Dagur - 22.06.1939, Blaðsíða 1

Dagur - 22.06.1939, Blaðsíða 1
DAGUR kemur it á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Árni Jóhannsson i Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júlí. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. des. XXII . árg. { Akureyri 22. júní 1939. 25. tbl. að smálestin kosti um kr. 1500.00 (með vél). Þau hlutföll breytast og einnig, verði bátarnir allmiklu dýrari en ætlað var í fyrstu, vegna gengisbreytingar íslenzku krón- unnar, sem stafar af því, að tals- vert af efni og vélarnar voru ó- komnar hingað, er gengið breytt- ist. Það er áður á það berit, að báta- smíði þessi skapar allmikla vinnu hér í bænum, og má gera ráð fyr- ir að vinnulaun séu ca. 10.0000 kr. á bát, eða sem næst 2/5 hlutum af andvirði þeirra. Er það því ekki lítils virði fyrir bæjarfélagið, ef hægt yrði í framtíðinni að halda við hér smíðum á bátum og skip- um, og ættu Akureyringar að standa vel að vígi með það, þar sem hér er gott um alla aðdrætti og útvegun efnis og völ á vel fær- um mönnum um allt það, er að smíðunum lýtur. Allt efni, áhöld og vélar til bát- anna útvegaði Kaupfélag Eyfirð- inga. Nú nýlega var boðið út 75 smál. skip fyrir Útgerðarfél. Siglufjarð- ar. Komu fram 2 tilboð, annað frá Víglundi í Njarðvíkum kr. 120.000, hitt frá Gunnari Jónssyni, Akur- eyri, kr. 108.000. Tilboðunum báð- um var hafnað, en samningar hafa verið teknir upp við Gunnar Jónsson um smíði á þessu skipi. Er ánægjulegt til þess að vita, ef Gunnar Jónsson fær smíðið á þessu nýja skipi, og er ástæða til að óska þess, að þessar fram- kvæmdir allar verði upphaf að skipasmíðastöð, er starfandi yrði hér allt árið. á Oddeyrartanoa. Smíðl á mótorbálum. í byrjun febrúarmán. s. 1. var hafin hér á Oddeyrartanga smíði á 2 mótorbátum 24/25 smálesta og 1 bát 35 smál. Litlu síðar var svo hafin smíði á 12 smál. mótorbát á sama stað. Ef til vill er bæjarbú- um ekki kunnugt um þessar fram- kvæmdir, þar sem smíði bátanna fer fram á þeim stað í bænum, er almenningur leggur tiltölulega sjaldan leið sína um. En þar sem hér er um að ræða mjög ánægju- legar framkvæmdir, er skapa bæj- arbúum mikla atvinnu, skal farið nokkrum orðum um þennan iðnað. Fiskimálanefnd tilkynnti um s. 1. áramót, að veittur yrði styrkur til smíða á mótorbátum, og eru líkur til, að það hafi ýtt undir það að hafizt var handa. Eins og að ofan getur eru smíðaðir 2 bátar 24/25 smálesta. Annan bátinn eiga Garðar og Björn Ólasynir, Hrísey, en Þorleifur Þorleifsson og Björg- vin Jónsson í Dalvík hinn. Tólf smálesta bátinn á Guðjón Ágústs- son, Gróf, Grenivík. Alla þessa báta smíðar Gunnar Jónsson skipasmiður, í ákvæðisvinnu, stærri bátana fyrir kr. 26.400.00 og þann minni fyrir kr. 13.200.00 eða sem næst 1100 krónur smálestin, og er þar í innifalið allt efni og vinna; þar með talið járnsmíði og seglasaumur. Undanskilið ákvæð- isverðinu er þó vél og línuspil, en vélarnar kosta um 18000 krónur. Stærsti báturinn, 35 smál., er smíðaður fyrir Valtý Þorsteinsson í Rauðuvík. Er hann smíðaður i tímavinnu, og annast Kristján Nói Kristjánsson tun smíðina. Allir stærri bátamir verða með 90/100 hestafla Alfa-Diesel vélum, en 12 smál. báturinn með 42 hest- afla Tuxham mótor. Tveir af bát- unum eru með nýtízku lagi, en 35 smál. og 12 smál. bátarnir með eldra lagi. Bátarnir eru byggðir úr eik og allt efni og vinna er vandað svo sem tök eru á, og gert er ráð fyrir að bátarnir verði til- búnir um n. k. mánaðamót. Styrkur sá, er Fiskimálanefnd veitir til bátasmíðanna, nemur ca. 23% af andvirði þeirra, miðað við Ávarp til æsku frá aðalfundi S. U. F. 1030. íslenzka þjóðin hefir alltaf unn- að frelsi og mannréttindum. Það gerðu fyrstu landnemarnir og síðan vorir beztu menn. Allur frami og allir sigrar íslendinga hafa líka fyrst og fremst verið tengdir þessu tvennu. Nú blasir við sérstakt viðhorf í sjálfstæðis- baráttu þjóðar vorrar. Á næstu árum höfum vér aðstöðu til að ná síðasta áfanganum í hinni stjórn- arfarslegu