Dagur - 15.09.1938, Side 1
D AOU R
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfél. Eyfirðinga.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Afgreiðslan
er hjá JÓNl Þ. ÞÓR, Norð-
urgötu 3. Talsími 112. Upp-
sögn, bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslumanns
fyrir l. des.
XXI. árg
•i
Akureyri 15. september 1938.
40. tbh
Mbl. grípur fil fúkyrða
í stað rök§emda.
Rifliátfur blaðsins er
neðan við allf
velsæmi.
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra hefir legið rúmfastur
nokkra daga og varð að fara á
sjúkrahús til þess að fá bót á lít-
ilsháttar kvilla.
Mbl. notar þenna sjúkleika ráð-
herrans til óskammfeilinnar árás-
ar á hann í fúkyrðagrein á laugar-
daginn. Er honum brugðið um
geðofsa og vanstillingu, vegna
þess að hann sé ekki heilbrigður
og „þurfi frekari hvíld, ef bati á
að nást“. Honum er lýst svo, að
hann missi svo stjórnar á sjálfum
sér, að hann tali eins og „argasti
götustrákur“. Honum er brugðið
um að hann sé „þekkingarlítill og
reynslulaus", og „öll viðleitni til
sjálfsmats sé farin út í veður og
vind“. Mbl. segir ennfremur, að
þessi „æri piltungur“ sé „orðinn
að þjóðarviðundri fyrir hortugheit
og derring11, hann hafi hvorki
„óbrjálaða sómatilfinningu" né
„meðalvit", hann „umhverfist
með öllu“ og snúi sér í „blindri
reiði-illsku gegn þeim, sem rita í
Morgunblaðið“, sjái „ofsjónir“ og
„rausi eins og sturlaður væri“.
Loks segir Mbl., að „ekkert sé eft-
ir af fjármálaráðherranum, nema
sjálf beinagrindin í persónu hans;
strákskapurinn og ósvífnin“.
Hér hefir verið brugðið upp
sýnishorni af rithætti Mbl. um
þessar mundir. Ósvífnustu fúk-
yrði breiða sig yfir allt, en hvergi
örlar á röksemdum. Það er fullyrt,
að áminnzt fúkyrðagrein sé stíl-
færð af Árna frá Múla. Hann fær
7200 kr. í árslaun frá Fisksölu-
samlaginu fyrir að skrifa níðgrein-
ar í Mbl. um andstæðinga íhalds-
ins.
Um réttmæti hinna rakalausu
fúkyrða í garð fjármálaráðherra
geta allár þær mörgu þúsundir
manna dæmt, sem hafa átt þess
kost að hlusta á mál ráðherrans
við útvarpsumræður. í ræðu og
riti er hann lausari við persónu-
árásir en flestir aðrir stjórnmála-
menn, og öll málfærsla hans er
prúðmannleg og rökföst svo að til
fyrirmyndar má vera.
Þessi umrædda Mbl.-grein Árna
Jónssonar er jpví hnefahögg fram-
an í heilbrigða skynsemi og dóm-
greind almennings og að rithætti
Á sama tíma og borgarstjóri
Reykjavíkur var árangurslaust að
leita eftir láni erlendis til hita-
veitunnar, voru tekin lán fyrir
ríkið og á ábyrgð þess, sem sam-
tals nema nærri því jafnhárri
upphæð og hið fyrirhugaða hita-
veitulán; þar á meðal var lánið
fyrir Akureyrarbæ til Laxárvirkj-
unarinnar.
Þrátt fyrir þetta halda blöð
Sjálfstæðisflokksins því fram, að
synjun hitaveitulánsins geti ekki
stafað af neinu öðru en skorti á
lánstrausti ríkisins.
Þessa útlistun málsins getur al-
menningur ekki tekið gilda og
telur því, að skýringarinnar á lán-
leysinu verði að leita á öðrum
stað.
í þessu máli hefir nú fram kom-
ið nýtt atriði, sem ef til vill getur
varpað nokkru ljósi yfir lánleysi
Reykj avíkurbæ j ar.
Fulltrúi Framsóknarflokksins í
bæja,rstjórn Reykjavíkur, herra
Sigurður Jónasson, hefir fyrir fá-
um dögum upplýst það, að
Reykjavíkurbær hafi á síðustu
tímum safnað lausaskuldum, sem
nema á 5. milljón kr.
Þegar borgarstjóri Reykjavíkur
var erlendis að leita eftir láni til
hitaveitunnar, hefir hanp að sjálf-
sögðu í viðræðum sínum við er-
lenda fjármálamenn skýrt þeim
satt og rétt frá fjárhagsástæðum
Reykjavíkurbæjar. Hann hefir
vafalaust skýrt frá því, að auk
hinna föstu skulda, væru lausa-
skuldir bæjarins 4—5 milj. kr.
En það vanta allar upplýsingar
um það, hvernig hinum erlendu
fjármálamönnum hafi litizt á fjár-
hag Reykjavíkur, t. d. í sambandi
við 4—5 milj. kr. lausaskuldir, Ef
til vill er á þessum slóðum að
finna lykilinn að jpeim leyndar-
er hún neðan við allt velsæmi.
