Dagur - 15.09.1938, Qupperneq 3
40. tbl.
DAGUR
163
sinn skerf. Og þess má geta að
barnaverndunarnefnd hefir íhlut-
unarrétt um hvaða börn eru send.
Við treystum því að íbúar höf-
uðstaðar Norðurlands skilji, að
sómi þeirra og heill bæjarfélags-
ins er undir því kominn hvort
íleiri og' stærri skref verða stigin
á þeirri braut sem hér hefir verið
troðin.
„Einingar“-kona.
Frú Guðrún Funch-Rasmussen
ljósmyndari auglýsti í síðasta tbl.
Dags myndatökur á nýja ljós-
myndavél, er hún hefir komið fyr-
ir á myndastofu sinni. Er vél þessi
mjög vönduð að öllum frágangi,
og hefir náð mikilli útbreiðslu á
skömmum tíma. Tekur hún svo-
nefndar combinationsmyndir, en
það eru margar myndir af mis-
munandi stærðum á einni plötu.
— Getur maður látið taka af sér
allstóra mynd á miðja plötuna og
ýmiskonar smærri myndir um-
hverfis. Þá getur og fjölskylda
látið taka af sér hópmynd á miðja
plötuna eða á horni hennar og
síðan fyllt plötuna með smámynd-
um af einstökum meðlimum fjöl-
skyldunnar. Má haga myndatök-
um á vél þessa á mjög margvísleg-
an hátt, og eftir því sem hverjum
þykir smekklegast eða hagkvæm-
ast. Myndirnar er hægt að stækka
eftir vild.
Samvinnubyggingarfélag Akur-
eyrar hélt aðalfund sinn 25. ágúst
s.l. Var þar skýrt frá byggingar-
framkvæmdum félagsins og lagðir
fram reikningar þess. Á undan-
förnum tveimur árum hefir fé-
lagið veitt 25 byggingarlán til 24
íbúðarhúsa, samtals að upphæð
um 210 þús. krónur. Flest húsin
eru í byggingarhverfum félagsins
við Helga-Magra-stræti, 12 hús,
og Ægisgötu á Oddeyri 8 hús, öll
byggð úr steinsteypu og að mestu
samkvæmt nútímakröfum. Kostn-
aðar-verð húsanna er 8—10 þús.
og 14—16 þús. krónur eftir stærð
þeirra og frágangi.
Varasjóður og stofnsjóður fé-
lagsmanna nema samtals 2840
krónum. Úr stjórn félagsins gengu
tveir menn, Sigtryggur Þorsteins-
son og Ingimar Eydal. í þeirra
stað hlutu kosningu Jóhann Kröy-
er til 3ja ára, Agnar Guðlaugsson
til 2ja ára, og varamaður Kjartan
Sæmundsson til 1 árs. Formaður
félagsins er Vilhjálmur Þór,
íramkvæmdastjóri.
Skákfélag Akureyrar byrjar
vetrarstarfsemi sína með málfundi
föstudaginn 16. þ. m. kl. 8V2 e. h.
og verður þar rætt erindi frá
Skáksambandi íslands og um
vetrarstarfsemina. Mjög er áríð-
andi að félagsmenn fjölmenni.
Kvenfélagið Framtíðin biður
blaðið að flytja bæjarbúum beztu
þakkir fyrir ágætan stuðning og
hjálp við hlutaveltu félagsins 8.
þ. m., sem haldin var til fjársöfn-
unar til handa nýju spítalabygg-
inguhni.
Bann.
Hérmeð er stranglega
bannað að taka möl eða
sand í fjörunum á Odd-
eyri meðfram Oddeyrar-
túnunum.
Akureyri, 15. sept. 1938.
K æ f a r k t j ö r i 1111.
ERFÐAFESIULBND
fást í Kollugerði.
Böðvar Bjarkan.
Tvær kýr
til sölu, önnur snemmbær
hin vorbær. R. v. á.
TveoQia manna rúm
með dýnu og undirsæng
selst ódýrt.
SaniweS rafvirks.
Herbergi
með Ijósi og hita til leigu í
Lækjargötu 22.
Kristján Jónsson.
Aðalskrifstofa
Hverfisgata 10, Reykjavik.
Umboðsmenn
í öllum, hreppum, kaup-
túnum og kaupstöðum. —
Lausafjártryggingar
(nema verzlunarvörur)
HVER6I HAGKVÆMARI!
Bezf að váfryggfa
lausf og fasf á
sama sfað!
UPPLÝSINGAR og EYÐUBLÖÐ
á aðalskrifstofu og hjá
umboðsmönnum.
Athugasemd við
athugasemd.
Blaðið íslendingur skýrir frá
því, að Hr. Axel Kristjánsson hafi
dagana 19., 20. og 21. ágúst verið
staddur vestur í Skagaíirði. Þetta
eru að vísu ánægjulegar upplýs-
ingar, en þær breyta þó í engu
þeirri staðreynd, að hér heima á
Akureyri var hans beðið í 20 mín-
útur, og vissi þá enginn, hvar
hann var staddur. Enda hafði
hann enga tilkynningu sent for-
stöðumönnum mótsins um fjar-
veru sína. Viðstaddur.
KIRKJAN: Messað í Lögmanns-
hlíð n. k. sunnud. kl. 12 á hádegi.
Blómadagar Hjálpræðishersins
verða dagana 16. og 17. þ. m. Ættu
þá allir að kaupa merki og þar
með styrkja hið góða málefni.
F U F
»Féla§ ungra Fram§oknarmanna«
heldur fund sunnudaginn 18. sept.,
kl. 2 e. h. í Skjaldborg.
Félagar! Fjölmennið og komið
með nýja méðlimi.
S t j ó r n i n.
Verðlag á kartöfium.
Lágmarkssöluverð á kartöflum til verzlana er ákveðið:
15. sept. til 31. okt.: Kr.: 21,oo pr. loo kg.
1. nóv. - 31. des.: — 22,oo - loo -
Innkaupsverð Qrænmetisverzlunar ríkisins má vera allt
að þremur krónum lægra hver 100 kg.
Smásöluálagning (við sölu í lausri vigt), má ekki fara
fram úr 40<>/0, miðað við hið ákveðna söluverð til verzlana.
— Heimilt er þó verzlunum er af einhverjum ástæðum
kaupa kartöflur hærra verði en hinu ákveðna lágmarksverði,
að haga smásöluálagningu sinni þannig, að hún sé allt að
40o/o af innkaupsverðinu.
Hið setta verðlag er miðað við góða og ógallaða vöru.
Verðlagsnefnd
Grænmelisverzlunar ríkisins.
Fólk vantar
til að taka upp kartöflur.
Upplýsingar í
Uelga-Magrasfræfi 3
fiá kl. 7 — 8 síðdegis.
Dansskemmtuu
heldur U. M. F. »Ársól« að
Munkaþverá, laugard. 17.
sept. n. k., sem hefst kl. 10
e. h. — Kaffi fæst keypt á
staðnum.
Pipar,
Allrahanda,
Negull,
í bréfum á 25 aura
og baukum á 40 aura.
Engifer,
Saltpétur,
Blandað krydd,
Muskat.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlenduvörudeild.
verður settur laugardaginn 15.
okt. n. k. kl. 8 e. h. Nýir iðnnemar
og þeir, sem hafa í hyggju að taka
próf milli bekkja í haust, tali við
undirritaðan sem fyrst.
KV ÖLDDEILD skólans
tekur, svo sem að undanförnu, við
nemöndum í íslenzku, dönsku,
reikningi, bókfærslu og jafnvel
teikningu. Ennfremur verður
kennd þýzka fyrir byrjendur (í
stað ensku áður). Skólagjald mjög
sanngjarnt. Þar sem húsnæði er
all-takmarkað ættu umsækjendur
að tala sem fyrst við undirritað-
an, sem gefur allar nánari upp-
lýsingar um skólann. Til viðtals í
Hamarsstíg 6, sími 264.
Jóhann Frimann.
J ö r ð i n
IjaraargarðsliorB
í Svarfaðardal
fæst keypt og er laus til
ábuðar frá næstu fardögum.
Túnið afgirt og nokkuð af
enginu, hvortveggja grasgefið
i bezta lagi. — Heitar iaugar
eru í landareigninni. - —
Upplýsingar geíur
Björn Jónsson,
Tjnrnargarðshorni.