Dagur - 11.01.1940, Blaðsíða 1

Dagur - 11.01.1940, Blaðsíða 1
DAGUR kemur 'it á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 iig. Gjaldk. Árni Jóhannsson * Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júli. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Tal- sími 112. Uppsögn, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- tnanns fyrir 1. des. xxni. árg.;; *«► «r-« «► 4r-4>-- —fr- Akureyri 11. janúar 1940 2. tbl. K--* «r ■*» Hækkun kaupgfalds vegna dýrtíðarinnar. Verðlagsnefndir ráða verði á mfófik og kjöfi innan lands. Undir þinglokin lögfesti Alþingi samkomulag það, sem náðst hafði innan ríkisstjórnarinnar um hækkun kaupgjalds vegna dýrtíð- arinnar o. fl. í því sambandi. Voru ákvæðin um kaupgjaldið felld inn 1 lögin um gengisskrán- ing og ráðstafanir í því sambandi, er sett voru í aprílmánuði síðastl., en í þeim lögum voru eftirfarandi ákvæði um kauphækkun af völd- um dýrtíðar; Komist þar til kjörin nefnd að þeirri niðurstöðu, að fram- færslukostnaður í Reykjavík hafi hækkað á tímabilinu júlí— desem- ber 1939 um meira en 5%, miðað við framfærslukostnaðinn janúar —marz 1939, skal kaup ófaglærðra verkamanna, sjómanna og fast- ráðinna fjölskyldumanna, sem hafa minna en 300 kr. á mánuði, hækka sem nemur helmingi dýr- tíðaraukningarinnar, ef hún er minni en 10%, en um 2/s af dýr- tíðaraukningunni, ef hún er meira en 10%. Jafnframt var öll önnur kaup- hækkun bönnuð og ákveðið að verðlag á kjöti og mjólk innan- lands skyldi fylgja sömu reglum og kaupgjald verkamanna og sjó- manna. Þær breytingar, sem hin nýju lög gera á þessum ákvæðum, eru aðallega þessar: Fyrir hvert stig, sem vísital- an fyrir tímabilið nóv.—des. 1939 hækkar frá grundvellinum jan.— marz 1939 (vísitala þá talin 100) skal kaupgjald hækka 1. jan. 1940 um 50% af dýrtíðaraukningunni, ef hún nemur 5 stigum eða meira, en minna en 10 stigum, en sé dýr- tíðaraukningin meiri skal það, sem er fram yfir 10 stig bætt þannig: 80% ef tímakaupið er kr. 1.50 eða lægra, 70% ef tímakaupið er kr. 1.51—2.00, og 55% ef tíma- kaupið er kr. 2.01 eða hærra. Kaupgjaldshækkunin má þó al- drei nema minna en 75% af dýr- tíðaraukningunni í fyrsta flokki, 00% í öðrum flokki og 50% í þriðja flokki. Kaupgjald í hærra flokki skal þó aldrei vera lægra en það, sem greitt er í lægra flokki. Samkvæmt sömu reglu skal kaupgjaldið hækka 1. apríl, 1. júlí og 1. október 1940 og er vísi- talan í hvert sinn reiknuð fyrir næstu þrjá mánuði á undan. Kaup fyrir aukavinnu eða sér- stök hlunnindi skulu hækka í sama hlutfalli og aðalkaupið. Þegar vísitalan fer lækkandi, skal reikna uppbót á kaupgjald eftir vísitölunni samkvæmt fram- angreindum reglum frá og með byrjun næsta ársfjórðungs. Þegar vísitalan er komin niður í 105 reiknast engin kaupuppbót. Ákvæði þessi um kauphækk- un ná til verkamanna, sjómanna, verksmiðjufólks og iðnaðar- manna, sem taka kaup samkvæmt samningum milli stéttarfélaga og vinnuveitenda eða kauptöxtum, sem stéttarfélög hafa sett og giltu fyrir gildistöku laganna. Á árinu 1940 er óheimilt að hækka annað kaupgjald í landinu meira en svarar til þeirrar hækk- unar, sem verður á kaupi framan- greindra launþega. Þó er heimilt að greiða sjómönniun sérstaka áhættuþóknun á stríðstímum. Þær einu kaupgreiðslur, sem bannað er að hækka, eru samn- ingsbundnar greiðslur frá sjúkra- samlögum fyrir unnin störf, með- an núgildandi samningar halda. Samningum þessum má segja upp með þriggja mánaða fyrirvara. Ríkisstjórninni er heimilt að ákveða í reglugerð verðlagsupp- bót á laun embættismanna og annara starfsmanna ríkisins, svo og ríkisstofnana. Félagsdómur sker úr ágrein- ingi út af ákvæðum laganna. Kaupgjald það, sem ákveðið er samkvæmt framansögðu, skal gilda sem samningur til 1. jan. 1941. Gildir þetta jafnt, þó að í samningum séu ákvæði um kaup- gjaldsbreytingar vegna hækkunar eða lækkunar á framfærslukostn- aði og gengi. Vilji annarhvor aðili hafa kaupgjald ósamningsbundið frá 1. jan. 1941 skal hann hafa sagt upp með tveggja mánaða fyr- irvara, en eftir