IJún er því höfundinum og þó
einkum húsbændum hans til
mestu vansæmdar. Fjármálaráð-
herranum vinnur hún ekkert
mein. Hún er of ruddaleg og
heimskuleg til þess.
dómi, að ekki hefir tekizt að fá
lán til hitaveitu Reykjavíkurbæj-
ar.
söngkona er stödd hér í bænúm
um þessar mundir og mun halda
hér konsert á næstunni. Hefir
hún svo sem kunnugt er, um
margra ára skeið staðið mjög
framarlega í söngstarfi Reykja-
víkur, og nokkrum sinnum
skemmt okkur gegnum útvarpið.
En þetta mun vera í fyrsta
skifti sem frúin býður upp á kon-
sert hér á Akureyri, og er, fyrir
margra hluta sakir, væntanlegt og
óskandi að henni verði hér vel
tekið. Fyrst og fremst vegna eig-
in verðleika, því auk raddarinnar,
sem þjóðkunn er, dylst heldur
ekki hitt, sem útvarpið venjulega
skilar betur en röddinni, og sem
músikalskt fólk að sjálfsögðu
pietur mest, að þessi söngkona
hefir yfir miklum túlkunar-hæfi-
leikum að ráða.
Þá megum við, norðanfólk, sem
heimsótt höfum Reykjavík í sam-
slags erindum og frúin heimsækir
Akureyri nú, með gleði minnast
ágætra viðtekta þar í höfuðstaðn-
um. Og það gerum við bezt, og á
mjög viðeigandi hátt, með því að
fjölmenna á væntanlegan konsert
frú Elísabetar.
Björgvin Guðmundsson.
Haustjundur Kantötukórs Akur-
eyrar verður haldinn í Skjaldborg
kl. 9 síðd. þriðjudaginn 20. sept.
Áríðandi málefni liggja fyrir.
Mætið, — mætið öll!
I. O. O. F. = 1200100 =
Ungmennastúkan Akurlilja nr.
2 heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 18. þ. m. kl. 8Y2 e. h. Áríð-
andi að félagar mæti.
Málið skýrist.
Lausaskuldir Reykjavíkurbæjar nema á
fimmtu miljón króna.
Gutiormur J. Giiltorííisson,
vestur-íslenzka skáldið, lagði af
stað með Gullfossi heimleiðis á
mánudagskvöldið, eftir að hafa
ferðast víða um landið í 'sumar. Á
sunnudagskvöldið flutti Guttorm-
ur íslenzku þjóðinni hér austan
hafs kveðju sína gegnum útvarp-
ið, og á eftir flutti Helgi Hjörvar
ávarp til skáldsins. í síðustu viku
var Guttormi fært að gjöf frá
Austfirðingum, búsettum í Rvík
og í átthögum hans, málverk af
Snæfelli eftir Finn Jónsson, og
fleiri vinagjöfum var hann sæmd-
ur.
Eins og kunnugt er, hefir Gutt-
ormur verið heiðursgestur Alþing-
is og ríkisstjórnarinnar hér í sum-
ar. Hugheilar hamingju- og árnað-
aróskir íslenzku þjóðarinnar
fylgja þessu öndvegisskáldi Vest-
ur-íslendinga úr hlaði.
Bœjarsljórnarkosning
á Norðfirði.
Þeir, sem litið hafa í verklýðs-
blöðin að undanförnu, hafa orðið
þess varir, að bæjarstjórnarkosn-
ing stæði fyrir dyrum á Norðfirði.
Reyndar fór fram kosning til bæj-
arstjórnar í Neskaupstað eins og í
öðrum kaupstöðum í vetur, en þar
sem hin nýkjörna bæjarstjórn
reyndist þá þannig skipuð, að ekki
náðist samkomulag meirihluta um
kosningu bæjarstjóra, var það ráð
tekið að rjúfa bæjarstjórnina og
stofna til nýrra kosninga, er fram
fóru síðastl. sunnudag að undan-
gengnum miklum gauragangi.
Voru 4 listar í kjöri, sinn frá hverj-
um stjórnmálaflokki. Að vísu köll-
uðu kommúnistar sinn lista „sam-
einingarlista11, og studdi Héðinn
Valdimarsson hann af öllum þeim
mætti, sem hann á yfir að ráða og
„lá við“ þar eystra, eins og það
er orðað, um þriggja vikna tíma á
undan kosningunum.
Úrslitin urðu þannig:
Alþýðufl. 196 atkv. 3
Framsókn 60 — 1
Sjálfst.fl. 145 — 2
Kommúnistar 194 — 3
Eins og bæjarstjórnin á
firði var skipuð eftir kosninguna
í vetur, var hún talin óstarfhæf.
En hún er alveg eins skipuð nú
og því að líkindum jafnóstarfhæf
enn.
„Þjóðviljinn“ gaf glæsilegar
vonir um, að kommúnistar næðu
meirihluta með hjálp Héðins. Nú
er mesti ljóminn fallinn af hinum
glæstu vonum.
fulltr.
Norð-