Dagur - 08.06.1939, Side 1
DAGUR
kemur 'it á hverjum
fimmtudegi Kostar
kr. 6.00 ilig. Gjaldk.
Árni Jóhannsson 1
Kaupfél. Eyfirðinga.
Qjaldd. fyrir 1. júlí.
AFGREIÐSLAN
er hjá Jóni Þ. Þór,
Norðurgötu 3. Tal-
sínii 112. Uppsögn,
bundin við áramót, sé
komin til afgreiðslu-
manns fyrir 1. des.
XXII. árg. | Akureyri 8. júní 1939. | 23. tbl.
Gunnar
Gunnarsson,
hinn mikilsvirti rithöfundur, er
alkominn heim til ættjarðarinnar
eftir rúmlega 30 ára dvöl í fram-
andi landi og seztur að í Skriðu-
klaustri í Fljótsdal sem óðalsbóndi
þar.
Allir íslendingar, sem nokkuð
kunna að meta bókmenntaleg af-
rek, fagna heimkomu skáldsins og
bjóða hann velkominn í faðm fóst-
urjarðarinnar.
Gxmnar Gunnarsson er nú
fimmtugur að aldri. Innan við
tvítugt fór hann úr landi sem fá-
tækur og umkomulaus sveitaungl-
ingur, en kemur nú heim aftur
umvafinn frægðarljóma skáld-
snillarinnar. Þessi virkileiki hefir
yfir sér blæ æfintýranna.
Oagnfræðapróf
í Menntccskólanum á Akureyri
vorið 1939.
1. Aðalsteinn Guðnason, Ak. II. 5.55
2. Andrés Davíðsson, Barð. I. 6.13
3. Ámi G. Kristinsson, Eyf. I. 6.16
4. Asgerður Jónsdóttir, S.-Þing. I. 6.69
5. Bergljót Jakobsdóttir, Ak. II. 5.10
6. Bjarni F. Halldórsson, N.-Is. II. 5.86
7. Björn Baldursson, Eyf. I. 6.29
8. Bragi Magnússon, Ak. I. 6.34
9. Bragi Þorsteinsson, Barð. I. 6.71
10. Due Björnsson, Ak. II. 4.92
11. Eggert Jónsson, Hún. I. 6.93
12. Einar Þ. Guðjohnsen, S.-Þing. I. 6.32
13. Eiríkur Jónsson, Strand. II. 5.83
14. Erna Árnadóttir, Ak. II. 5.44
15. Eyvindur Valdemarss., Borg. I. 6.72
16. Garðar Loftsson, Eyf. II. 5.71
17. Gfsli Magnússon, Skag. I. 6.16
18. Guðmundur Jóhannsson, Eyf. II. 5.85
19. Guðrún Gestsdóttir, Seyð. I. 6.90
20. Gunnhildur Snorradóttir, Ak. .1. 6.92
21. Hallgr. Guðmundsson, Sigluf. I. 6.14
22. Haraldur Jóhannsson, Eyf. II. 5.18
23. Haukur Pétursson, Ak. II. 5.43
24. Helgi Þórarinsson, N.-ís. I. 6.32
25. Hjördís óladóttir, Ak. I. 6.18
26. Hlíf Árnadóttir, Skag. II. 5.38
27. Hlynur Sigtryggsson, V.-Is. I. 7.11
28. Hörður Bjömsson, N.-Múl. I. 6.47
29. Jakob Jónasson, Ak. I. 6.33
30. Jóhannes Tómasson, Vestm. III. 4.41
31. Jón Hjaltason, A.-Skaft. I. 6.10
32. Jón Ólafsson, Eyf. II. 5.62
33. Jón Sigurpálsson, Ak. II. 5.87
34. Jónas Einarsson, Ak. III. 3.87
35. Kjartan ólafsson, V.-Is. I. 6.29
36. Kjartan ólafsson, Eyf. II. 5.69
37. Kristinn Hóseasaon, S,-Múl. II. 5.78
38. Kristín Snœhólm, Ak. II. 5.48
39. Laufey Jónsdóttir, Strand. II. 5.67
40. Lárus Pétursson, Ak. I. 6.91