þann tíma verður uppsagnarfrestur þrír mánuðir. Verðlag mjólkur og kjöts á inn- lendum markaði skal ekki lengur fylgja kaupgjaldsákvæðum lag- anng og verður það þannig hér eftir á valdi mjólkurverðlags- nefndar og kjötverðlagsnefndar að ráða verðlagi þessara vara. Þau ákvæði gengislaganna frá í vor gilda áfram, að húsaleiga skuli ekki hækka á tímabilinu til 14. maí 1940 og að útgerðarfyrir- Á gamlaárskvöld fluttu fulltrú- ar norrænna skálda ávörp í gegn um útvarpsstöðvar Norðurlanda. Fulltrúi íslendinga var Davíð Ste- fánsson frá Fagraskógi. Hin norr- ænu skáldin voru Gunnar Reiss- Andersen af hálfu Norðmanna, Gunnar Mascott Silverstolpe af Svía hálfu, Jarl Hemmer fyrir Finna og Axel Juel af Dana hálfu. Ávarp Davíðs fer hér á eftir: ísland er ekki lengur einangr- að. Áður gat það dregizt árlangt, að landar okkar hefðu fréttir frá útlöndum. Nú fregnum vér at- burðina samstundis. Vér höfum að þessu leyti færzt nær heiminum. Jafnvel fólkið, sem býr hér út við ströndina, hefir í vetur séð eld- blossa í hafi og heyrt skotdrunur bryndrekanna, tákn þeirrar sið- menningar, sem nú drottnar í stór- veldum Evrópu. Engin erlend frétt hefir á síðari öldum gagntekið hug vorn eins og vitneskjan um hörmungar hinna finnsku bræðra vorra. Við höfum fyllst hryllingi og andstyggð gegn því ofbeldi, sem þeir eru beittir, en jafnframt dáum vér hreysti Finna, og ekk- ert skiljum vér betur en eðli þeirra þjóða, sem elska frelsi sitt og sjálfstæði jafnt lífi sínu. Þótt íslendingar til forna væru engir eftirbátar annarra í hernaði og víking, þá ber þó þjóðin gæfu til þess að varpa frá sér vopnum sínum. Að þessu leyti er hún sér- stæð meðal allra þjóða Evrópu. Og ennþá er það bjargföst trú hennar, að enginn sé sá níðingur fæddur eða óborinn, sem vegur að vopnlausri þjóð. Og enga ný- ársósk eigum vér hjartfólgnari í garð annarra þjóða, en að þeim mætti auðnast að fara að dæmi voru og magnast þeirri friðarhug- sjón, sem vér eigum mesta og fegursta. Því þrátt fyrir allt svíf- ur andi mannúðar og réttlætis yfir blóðvöllum Evrópu. Mann- kynið þráir frið, hinn vopnlausa frið, tækjum sé skylt að ráða sjómenn gegn hluta af afla, ef þeir óska þess. Skal þá um fyrirkomulag hlutaskiptanna farið eftir þeim reglum, sem áður hafa gilt á við- komandi útgerðarstað. íslendingar hafa aldrei unnað landi sínu heitara en í dag og í vitund þeirra er gróandi og vöxtur. Þó að ógnir stríðsins teygi klær sínar upp undir landstein- ana, þá má þó fullyrða, að í dag er ísland friðsælasti bletturinn í allri Evrópu. í svartasta vetrar- skammdeginu hefir blessun friðar- ins yljað þjóðinni eins og sól- geislar innst inn í hjartarætur. Af heilum hug óskum vér bræðra- þjóðum vorum sama hlutskiptis. Það er ekki aðeins hið norræna ætterni, sem tengir hug vorn órjúfandi tengslum, ekki heldur lega landanna, heldur umfram allt hugsjónir vorar, sameiginlegt mat vort á hinum andlegu verðmæt- um, sem gefa lífi voru kjarna og festu. Hlutverk Norðurlandabúa er mikið’ og voldugt, en vilji þeirra einn og hinn sami til varn- ar og frelsandi átaka. Þess vegna treystum vér giftu vorri og heils- um komandi ári bjartsýnir og fagnandi. Nú hækkar sól á lofti og daginn lengir. Eg ber nýárskveðju öllum, sem mál mitt heyra, löndum mín- um heima og erlendis og öllum norrænum mönnum. 25 ára hjúskaparafmœli áttu í gær Hrafnagilshjónin, Valgerður Magnúsdóttir og Hólmgeir Þor- steinsson. Erlingur Friðjónsson var síðastl. þriðjudag búinn að eiga sæti í bæjarstjórn Akureyrar í 25 ár samfleytt. Var þessa minnzt á bæjarstjórnarfundi þann dag. Samkoma verður haldin í þinghúsi Hrafnagilshrepps sunnud. 14. jan. n k. kl. 9 e. m., til ágóða fyrir »FinnIands- söfnunina«. — Davfð skáld Stefánsson flytur erindi. Jón Norðfjörð les upp kvæði. Dansað á eftir. Haraldur spilar. Þýzkt flutningaskip rakst ný- skeð á ísjaka norðvestur af Horni og sökk. Togarinn Hafsteinn kom þar á vettvang og bjargaði allri áhöfninni, 62 mönnum. Skáldakveðja Davíðs Stefánssonar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.