.
Kl. 9 á íöstudagsmorgun lögðu
krónprinshjónin af stað í bifreið
áleiðis suður. Voru þau kvödd
með húrrahrópum af fjölda
manns, sem safnast hafði saman
við brottför þeirra.
Þenna dag var haldið til
Blönduóss og gist þar. Áð var að
Víðivöllum í Skagafirði, því krón-
prinshjónin höfðu óskað eftir að
sjá íslenzkan sveitabæ. Gaf hús-
freyjan á Víðivöllum krónprins-
essunni hvítt gæruskinn.
Á laugardaginn var haldið alla
leið til Reykjavíkur og á mánu-
dagskvöld tóku krónprinshjónin
sér far með „Drottningunni“
heim á léið.
Haft er eftir drottningarefninu,
að hún ætli að vera hér heilan
mánuð, þegar hún kemur næst.
Guðmundur 2. þingmaður Rangæ-
inga, en gaf ekki kost á sér aftur
við alþingiskosningar.
Hann var kvæntur Margréti
Lárusdóttur smáskammtalæknis
Pálssonar.
Sly s
á Aknreyrargöium.
í fyrradag vildi það slys til í
Skipagötu hér í bæ, að Jón Jó-
hannesson, Lækjargötu 9, féll nið-
ur af flutningabíl og beið bana af
eftir skamma stund. Slysið vildi
þannig til, að verið var að flytja
staurahnyðju (rammbúkka) eftir
götunni, og rakst hún á vírstreng,
sem strengdur var yfir götuna.
Rann hnyðjan aftur af bílnum og'
felldi manninn um leið. Féll hún
á hann ofan. Verður það að telj-
ast í meira lagi óvarlegt að
strengja vír þvert yfir fjölfárna
götu í ekki meiri fjarlægð frá
jörð en hér átti sér stað.
Jón heitinn mun hafa verið hátt
á sjötugsaldri, einn af elztu borg-
urum bæjarins, vinsæll og vel
kynntur maður.
Gijting. í fyrradag voru gefin
saman í hjónaband hér í kirkj-
unni ungfrú Guðrún Ragnars og
Geir Borg frá Reykjavík.
■*
Hin nýja langbylgjustöð ríkis-
útvarpsins, sem verið hefir í smíð-
um að undanförnu, var vígð á
mánudaginn var af krónprinshjón-
unum.
Hófst athöfnin kl. tæplega 2
með því, að krónprinsessan studdi
á hnapp, sem veitir orku á vél-
arnar. Síðan flutti krónprinsinn
ávarp á íslenzku, og að því búnu
fluttu forsætisráðherra og út-
varpsstjóri stuttar ræður. Loks
söng útvarpskórinn þjóðsönginn
undir stjórn Páls ísólfssonar.
Hin nýja sendistöð- hefir 100
kw. orku í stað 16 kw. áður, og
þegar endurvarpsstöðin á Austur-
landi er fullgerð, er talið að trufl-
anir frá útlendum stöðvum eigi
hvergi að koma til greina.
íslenzka útvarpsstöðin er í röð
hinna kraftmeiri stöðva. Kraft-
mesta útvarpsstöðin í Evrópu,
Moskvastöðin, hefir 500 kw. orku.
Uppreisflarflienn á Spani
heítala íslenzkan naltiil
Samkvæmt útvarpsfregn hefir
skipið „Skulda“, eign Williams
Hansen útgerðarmanns í Bergen,
verið tekið af herskipum Francos
þ. 19. júlí og flutt til Ceuta.
Utanríkismálaráðuneytið norska
hefir lagt fram mótmæli gegn
skipstökunni í Burgos.
Skipið var á leið frá íslandi til
Marseille með 1500 smálestir af
tfiski.
Fyrirspurnir
til lögreglustjóra.
1. Hvenær er starfstími nætur-
varða og hvers vegna þolizt
hávaði á götum úti um nætur?
2. Er leyfilegt að hestar séu
skildir eftir mannlausir á göt-
um fyrir vögnum, sem mjög
tíðkast og slys hefir hlotizt af?
3. Er leyfilegt að 2 menn sitji á
reiðhjóli, sem aðeins er ætlað
handa einum, sem einnig er
mjög tíðkað?
4. Hverjir eiga að sjá um, að eigi
séu hættulegir farartálmar
ifyrir vegfarendur á götum
bæjarins?
5. Er leyfilegt að byggja stórhýsi
við umferðamestu götur bæj-
arins, án þess að girða af það
svæði, sem byggingamönnum
er leyfilegt til afnota?
6. Hvers vegna eru börn látin
þvælast alla daga á hafnar-
bakkanum og bryggjunum, án
þess að sýnilegt sé, að þau séu
rekin þaðan?
Borgari.
Blómið „Gleym mér ei“.
Út það grær á víðavangi,
veikur leggur krónu ber,
vekur mann af vanans gangi,
viðkvæmni mn hugann fer.
Dýrðlegt tákn um Drottins mildi.
Draumlynd sál við grýttan svörð.
Himinblámans blæju reifað
við brjóst þitt fóstrað, móðir jörð.
Eins og bam að blíðri móður
blöð það réttir sólu mót.
Hljómar dagsins ástar óður,
orku teygar blómsins rót.
í ástarvímu ef frítt það færir
fljóð að barmi unnustans,
það dregur sig með duldu afli
deyjandi að brjósti hans.
Þegar undir sólin sígur,
sveipast jörð í rökkurfeld,
tárdögg blómsins titrar, hnígur,
tregar dagsins horfna eld.
Mót himni lyftir blöðum bláum.
bærist hægt í kvöldsins þey.
Angurvært af hrelldu hjarta
hvíslar: „Drottinn, gleym mér ei“.
Kristján Einarsson
frá Djúpalæk.
Þý*k
sf©Sltigwél
á sveHnai wlci Island.
í síðustu viku sáu menn í Álfta-
veri flugvél koma sveimandi að
austan. Flaug hún svo lágt yfir
sveitina, að greinilega sást að
þetta var stór tveggja hreyfla sjó-
flugvél með þýzka hakakross-
merkinu. — Úr Álftaveri tók hún
fyrst stefnu á Hjörleifshöfða, en
beygði síðan til suðausturs og
ifiaug á haf út.
□ Rún 593S857 -
Trúlofun: Ungfrú Björg Axels-
dóttir kaupm. Kristjánssonar og
Agnar Kofoed-Hansen flugmaður,