41. Leo Schweizer, Þýzkal. III. 4.06
42. Magnús Inginiundarson, Ak. II. 5.93
43. Magnús Torfason, S.-Þing. I. 7.24
44. Mikael Jónsson, Ak. II. 5.77
45. Oddný Þorkeisdóttir, Mýr. II. 5.14
46. Oddur Helgason, Árn. I. 6.72
47. Siglaugur Brynleifsson, Ak. I. 6.35
48. Sigríður Jónsdóttir, S.-Þing. I. 7.02
49. Sigurður Eiríksson, Ak. II. 5.08
50. Skúli Magnússon, S.-Múl. II. 5.00
51. Stefán Sigurðsson, Skag. I. 6.23
52. Steingerður Eiðsdóttir, Eyf. I. 6.17
53. Steingrímur Þórðars., N.-Múl. I. 6.73
54. Sveinbjörn Egilsson, Gbrs. I. 6.20
55. Sverrir Pálsson, Ak. I. 6.68
56. Sverrir Valtýsson, Ak. I. 6.62
57. Þórarinn Þór, Ak. II. 5.06
58. Þorbjörn Guðmundss., Seyð. II. 5.84
59. Þorgerður Jörundsdóttir, Eyf. I. 6.07
60. Þórgunnur Björnsd., S.-Þing. I. 6.65
61. Þorleifur Thorlacius, Ak. II. 5.31
62. Þorsteinn Árnason, Skag. I. 7.00
UTANSKÓLA:
1. Andrés Ólafsson, Isaf. II. 5.76
2. Bárður Daníelsson, V.-Is. II. 5.76
3. Eiríkur Finnbogason, Eyf. II. 5.56
4. Jón Hannesson, Rvík I. 6.20
5. Kristinn Gunnarsson, Isaf. I. 6.18
6. Kristján Guðmundsson, Isaf. II. 5.70
7. Páll Daníelsson, Hún. II. 5.00
8. Vilhjálmur Árnason, Seyð. II. 5.75
9. Vilhjálmur Jónsson, Sigluf. II. 5.91
10. Þorvaldur Ágústsson, Árn. II. 4.67
Tveir nemendur eiga ólokið prófi.
Ein námsmær (utanskóla) gekk frá
prófi.
Ógurlegt
sjóslys.
Brezki kafbáturirm „Thethis“
sökk í Liverpoolflóanum á föstu-
daginn var. í bátnum voru rúm-
lega 100 manns og varð aðeins 4
þeirra bjargað með Davistækjum.
Hinir fórust allrr.
Slys þetta er mesta kafbátsslys
Breta, sem skeð hefir síðan á
heimsstyrjaldarárunum, og um
gjörvallt Bretaveldi ríkir hin
mesta sorg út af þessum hörmu-
lega atburði.
Geysilegur viðbúnaður var hafð-
ur til að bjarga mönnunum úr
kafbátnum, þar sem hann lá á
mararbotni, og tóku fjöldamörg
skip þátt í björgunarstarfinu, en
það bar ekki annan árangur en
þann, sem áður er nefndur.
í bátnum var súrefni til 36
klukkustunda. Þegar sá tími var
liðinn, var öll von um björgun
útilokuð.
Sjómanna-
dagurinn
var haldinn hátíðlegur viða um
land við mikla þátttöku. í sam-
bandi við hátíðarhaldið í Reykja-
vík var opnuð sýning í Markaðs-
skálanum, er sýnir þróun sjávar-
útvegsins hér á landi og mun
mjög hafa verið til sýningarinnar
vandað.
Hér á Akureyri hófst hátíðar-
haldið með skrúðgöngu frá innri
hafnarbryggjunni. Að henni lok-
inni fór fram guðsþjónusta við
trjálundinn á Ráðhústorgi. Flutti
sr. Friðrik Rafnar, vígslubiskup,
þar ræðu, en karlakórinn Geysir
annaðist sönginn.
