Dagur - 18.08.1938, Blaðsíða 2
146
D A G U R
36. tbl.
Hin glegmda paradís.
Blöð Sjálfstæðisflokksins, og þar
á meðal „íslendingur", klifa á því
sí og æ, að ríkisstjórnin og fylgj-
endur hennar staðhæfi, að fjár-
hagsástæður ríkisins og þjóðarinn-
ar séu í bezta lagi. Síðasti ísl.
segir t. d., að „skriffinnar“ Fram-
sóknarflokksins viðhafi sífellt þær
„haldlausu blekkingar“, þegar
ræða er um fjármálaástandið, að
„allt sé í ágætu horfi“.
Allt skvaldur íhaldsblaðanna um
þetta efni er á engum rökum reist
og því haldlausar blekkingar. Það
vita allir, sem kunna að lesa rétt,
að Framsóknarmenn viðurkenna
fyllilega erfiðleika yfirstandandi
tíma, og að þeir erfiðleikar hafi
mikil áhrif á fjármálaástandið í
landinu. Því fer fjarri að Fram-
sóknarblöðin dragi nokkra dul á
örðugleikana í fjármálunum, þau
hafa þvert á móti margsinnis bent
á þá örðugleika, rætt um orsakir
þeirra og þungar afleiðingar og
hvernig eigi að taka þeim. Þetta
allt veit ísl. mjög vel. Þó segir
hann, að blöð Framsóknarflokks-
ins haldi því stöðugt fram að „allt
sé í ágætu horfi“. En þetta segir
íhaldsblaðið móti betri vitund. Er
það heiðarleg blaðamennska?
Enginn hefir þó oftar og alvar-
legar lýst hinu, ekki ágæta, held-
ur erfiða fjármálaástandi en sjálf-
ur núverandi fjármálaráðherra,
bæði í ræðu og riti. Jafnframt
hefir hann brýnt þjóðina til sam-
eiginlegra átaka um að mæta erf-
iðleikunum með drengilegri karl-
mennsku og skynsamlegum ráð-
um, svo að á þeim megi sigrast.
Væri nú ekki hyggilegt af ísl.
að fara að velta því fyrir sér,
hvort ekki myndi ráðlegast fyrir
hann að. hætta þeim leiða ósið að
gera andstæðingum sínum upp
orð, sem þeir aldrei 'hafa sagt, og
leggja út' af þeim? Ef blaðinu er
nokkuð umhugað um að halda of-
urlitlu af virðingu góðra manna,
þá ætti það að athuga þetta.
Hitt er rétt, sem ísl. minnist á,
að bæði fjármálaráðherra og fylg-
ismenn hans telja það hið mesta
glapræði og reglulegt Lokaráð að
mæta örðugleikunum með því að
taka upp stjórnarstefnuna frá
valdatíð íhaldsins. En eins og áð-
ur hefir verið bent á í þessu blaði,
var sú stefna fyrst og fremst í því
fólgin að misþyrma atvinnuveg-
unum með gengishækkun og
hrúga inn í landið ógrynni af ó-
þörfum varningi, svo að kaup-
mannastéttin gæti grætt sem mest.
Þessi stefna leiddi til gróða og
góðæris fyrir heildsala og kaup-
menn, en hratt framleiðendum út
á öreigabraut. Þetta telja málgögn
heildsala og kaupmanna hafa ver-
ið hina mestu paradísarsælu. En
fyrir framleiðendur til sjós og
lands er stjórnartímabilið frá 1924
til 1927 hin gleymda paradís. Þeir
kannast ekki við þá sælu, sem hún
hafi fært þeim í fang, en við hitt
kannast þeir vel, að þeir voru
reknir út úr aldingarði góðærisins
með hinni gífurlegu krónuhækk-
un, .sem jafnframt verkaði eins og
kerúbar með brugðnum sverðum,
er vörnuðu framleiðendum veginn
að lífsins tré.
„íslendingur“ vitnar í það því
máli sínu til stuðnings, hvað mikil
paradísarsæla hafi verið í stjórn-
artíð íhaldsins, að á því tímabili
hafi verzlunarjöfnuðurinn verið
hagstæður um 40 milljónir króna
og ber það saman við ástand síð-
ustu ára. En steinþegjandi gengur
blaðið fram hjá því, að á fyrr-
greindu tímabili var verðmæti að-
alútflutningsvörunnar, saltfisksins,
að meðaltali á ári 41 millj. kr., en
nú 17 millj. kr. Mismunurinn er
24 millj. kr. á ári. Á þremur árum
yrði munurinn 72 milljónir. Ef því
veiði og markaður hefði brugðizt
á stjórnarárum íhaldsins eins og
hvorttveggja hefir brugðizt síð-
ustu 3 ár, hefði því verzlunarjöfn-
uðurinn í lok þess tímabils ekki
verið hagstæður um 40 milljónir
heldur óhagstæður um 32 millj.
kr. Finnst nú ísl. að þetta skipta
svo litlu máli, að ekki taki því að
minnast á það í samanburðinum?
Onei, svo skilningslaus er nú ísl.
ekki. Hitt er það, að blaðið telur
þægilegast í málflutningi sínum
að ganga þegjandi fram hjá þessu
stórvægilega atriði.
Eða kannske ísl. vilji halda því
fram, að hinn mikli afli og mark-
aður á árunum 1924—27 hafi ver-
ið viturlegri stjórn íhaldsins að
þakka, en aflaleysi síðustu ára, á-
standið í Suður-Evrópu og mark-
aðshrunið þar núverandi stjórn að
kenna? Það virðist oft liggja
nærri að skilja áróðurs- og blekk-
ingaskrif íhaldsblaðanna á þá leið.
