Dagur - 10.11.1938, Page 2
194
DAQUB
4*. tbl.
Blöð Sjálfstæðisflokksins, og þar
á meðal íslendingur, hafa haldið
því fram, að skatta- og tollabyrðin
hafi þyngst svo mjög í tíð núver-
andi ríkisstjórnar, að hún sé orðin
að drápsklyfjum á bökum þegn-
anna.
Vegna þessarar fullyrðingar
hafa blöð Framsóknarflokksins
skýrt frá því, að árið 1937 hafi
heildarupphæð tolla og skatta
numið 119 kr. á hvern íbúa, en ár-
ið 1925 hafi upphæðin verið 120
kr. á hvern íbúa.
Sé hinsvegar tekð meðaltal ár-
anna 1935—37 og í annan stað
meðaltal áranna 1925—34, verður
útkoman sú, að á fyrra tímabilinu
eru skattar og tollar kr. 103,22 á
íbúa, en á síðara tímabilinu kr.
109.74 á íbúa. Hækkunin er því
um kr. 6.50 á mann eða um 5%.
Þetta eru „miljónaálögurnar“, sem
stjói’narandstæðingar eru sífellt
að japla á.
hefir verið minnzt á, ei það köll-
uð „blekking“ í skrifum stjórnar-
blaðanna, að tollahækkanir und-
anfovin ár hafi hverfandi iítil á-
hrií á vöruverðið, samanborið við
álagningu kaupmanna. Segir Isl.,
að þetta sé „aulaleg staðhæfing“.
Staðreyndirnar eru sem hér
segir:
Þar sem tollur er 10—42% af
innkaupsverði vara, er álagning'
65—254%. Álagningin er í sumum
tilfellum 10—11 sinnum hærri en
allur tollurinn. Það liggur því al-
veg Ijóst fyrir, að sé aðeins tekinn
sá hluti tollsins, sem er hækkun i
tíð núverandi stjórnar, er hér að-
eins um hverfandi lítinn hluta að
ræða í samanburði við álagning-
una.
Þetta er svo einfalt mál, að
hvert barnið skilur og þarf því
engra frekari útskýringa við.
En ef ísl. vill endilega stangast
við staðreyndirnar, þá er honum
það ekki of gott.
Hraustlega gert!
ísl., er út kom 4. þ. m., íekur sér
fyrir hendur að ræða um hinar
„vaxandi álögur“ síðusíu þriggja
ára. Ekki gerir þó blaðið nokkra
tilraun í þá átt að hrekja framan-
greindar tölur, og efast þn enginn
um að ekki hefði verið við því
hlífst ef fært hefði þótt. Þær
standa því óhraktar og óhrekjan-
legar. í þess stað hyggst blaðið að
sanna það, að álögurnar hafi stór-
’ega vaxið á síðustu árum, með
því að telja upp nokkrar hækkan-
ir, er orðið hafa í þessum efnum.
Framsóknarmenn hafa nú aldrei
dregið neina dul á, að hækkanir
hafi átt sér stað í ýmsum tilfell-
um. En þær sanna ekkert um
leildarhœkkun skatta og tolla, þó
að ísl. vilji láta líta svo út. En
blaðið steinþegir um það, að
lækkanir á tollum og sköttum
hafa einnig átt sér stað, og það
eru þær, sem valda því, að heild-
arbyrðin hefir lítið vaxið. Þetta
veit ísl. ofur vel, þó að hann í
blekkingarskyni láti þess ekki
getið.
Þetta er nú hans bardagaaðferð.
Það stendur því óhaggað, að
hækkun skatta og tolla nemur
aðeins 5% eins og áður er sagt.
Engum sanngjörnum mönnum
mun vaxa þetta í aug'im, begar
litið er á allar þær kröfur, sem til
ríkisins hafa verið gerðar vegna
kreppunnar og á margan hátt erf-
iða ástands atvinnuveganna að
undanförnu og allra þeirra fram-
kvæmda til umbóta, er gerðar
hafa verið á sama tíma. Á þæi
framkvæmdir vilja andstæðinga-
blöð stjórnarinnar helzt aldrei
minnast.
í sörpu íslendiing&gmn, séþi
í „Tímanum“ 25. okt. er sýnt og
sannað með tölum, að skuldir rík-
isins hafi raunverulega ekkert
aukizt frá því í árslok 1934. Grein-
argerð Tímans er á þessa leið:
„Skuldir ríkisins voru í árslok
1934 41.9 milj. kr. (smbr. Lands-
reikning þ. á. bls. XIII). í árslok
1937 voru ríkisskuldirnar 46.5
milj. kr. Þessar tölur sýna 4.6 milj.
kr. skuldahækkun á þessum 3 ár-
um. En sú hækkun þarf skýringa
við. Árið 1935 tók ríkið lán í Eng-
landi, fyrst og fremst til greiðslu
lausaskulda, er safnast höfðu
fyrir árslok 1934. En í sambandi
við þessa lántöku var það talið
hagkvæmt að breyta reikningsláni
með ríkisábyrgð, sem Útvegsbank-
inn hafði í Englandi, í fast lán á
nafni ríkisins. Er þá bankinn
skuldunautur gagnvart ríkinu og
stendur straum af upphæðinni, en
hefir fengið betri kjör en áður.
Þessi upphæð nam 3 milj. 650 þús.
kr. Afföll af enska láninu 1935
voru um 560 þús., en það var tek-
ið vegna eldri skulda og kemur
því ekki við rekstri áranna 1935
—1937.
Auk þessa hefir ríkið nú fært yfir
á sitt nafn gamla skuld, 350 þús.
kr., hjá Skeiðaáveitunni, sem
löngu var vitað að lenda myndi á
ríkinu, þótt eigi væri formlega yf-
irfærð fyrr en nú. 250 þús. kr.
hvíldu í eignunum Eyrarbakka og
Stokkseyri, þegar ríkið yfirtók
þær eignir, og koma því heldur
ekki við rekstri þessara ára.
í þessum upphæðum felst þá sú
4.6 milj. kr. hækkun, sem reikn-
ingslega er talin að hafa orðið á
ríkisskuldunum á þessum þrem
árum. En eins og hver maður sér,
er hér ekki um raunverulega
hækkun að ræða, þar sem þessar
skuldir voru til áður (fyrir árslok
1934). í árslok 1937 var því
skuldabyrði ríkisins raunverulega
hin sama og hún var í árslok 1934
— þ. e. hefir ekkert aukizt á þess-
um þrem árum.
Niðurstaðan er því sú, að þrátt
fyrir innanað- og utanaðkomandi
örðugleika, er samvinnustjórnin
1935—37 eina stjórnin, síöan ís-
land varð sjálfstætt ríki, sem kom-
izt hefir hjá því aö auka skulda-
byröi ríkisins
NÝJA-BÍÓ
Fimmtudagskvöld kl. 9:
Eigum
við að
dansa?
Dans- og söngvamynd í 10
þáttum með hinu heimsfræga
danspari
Giiier Rosers
og
Fred flstaire.
Nú víkur sögunni til málgagns
íhaldsins hér á Akureyri. íslend-
ingur 4. þ. m. birtir þessa niður-
stöðu um ríkisskuldirnar undir
fyrirsögninni „Sýnishorn af Tíma-
sannleik". Eftir fyrirsögninni að
dæma mætti ætla að ísl. sýndi ein-
hverja viðleitni í þá átt að
hnekkja þessari niðurstöðu með
rökum. En nú gefst mönnum á að
líta. Rök ísl. eru á þessa leið:
„Hér verður ekki nánar farið út
í niðurstöður Tímans, er honum
þóknast að „horfa um öxl“, en
dómgreind lesendanna látin um
að meta hve heilbrigðar þær nið-
urstöður eru, sem að framan eru
tilfærðar, og hversu sneyddar þær
eru „skrumi og fordómum“(!)
Munu lesendur „íslendings“
vera hrifnir af þessari hreystilegu
framkomu blaðsins!______
„Jón í
GrófinniM
heldur því fram í síðasta tölubl.
Islendings, að kaupmannaverzlan-
irnar séu hin mestu þarfaþing, því
að þær greiði útsvör og skatta,
sem komi almenningi að notum.
En er ekki allt það fé, sem kaup-
menn greiða á þenna hátt, frá við-
skiptamönnum þeirra komið og
fengið með álagningu á vörur, sem
þeir kaupa? Um það þarf ekki að
deila. Kaupmannaverzlanirnar eru
engar sjálfvirkar mjólkurkýr; þær
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld kl. 9:
,Kameliu-
frúin‘,
hin margþráða og vinsæla
kvikmynd, gerð samkvæmt
hinu heimsfræga skáldverki
Alexandre Dumas.
Aðalhlutverkin leika:
Greta Garbo
Og
Robert Taylor.
þurfa gjöf til þess að geta veitt frá
sér tolla- og skattamjólk, og sú
gjöf er frá almenningi komin, sem
verzlar við þá.
„Jón í Grófinni“ þarf því að
taka „þankabrot“ sín til endur-
skoðunar, og mun hann þá komast
að þeirri niðurstöðu, að þörfin á
milliliöum í tolla- og skattgreiðsl-
um er ímyndun ein og hreinasta
della.
Ljósmyndastofan
1 Gránufélagggötu 21
er opin frá kl. 10—6.
HVERGI ÓDÝRAR.
Guðr. Funch-Rasmussen.
KVEISLOPrt.
Kaupfélag
Eyfirðinga.
Vefnaðarvörudeild.