Kl. 2 fór fram kappróður frá
innri hafnarbryggjunni út að
Torfunefi, milli skipverja af Jarl-
inum, Ólafi, Hjalteyrinni, Rúnu
og Vélstjórafélag Akureyrar tók
einnig þátt í keppninni. Jarlinn
vann á 4 mín. 59.5 sek. og hlaut
bikar, gefinn af Útgerðarmanna-
félagi Akureyrar. Næst var Vél-
stjórafélagið að marki.
Á eftir kappróðrinum sýndi
skipshöfnin á v. s. Kristjáni
hvernig kastað er fyrir síld.
Kl. 5 hófst skemmtun sjómanna
í Samkomuhúsinu. Þar töluðu
þeir Davíð Stefánsson skáld og
Helgi Valtýsson rithöfundur og
Karlakór Akureyrar söng.
Mikið fjölmenni var viðstatt há-
tíðarhaldið.
Kll. 10 um kvöldið hófst dans-
leikur í Samkomuhúsinu.
$ly§farir.
Þann 1. þ. m. vildi það slys til á
Skagaströnd, þar sem verið var að
vinna við hafnargerðina, að tré
féll í höfuðið á 16 ára gömlum
pilti, Árna að nafni, syni Ólafs
Lárussonar, fyrv. kaupfélags-
stjóra, og beið hann bana af.
Fyrir skömmu hrapaði ungl-
ingspiltur í björgum í Vestmanna-
eyjum, á austanverðri Heimaey.
Fannst hann örendur í svonefndri
Haugaurð.
Stefán Guðmundsson Islandi
kom til Reykjavíkur með Brúar-
fossi í fyrrakveld. Býst hann við
að dvelja hér aðeins til mánaða-
móta, og því óvíst að hann sjái
sér fært að bregða sér hingað
norður. Allur almenningur mun
þó vænta þess, og taka komu hans
fagnandi nú sem fyrr.
SIGURÐUR RÓBERTSSON:
Fjalla-Bensi.
Oft um reginauðnir fjalla
einn á ferð hann var,
>ótt að veðra bólgin blika
pyrgði sólarfar. —
Fyrir því, sem öðrum ægir,
aldrei kvíða bar.
Þegar vetrarrökkur reifði
rammefld fjallavé,
jangað tíðum tölti Bensi
til að leita að fé.
Enginn maður á þær slóðir
auðnumeiri sté,
Úr heljargreipum hunguxdauðans
ireif hann lömb og ær,
óegar allar bjargir byrgði
bæði klaki og snær. —
Lifa mun um aldur og æfi
afreksferðir þær.
Meðan kringum arineldinn
aðrir héldu jól,
einn í skafli á eyðileiðum
átti hann vesælt skjól.
Yfir honum villtum vegar
veðrahundur gól.
Oftar undir fannafeldi
fann hann næturstað,
en Bensi orðinn ýmsu vanur
æðrast lítt við það.
Þann, sem ræður öllu yfir,
aldi-ei vægðar bað.
Sízt hafa forlög mjúkum mundum
mótað skapgerð hans.
Við óblíð kjör og æðiveður
oft var krappur dans. —
Hún er ólík annarra lífi
æfi þessa manns.
Þó má finna yl og ástúð
undir grófum hjúp.
Viti hann líða lítilmagnann,
lund hans verður gljúp.
— En Bensi sýnir ekki öllum
oní hugans djúp.
Oft má líða af veðravöldum
vos og hungursnauð
sá, er hættir lífi og limum
í leit að týndmn sauð,
og horfa beint gegn þrautum þorði
þegar skyldan bauð.
Kirkjan: Messað næstk. sunnu-
dag í Lögmannshlíð kl. 12 á hád.
(Safnaðarfundur).
Fullnaflarprófsbörn eru beðin að
koma til viðtals 1 barnaskólanum
kl. 8 annað kvöld (föstudag).
Útsölu hins ágæta tímarits,
D v alar, hefir á hendi Hjörtur
Gíslason, bílstjóri, í Brekkug. 3,