Þó vita allir, að hvorutveggja hafa
ráðið atburðir, sem stjórnarvöld-
um vorum eru með öllu óviðráð-
anlegir. í því efni ber þess vegna
hvorki að þakka né kenna um
neitt.
Meðal paradísarendurminninga
Sjálfstæðisflokksblaðanna frá
þeim tíma, er íhaldið réði er sú,
að þá hafi tollar og skattar verið
svo lágir og léttbærir. „íslending-
ur“ telur það því fjarri fara, að
íhaldið hafi tapað völdunum 1927,
vegna þess að þjóðinni hafi líkað
illa fjármálastjóm þess. Ástæðurn-
ar til þess hafi legið í allt öðru.
Svo fer blaðið að skýra frá því,
hvers vegna að þjóðin tók völdin
af íhaldinu og fékk þau Framsókn
í hendur. Og hverjar eru svo
ástæðurnar, sem ísl. færir fram
fyrir valdaskiptunum? Blaðið seg-
ir, að Framsóknarflokkurinn hafi
náð völdum, af því hann hafi lof-
að lækkun tolla og skatta og bætt-
um þjóðarhag. Heldur er þetta nú
ófimleg rökfærsla. Samkvæmt frá-
sögn „íslendings“ hefir þá þjóð-
inni þótt tollarnir og skattarnir
háir í stjórnartíð íhaldsinsj og
þjóðarhagurinn allt annað en góð-
ur, úr því að hún gekkst sérstak-
lega upp fyrir loforðum um breyt-
ingar til batnaðar í þessum efn-
um. ísl. hefir ekki gætt þess í
ákafanum við að gegna þeirri
skyldu sinni að lofa og vegsama
fjármálastefnu íhaldsins, að hann
er hér að styðja málstað Fram-
sóknarmanna, sem jafnan hafa
haldið því fram, að íhaldið hafi
misst völdin, af því að þjóðin
hafi verið orðin óánægð með fjár-
málastjórn þess, þótt hún ill, sem
hún líka var.
Eitt er það, sem „íslendingur"
tekur undir með öðrum íhalds-
blöðum viðvíkjandi síðustu ríkis-
lántöku, sem er harla einkenni-
legt. Þessi málgögn virðast stór-
hneyksluð yfir því að láninu eigi
að verja til greiðslu vaxta og
þeirra afborgana, sem mest eru
aðkallandi. Það er eins og íhalds-
blöðunum hefði verið það geð-
feldara að gjaldeyrisláninu væri
varið til greiðslu þeirra skulda,
sem eru minna eða alls ekki að-
kallandi. Þetta er alveg óskiljan-
leg meinloka. Nema svo sé að
íhaldið hafi heldur viljað að lán-
inu væri alis ekki varið til að
lækka skuldir annarstaðar sem
láninu nemur, heldur að gera það
að eyðslueyri, eins og það fór
sjálft að í sinni stjórnartíð. En það
stóð aldrei til að með síðasta rík-
islán væri þannig farið.
Af því að íhaldsblöðin hafa ver-
ið að vitna í grein eftir Jónas
Jónsson máli sínu til stuðnings,
var í síðasta tölublaði Dags skýrt
nokkuð frá efni þeirrar greinar,
til þess að sýna fram á blekkingar
þessara málgagna og slá vopnið
úr höndum þeirra. Með allt þetta
fyrir augum túlkar síðasti „ís-
lendingur“ þau ummæli J. J., að
Englendingum þætti „ekki öruggt
að lána hingað meira fé en komið
er að óbreyttum kringumstæðum“,
alveg öfugt við það, sem J. J.
skýrir þau sjálfur og gengur þegj-
andi fram hjá greinargerð hans
fyrir þessum ummælum. Ekkert
NÝJA-BÍÓ —
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Rex og Rin-
Tin-Tin sigra
Afar skemlilcg og
spennandi mynd.
Bönnuð fyrir börn.
minnist ísl. heldur á það, að sam-
kvæmt viðtali borgarstjóra
Reykjavíkur við erlenda fjármála-
menn var hann alveg á sama máli
og J. J. um orsakir hinna erfiðu
kringumstæða. Þetta allt eru nú
sæmilega haldgóð vitni um rök-
þrot „íslendings“.
Ekki þorir ísl. að neita því, að
hitaveitulánið haíi af íhaldinu
verið notað í áróðursskyni fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar í Rvík
í vetur, enda alveg vonlaus
árangur af slíkri neitun. En í
vandræðum sínum reynir blaðið
að leiða athyglina frá hitaveitu-
lánsaróðrinum í Reykjavík til
kosningabaráttunnar hér á Akur-
eyri og áróðurs, sem átt hafi sér
stað í sambandi við rafveitulánið.
En hverjir voru með þann áróður?
Það voru einmitt flokksmenn ísl.
Þeir ætluðu að fella Vilhjálm Þór
á því, að honum hefði ekki tekizt
að útvega lán í Englandi og full-
yrtu, að það fengizt ekki, áður en
þeir gátu nokkuð um það vitað.
Þetta var ekkert annað en kosn-
ingaáróður. Dagur skýrði satt og
rétt frá því, að V. Þór hefði út-
vegað loforð fyrir láni, og að „lík-
ur“ væru til að leyfi ensku stjórn-
arinnar fengist. Við allt þetta get-
ur Dagur fyllilega staðið. Jafnvel
hinar sterkustu líkur geta brugðizt,
og þær brugðust í þessu falli, jafnt
Ljósmyndastofan
1 Qrámiféla^sjfötu 21
er opin írá ld. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
Guðr. Funch-Rasmussen.
HHBWWHWmHHW
ÓDÝR
Gardinutau 1
Biýkoitiin.
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeildin.