Dagur - 24.11.1938, Síða 3
50. tbl.
DAGUR
203
Daníel, bóndi í Samkomugerði,
Sigtryggur, Guðrún og Hraí'n, sem
öll eru heima í Saurbæ.
Þau hjón, Sveinbjörn og Sigrún,
byrjuðu búskap með litlum efn-
um, voru aðeins búin að vinna fá
ár fyrir lágu kaupi, og þetta var
allt, sem þau byrjuðu með bú-
skapinn, en þeim sóttist hann
samt vel, því bæði voru dugleg
og fyrirhyggjusöm. Urðu þau i'yrir
miklu tjóni á eignum sínum, er
þau bjuggu á Kolgrímustöðum.
Vatnsflóð tók fjárhús á túninu þar
og eyðilagði flest sauðfé þeirra,
svo ekki leit vel út með búskap-
inn. En eftir fá ár voru þau búin
að eignast margar skepnur, og nú
síðustu árin höfðu þau stærsta
búið í Saurbæjarhreppi, og þó
víðar væri leitað.
Ekki varð Sveinbjörn efnaður
fyrir það, að hann væri nirfill að
upplagi. Hann var höfðingi heim
að sækja og höfðingi í lund, og
þyrfti að hjálpa, þá var hann
fljótur til og venjulegast hæstur á
blaði, ef gefa þurfti. Drenglyndur
var hann, og hrókur alls fagnaðar,
þegar um skemmtanir var að
ræða. Ágætur íélagi, glaður og
frjáls, en stillti þó vel í hóf, svo
það varð til að prýða félagsskap-
inn. Sveinbjörn hafði almennt
traust manna, varð hann því til
ýmsra opinberra mála kvaddur.
Hann var í hreppsnefnd í mörg
ár og var jafnan tillögugóður og
framkvæmdasamur. Hann var 1
stjórn Búnaðarfélags hreppsins.
Einnig í stjórn „Minningarsjóðs
Árgerðisfólksins“, og hafði ýms
trúnaðarstörf fyrir sveitarfélagið.
Var að honum miklil missir, ekki
eingöngu fyrir heimili hans, sem
hann þó veitti forstöðu, með
dugnaði og prýði, heldur einnig
fyrir alla sveitina, sem á þar á
bak að sjá einum duglegasta,
drenglyndasta og hjálpsamasta
bóndanum í hreppnum.
Blessuð sé minning þín.
Vinur hins látna.
Sigortina HallgrMðltir
Fáein minningarorð.
Þann 24. október síðastl. andað-
ist að heimili sínu, Völlum í Saur-
bæjarhreppi, húsfreyjan þar, Sig-
urlína Hallgrímsdóttir, 84 ára að
aldri. Foreldrar hennar voru Hall-
grímur Þórðarson og kona hans
Rósa Gísladóttir, er lengi bjuggu
í Gröf í Kaupangssveit. Árið 1878
giftist Sigurlína eftirlifandi manm
sínum, Jónasi Jónassyni, sem nú
er orðinn 83 ára að aldri og rúm-
fastur sakir ellihrumleika. Er
hann kunnur gáfumaður í héraði
sínu og skáldmæltur vel, þó lítt
hafi hann því flíkað. Fáum árum
eftir giftingu sína reistu þau
hjónin, Jónas og Sigurlína, bú að
Þórustöðum í Kaupangssveit og
bjuggu þar nokkur ár í tvíbýli.
Árið 1890 fluttu þau að Völlum í
Saurbæjarhreppi og hafa búið þar
samfleytt síðan í 48 ár, fyrst lengi
í tvíbýli, en síðar keyptu þau
jörðina og bjuggu þar ein. Fi'am-
anaf búskaparárurp sínum áttu
þau við fátækt að stríða, en efn-
uðust nokkuð er fram í sótti. Eftir
60 ára sambúð hefir nú Jónas á
Völlum verið sviftur sínum trygga
lífsförunaut, karlægur og þrotinn
að kröftum, en þó svo geðrór, að
enn hrjóta honum spaugsyrði aí
vörum við ýms tækifæri.
Þrjár dætur þeirra Vallahjóna
eru: Guðrún, kona Valdimars
hreppstjóra Pálssonar á Möðru-
völlum í Eyjafirði, Rósa, gift Sig-
urjóni Jónssyni starfsmanni í
Landsbankanum í Reykjavík og
Jóhanna, búsett í St. Farncisko í
Kaliforniu.
Sigurlína á Völlum var frábær-
lega dugleg kona, kvenskörungur
í orðum og athöfnum, skapmikil,
ör í lund og hreinskilin,. en jafn-
framt glaðlynd, drenglunduð og
trygglynd með afburðum. Hún-
vann ótrauð í sínum verkahring
meðan kraftar entust. Sá verka-
hringur var heimili hennar. Nú
er dagsverki hinnar nær hálf-
níræðu húsfreyju lokið. Hún var
orðin þreytt og henni orðið mál á
hvíldinni.