sjálfstæðisbaráttu vorri. Þar eigum vér að keppa að því að vinna oss fullan rétt, í samræmi við sögulega reynslu vora og bar- áttuna fyrir sjálfstæði íslands. — Kunnugt er, að ýmsir eru þeirrar skoðunar, að réttast sé að vera í sambandinu við Dani áfram. Að vorri hyggju kemur slíkt eigi til mála. Vegna viðskipta vorra við aðrar þjóðir er það tvímælalaust tjón að hafa ekki öll utanríkismál- in í vorum höndum. Jafnréttis- ákvæði sambandslaganna eru ekki aðeins fullkomlega óviðunandi fyrir þjóð, sem telur sig sjálf- stæða, heldur beinlínis hættuleg. Af þessum ástæðum og mörg- um fleiri teljum vér að nota beri uppsagnarákvæði sambandslag- anna og hafa ekki í framtíðinni nánara samband við Dani heldur en önnur ríki. íslenzkrar Áhugaleysi hefir yfirleitt ríkt undanfarið um lausn sambands- málsins. Virðist ekki seinna vænna að hefjast handa, þar sem mikill meirihluti þjóðarinnar verður að greiða atkvæði með sambandsslitum, og vafasamt hvort slíkur árangur næst, ef ekki er vakinn áhugi og fullur skiln- ingur fyrh' málinu. Vér teljum það skyldu æskunnar að gera sitt ítrasta til þess að farsællega takist sóknin að þessu langþráða marki hinnar stjórnarfarslegu baráttu þjóðarinnar. Jafnframt því, sem unnið er að þessari lausn sambandsmálsins, álítum vér engu síður þýðingar- mikið að tryggja sjálfstæði ís- lands í framtíðinni. Verður slíkt bezt gert með því að skapa þrótt- mikla menningu og athafnalíf í landinu, forðast söfnun eyðslu- skulda erlendis og verjast öfga- stefnum, sem að meira eða minna leyti vilja koma þjóðinni undir útlend yfirráð. Er nauðsynlegt að allir þegnar þjóðfélagsins og þó sérstaklega yngri kynslóðin geri sér ljóst, hver skylda hvílir á þeim í þessum efnum. Sérhver vinnufær maður verður að vinna, framleiðslustörfin eiga að skipa öndvegi í atvinnulífi þjóðarinnar. Ríka áherzlu ber að leggja á auk- ið sjálfsnám og eflingu heimilis- menningarinnar. Eins og frelsið reynist þjóðun- um bezt til vaxtar og þroska, þannig gegnir hinu sama um einstaklinga þjóðfélagsins. Fyrir því viljum vér vernda og efla þingræðið í landinu, auka sam- vinnu í atvinnurekstri og verzlun og skapa möguleika til þess, að einstaklingarnir hafi skilyrði til menningarlegs þroska og fjárhags- legs sjálfstæðis, án þess að gengið sé á annara hlut. Vér teljum það meginverkefni íslenzkrar æsku að berjast fyrir framkvæmd þessara hugsjóna. Hún á ekki aðeins að standa vel á verði gegn byltinga- og afturhaldsöflum, til þess að vernda það, sem unnizt hefir. Hún þarf að halda baráttunni áfram, stíga til fulls síðasta skref- ið í stjórnarfarslegri baráttu þjóð- arinnar, treysta og efla fullveldi hennar og auka frelsi og réttindi þegnanna í landinu. Vér skorum á íslenzka æsku að reynast trú hugsjón frelsisins og vinna ótrautt í þágu hennar. Vér vitum, að það leggur henni aukn- ar skyldur og erfiði á herðar, en erum líka jafnsannfærðir um það, að árangurinn muni koma fram í glæsilegum verkum, bættum lífs- kjörum og auknum manndómi þjóðarinnar á komandi tímum. Áðalhuidi stjórnar S. U F. var slitið 17. júní. Var á fundinum samþykkt ávarp til íslenzkrar æsku og gerðar margar ályktanh' um launamál, menningarmál, bindindismál, þegnskylduv;nnu, félagsmálefni o. fl. Að fundarlokum var samþykkt svohljóðandi tillaga: „Aðalfundur stjórnar Sambands ungra Framsóknarmanna, haldinn á Akureyri dagana 11.—17. júní 1939, tjáir Akureyringum og Ey- firðingum beztu og alúðarfyllstu þakkir fyrir frábærar móttökur og mikla gestrisni. Fundurinn árnar bænum og héraðinu heilla og hagsældar og væntir þess, að hér megi starf Framsóknarmanna og samvinnumanna ávallt bera góðan ávöxt“. Skemmtiferð fer Kvennadeild Slysavarnafélags íslands á Akur- eyri, næstkomandi sunnudag (25. júní) í Vaglaskóg. Lagt verður af stað frá Ráðhústorgi kl. 1 e. h. stundvíslega. Þátttakendur eru beðnir að hringja í síma 393. Kon- ur hafi með sér miðdagskaffið sitt. Enga félagskonu má vanta í hóp- inn!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.