Vinur.
Bækur.
Eimreiðin, júlí—septemberhefti
ið, er nýkomin út. Flytur það m.
a. Við þjóðveginn, eftir ritstjór-
ann, Ullarmálið, eftir Helga
Briem, Þegar skyldan býður
(smásaga), eftir Sigurð Helgason,
Þættir af Einari H. Kvaran
(skáldritin), eftir Stefán Einars-
son, Hrun (smásaga), eftir Áma
Jónsson, Háskólabærinn Lundur,
eftir Áskel Löve, Landmannalaug-
ar, eftir Jón Dan, Listamaðurinn,
eftir Þórodd Guðmundsson frá
Sandi, ljóð eftir Margréti Jóns-
dóttur og Jón Dan, Raddir, Ritsjá
og fl.
Gríma, tímarit fyrir íslenzk,
þjóðleg fræði, útgefandi Þorsteinn
M. Jónsson, er út komin. Hefst
hún á þætti af Bjarna sýslumanni
á Þingeyrum, og er það lengsta
saga ritsins að þessu sinni. Þá
kemur frásögn um sýslumanns-
hjónin á Felli og er um Halldór
Jakobsson sýslumann Stranda
rnanna á síðara helmingi 18. aldar
og konu hans Ástríði, dóttur
Bjarna sýslumanns, er áður getur.
Báðar þessar sögur eru skrásettar
af Óskari Clausen sagnaritara.
Að öðru leyti er efnisyfirlitið
sem hér segir: Reynistaðarbrenna
(handrit Ó. Clausens), Berdreymi
(sögn frú Jóhönnu Jónasdóttir á
Oddeyri), Selveiðifarir á Dröng-
um (handrit Ó. Clausens), Drang-
eyjarför Jóhanns Schrams 1839
(handrit Ó. Clausens), Hestar
verða varir við reimleika (eftir
sögn Ólafs Arnórssonar á Akur-
eyri), Óspektir Englendinga við
Skjálfanda (eftir ýmsum heimild-
um), Dratunur Jónasar Gunn-
laugssonar (sögn hans sjálfs 1905),
Tungufólkið á Svalbarðsströnd
(handrit Stefáns Jónssonar á
Munkaþverá), Þáttur af Þjófa-
Gísla (handrit Þorsteins M. Jóns-
sonar), Stjórnarskráin á Alþingi
1885 (handrit Ó. Clausens), Floga-
Sveinn (eftir handriti Ármanns
Málverkasýning
Kristins Péturs§onar
í verzlunarliúsi K. E. A. (fundarsal, efstu hæð),
opin frá 27. nóv. til 4. des., sunnudaga kl. 10—10, aðra
daga kl. 10—2 og kl. 5—10.
Hanssonar á Myrká), Jón úlfaldi
(handrit Ó. Clausens), Sigurður í
Oddakoti (handrit frú Jónu Egg-
erz á Akureyri), Þræll (handrit
Margeirs Jónssonar).
Öll er Gríma hin læsilegasta.
Allir þeir, sem sögulegum fróðleik
unna, verða að eignast hana.
Morgunn,
júlí—desember hefti þ. á., er út
kominn.
Er þetta hefti sérstaklega helg-
að minningu Einars H. Kvarans,
ritstjóra Morguns og forseta Sál-
arrannsóknarfélags íslands. Eru
fyrst birtar ræður, fluttar við út-
för hans, eftir prestana, Kristinn
Daníelsson, Árna Sigurðsson og
Jón Auðuns. Þá eru ræður, er
fluttar voru á minningarhátíð í
S. R. í. F. af síra Kristni Daníels-
syni, ísleifi Jónssyni og Einari
Loftssyni. Næst koma Skyggni-
frásagnir Hafsteins Björnssonar,
eru þær í þrem þáttum: Sýn við
dánarbeð Einars H. Kvarans, sýn
við útför hans heima og sýn í frí-
kirkjunni, ásamt eftirmála ísleifs
Jónssonar. Eru frásagnirnar um
sýnir þessar afar merkilegar og
munu vekja mikla eftirtekt. Síðan
er ritgerð um E. H. K. eftir Pál
Steingrímsson, þar sem getið er
helztu æfiatriða hans og ritverka.
Að öðru leyti er efnisyfirlit
þessa heftis Morguns sem hér
segir:
Iivar stöndum vér? Eftir Kr.
Daníelsson. — Kristur, minn guð,
kvæði eftir Holt. — Fundur hjá
Láru Ágústsdóttur, eftir K. D. —
Ensk blöð og tímarit um spiri-
tismann, eftir Einar Loftsson. —
Conan Doyle sannar sig, þýtt af K.
D. — Bókarinngangur, eftir E. F.
Bowers. — Forspár um ófriðar-
hættuna, eftir K. D. — Kafli úr
prédikun, eftir sr. Pétur T. Odds-
son. — Fimm gjafir frá öðrum
heimi, eftir M. Barbanell, þýtt af
K. D. — Hagalagðar, Snæbjörn
Jónsson tíndi. — Ávarp til les-
enda. Morguns.
Þetta síðara hefti Morguns hafa
þeir annazt síra Kristinn Daníels-
son og Snæbjörn Jónsson.
SKIÐAKAPPINN.
Skáldsögu með því nafni hefir prenl-
smiðjan ísrún á ísafirði gefið út fyrir
skömmu. Höfundurinn heitir Mikkjel
Fönhus, en þýðandinn er Gunnar
Andreiv. Sagan er 180 bl«. og gerist
í Noregi. Aðalsðguhetjan er umkomu-
laus sveitapiltur, Hallsteinn Kvisslo
að nafni, sonur fátæks skógarhöggs-
manns, er óvænt bæði sér og öðrum
sigrar í fimmtiurasta skíðakappleik.
Af þessu verður hann skyndilega
frægur maður og nafn hans á hvers
manns vörum. Þetta leiðir til þess að
löngun hans til að vinna ný íþrótta
met verður að ástríðu, sem hann
ræður ekki við. Haun kveður því fá-
tækt heimili sitt og föður sinn gamlan
og þreyttan, og flytur til stórborgar-
innar. Sagan er skemmtileg og hefir
lærdóm að færa ungum íþróttamönnum
á þessum metasóttartímum, sem hleypa
í menn óheilbrigðum tryllingskenndum
spenningi, í stað þess að íþróttaiðkanir
eiga fyrst og fremst að vera uppeldis-
meðal til eflingar líkamlegrar og and-
legrar hreysti.
En sagan á erindi til fleiri en
íþróttamanna. Hún er tilvalin bók til
lesturs fyrir ungdóminn yfirleitt og
jafnvel einnig fyrir þá, sem eldri eru.
HLÍN, ársrit Samb.
norðl. kvenna 1938.
Þetta er 21. árg. ritsins, sem nú er
nýlega út kominn. Hiín er að þessu
sinni tileinkuð íslendingum vestan hafs
með virðingu og þakklæti frá ritstj.,
Halldóru Bjarnadóttur, en hún dvaldi
sem mörgum mun kunnugt meðal
landa í Ameríku síðastl. ár. Að nokkru
leyti er því ritið helgað þeim, svo sem
með ferðasögu ritstj. og frásögnum
um menningu og háttu landa vorra í
Vesturheimi, sem allt er mjögánægju-
legt aflestrar, ekki síst ritgerð um
heimilisiðnaðinn vestra.
Auk þess flytur ritið fundargerð
Samb. norðl. kvenna, greinar um 3
merkiskonur: Guðlaugu Vigfúsdúttur
frá Stafafelli, Herdísi Jónsdóttur Bray
(höf. Magnús J. Bjarnason skáld) og
Sigurljóð Einarsdóttur Ijósmóður frá
Grund í Höfðahverfi, ásamt myndum
af þeim. Pá er og »uppeldismál,«
eftirtektarverð ræða flutt við skólaslit
húsmæðraskólans á Hallormstað af
Sigrúnu P. Blöndal og margar fleiri
greinar um margvfsleg efni, svo sem
heimilisiðnað, heilbrigðismál, fræðslu-
mál o. m. fl.
Ritið er 136 bls. og kostar 1 kr.
Pað drepur því engan fjárhagslega að
kaupa Hlín, og hún á það skilið að
vera lesin, því þar kennir margra
góðra grasa.
Barnastúkan Sakleysið: Fundur
n. k. sunnudag á venjulegum stað
og tíma. Innsetning embættis-
manna.
Tvö snjóflóð féllu á Siglufirði í
gær. Gerðu þau nokkurn skaða á
húsum, drápu eitthvað af alifugl-
um og nokkrar sauðkindur, en
manntjón varð ekki.
Munið fundinn í kvennadeild
Slysavarnafélags íslands, Akur-
eyri, í Brekkugötu 9, kl. 8,30 e. h.
næstk. þriðjudag.
1. desember verður fullveldis
íslands minnst með guðsþjónustu
að Saurbæ kl. 6 e. h. — Sama dag,
kl. 8 e. h., verður hlutavelta hald-
in í samkomuhúsi Saurbæjar-
hrepps. — Dans á eftir. — Veit-
ingar fást keyptar á staðnum.
K AUPI
• notuð isl. frfmerki bæsta verði.
Cmðm. Guðlaugsson Kea